Réttur


Réttur - 01.01.1969, Side 43

Réttur - 01.01.1969, Side 43
 Á við Afríku nú? ,,Til þess að geta af þekkingu á málefninu dæmt um efnahags- lega þróun Rússlands, hef ég lært rússnesku og síðan árum saman lesið þau prentuð rit, frá hinu opinbera og öðrum, sem snerta málið. Niðurstaðan, sem ég kemst að er þessi: Haldi Rússland á- fram á þeirri leið, sem það lagði inn á eftir 1861, þá sleppir það bezta tækifæri, sem sagan nokkru sinni hefur gefið nokkurri þjóð, og verður að ganga I gegnum allar hinar örlagaríku umbreytingar hins kapitalistíska kerfis". Karl Marx í nóvember 1877, í bréfi til rússneska tímaritsins .Otetschestwennyje Sapiski". Föðurlandssvik 1923 ,,En nú vill háttv. meirihluti fara þessa leið og gefa útlendingunum allan þann framtíðargróða, sem vér getum haft af notkun fallvatnanna. ÉQ er ekki fyrir að nota stór orð, en get þó ekki látið hjá líða að flytja þessari háttv. deild þá orð- sendingu frá fyrrverandi forseta efri deildar, fyrrverandi meðnefnd- armanni mínum, Guðmundi Björns- syni landlækni, eftir beinum til- mælum hans, að hann geti ekki skoðað þetta öðruvlsi en föður- landssvik". Jón Þorláksson, síðar fyrsti formaður Sjálfstæðisflokks- ins, I þingræðu 3. maí 1923. Viðvörun 1948 ,,Nú verða það ekki smáfélög eins og „Titan" eða „Island", sem reyna að klófesta auðlindir fall- vatnanna, heldur voldugustu auð- hringar heims. Og þar sem áður þótti allt öruggt, ef valdið til virkj- unar og veitingar sérleyfa væri í höndum landsstjórnarinnar, en forðað undan valdi erindreka fossafélaganna, þá stefna nú er- lendir auðdrottnar svo hátt að ætla að gera sjálfa ríkisstjórn hins ný- stofnaða íslenzka lýðveldis að er- indrekum sínum til þess að leppa þau yfirráð, sem þeir hyggja á að ná yfir framtíðarauðlindum lands- ins". Einar Olgeirsson, í „Islenzk stóriðja í þjónustu þjóðarinn- ar“, Réttur 1948. Herstöðvar 1946 „Hinsvegar töldu islendingar að réttur tii herstöðva á fslandi er- lendu riki til handa væri ekki samrýmanlegur sjálfstæði fslands og fullveidi" . .. I fyrra báðu Bandaríkin okkur um Hvalfjörð, Skerjafjörð og Keflavik. Þau fóru fram á lang- an leigumála, kannske 100 ár, vegna þess að þau ætluðu að leggja í mikinn kostnað. Þarna áttu að vera voldugar herstöðvar. Við áttum þarna engu að ráða. Við áttum ekki svo mikið sem að fá vitneskju um, hvað þar gerðist. Þannig báðu Bandaríkin þá um land af okkar landi til þess að gera það að landi af sínu landi. Og margir óttuðust að siðan ælti að stjórna okkar gamla landi frá þeirra nýja landi. Gegn þessu reis íslenzka þjóðin." Ólafur Thors 20. september 1946 á fundi í sameinuðu al- þingi um „niðurfellingu her- verndarsamningsins frá 1946“ Einangrunar- og tækifæris- stefna „Vígreifir brezkir verkamenn, sem eigin reynsla hafði kennt að hata stjórnmálastefnu endurbóta- sinnuðu leiðtoganna, gátu hæg- lega, — þegar þeir tóku að slíta sig lausa frá tækifærisstefnunni — svo að segja rifið sig upp með rótum úr verklýðshreyfingunni, og í byltingarsinnaðri andúð sinni ein- angrað sig frá þeim verkamanna- fjölda, sem enn var undir áhrifum tækifærissinna. Einangrunarstefn- an var hin hliðin á tækifærisstefn- unni, afsprengi hennar og and- stæðingur, en aðstoðaði hana ó- vart oft". James Klugmann: History of the Communist Party of Great Britain. I. bindi. 1968. Stúdentar og verkamenn „I því ástandi, sem við nú búum við, hafa eftirfarandi orð Lenins frá 1901 gildi: „Stúdentinn kom verkamanninum til hjálpar, — verkamaðurinn verður að koma stúdentinum til hjálpar." Mikilvæg bending viðvíkjandi myndun og þróun bandalags verkalýðs og menntamanna, einkum á skeiði vísinda- og tæknibyltingar". Willi L. Becker (KPD) á ráð- stefnu World Marxist Review 12—13. júni 1968 i Prag um stúdenta- og æskulýðshreyf- inguna í auðvaldslöndunum. 43

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.