Fréttablaðið - 06.03.2009, Qupperneq 26
6 föstudagur 6. mars
tíðin
✽ aldrei liðið betur
MORGUNMATURINN: Cafe
Jacques í Grassmarket þar sem
ég sveiflast á milli þess að fá mér
skoskan morgunverð eða enskan.
Ég er hrifnari af skoskum og þá
fæ ég ristað brauð, black pudd-
ing, egg, potato scone og potato
hash, beikon og steikta tómata og
sveppi, að ógleymdu svörtu kaffi.
ÚT AÐ BORÐA: Under The Stairs
á Merchant Street rétt af Candlemaker Row. Þarna ríkir
Boston/Kaffibars fílingur og vita fáir af þessum stað. Inn-
réttingarnar eru hlutir hver úr sinni áttinni og staffið skiptir
út húsgögnum og myndum á veggjum og breytir matseðl-
inum reglulega. Ég fæ mér alltaf Red Stripe bjór og glápi á
ástralska barþjóninn.
UPPÁHALDSVERSLUN: Armstrongs í Grassmarket er
ein besta vintage búð í heiminum. Búin að vera í biss-
ness síðan 1840 og endalaust hægt að gramsa þar. Mér
skilst að Kate Moss versli þarna blessunin. Það er lang-
skemmtilegast að versla í Grassmarket og á Victoria
Street í eldri hluta Edinborgar og best að forðast Princes
Street eins og heitan eldinn.
BEST VIÐ BORGINA: Borgin er svo falleg að þótt ég
sé búin að vera hérna í meira en ár stend ég mig enn
að því að stoppa á miðri götu og finnast ég eiga heima
í ævintýri. Þú færð ekki leið á því að sjá kastala út um
stofugluggann. Fólkið hér er líka yndislegt.
BEST AÐ EYÐA DEGINUM: Vakna fyrir hádegi og fá sér
morgunmat hjá Jacques. Hjálpa svo náunganum og gefa
blóð uppí Blood Donor Centre á Lauriston Place. Hjúkk-
urnar þar láta manni algjörlega líða eins og Móður Teresu
eftir herlegheitin. Ef það er föstudagur fer ég á kreppusýn-
ingu á 3,50 pund í Filmhouse á Lothian Road og sé ein-
hverja klassík. Fæ mér svo miðdegishressingu á Under
The Stairs í góðra vina hópi.
EDINBORG
Guðný Ebba Þórarinsdóttir
ÁSTUNDARHNAKKURINN Ég keypti
hann notaðan og hann er bara bestur.
ROKKÓPERAN !HERO Söngleikurinn ger-
ist í New York borg nútímans, í heimi þar sem Jesús
hefur aldrei lifað. Hero fer að prédika fyrir borgarbú-
um að elska óvini sína og boðar nýtt líf, en ekki eru
allir tilbúnir að taka við fagnaðarerindinu. Ekki missa af
glæsilegri sýningu í Loftkastalanum í kvöld.
IDOL STJÖRNULEIT Ef þú vilt eiga kósýkvöld
heima er um að gera að koma sér vel fyrir í sófanum fyrir
framan sjónvarpið og horfa á Idol stjörnuleit á Stöð 2.
Tuttugu keppendur eru komnir áfram og í kvöld ríða stelp-
urnar tíu á vaðið. Þjóðin kýs í símakosningu þær fimm
stelpur sem komast áfram í úrslit.
SIGRÚN SÓL ÓLAFSDÓTTIR
leikkona
GULLKORNABÆKUR SONA MINNA. Þarna stirnir á gullið,
varðveittar hugsanir og snilldartilsvör alveg frá því þeir byrjuðu að
læra að tala fram til dagsins í dag.
BRÓÐIR MINN GERÐI
ÞESSAR STYTTUR,
GÖMLU GÓÐU
GLERAUGUN Í MÍNUS SEX
SIRKUS Þessi hestur var leikmunur í sýningunni Þjóðar-
sálin sem ég leikstýrði fyrir tveimur árum. Yngsti sonurinn
skírði hann Sirkus.
TOPP
10
TEYGJUR Það er þjóð-
ráð að klippa niður
gamlar sokkabuxur, Þá
þarf maður aldrei að
kaupa teygjur í hárið.
TROMMUSETTIÐ
SKÓR SEM ÉG KEYPTI
FYRIR 12 ÁRUM Í
SKÁTABÚÐINNI
KAFFI-
KANNAN
Keppnin í fyrra gekk svo vel að ég ákvað bara að endurtaka leikinn
og gera þetta ennþá flottara núna,“
segir Selma Hafsteinsdóttir 22 ára
sem stendur fyrir förðunarkeppni
miðvikudaginn 11. mars á Rúbín í
Öskjuhlíð. Allir sem náð hafa átján
ára aldri geta tekið þátt í keppn-
inni, hvort sem þeir hafa lært förð-
un eða ekki.
„Sú sem sigraði í fyrra var ólærð,
svo margir hafa þetta í sér án þess
að vera búnir að læra förðun en
ætla kannski að gera það í fram-
tíðinni,“ segir Selma sem lærði
sjálf förðun hjá Snyrtiakademíunni
og er að klára nám í hárgreiðslu.
„Skjöldur Eyfjörð, Solla Airbrush
og Sigga Þóra verða í dómnefnd
og á staðnum verður meðal ann-
ars snyrtivörukynning, tískusýning
frá Chamsry saumagallerý og Alan
úr X-factor tekur nokkur lög,“ bætir
hún við, en áhugasamir geta skráð
sig með því að senda tölvupóst á
timabil.keppni@gmail.com. - ag
Glæsileg Selma skipuleggur kepn-
nina, en sigurvegarinn hlýtur glæsileg-
an verðlaunagrip, ljósmyndatöku, hár-
og snyrtivörur.
Selma Hafsteinsdóttir förðunarfræðingur:
HELDUR OPNA
FÖRÐUNARKEPPNI
BORGIN
mín
Japanski teiknimyndakarakterinn Hello Kitty hefur öðlast nýja ímynd
í spennandi snyrtivörulínu frá MAC. Línan er tileinkuð kisunni sem er
nú orðin eitt þekktasta vörumerki heims. Hello Kitty sem hefur ávallt
verið þekkt fyrir hvítt og saklaust útlit sitt er nú orðin djarfari
og situr fyrir svört á litinn með svarta og bleika latexslaufu.
Snyrtivörurnar í línunni bjóða upp á ótal möguleika, enda
bæði litríkar og spennandi. Línan er væntanleg í versl-
anir MAC í lok mánaðarins og allar umbúðirnar eru sér-
merktar Hello Kitty.
HELLO KITTY í nýju hlutverki
Litríkt
Hello Kitty
vörurn-
ar hjá MAC
koma í sér-
merktum
umbúðum