Réttur


Réttur - 01.01.1969, Side 36

Réttur - 01.01.1969, Side 36
létu til sín taka innan SF, bera þess ótvíræð merki að hafa orðið þessum sjúkdómi að bráð. Það er í sannleika sagt ömurlegt að verða vitni að því, þegar pólitísk samtök á borð við SUF og þá i SF sem þeim hafa fylgt að málum, hafa svo gjörsamlega tapað áttum, sem raun ber vitni. SUF mun nú hafa u.þ.b. 4000 félaga. Þessi hópur er mjög virkur I pólitísku starfi og vel skólaður, en þeim mun átakanlegra er að sjá hvernlg samtök- unum virðast mislagðar hendur við úttekt sína á norsku þjóðfélagi og mótun þeirra baráttuaðferða sem heppilegt og rétt sé að beita. Þótt margt sé óumdeilanlega rétt í mati SUF á þjóðfélagsástandinu, stingur þó hitt meir í augun, sem vafasamt má teljast. Út á við kemur þetta fram í óraunsærri byltingarrómantík, taumlausri persónudýrkun, einkum á Maó og Castró og inná- við í bókstafstrú og algerum skorti á umburðar- lyndi gagnvart þeim, sem ekki eru sammála hinni löggiltu útleggingu í einu og öllu. SUF og vinstri armurinn í SF halda því fram, að í Noregi sé að skapast byltingarsinnað ástand. Til að nýta þetta ástand þurfi agaðan og samstilltan flokk, sem á grundvelli kenninga Maó Tse-tungs leiði væntanlega byltingarbarátu til sigurs. Flöfuð- óvinur hinnar byltingarsinnuðu hreyfingar eru sósi- aldemókratar og meirihlutinn I SF, sem gerzt hafa handbendi kapítalismans. Ekki er blæbrigðunum fyrir að fara í þessu mati og allir skornir niður við sama trog. Það má reyndar til sanns vegar færa, að forystu Verkamannaflokksins sé ýmislegt annað eins ofar- lega í huga og að koma á sósíalisma, en hitt er óumdeilanlegt að verulegur hluti óbreyttra flokks- manna krefst stefnubreytingar jafnt í innanríkis- og utanríkismálum. Á sú krafa einhuga stuðning æskulýðssamtaka flokksins. Þessi inngangur er nú orðinn alllangur, og þvi bezt að víkja á nýjan leik að þeim atburðum, sem orðið hafa tilefni þessarar greinar, þingi SF-flokks- ins í febrúar sl. og aðdraganda þess. SÖGULEGT FLOKKSÞING Eftir þing SUF í október sl., þar sem hin um- deilda stefnuskrá var samþykkt, hófust miklar um- 36 ræður innan flokksins og í blaði hans. Voru skoð- anir skiptar um, hvernig rétt væri að bregðast við því, sem gerzt hafði, en flestir voru algerlega and- vígir hinni nýju stefnuskrá. „Orientering" krafðist þess í ritstjórnargrein, að aukafundur flokksstjórn- arinnar tæki af skarið og gerði um það skýra sam- þykkt, að SF héldi fast við grundvallarstefnu sína, þrátt fyrir ályktanir SUF-þingsins. Flokksstjórnarfundurinn var haldinn 13.—14. október og var þar gerð eftirfarandi samþykkt: „Flokksstjórnarfundurinn staðfestir, að SF heldur fast við grundvallarstefnuskrá sína. Hann vísar með þessu á bug stefnuskráratriðum eins og al- ræði öreiganna og miðstjórnarlýðræði í flokknum. Bæði kosningastefnuskrá og grundvallarstefna flokksins verða stöðugt að vera til gagnrýninnar umræðu, og taka breytingum í samræmi við að- stæður á hverjum tíma og þá reynslu, sem flokk- urinn öðlast í baráttu sinni fyrir sósíalismanum. Hvetja verður alla flokksmenn til að taka þátt í þessum umræðum, svo að ákvarðanir flokksins séu ætíð I samræmi við vilja félaganna. Pólitísk stefnuskrá SUF er í grundvallaratriðum frábrugðin stefnuskrá SF, en þing SF hefur viður- kennt SUF sem æskulýðssamtök flokksins. Flokks- stjórnarfundurinn leggur áherzlu á, að þessu verður einungis breytt með ákvörðun á flokksþingi". Þessi samþykkt var gerð með samhljóða atkvæð- um, og létu allir deiluaðilar I Ijósi ánægju með hana og töldu hana „sigur" fyrir sig. Munu sumir þá hafa mænt á staðfestinguna á óbreyttri stefnu- skrá flokksins, aðrir á þá staðreynd að SUF væri áfram viðurkennt sem æskulýðssamtök hans, þrátt fyrir það, sem á undan væri gengið. En I reyndinni var hér um dæmigerða málamiðlun að ræða. Fulln- aðarúrlausn deilumálanna, bæði pólitískra og skipu- lagslegra, var skotið á frest og vísað til flokks- þingsins í febrúar. I umræðum þeim sem áttu sér stað fram að flokksþinginu skýrðust málin talsvert. Margir, sem fram að þessu höfðu staðið utan við deilurnar og leitazt við að varðveita einingu flokksins, komust nú að þeirri niðurstöðu, að andstæðurnar milli hinna stríðandi afla væru nú orðnar ósættanlegar, og flokksþingið yrði að skapa hreinar línur. Berge Furre, fyrrum ritari flokksins ritaði langa grein í Orientering þann 14. desember. Þar fjallaði hann um ástandið í flokknum í dag og gerði út- tekt á starfi hans hingað til. Taldi hann að flokkur- inn hefði að miklu leyti náð þeim frummarkmiðum, j

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.