Fréttablaðið - 06.03.2009, Side 11
FÖSTUDAGUR 6. mars 2009
ATVINNUMÁL „Margir hafa velt því
fyrir sér hvort með þessu sé verið
að hvetja fólk til að flytja úr landi.
Ég verð að viðurkenna að þetta kom
upp í hugann á mér, en eftir að hafa
farið yfir stöðuna og lagt mat á
atvinnuleysi og -horfur hér á landi
tel ég það skyldu mína að greiða
fyrir þessu samkomulagi,“ sagði
Ásta Ragnheiður Jóhannesdótt-
ir, félags- og tryggingamálaráð-
herra, við undirritun samkomulags
um tímabundna atvinnumöguleika
fyrir Íslendinga í Manitoba-fylki í
Kandada í gær.
Samkomulagið felst meðal ann-
ars í því að stjórnvöld í Manitoba
munu gefa út tímabundin atvinnu-
leyfi fyrir faglærða Íslendinga og
mun útgáfa leyfanna ráðast af þörf
atvinnulífsins í Manitoba. Einnig
munu íslensk stjórnvöld hafa milli-
göngu um samskipti milli kanad-
ískra atvinnurekenda og atvinnu-
leitenda hérlendis.
Samkvæmt samkomulaginu eru
Íslendingar, sem fá tímabundið
atvinnuleyfi af þessu tagi, sjúkra-
tryggðir frá fyrsta degi. Börnum
þeirra stendur til boða að sækja
skóla og mökum þeirra verður
tryggt atvinnuleyfi. Ásta Ragn-
heiður segist vonast til að Íslend-
ingar sem nýta sér þetta tækifæri
snúi aftur heim, þar sem reynsla
þeirra muni nýtast íslensku sam-
félagi.
Nancy Allan, ráðherra atvinnu-
og innflytjendamála í Manitoba,
segir sambærilega samvinnu við
önnur ríki, meðal annars Þýska-
land, hafa gefist afar vel og auðg-
að mannlífið í Manitoba. Spurð um
nýlega gagnrýni frá heimamönnum
í fylkinu, sem sumir telja að heldur
ætti að setja atvinnusköpun fyrir
Kanadamenn í forgang en að bjóða
útlendingum vinnu, segist Allan
ekki búast við að sú gagnrýni verði
langlíf. „Við höfum orðið vör við
örlitla gagnrýni frá einum minni-
hlutahópi, en ég er þess fullviss
að þegar fólk gerir sér grein fyrir
þessum einstæðu menningarlegu
tengslum sem ríkja milli Íslands
og Manitoba muni það sætta sig við
þessa tilhögun. Það eru mörg störf
í boði fyrir faglærða í Manitoba og
ég held að þessi samvinna verði í
þágu allra sem taka þátt í henni,“
segir Nancy Allan.
Nánari útlistun á samkomulag-
inu verður gerð á fundi í Öskju,
náttúrufræðahúsi Háskóla Íslands,
hinn 13. mars næstkomandi.
kjartan@frettabladid.is
Faglærðir fá tíma-
bundin atvinnuleyfi
Samkomulag undirritað um tímabundna atvinnumöguleika fyrir Íslendinga í
Manitoba. Félagsmálaráðherra segir skyldu sína að greiða fyrir slíkri tilhögun.
Atvinnumálaráðherra Manitoba býst ekki við gagnrýni frá löndum sínum.
VINATENGSL Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir félagsmálaráðherra og Nancy Allan,
atvinnumálaráðherra Manitoba, undirrituðu samkomulagið í Þjóðmenningarhúsinu í
gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM