Réttur


Réttur - 01.01.1969, Síða 46

Réttur - 01.01.1969, Síða 46
lítil og samkomulagið m.a. fellt í einu sjó- mannafélaginu. MIKILVÆG VIÐURKENNING Samkomulagið fól í sér tvö meginatriði. Hið fyrra að hluti fæðiskostnaðar skyldi greiddur; hið síðara að sjómenn fengju aðild að lífeyrissjóði.. I þessu tvennu felst mikilvæg viðurkenning á tveimur gömlum baráttumál- um sjómannastéttarinnar og að vonum lögðu samninganefndarmenn sjómanna mikla áherzlu á þessi atriði. Hins vegar gagnrýndu margir sjómenn hvernig þessi viðurkenning átti sér stað. I samningunum fólst, að sjómenn á bátum undir 150 tonnum fengju 85 krónur á dag í fæðispeninga, en 100 krónur á dag á stærri bátum. Þetta átti að greiðast úr sjóði sem fengi tekjur af 1% útflutningsgjaldi, þannig að þetta kom út sem lækkað fiskverð og því greitt af sjómönnum jafnt sem útgerðar- mönnum. Þetta þýddi einnig að skipstjóri greiddi í rauninni tvöfalt meira í fæðissjóð- inn en hásetinn og að togarasjómenn, sem þegar höfðu frítt fæði urðu einnig að borga í sjóðinn. Þó kemur þetta ranglátast út gagn- vart smábátamönnum, sem hafa lágan fæðis- kostnað og taka skrínur að heiman á sjóinn. Einnig þeir þurftu að borga í fæðissjóðinn í lægra fiskverði. Þá var gert ráð fyrir því í samningunum að það tæki sjómenn þrjú ár að ná fullri að- ild að lífeyrissjóði, og átti fyrsti áfangi að koma til framkvæmda á næsta ári. Þetta at- riði er einkum athugavert með tilliti til þess að ríkisstjórnin hefur lofað lífeyrissjóði fyr- ir alla landsmenn á kjörtímabilinu þ.e. í síð- asta lagi á næsta ári, 1970, en lokaáfangi líf- eyrissjóðs bátasjómanna á samkvæmt sam- komulaginu að komast í framkvæmd 1972! Nú, þegar hásetar höfðu samþykkt kjara- samningana við dræmar undirtektir að vísu, héldu áfram samningaviðræður við yfirmenn á bátaflotanum, þ.e. skipstjóra, stýrimenn og vélstjóra. Sáttasemjari lagði miðlunartillögu fyrir fund í félögum yfirmanna 13. febrúar, en hún var kolfelld, 218 já, 319 nei! Þegar svo var komið lét ríkisstjórnin sig hafa það að koma fram á sjónarsviðið með þrælasvipuna og lagði fram á alþingi frum- varp til þess að banna verkfall yfirmanna og löggilda jafnframt miðlunartillögu sátta- semjara, sem yfirmennirnir höfðu kolfellt. Frumvarpið var keyrt í gegnum alþingi á einum degi, en verkfall hafði þá staðið í fimm vikur og ekkert verið róið frá ára- mótum. Þannig hafði ríkisstjórninni tekizt að eyðileggja hundruð miljóna króna í verðmætum fyrir þjóðarbúinu. Þannig hafði stjórninni í þessu máli tek- izt að fylgja fram kauplækkunarstefnu þeirri, sem mörkuð var með gengisfellingunni í nóvembermánuði síðastliðnum. Hún hóf deil- una með skerðingu hlutaskiptanna, hún var beinn þátttakandi í deilunni með fiskverð- inu og hún stöðvaði verkfall sjómanna með þrælalögum. Það vakti mikla athygli er frumvarpið að þrælalögum var til umræðu á alþingi, að forseti ASI lýsti því yfir að hann myndi sitja hjá við atkvæðagreiðslu um málið — vildi ekki bregða fæti fyrir samþykkt þrælafrum- varpsins! KAUPLÆKKUN En skammt er stórra högga í milli. Þegar ríkisstjórnin hafði neytt sjómenn út á haf, lét hún falla annað högg ekki vægara. Það var 20. febrúar, sem atvinnurekendur í Vinnuveitendasambandinu og Vinnumála- 46

x

Réttur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.