Fréttablaðið - 06.03.2009, Blaðsíða 8
8 6. mars 2009 FÖSTUDAGUR
SJÁVARÚTVEGSMÁL Hrefna étur
árlega allt að 300.000 tonn af
þorski og ýsu sem er fimmfalt
meira magn en eldri rannsókn-
ir hafa sýnt. Þetta sýna niður-
stöður rannsókna Hafrannsókna-
stofnunar á árunum 2003-2007.
Til samanburðar er heildarafla-
mark þorsks og ýsu á yfirstand-
andi fiskveiðiári um 250.000 tonn.
Áætlað er að hrefnan við landið
éti árlega um tvær milljónir tonna
af fiski. Þessar niðurstöður voru
kynntar í erindi þeirra Gísla A.
Víkingssonar, hvalasérfræðings
Hafrannsóknastofnunar, og sam-
starfsmanna hans á Hafráðstefnu
stofnunarinnar fyrir skömmu.
Bolfiskur var fjórðungur inni-
halds hrefnumaga í umræddum
rannsóknum og þar af ýsa um 7
prósent magainnihaldsins, þorsk-
ur 8 prósent og annar bolfiskur 11
prósent.
Athygli vekur að loðna reynd-
ist aðeins um 8 prósent af fæðu
hrefnunnar og síld 14 prósent.
Rannsóknirnar sýna miklar breyt-
ingar í fæðusamsetningu hrefnu á
árabilinu 1985-1995 annars vegar
og svo 2003-2007 hins vegar. Það
er talið benda til þess að hrefn-
an lagi sig að fæðuframboðinu í
hafinu og éti í raun það sem hún
kemst í hverju sinni.
- shá
Rannsóknir Hafrannsóknastofnunar á fæðuvenjum hrefnu á Íslandsmiðum:
Étur meira en flotinn veiðir
HREFNA Ein helstu rökin fyrir veiðum á
hrefnu er át hennar á bolfiski. Niður-
stöður benda til að hún taki meira til sín
en talið var.
Stilling hf. • Sími 520 8000 • www.stilling.is • stilling@stilling.is
Hemlar
VINSTRI GRÆN
www.vg.is
Kjörskrá lokar á miðnætti á föstudag.
Nánari upplýsingar á www.vg.is og hjá kjörstjórn í síma 840 6861.
FORVAL
VINSTRI GRÆNNA
Í REYKJAVÍK
Utankjörfundur er í dag föstudaginn 6. mars.
Utankjörfundur Suðurgötu 3 kl. 16 – 21
ATVINNULÍF Hér þarf að lækka vexti,
endurreisa bankakerfið, afnema
gjaldeyrishöft, semja við erlenda
kröfuhafa, auka útflutningstekj-
ur, blása lífi í fasteignamarkaðinn
og sækja um aðild að Evrópusam-
bandinu og taka upp evru. Þetta
eru forgangsmálin sem tínd eru til
í ályktun Iðnþings 2009 sem fram
fór í gær.
„Sundurlyndi og stefnuleysi
stjórnmálamanna og stjórnvalda
sem bera ábyrgð á verkstjórn og
úrlausn ýmissa lykilþátta sem
greiða verður úr er grafalvarlegt,“
segir í ályktuninni og minnt á að
atvinnulíf hér sé að sligast undan
ofurvöxtum, verðbólgu, gengis-
breytingum, gjaldeyrishöftum og
höktandi bankakerfi. „Sama gild-
ir um fjölmörg heimili og atvinnu-
leysi hefur ekki verið meira um
langt árabil.“
Helgi Magnússon, sem í gær var
endurkjörinn formaður Samtaka
iðnaðarins, sagði mikilvægt að
vinna úr þeirri stöðu sem hér væri
upp komin og láta af neikvæðni og
sökudólgaleit sem litlu skilaði.
„Á næstu mánuðum og misserum
munum við ekki komast hjá því að
finna gjaldmiðlamálum Íslendinga
nothæfan farveg. Tilraunin um
íslensku krónuna er fullreynd. Hún
mistókst. ... Við verðum að greiða
úr gjaldmiðlavanda þjóðarinnar af
fullri ábyrgð. Það gerum við best
með upptöku evru eftir inngöngu í
Evrópusambandið,“ segir hann.
Evrópumálin voru frummælend-
um á Iðnþinginu sumum hverjum
hugleikin. Þannig kvaðst Össur
Skarphéðinsson iðnaðarráðherra
vera einn elsti Evrópusinninn á
þingi og ekki vafi í hans huga um
að hefja ætti sem fyrst umsóknar-
ferli í Evrópusambandið. Þá sagði
Þórður Magnússon, stjórnarfor-
maður Eyris Invest, að aðild væri
„ekki valkostur heldur nauðsyn“.
Án aðildar myndu fyrirtæki hér
ekki geta vaxið nema flytja höfuð-
stöðvar til útlanda.
Þórður lagði jafnframt áherslu
á að bætt lífskjör hér héldust í
hendur við árangur í alþjóðavæð-
ingu og frekari útflutning. Hann
sagði einnig mikilvægt að styðja
við frumkvöðlastarf, en benti um
leið á að þar væri verið að sá til
lengri tíma og óvíst um uppskeru.
Á langri leið gæti margt farið af-
laga. „Hér þarf að bæta skattalega
hvata til fjárfesta og hægt að auka
skattalega hvata til rannsókna og
þróunar, sem ég tel að séu hag-
kvæmustu störf sem hægt sé að
stunda í íslenskum iðnaði í dag,“
sagði Þórður. olikr@frettabladid.is
GRANNT FYLGST MEÐ Svein Harald Øygard
seðlabankastjóri var meðal erlendra gesta
á Iðnþingi 2009 í gær. Ræður og dagskrá
voru þýddar jafnóðum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Kalla á evru og
umsókn að ESB
Samtök iðnaðarins segja hér fullreynt með eigin
mynt og peningastjórnun. Vextir verði að lækka.
Á IÐNÞINGI 2009 Helgi Magnússon var endurkjörinn forseti Samtaka iðnaðarins í
fyrri hluta dagskrár Iðnþings fyrir hádegi í gær. Eftir hádegið var blásið til ráðstefnu
samtakanna á Grand Hótel Reykjavík. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
„Í þeirri efnahagsáætlun sem nú
er fylgt í samstarfi við Alþjóða-
gjaldeyrissjóðinn sýnist veikasti
hlutinn vera stefnan í gjaldeyris- og
peningamálum sem er eins og
hver annar Akkilesarhæll. Engin
atvinnustarfsemi getur keppt við
atvinnulíf neins staðar í heiminum
á lánakjörum sem fylgja hinum
ofurháu stýrivöxtum,“ segir Ólafur
Ísleifsson, lektor við viðskiptadeild
Háskólans í Reykjavík. Hann flutti
erindi á Iðnþingi í gær undir yfir-
skriftinni „Úr hruni til hagsældar“.
Einna brýnast segir hann að marka
framtíðarstefnu í gjaldeyris- og pen-
ingamálum og kallar eftir svörum frá
stjórnmálaöflunum. Þá segir hann
stjórnvöld verða að gera gangskör í
að ljúka uppgjöri nýju bankanna.
LEIÐIN ÚR HRUNI TIL HAGSÆLDAR
ALÞINGI Alþingismenn, ráðherr-
ar, hæstaréttardómarar og forseti
Íslands munu, frá 25. apríl, njóta
sömu lífeyrisréttinda og opinber-
ir starfsmenn.
Alþingi samþykkti í gær afnám
eftirlaunalaganna sem deilt hefur
verið um frá samþykkt 2003.
Upphaflega var ráðgert að láta
nýju lögin taka gildi 1. apríl en
hyggilegra þótti að seinka gildis-
tökunni til kjördags svo ekki yrði
skörun á milli lífeyriskerfa hjá
fólki sem hverfur af þingi við
kosningarnar. 34 þingmenn úr
öllum flokkum greiddu atkvæði
með frumvarpinu. 29 þingmenn
voru fjarstaddir. - bþs
Sérréttindi afnumin:
Eftirlaunalög úr
gildi á kjördag
1. Hver gaf nýlega út hljóm-
plötuna For the rest of my
childhood?
2. Hvað heitir forstjóri Land-
helgisgæslunnar?
3. Hver skoraði mark Newcastle
í deildarleik gegn Manchester
United á miðvikudag?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU 34
STÓRIÐJA Rannveig Rist, forstjóri
Alcan á Íslandi, gagnrýndi á Iðn-
þingi í gær fullyrðingar, þeirra
á meðal frá
Indriða H.
Þorlákssyni,
ráðuneytis-
stjóra, um að
ávinningur
fyrir efnahags-
líf þjóðarinn-
ar af álver-
um sé lítill.
Rannveig sagði að árið 2007 hafi
álverið greitt 1,4 milljarða króna
í tekjuskatt. Eins hafi álverið
keypt vörur og þjónustu af rúm-
lega 800 íslenskum aðilum fyrir
5,4 milljarða króna árið 2008,
fyrir utan orkukaup. „Þegar allt
er talið – orkukaup, laun starfs-
manna, opinber gjöld og vörur
og þjónusta sem keypt er af inn-
lendum aðilum – er um 40 prósent
af veltu álversins í Straumsvík
kostnaður sem fellur til á Íslandi.
Í fyrra voru það tæplega 19 millj-
arðar króna, eða að jafnaði einn
og hálfur milljarður á mánuði“,
sagði Rannveig í erindi sínu. - shá
Álverið í Straumsvík:
Skiptu við 800
aðila árið 2008
RANNVEIG RIST
Baráttudagur kvenna
Í tilefni af Alþjóðlegum baráttudegi
kvenna fyrir friði og jafnrétti sunnu-
daginn 8. mars verður haldinn opinn
fundur í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavík-
ur . Fundurinn hefst klukkan 14.
MENNINGARMÁL
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki
VEISTU SVARIÐ?