Fréttablaðið - 06.03.2009, Síða 48
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
BAKÞANKAR
Bergsteins
Sigurðssonar
Það stirndi af þeim Þresti Leó Gunnarssyni og Birni Thors í
hlutverkum bræðranna Coleman
og Valene, í Vestrinu eina sem sýnt
var í Borgarleikhúsinu fyrr í vetur.
Bræðurnir búa í krummaskuði
á Írlandi og lifa fyrir það eitt að
gera hvor öðrum lífið leitt. Sóknar-
presturinn hefur hins vegar ein-
sett sér að sýna þeim villur síns
vegar, en þegar örvæntingin ber
sálusorgarann ofurliði styttir hann
sér aldur með þeim skilaboðum að
eina leiðin til að forða sálu hans úr
víti sé sú að bræðurnir fyrirgefi
hvor öðrum hið liðna.
COLEMAN og Valene ákveða að
láta á reyna og byrja að játa fyrir
hvor öðrum það sem þeir hafa gert
á hlut hvor annars og biðjast afsök-
unar. Til að byrja með snúast játn-
ingarnar aðallega um bernskubrek
en smám saman verða þær sífellt
svæsnari. Áður en langt um líður
eru bræðurnir farnir að reyna að
slá hver öðrum við í játningum
á misyndisverkum – allt í nafni
fyrirgefningarinnar, sem gerir að
verkum að þeir verða ávallt að fall-
ast á afsökunarbeiðnina þótt þeim
sé það þvert um geð. Þannig snýst
jafnvel fyrirgefningin upp í enn
einn pyntingaleikinn hjá Coleman
og Valene.
ÞETTA er mergjuð sena sem
sýnir glögglega hvernig mann-
skepnan getur hagnýtt sínar göf-
ugustu kenndir í gagnstæðum til-
gangi og þegar verst lætur gert
úr þeim djöfulleg verkfæri. Og
mér var hugsað til þessa leikrits
á þriðjudaginn þegar hópur þing-
manna breytti ræðupúlti Alþing-
is í skriftastól og baðst fyrirgefn-
ingar á hinu og þessu í aðdraganda
bankahrunsins. Ásta Möller reið á
vaðið með því að biðjast afsökun-
ar á því að hafa með andvaraleysi
sínu brugðist sem kjörinn fulltrúi.
Sama dag opnaði hún kosninga-
skrifstofu. Þetta er ein óskamm-
feilnasta afsökunarbeiðni sem sett
hefur verið fram lengi.
SKRÍPALEIKURINN sem fór
fram á ræðustólnum í kjölfarið
var sama marki brenndur; bænir
um fyrirgefningu voru notaðar
í pólitískum tilgangi og áttu lítið
skylt við iðrun. Það eru fimm
mánuðir frá því fjármálakrepp-
an reið yfir af fullum krafti. Það
eru tveir mánuðir í kosningar.
Hvor tímapunkturinn ætli hafi
ráðið meiru um syndajátningarn-
ar á þriðjudag? Ég hallast að þeim
síðarnefnda. Rannsóknir sýna að
kosningar hafa örvandi áhrif á
tárakirtla krókódíla.
Ég veit af hverju
krókódíllinn í
púltinu grætur
Í dag er föstudagurinn 6. mars,
65. dagur ársins.
8.17 13.39 19.02
8.05 13.24 18.44
5.990,-
990,-1.
00999 . ,-
19.900,-
990,-
990,
1.990,-
Bæklingur fylgir með
inni í blaðinu í dag
í mars
Nóatúni 4 · Sími 520 3000
www.sminor.is
Tæki færi