Réttur - 01.10.1985, Síða 63
anna, eftir að búið er að vinna úr því.
Þróunarlöndin töpuðu milli áranna
1981-85 60 miljörðum dollara bara með
lækkun á útflutningsafurðum þeirra. —
Jafnframt hefur salan stórminnkað. —
Skuldir Afríkulanda voru í lok 6. áratugs-
ins 60 milljarðar, en eru 1985 orðnar 150
milljarðar. (Með „þróunarlöndum“ er
hér átt við hin svokölluðu AKP-lönd, þ.e.
Afríku-, Karabísku- og Kyrrahafslöndin).
Afleiðing alls þess arðráns auðhring-
anna á öll þróunarlönd (Rómanska Amer-
íka með) er eftirfarandi: 1 milljarður
manna sveltur, 40.000 börn deyja daglega
af vinnuþrælkun, sjúkdómum og skorti.
Barnadauði í þróunarlöndunum er tví-
tug-faldur á við auðvaldslöndin og meðal-
ævi þar 20 árum styttri. 800 milljónir full-
orðinna í þróunarlöndunum eru ólæsir og
óskrifandi. 250 milljónir barna geta ekki
sótt skóla.
Alþjóðaauðhringirnir, fyrst og fremst
bandarískir, ráða 40% af iðnaðarfram-
leiðslu þróunarlandanna og 50% af utan-
ríkisverslun þeirra.
Gróði bandarískra auðhringa og
arðrán á verkalýð
Sem dæmi um gróða bandarískra auð-
hringa má taka Exxon, olíuhringinn.
„Brutto“-gróði hans var 1983 32,8 mill-
jarðar dollara. En þegar hann var búinn
að draga allt frá af fríðindum, sem skatta-
yfirvöldin veita þeim, þá voru eftir 5,5
milljarðar! Raunverulegur gróði hrings-
ins var 23,8 milljarðar dollara.
Launasamningar 1980-81 þýddu að
handarískir verkamenn tapa 200 milljörð-
um dollara sem fara í hít auðhringanna,
sem hótuðu uppsögnum og lokunum
vinnustöðva.
Á árunum 1978 til ’82 minnkuðu meðal-
tekjur hvítra bandarískra fjölskyldna um
9%, svartra um 16%.
„Newsweek“, hið kunna ameríska
tímarit, segir að yfir 30 milljónir Banda-
ríkjamanna lifi undir fátæktarmarkinu,
hjá þeim hvítu eru þeir fátæku 11%, hjá
„Chicanos“ (þ.e. mexíkönum o.fl.)
26,3%, hjá negrum 34,2%. En hjá indí-
ánum eru það 70%, enda vannærðir,
meðalaldur þeirra er 47 ár, en hjá Banda-
ríkjamönnum almennt 71 ár.
Bandaríkin og indíánar
Fyrir rúmum tveim öldum voru til um
20 milljónir indíána — og áttu Ameríku.
Það eru eftir ein og hálf milljón.
Meir en 50% indíánanna býr við fátækt.
49% indíána eru atvinnulausir.
Hjá þessum frumbyggjum Ameríku er
barnadauðinn 3,7 sinnum meiri en annars
að meðaltali.
Berklaveiki er orðin sjaldgæf hjá hvít-
um íbúum Ameríku, en útbreidd hjá
indíánum.
Á þessu ári var lagt franr lagafrumvarp
á Bandaríkjaþingi um að 357 milljónum
dollara væri varið til heilsugæslu og
sjúkrahjálpar á hinum afgirtu svæðum,
sem indíánar búa á. Forsetinn í „hvíta
húsinu“ beitti neitunarvaldi til þess að
hindra samþykkt slíks lagafrumvarps.
239