Fréttablaðið - 06.03.2009, Side 42
30 6. mars 2009 FÖSTUDAGUR
sport@frettabladid.is
„Eins og staðan er núna reikna ég með því
að fá þessa þrjá Íslendinga til liðsins,“ sagði
Aðalsteinn Eyjólfsson, þjálfari þýska
C-deildarliðsins Kassel. Aðalsteinn
er þessa dagana í samninga-
viðræðum við þá Guðjón Finn
Drengsson, Jóhann Gunnar
Einarsson, leikmenn Fram, og
Daníel Berg Grétarsson sem lék
með Fram í fyrra.
„Ég handsalaði samning við þá
þegar ég var þarna úti um daginn.
Er því bara að bíða eftir pappírun-
um og ef allt stenst þar þá förum
við fjölskyldan út,“ sagði Guðjón
Finnur en honum leist ákaflega vel
á aðstæður í Kassel þegar hann
fór þangað ásamt liðsfélaga sínum,
Jóhanni Gunnari.
„Við fjölskyldan lítum á þetta
sem ævintýri. Þetta er flott 250
þúsund manna borg og allt til alls
þarna. Líka mikill metnaður hjá
félaginu og verður gaman að taka
þátt í þessu verkefni,“ sagði Guðjón.
Jóhann Gunnar
segist einnig vera
spenntur fyrir
félaginu og telur líklegt að
hann fari til Kassel.
„Hugur minn stefnir til Kassel í dag.
Það á eftir að ganga frá samningum en
umboðsmaður minn er í viðræðum við
félagið. Vonandi gengur það eftir,“ sagði
Jóhann Gunnar sem segir Kassel hafa
komið sér á óvart.
„Það leit allt betur út þarna en
ég þorði að vona. Það er vel
séð um liðið og aðstaðan góð. Svo á félagið
peninga og staðið er við alla samninga sem
er ekki sjálfgefið í dag,“ sagði Jóhann.
Aðalsteinn er þess utan á höttunum
eftir Egidijus Petkevicius sem lék með
HK í fyrra. Hann er í Litháen þessa
dagana eftir stutt stopp í Grikklandi
þar sem félag hans þar lenti í vand-
ræðum.
„Það væri fínt að fá hann í
markið með öðrum sterkum
markverði sem er hjá okkur. Það
er mjög jákvætt ef íslensku strák-
arnir koma og ég býst við þeim
öllum í okkar liði næsta vetur,“
sagði Aðalsteinn Eyjólfsson
en vellauðugur eigandi Kassel
ætlar sér að koma liðinu í
deild þeirra bestu árið 2012.
AÐALSTEINN EYJÓLFSSON SAFNAR LIÐI: VILL FÁ PETKEVICIUS OG LANDA ÍSLENSKUM LEIKMÖNNUM
Þrír Íslendingar á leið til Aðalsteins í Kassel
N1-deild karla:
Fram-Haukar 22-27 (10-11)
Mörk Fram (skot): Rúnar Kárason 6/2 (15/2),
Björn Guðmundsson 3 (6), Haraldur Þorvarðar
son 3 (4), Jóhann Karl Reynisson 3 (4), Jóhann
Gunnar Einarsson 2 (3), Brjánn Bjarnason 2 (2),
Andri Berg Haraldsson 2 (8), Guðjón Drengsson
1/1 (1/1).
Varin skot: Magnús Gunnar Erlendsson 20
(42/4) 48%, Davíð Svansson 3 (8/3) 38%.
Hraðaupphlaup: 3 (Brjánn, Rúnar, Andri)
Fiskuð víti: 3 (Jóhann 2, Haraldur).
Utan vallar: 12 mínútur.
Mörk Hauka (skot): Sigurbergur Sveinsson 11/5
(19/6), Freyr Brynjarsson 4 (6), Einar Örn Jóns
son 4/1 (5/1), Andri Stefan 3 (8), Elías Már Hall
dórsson 3 (7), Kári Kristján Kristjánsson 2 (5).
Varin skot: Birkir Ívar Guðmundsson 17 (39/3)
44%.
Hraðaupphlaup: 5 (Elías 2, Freyr, Kári, Sigur
bergur). Fiskuð víti: 7 (Kári 5, Andri 2).
Utan vallar: 10 mínútur.
Dómarar: Gísli Hlynur Jóhannsson og Hafsteinn
Ingibergsson, réðu ekki við verkefnið en hallaði
nokkuð jafnt á bæði lið.
FH-Stjarnan 29-32
Mörk FH: Bjarni Fritzson 11, Aron Pálmarsson 7,
Benedikt Kristinsson 3, Guðmundur Pedersen 3,
Ásbjörn Friðriksson 2, Sigurður Ágústsson 1,
Jónatan Jónsson 1, Ólafur Gústafsson 1.
Mörk Stjörnunnar: Vilhjálmur Ingi Halldórsson
13, Ragnar Helgason 6,, Kristján S. Kristjánsson 5,
Patrekur Jóhannesson 4, Fannar Örn Þorbjörns
son 3, Björn Friðriksson 1.
Valur-Víkingur 32-17 (16-7)
Mörk Vals: Arnór Þór Gunnarsson 12, Fannar
Þór Friðgeirsson 7, Elvar Friðriksson 6, Hjalti
Þór Pálmason 2, Heimir Örn Árnason 2, Hjalti
Gylfason 2, Gunnar Harðarson 1.
Mörk Víkinga: Einar Örn Guðmundsson 7, Davíð
Georgsson 3, Sveinn Þorgeirsson 2, Kristinn
Guðmundsson 2, Pálmar Sigurjónsson 1, Davíð
Ágústsson 1, Hjálmar Þór Arnarson 1
IE-deild kvenna, úrslitak.:
Grindavík-KR 70-60 (27-21)
Stig Grindavíkur: Petrúnella Skúladóttir 16,
Jovana Lilja Stefánsdóttir 12, Helga Hallgríms
dóttir 11, Ólöf Helga Pálsdóttir 9 (12 frák.), Lilja
Ósk Sigmarsdóttir 8, Íris Sverrisdóttir 6, Ingibjörg
Jakobsdóttir 5, Berglind Anna Magnúsdóttir 3.
Stig KR: Hildur Sigurðardóttir 15 (9 frák., 5
stoðs.), Helga Einarsdóttir 15, Sigrún Ámunda
dóttir 9, Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir 9, Margrét
Kara Sturludóttir 7, Brynhildur Jónsdóttir 3,
Heiðrún Kristmundsdóttir 2.
Lengjubikar karla:
Fram-HK 3-2
Fylkir-Leiknir 2-2
ÚRSLIT
BYLTINGARMENN VÍSINDANNA
Félag áhugamanna um heimspeki
heldur fyrirlestraröðina í samvinnu við:
2009
7. mars
14. mars
Ef... þá og allt saman: Kurt Gödel og rökfræðin
Halldór Guðjónsson
Niels Bohr og aðferðir vísindanna
Þorsteinn Vilhjálmsson
21. mars Alan Turing: Turing vélin og áhrif hennar
á framfarir og takmörk hugfræðinnar
Kamilla Rún Jóhannsdóttir
28. mars Watson og Crick og DNA-líkan þeirra
Guðmundur Eggertsson
4. apríl Thomas Kuhn og vísindabyltingar
Eyja Margrét Brynjarsdóttir
Fimm íslenskir vísinda- og fræðimenn úr ólíkum áttum fjalla
um byltingarmenn vísindanna á laugardögum klukkan 13:00.
Fyrirlestrarnir verða haldnir í sal 2 í Háskólabíó.
Allir eru velkomnir – aðgangur ókeypis
Heimspekistofnun Háskóla Íslands
Eðlisfræðifélag Íslands Líffræðistofnun Háskóla Íslands
> Guðjón bestur í febrúar
Guðjón Þórðarson var í gær útnefndur besti knatt-
spyrnustjóri febrúarmánaðar í ensku C-deildinni.
Undir hans stjórn vann Crewe fjóra af fimm
leikjum sínum í mánuðinum. „Þetta hefur
gengið ágætlega en ég verð þó að vera
raunsær. Við ætlum okkur auðvitað að
halda okkur uppi en þetta er langt frá
því að vera búið og mikil vinna eftir,”
sagði Guðjón í samtali við Fréttablaðið
en hann segir muninn á liðinu nú og
þegar hann tók við því vera eins og
dag og nótt.
Iceland Express-deild karla:
Stjarnan-Snæfell 82-79 (52-37)
Stig Stjörnunnar: Jovan Zdravevski 29, Justin
Shouse 19 (13 stoðs.), Kjartan Kjartansson 14,
Fannar Freyr Helgason 9, Guðjón Lárusson 6,
Ólafur Sigurðssin 3, Birkir Guðlaugsson 2.
Stig Snæfells: Slobodan Subasic 17, Lucious
Wagner 14, Hlynur Bæringsson 12 (16 frák.), Jón
Ólafur Jónsson 12, Magni Hafsteinsson 10, Daníel
Klazmi 6, Egill Egilsson 3.
Þór Ak.-ÍR 90-96 (46-47)
Stig Þórs: Konrad Tota 24, Guðmundur Jónsson
17, Hrafn Jóhannesson 16, Daniel Bandy 14, Jón
Orri Kristjánsson 12, Óðinn Ásgeirsson 4, Baldur
Jónsson 3.
Stig ÍR: Eiríkur Önundarson 20, Ólafur Þórisson
17, Ómar Sævarsson 16, Hreggviður Magnússon
15, Sveinbjörn Claessen 14, Steinar Arason 9,
Ólafur Ingvason 3, Ásgeir Hlöðversson 2.
Njarðvík-Breiðablik 111-78
ÚRSLIT
HANDBOLTI Haukar fljúga hátt þessa
dagana og þeir unnu enn einn sig-
urinn gegn Fram, 22-27, í Safa-
mýri í gær. Leikurinn var harður
af beggja hálfu og slakir dómarar
leiksins réðu ekki alveg við verk-
efnið. Hvorugt lið gaf þumlung
eftir allan tímann en Haukarn-
ir reyndust einfaldlega sterkari
þegar upp var staðið.
Bæði lið mættu mjög grimm
til leiks og tilbúin að berjast hart
fyrir stigunum enda var hraust-
lega tekist á allan fyrri hálfleik.
Haukarnir skrefi á undan allan
hálfleikinn en Magnús Erlendsson
varði vel í Fram-markinu og sá til
þess að munurinn var alltaf lítill.
Það ætlaði að sjóða upp úr um
miðjan hálfleikinn er Rúnar Kára-
son sló að óþörfu í andlit Gunnars
Bergs Viktorssonar sem var þegar
kominn upp við varamannabekk
Hauka. Haukamenn brjáluðust
og þá einna helst Arnar Péturs-
son sem las ungu skyttunni pistil-
inn. Rúnar slapp þó með skrekkinn
enda sáu hvorki dómarar né eftir-
litsdómari atvikið.
Þegar blásið var til leikhlés var
munurinn eitt mark, 10-11, og ljóst
að eitthvað varð undan að láta í
hasarnum í síðari hálfleik.
Haukarnir héldu áfram að vera
skrefi á undan í síðari hálfleik en í
stöðunni 17-18 fyrir Hauka hrundi
leikur heimamanna á báðum
endum. Haukarnir skoruðu sex
mörk í röð og breyttu stöðunni
í 17-24 og leiknum lokið. Á þeim
kafla spilaði Haukaliðið frábæran
varnarleik en sóknarleikur Fram-
ara hrundi eins og spilaborg að
sama skapi.
„Við lítum á hvern einasta leik
sem úrslitaleik og erum grimmir.
Mér fannst við samt ekki nógu
beittir í fyrri hálfleik gegn sterk-
um Frömurum sem mættu alveg
dýrvitlausir. Þeir voru virkilega
harðir í vörninni og við urðum
að berja okkur í gang, sem gekk,“
sagði kátur þjálfari Hauka, Aron
Kristjánsson.
„Við vorum náttúrulega að spila
alveg fantavarnarleik og Birkir
að verja vel í markinu. Arnar Pét-
ursson og Gunnar Berg voru svo
frábærir í vörninni. Ég var miklu
sáttari við sóknarleikinn í síð-
ari hálfleik en við klúðrum allt of
miklu af dauðafærum í leiknum,“
sagði Aron en hans lið er ekki
árennilegt þessa dagana.
„Markmið okkar er að vinna þá
titla sem eftir eru og hver leikur
hjá okkur er úrslitaleikur,“ sagði
Aron sem var óvenju heitur í fyrri
hálfleik en hann sagðist hafa látið
til sín taka í von um að kveikja
meiri neista hjá sínum mönnum.
Magnús Gunnar Erlendsson var
frábær í marki Fram en Framarar
náðu ekki að gera sér mat úr frá-
bærri markvörslu hans.
„Menn eru að spila alveg skelfi-
legan sóknarleik og svo misstu
menn dampinn í vörninni í kjölfar-
ið. Þetta er samt það jákvæðasta
eftir áramót en því miður þá spil-
uðum við bara í 50 mínútur en
Haukar í 60 mínútur,“ sagði Magn-
ús svekktur en hann segir lélegan
árangur Fram eftir áramót ekki
vera farinn að leggjast á sálina á
mönnum. „Það er fín stemning á
æfingum og menn mættu tilbún-
ir í þennan leik. Ég veit ekki alveg
hvað er að.“ henry@frettabladid.is
Haukar unnu slagsmálin
Það var hraustlega tekist á þegar Fram tók á móti Haukum í Safamýri. Slakur
kafli Framara um miðjan síðari hálfleik reyndist þeirra banabiti í leiknum.
HEITT Í KOLUNUM Aron Kristjánsson, þjálfari Hauka, var ekki alltof sáttur við kollega
sinn hjá Fram, Viggó Sigurðsson, í leiknum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
KÖRFUBOLTI Grindavíkurkonur
tryggðu sér oddaleik á sunnu-
daginn þegar þær unnu tíu stiga
sigur á bikarmeisturum KR, 70-
60, í öðrum leik liðanna í einvígi
þeirra í 1. umferð úrslitakeppni
Iceland Express deildar kvenna.
Grindavíkurliðið lagði grunn-
inn að sigrinum með frábærum
lokakafla í þriðja leiklhutanum
þar sem liðið skoraði 11 stig í röð
og komst 16 stigum yfir.
Grindavík missti frá sér sig-
urinn í fyrsta leiknum en voru
búnar að læra af reynslunni nú
þótt að KR-konur hafi minnkað
19 stiga forskot þeirra niður í 8
stig. Í lokin skildu svo tíu stig.
- óój
Úrslitakeppni kvennakörfunnar:
Grindavík vann
TÓLF FRÁKÖST Ólöf Helga Pálsdóttir var
öflug með Grindavík. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
KÖRFUBOLTI „Ég verð að viðurkenna
að það var farið að fara verulega
um mig þegar Hlynur setti þennan
þrist niður,“ sagði Teitur Örlygs-
son þjálfari Stjörnunnar eftir að
hans menn tryggðu sér mikilvæg-
an 82-79 sigur á Snæfelli í Iceland
Express deildinni í gærkvöldi.
Stjarnan hafði gott forskot í þrjá
og hálfan leikhluta en missti það
niður þegar nokkrar mínútur lifðu
leiks.
Stjarnan tók frumkvæðið í leikn-
um strax í byrjun með tveimur
þristum og hafði yfir 27-18 eftir
fyrsta leikhlutann og 52-37 í hálf-
leik. Jovan Zdravevski dró vagn-
inn á löngum köflum og skoraði 29
stig í leiknum.
Sigurður Þorvaldsson lék ekki
með Snæfelli og einbeitti sér að
þjálfuninni, en hann var ósátt-
ur við varnarleik sinna manna.
„Við vorum að spila lélega vörn
í þrjá leikhluta og við töp-
uðum þessum leik á lélegri
vörn í fyrri hálfleik,“ sagði
Sigurður, en hans menn
voru undir 69-
57 eftir þrjá
leikhluta.
Lokakafl-
inn í leiknum
einkenndist svo
af æsilegri baráttu.
Eftir ævintýralega
þriggja stiga körfu
Hlyns Bæringsson-
ar skoraði Lucius
Harris tvær körfur
í röð og Snæfell var
skyndilega komið yfir
79-76 þegar um þrjár
mínútur voru eftir. Það
var hins vegar hinn magnaði Just-
in Shouse sem skoraði sigurkörfu
Stjörnumanna þegar 51 sekúnda
var til leiksloka.
Snæfellingar fengu tækifæri
til að jafna leikinn í lokin,
en galopið skot Slobodan
Subasic úr horninu
vildi ekki niður og
Stjarnan slapp með
skrekkinn.
„Ég var mjög
ánægður með leik
minna manna í dag og
sérstaklega í fyrri hálf-
leik, þar sem okkur var
að takast það sem við
lögðum upp með.
Þetta Snæfellslið
er auðvitað mjög
sterkt,“ sagði
Teitur. - BB
Stjarnan stóðst áhlaup Snæfells í lokin í Iceland Express deild karla í körfubolta:
Shouse skoraði sigurkörfuna
KLÁRAÐI GÖMLU FÉLAGANA
Justin Shouse tryggði Stjörnunni
sigur á Snæfelli í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM