Réttur - 01.10.1985, Qupperneq 27
ina núna. Almennt skortir skýra stefnu-
mótun fyrir atvinnulíf okkar og flest því
tengdu.
Fé fer ekki til framieiðsluiðnaðar
Eins og fram hefur komið eru fleiri en
við að berjast við sömu vandamál. Til
viðbótar þeim, sem við eigum sameigin-
leg, hafa nágrannaþjóðir okkar þurft að
berjast gegn atvinnuleysi. Hægri sinnaðar
n'kisstjórnir hafa reynt sig, með litlum ár-
angri, við að leysa mál sín með því að
auka það fé, sem atvinnurekendur og
kaupsýslumenn hafa til ráðstöfunar. f>ær
vonir hafa verið við það bundnar, að með
því mundu fjárfestingar í framleiðsluat-
vinnuvegum aukast. Sú hefur raunin ekki
verið. Það fé, sem til þess var ætlað hefur
farið í fjárfestingar umráðamanninum
arðsamt eins og á stendur hverju sinni.
Fé ávaxtast einfaldlega betur annarsstað-
ar en í framleiðslu. Lánsfé er umráða-
manninum arðbærara en hlutafé. Jarð-
næði í nágrenni stórborga einnig. Gjald-
eyrir gengur kaupum og sölu á verði, sem
ekki er samkvæmt virði þeirra áður fyrr
heldur hækkar það eða lækkar af orsök-
um, sem áður voru óþekktar í gjaldeyris-
viðskiptum. Og svona mætti áfram telja
lengi.
Eru launamannasjóðir þáttur
í lausninni?
Síðast liðin 10-15 ár hefur allmikil um-
ræða farið fram í Vestur-Evrópskri verka-
týðshreyfingu um á hvaða hátt megi reyna
að snúa núverandi þróun við. Launa-
mannasjóðir hafa þar verið ofarlega á
haugi. Á þjóðþingum landanna hafa, fyr-
>r tilstilli verkalýðshreyfingarinnar, verið
Outt frumvörp þess efnis. Hér á landi eru
efalaust þekktastar hugmyndir sænsku
verkalýðshreyfingarinnar og frumvarp
sænsku sósíaldemókratanna í Riksdagen.
Hér á landi hafa þeir Ragnar Arnalds,
Helgi Seljan og Skúli Alexandersson flutt
frumvarp um fjárfestingasjóð launamanna.
35. þing Alþýðusambands íslands hefur
einnig fjallað um launamannasjóði.
í fyrstu grein frumvarps þeirra
Ragnars, Helga og Skúla segir að fjárfest-
ingasjóði launamanna sé ætlað það
hlutverk:
1. Að stuðla að innlendum sparnaði og
draga þar með úr erlendum lántökum
þjóðarinnar.
2. Að fjárfesta í atvinnulífi og efla at-
vinnuvegi landsmanna.
3. Að ávaxta inneignir launamanna í
sjóðnum og auka eignaraðild þeirra í
atvinnurekstri.
Ef ég hinsvegar reyni að draga saman
mikilvægustu efnisatriði umræðunnar í
verkalýðshreyfingu nágrannalandanna til
samanburðar þá eru þau að mínu mati
þessi:
í fyrsta lagi er gengið út frá því að kost-
ir markaðarins fái notið sín en arðinum af
honum verði öðru vísi deilt en nú er. Það
hefur verið þannig orðað að frjálshyggjan
leggi ofuráherslu á markaðinn en láti sig
engu skipta réttlætið en öfgasósíalisminn
leggi ofuráherslu á réttlætið en láti sig
markaðinn engu skipta. Þessi sjónarmið
er reynt að brúa með launamannasjóð-
um.
Tilgangi og markmiðum sjóðanna má
skipta í fimm flokka:
Áhrif á atvinnustefnu
Launamannasjóði hugsar verkalýðs-
hreyfingin sér að notaðir verði til þess að
minnka núverandi atvinnuleysi og tryggja
ný störf í framtíðinni. Pá á að nota til þess
203