Réttur - 01.10.1985, Page 64
W
NEISTAR
Örlög Bandaríkjanna?
„Bandaríki Norður-Ameríku
virðast hafa hlotið það hlutskipti af
forsjóninni að þjaka Ameríku með
eymd í nafni frelsisins."
Simon Bolivar
(frelsishetja Sudur-
Ameríku í frelsisstríðinu
við Spán, lifði 1783-1830)
„Við verðum að öðlast frelsið án
nokkurra skaðabóta til kúgar-
anna.“
Fidel Castro
(á fundi 1200 fulltrúa frá 37
ríkjum rómönsku Ameríku
í Havanna, 30. 7. - 3. 8.
1985)
„Hin vaxandi neyð undirstjett-
anna er meinsemd, sem hinir fá-
vísu herlæknar reyna að afnema
með blóðtökum, en slíkar blóðsút-
hellingar munu aðeins gera meinið
verra... Aðeins fjelagslegar hug-
sjónir geta bjargað úr hinni ægi-
legu neyð, er, svo jeg taki mjer orð
Saint Simons í munn, í hafnarvirkj-
um Englands er ekki ein einasta
mikil hugsjón til, ekkert nema gufu-
vjelar og hungur. Nú er að vísu
uppreisnin bæld niður, en með tíð-
um uppþotum getur að því komið,
að ensku verksmiðjuverkamenn-
irnir, sem nú kunna aðeins að
vinna úr baðmull og sauða-ull,
reyni sig dálítiö einnig við manna-
kjöt, og læri að lokum þessa blóð-
ugu iðju af álíka list og stjettar-
bræður þeirra, verkamennirnir í
Lyons og París, og þá gæti svo
farið, að sigurvegari Napoleons,
marskálkurinn, lávarðurinn Well-
ington, — sem nú hefur aftur tekið
að sjer yfirböðulsembætti sitt, —
fyndi sitt Waterloo mitt í Lundúna-
borg. Á sama hátt gæti einnig bor-
ið svo við að hermenn hans neit-
uðu að hlýða meistara sínum. Það
ber nú þegar á viðsjárverðum
merkjum slíks hugsunarháttar í
breska hernum, og nú sitja 50 her-
menn í Tower-fangelsinu í Lund-
únum, sem neitað hafa að skjóta
á lýðinn. Vart er það trúlegt, en
samt er það satt, að þessir ensku
rauðstakkar hlýddu ekki skipun
liðsforingja sinna, heldur rödd
mannúðarinnar, og gleymdu svipu
þeirri, sem kölluð er kötturinn með
níu rófurnar (the cat of nine tails)
og vofir sem sífelld ógn yfir hetju-
hryggjum þeirra mitt í stoltri höfuð-
borg breska frelsisins — hnúta-
svipa Stórabretlands! Það er átak-
anlegt að lesa um, hvernig kon-
urnar gengju grátandi móti her-
mönnunum og hrópuöu til þeirra:
„Við þurfum ekki kúlur, við þurfum
brauð". Karlmennirnir krosslögðu
armana og sögðu: „Skjótið þið
hungrið til bana, ekki okkur og
börn vor“. Almenna hrópið var:
„Skjótið ekki, viö erum allir
bræður!"
Heinrich Heine:
Französische Zustánde.
1842.
(Heine var snillingur í
blaðamennsku jafnt sem
Ijóðagerð.)
Jesús frá Nasareth um
lögvitringana
„En hann (Jesús) mælti: Vei
yður líka, þér lögvitringar, því að
þér íþyngið mönnum með líttbær-
um byrðum, og sjálfir snertið þér
byrðarnar ekki með einum fingri.“
(Lúkas 11, 46)
Postularnir um
auðmennina
„Heyrið nú, þérauðmenn, grátið
og kveinið yfir þeim eymdum, sem
yfir yður munu koma. Auður yðar
er orðinn fúinn og klæði yðar eru
orðin möletin, gull yðar og silfur er
orðið ryðbrunnið og ryðið á því
mun verða yður til vitnis og eta
hold yðar eins og eldur; þér hafið
fjársjóðum safnað á síðustu dög-
unum. Sjá, laun verkamannanna,
sem hafa slegið lönd yðar, þau er
þér hafið haft af þeim, hrópa, og
köll kornskurðarmannanna eru
komin til eyrna Drottins hersveit-
anna. Þér hafið lifað í sællífi á
jörðinni og í óhófi; þér hafið alið
hjörtu yðar á slátrunardegi. Þér
hafið sakfellt, þér hafið drepið hinn
réttláta; hann stendur ekki í gegn
yður.“
Jakobs bréf 5, 1-6.
Trú án verka
„Eru það þó ekki hinir ríku, sem
undiroka yður og draga fyrir dóm-
stóla?...“
„Hvað stoðar það, bræður
mínir, þótt einhver segist hafa trú,
en hefir ekki verk? Mun trúin geta
frelsað hann?...“
„Eins er lika trúin dauð í sjálfri
sér, vanti hana verkin."
Jakobs bréf 2, 7,.
14-15, 17.
240