Réttur - 01.10.1985, Síða 37
J,,n Guðmundsson frá Þrasastöðum, forgöngumað-
Ur að stofnun Verklýðsfélags Ólafsfjarðar 3. des.
1933, og fyrsti formaður þess. Hann gengdi niörgum
trúnaöarstörfum fyrir félagið þar til hann fluttist af
lúlagssvæðinu 1937.
Þessvegna var það þegar útgerðarmenn
ákváðu að lækka útgerðarkostnað með
Því að láta greiða olíu af óskiptum afla,
þótti hlutarmönnum gengið á sinn hlut.
í þeim tiigangi að styrkja stöðu sína í
Þessari kjarabaráttu stofnuðu sjómenn og
verkamenn Verklýðsfélag Ólafsfjarðar 3.
des. 1933.
Aðalhvatamaður að stofnun félagsins
°8 fyrsti formaður þess var Jón Guð-
Wundsson frá Þrasastöðurn í Stíflu. Lengi
aiinntust menn óeigingjarnra starfa hans
1 Þágu félagsins fyrstu og erfiðustu árin.
^ann flutti af félagssvæðinu 1937.
Með Jóni í fyrstu stjórn félagsins voru
kosnir:
Magnús Magnússon, Hartmann Páls-
son, Kristinn Sigurðsson, Guðvarður Sig-
urðsson og Randver Sæmundsson. Allir
voru þessir menn í forustuliði félagsins
lengi síðan og gengdu margháttuðum
trúnaðarstörfum fyrir samtökin.
Yerkfallið 1936
Mánudaginn 19. október 1936 var lýst
yfir verkfalli við Skólpræsagerð í Ólafs-
firði. Pað var fyrsta verkfallið í sögu Verk-
lýðsfélagsins. Verkfallið stóð í 7 daga og
var leyst með samningi við hreppsnefnd
Ólafsfjarðarhrepps. í verkfallinu og við
samningagerðina naut félagið aðstoðar
Steingríms Aðalsteinssonar frá Verklýðs-
sambandi Norðurlands.
Sveitastjórnarkosningar 30. jan.
1938
Árið 1938 varð viðburðarríkt á sviði
félagsmála í Ólafsfirði eins og víðar um
land.
Sveitastjórnarkosningarnar 30. janúar
voru fyrstu hlutfallskosningar til hrepps-
nefndarkjörs í Ólafsfirði. Listi sem Verk-
lýðsfélagið bauð fram hlaut 108 atkvæði
og 2 menn (af 5 hreppsnefndarmönnum).
Fulltrúar félagsins voru:
Sigursteinn Magnússon skólastjóri og
Páll Sigurðsson kennari, sem lengi var rit-
ari Verklýðsfélagsins.
Með þessum kosningum urðu breyting-
ar á viðhorfum til sveitarstjórnarmála í
hreppnum. Frá upphafi hafði verið ríkj-
andi þröngsýn einstaklingshyggja, en nú
komu oftar til umræðu ýmiskonar menn-
ingar og félagsmál og framtíðarhagsmun-
ir sveitarfélagsins.
213