Fréttablaðið - 06.03.2009, Page 22

Fréttablaðið - 06.03.2009, Page 22
2 föstudagur 6. mars núna ✽ fylgist vel með þetta HELST augnablikið Útgáfufélag 365 miðlar ehf. Forsíðumynd Arnþór Birkisson Útlitshönnun Kristín Agnarsdóttir Auglýsingar Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is sími 512 5462 Föstudagur Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5000 ANDREA RÓBERTSDÓTTIR FJÖLMIÐLAKONA „Ég er að safna mér saman eftir flensu en ætli ég kíki ekki á Torgið þar sem ég er að fá aðstöðu hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands til að vinna og þróa Jórunnarhjörtun mín. Á morgun er síðan bland í poka. Alþjóðlegur baráttudagur kvenna er á sunnudaginn og kvöldinu varið með yndislegum konum.“ Sími : 568 5305 • Grandagarði 5 Opið v i rka daga 900 - 1800 Laugardaga 900 - 1300 helgin MÍN „Hann er bara voðalega stoltur af mér,“ segir Magdalena Dubik, ný- krýnd fegurðardrottning Reykja- víkur, um Martin, kærastann sinn, sem er þýskur. Magdalena hefur búið úti í Þýskalandi frá 17 ára aldri þegar hún flutti ein þangað til að fara í lista- háskóla í Han- over, en hún býr á Íslandi núna og gengur í Fjöl- brautaskólann í Ármúla. Martin er tónlistarmaður eins og Magdalena en þau hafa verið saman í tvö ár. „Ég held að hann geri sér samt ekki grein fyrir þessu, fegurðarsam- k e p p n i r e r u m i k l u m e i r a mál hér held- ur en í Þýska- landi,“ segir Magdal- ena sem spilar á fiðlu. „Martin kom hing- að í heimsókn í febrú- ar og fékk að spila sem aukamaður hjá Sinfón- íuhljómsveit Íslands í viku, en hann spilar á slagverk.“ - iáh Magdalena Dubik nýkjörin Ungfrú Reykjavík: Kærastinn er stoltur É g hoppa bara milli æfinga í Borgarleikhúsinu og Garða-bæ og syng svo á Broadway um helgar,“ segir Þórunn Erna Clausen leikkona sem hefur í mörgu að snúast þessa dag- ana. Hún leikstýrir Mamma Mia í eigin þýðingu í Garða- skóla, Garðabæ, syngur í Le Sing sem er nú á sínu sjö- unda leikári, og hóf nýverið æf- ingar á Söngvaseið í Borgarleik- húsinu þar sem hún leikur eina af nunnunum. „Þetta er í sjötta sinn sem ég leikstýri í Garðaskóla og fannst tilvalið að taka Mamma Mia í ár. Það er mikil gleði og grín í þessu verki sem ég held að allir þurfi á að halda núna. Lögin eru líka svo skemmtileg að það er ekkert mál að þýða þau,“ útskýrir Þór- unn sem syngur sjálf Abba-lög í Le Sing. „Við erum komin með nýtt prógram út af æðinu sem varð eftir Mamma mia-myndina, svo nú blöndum við fleiri Abba- lögum við 80‘s, Motown, diskó og söngleikjatónlist,“ bætir hún við. Eitt af þeim fjölmörgu verkefn- um sem Þórunn sinnir um þess- ar mundir er nýtilkomið samstarf hennar og Margrétar Kaaber leik- konu, en þær stöllur skipa dúett- inn Clausen & Kaaber og koma fram við undirleik Stefáns Ernis Gunnlaugssonar. „Við Margrét vorum búnar að ganga með það í maganum í heilt ár að búa til þessa karaktera og drifum í því eftir áramót. Persónurnar Clau- sen & Kaaber eru tvær bráð- huggulegar og brosmildar ungar konur sem hafa mikið dálæti á stemningunni og þeim stíl sem ríkti á árunum 1940-1960. Þær eru glæsilegar til fara, í tilheyr- andi ballkjólum og koma fram við öll tækifæri og syngja lög sem slógu í gegn í kringum seinni heimsstyrjöldina, þekkt íslensk lög og Abba-lög í breyttum bún- ingi,“ segir Þórunn sem er orðin þaulvön að koma fram við ýmiss konar uppákomur því hún tekur einnig að sér veislustjórn með Soffíu Karlsdóttur söngkonu og eiginmanni sínum, Sigurjóni Brink tónlistarmanni. Þórunn eignaðist sitt annað barn í apríl í fyrra og viðurkenn- ir að vinnan krefjist mikils skipu- lags. „Það eru fjögur börn á heim- ilinu þegar mest er svo þetta er oft mikið púsluspil því Sjonni þarf líka að komast á sínar tón- listaræfingar, en þá er gott að eiga góða móður og tengdafor- eldra,“ segir Þórunn og brosir. - ag Þórunn Erna Clausen syngur, leikur og leikstýrir: SYNGUR ABBA OG LEIKSTÝRIR MAMMA MIA Abba-drottning Þórunn syngur Abba-lög í Le Sing og með Margréti Kaaber, auk þess sem hún leikstýrir Mamma Mia í Garðaskóla í Garðabæ. UNGSTIRNI Aðeins 19 ára gömul er hin bandaríska Taylor Swift orðin ein vinsælasta kántrísöngkona heims. Hún var glæsileg að vanda þegar hún mætti á Echo Music Awards í Berlín á dögunum, klædd hvítri kápu og platformhælum. Flott par Magdalena og Martin hafa verið saman í tvö ár, en hann býr í Þýskalandi og spilar á slagverk. Vilja U2 til Íslands Þeir sem óska þess heitt og inni- lega að einn daginn muni hljóm- sveitin U2 troða upp á Íslandi geta sýnt viljann í verki með því að mæta á tónleika á Nasa annað kvöld. Tón- leikarnir standa yfir milli 21 og 23, á undan dansleik Sál- arinnar, og rennur hluti miðaverðsins til félagsins U2 til Íslands sem berst fyrir því að fá goðin til að halda tónleika hér á landi. Hljómsveitina skipa Birg- ir Nielsen og Gunnar Þór Egg- ertsson úr Landi og sonum, Friðrik Sturluson úr Sálinni og Rúnar Örn Friðriksson úr Sixt- ies. Ekkert verður til sparað á tón- leikunum þar sem þekktustu lög U2 munu hljóma og nýjustu breiðskífu sveitarinnar verður fagnað. Dalton með djarfa dansara „Þetta er burlesque-danshópur sem dansar og syngur með okkur nokkur lög,“ segir Böðv- ar Reynis- son, betur þekktur sem Böddi í Dalt- on, um liðs- aukann sem strákarnir í hljómsveitinni hafa fengið. „Þær eru tvær til fjórar alla jafna, klæða sig erótískt upp og dansa með okkur allt giggið. Eðli málsins samkvæmt eru strákar mjög kátir með þetta,“ bætir hann við, en hljómsveitin og danshópurinn troða upp á Dillon Sportbar í Hafnarfirði í kvöld. Glæsileg Magdalena Dubik spilar á fiðlu og gengur í Fjöl- brautaskólann við Ármúla.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.