Réttur - 01.10.1985, Page 23
ÁSMUNDUR HILMARSSON:
Orð um
atvinnumál og fleira
Alla síðustu öld hefur atvinnuskiptingin hér á landi verið í fullu samræmi við
þá atvinnubyltingu, sem hefur orðið hjá öðrum velmegandi þjóðum; Þeim, sem
vinna að frumvinnslu fækkar hlutfallslega samhliða mikilli afkastaaukningu.
Þeim, sem vinna í viðskiptum, við samgöngur, iðnað og ýmiskonar þjónustu hef-
ur fjölgað að sama skapi. Eftir heimsstyrjöldina síðari hafa þessar atvinnugreinar
tekið til sín nánast alla, sem hafa bæst nýir við á vinnumarkaðinn. Tölfræðilega
hefur þeim einnig fjölgað nokkuð, sem eru taldir vinnandi.
Útflutningur
Arin 1945-1959 var útflutningur vöru
og þjónustu að meðaltali 27% af þjóðar-
framleiðslunni. Sömu ár var innflutningur
umfram útflutning 4% af þjóðarfram-
leiðslu að meðaltali. Hinsvegar var út-
flutningur vöru og þjónustu að meðaltali
um 42% af þjóðarframleiðslu áranna
1972-1981. Sömu ár var innflutningur
umfram útflutning tæplega 3,5% af þjóð-
arframleiðslu að meðaltali.
Viðskiptajöfnuður
Sé litið yfir síðastliðin hundrað ár kem-
ur í Ijós að fram að síðari heimsstyrjöld
var vöruskiptajöfnuðurinn yfirleitt hag-
stæður. Óhagstæður vöruskiptajöfnuður
er því tiltölulega nýtt fyrirbrigði í sögu
okkar. Á ýmsu hefur gengið með þjón-
ustujöfnuðinn eftir síðari heimsstyrjöld.
Þó hefur hann oftast verið hagstæður
þangað til kemur fram til ársins 1977. Síð-
199