Fréttablaðið - 06.03.2009, Page 37
FÖSTUDAGUR 6. mars 2009 25
Menningarverðlaun DV voru afhent síðla
dags á miðvikudag í Iðnó. Menningarverð-
laun blaðsins hafa í þrjá áratugi verið stór
viðburður í íslensku menningarlífi þótt
minna hafi farið fyrir þeim hin síðari ár
eftir að DV missti stöðu sína á fjölmiðla-
markaði og upplag blaðsins dróst saman.
Verðlaunin eru veitt fyrir einstakt fram-
lag einstaklinga til menningarinnar, að
mati dómnefndar í hverjum flokki.
Að auki voru veitt netverðlaun og sér-
stök heiðursverðlaun sem forseti Íslands,
hr. Ólafur Ragnar Grímsson, afhenti.
Menningarverðlaun DV komu til sög-
unnar árið 1978 í framhaldi af gagnrýn-
endaverðlaunum sem kennd voru við
Silfurlampann og Silfurhestinn og höfðu
dottið upp fyrir. Helstu hvatamenn að
stofnun þeirra voru þeir Jónas Kristjáns-
son ritstjóri, Ólafur Jónsson gagnrýn-
andi og Aðalsteinn Ingólfsson listfræðing-
ur. Síðan hafa verðlaunin verið árviss að
undanskildum tveimur árum sem þau féllu
niður. Lengi vel voru verðlaunagripir sér-
hannaðir ár hvert en hin síðari ár hefur
verðlaunagripurinn verið samur ár eftir
ár, hannaður af listakonunni Huldu Hákon
og kallast „Jónas“ eftir frumkvöðlinum,
Jónasi Kristjánssyni, fyrrverandi ritstjóra
DV en ber líka nokkurn svip af Jónasi
Hallgrímssyni.
Tilnefningar voru í átta flokkum og
stóðu fagnefndir að þeim.
Sigurvegarar voru:
■ Í flokknum Kvikmyndir: Kjötborg eftir
Helgu Rakel Rafnsdóttur og Huldu Rós
Guðnadóttur.
■ Í flokknum Hönnun:
Katrín Ólína Pétursdóttir.
■ Í flokknum Leiklist: Gunnar Eyjólfsson
/ Jónatan í Hart í bak.
■ Í flokknum Fræði: Þorvaldur Gylfa-
son / Prófessor í hagfræði við Háskóla
Íslands, fyrir skrif um hagfræði og
efnahagsmál í blöðum, tímaritum og
bókum á síðustu áratugum.
■ Í flokknum Bókmenntir: Rán eftir Álf-
rúnu Gunnlaugsdóttur.
■ Í flokknum Myndlist: Bragi Ásgeirsson /
Yfirlitssýning Augnasinfónía á Kjarvals-
stöðum.
■ Í flokknum Byggingarlist: Menntaskóli
Borgarbyggðar – Arkitektar: Kurtogpí;
Ásmundur Hrafn Sturluson, arkitekt
FAÍ og Steinþór Kári Kárason, arkitekt
FAÍ.
■ Í flokknum Tónlist: Sinfóníuhljómsveit
Íslands.
■ Heiðursverðlaunin hlaut Manfreð Vil-
hjálmsson arkitekt fyrir frábært fram-
lag sitt til íslensks arkitektúrs.
■ Samhliða verðlaununum var netkosning
og fékk hljómsveitin Hjaltalín þau og er
það í fyrsta sinn sem þau eru veitt. - pbb
Menningarverðlaun DV 2008 veitt
MENNING Verðlaunagripurinn er hannaður af
Huldu Hákon
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Föstudagur 06. mars
➜ Tónleikar
12.15 Hanna Dóra
Sturludóttir sópran og
Nína Margrét Gríms-
dóttir píanóleikari
verða með hádegistón-
leika í Von, tónleikasal
SÁÁ við Efstaleiti 7. Á
efnisskránni eru m.a.
verk eftir Pál Ísólfsson
og Johannes Brahms.
21.00 DLX ATX, Fist Fokkers, AMFJ,
Krakkbot, Gjöll og Man verða á Grand
Rokk við Smiðjustíg. Aðgangur ókeypis.
21.00 Bandaríski gítarleikari Larry Cor-
yell er gestur Björns Thoroddsen og
Jóns Rafnssonar á tónleikum í TÍBRÁ í
Salnum við Hamraborg í Kópavogi.
21.00 Kid Twist og Bárujárn spila
brimbrettarokk á Kaffi Amsterdam við
Hafnarstræti 5.
21.30 Ljótu Hálfvitarnir spila á Græna
Hattinum, Hafnarstræti 96 á Akureyri.
Húsið opnar kl. 20.30.
➜ Opnanir
18.00 Kristinn G. Harðarson opnar
sýninguna Skjól í Kubbnum, húsnæði
myndlistardeildar L.Í. að Laugarnesvegi
91.
➜ Kvikmyndir
Þú ert ég - kvik-
myndahelgi í Nor-
ræna húsinu 6.-8.
mars í tengslum
við dagskrá sem
tileinkuð er Lithá-
en og litháískri tungu. Nánri upplýsingar
á www.ltis.org. Aðgangur ókeypis.
19.00 Sýnd verður heimildamyndin
Sjá Vilnius.
➜ Síðustu Forvöð
Sýningunum Surtsey: jörð úr ægi og
Síðbúin sýn: ljósmyndir úr fórum
Halldórs Laxness, lýkur á sunnudaginn.
Þjóðmenningarhúsið við Hverfisgötu 15.
Opið alla daga frá kl. 11 til 17.
Hvítir skuggar, Sýning Margrétar Jóns-
dóttur lýkur á sunnudaginn. Aðgangur
ókeypis. Listasafnið á Akureyri, Kaup-
vangsstræti 12. Opið alla daga nema
mán. kl. 12-19.
Lífsgjöf, Sýning Elísabetu Stefánsdótt-
ur (Beta Gagga), lýkur á sunnudaginn.
Grafíksafn Íslands, Hafnarhúsinu við
Tryggvagötu 17 (hafnarmegin). Opið
fimm.-sun. kl. 14-18.
Þverskurður, sýning Textílfélagsins í
Gerðarsafni við Hamraborg í Kópavogi,
lýkur á sunnudaginn. Sýningin spannar
ríflega 60 ár í textílsögunni. Safnið er
opið alla daga nema mánudaga kl.
11-17.
➜ Blús
Blúshátíðin Norðurljósablús á Höfn í
Hornafirði 5.-7. mars. Ókeypis er á alla
viðburði.
18.00 Mugison og
Papa Mug verða á
Humarhöfninni við
Hafnarbraut 4.
21.00 B-Sig spila á
Hótel Höfn við Víkur-
braut.
21.00 Hljómsveitin
Silfur verður á Víkinni,
Víkurbraut 2.
23.00 Blúsvíkingarnir verða á Kaffi
Horninu, Hafnarbraut 42.
23.00 Mæðusveitin Sigurbjörn verður
á Hótel Höfn við Víkurbraut.
➜ Leikrit
Leikverkið Dubbeldusch eftir Björn
Hlyn Haraldsson verður sýnt í Hafnar-
fjarðarleikhúsinu, Strandgötu 50.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is