Fréttablaðið - 06.03.2009, Side 48

Fréttablaðið - 06.03.2009, Side 48
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans BAKÞANKAR Bergsteins Sigurðssonar Það stirndi af þeim Þresti Leó Gunnarssyni og Birni Thors í hlutverkum bræðranna Coleman og Valene, í Vestrinu eina sem sýnt var í Borgarleikhúsinu fyrr í vetur. Bræðurnir búa í krummaskuði á Írlandi og lifa fyrir það eitt að gera hvor öðrum lífið leitt. Sóknar- presturinn hefur hins vegar ein- sett sér að sýna þeim villur síns vegar, en þegar örvæntingin ber sálusorgarann ofurliði styttir hann sér aldur með þeim skilaboðum að eina leiðin til að forða sálu hans úr víti sé sú að bræðurnir fyrirgefi hvor öðrum hið liðna. COLEMAN og Valene ákveða að láta á reyna og byrja að játa fyrir hvor öðrum það sem þeir hafa gert á hlut hvor annars og biðjast afsök- unar. Til að byrja með snúast játn- ingarnar aðallega um bernskubrek en smám saman verða þær sífellt svæsnari. Áður en langt um líður eru bræðurnir farnir að reyna að slá hver öðrum við í játningum á misyndisverkum – allt í nafni fyrirgefningarinnar, sem gerir að verkum að þeir verða ávallt að fall- ast á afsökunarbeiðnina þótt þeim sé það þvert um geð. Þannig snýst jafnvel fyrirgefningin upp í enn einn pyntingaleikinn hjá Coleman og Valene. ÞETTA er mergjuð sena sem sýnir glögglega hvernig mann- skepnan getur hagnýtt sínar göf- ugustu kenndir í gagnstæðum til- gangi og þegar verst lætur gert úr þeim djöfulleg verkfæri. Og mér var hugsað til þessa leikrits á þriðjudaginn þegar hópur þing- manna breytti ræðupúlti Alþing- is í skriftastól og baðst fyrirgefn- ingar á hinu og þessu í aðdraganda bankahrunsins. Ásta Möller reið á vaðið með því að biðjast afsökun- ar á því að hafa með andvaraleysi sínu brugðist sem kjörinn fulltrúi. Sama dag opnaði hún kosninga- skrifstofu. Þetta er ein óskamm- feilnasta afsökunarbeiðni sem sett hefur verið fram lengi. SKRÍPALEIKURINN sem fór fram á ræðustólnum í kjölfarið var sama marki brenndur; bænir um fyrirgefningu voru notaðar í pólitískum tilgangi og áttu lítið skylt við iðrun. Það eru fimm mánuðir frá því fjármálakrepp- an reið yfir af fullum krafti. Það eru tveir mánuðir í kosningar. Hvor tímapunkturinn ætli hafi ráðið meiru um syndajátningarn- ar á þriðjudag? Ég hallast að þeim síðarnefnda. Rannsóknir sýna að kosningar hafa örvandi áhrif á tárakirtla krókódíla. Ég veit af hverju krókódíllinn í púltinu grætur Í dag er föstudagurinn 6. mars, 65. dagur ársins. 8.17 13.39 19.02 8.05 13.24 18.44 5.990,- 990,-1. 00999 . ,- 19.900,- 990,- 990, 1.990,- Bæklingur fylgir með inni í blaðinu í dag í mars Nóatúni 4 · Sími 520 3000 www.sminor.is Tæki færi

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.