Fréttablaðið - 13.03.2009, Síða 2
2 13. mars 2009 FÖSTUDAGUR
SAMFÉLAGSMÁL Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráð-
herra bað fyrrverandi vistmenn Breiðavíkur afsök-
unar fyrir hönd íslensku þjóðarinnar á Alþingi í
gær. Jafnframt bað hún alla þá afsökunar sem vist-
aðir voru sem börn á stofnunum og sættu þar illri
meðferð og ofbeldi.
Jóhanna var með þessu að svara
fyrirspurn frá Helga Hjörvar,
þingmanni Samfylkingarinnar,
um það hvar mál Breiðavíkur-
drengjanna væri statt í stjórn-
kerfinu. Að lokinni afsökunar-
beiðninni bætti hún því við að
ekki væri hægt „að ætlast til að
slík fyrirgefning sé veitt nema
þessi kafli í sögu íslenskra barna-
verndarmála sé gerður upp“.
Bárður Ragnar Jónsson, for-
maður Breiðavíkursamtakanna,
segir þetta fallegt af Jóhönnu. „Og ég þykist vita að
Breiðavíkurdrengir séu mjög ánægðir með þetta því
fyrir marga þeirra hefur skipt miklu máli að heyra
eitthvað svona,“ segir hann. Afsökunarbeiðnin hafi
komið honum á óvart.
Hann segir þetta vísi að áherslubreytingum hjá
stjórnvöldunum í málinu. „Þetta er allt annar tónn
og allt annað viðhorf. Það er ekki þessi hrokafulla
lítilsvirðing sem við töldum okkur margir mæta frá
Geir Haarde og hans hópi í kringum þetta,“ segir
Bárður. - sh
Breiðavíkurdrengur er ánægður með afsökunarbeiðni Jóhönnu Sigurðardóttur:
Ekki sama hrokafulla lítilsvirðingin
FORSÆTISRÁÐHERRA Bað Breiðavíkurdrengina og fjölskyldur
þeirra afsökunar fyrir hönd þjóðarinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
BÁRÐUR RAGNAR
JÓNSSON
www.bjarniben.is
Krafturinn
býr í fólkinu
Bjarna Benediktsson í 1. sæti.
í SV-kjördæmi, 14. mars.
LÖGREGLUMÁL Par sem lögreglan
á höfuðborgarsvæðinu handtók í
fyrrakvöld er grunað um að hafa
breytt tveimur íbúðum í gróður-
hús fyrir kannabisplöntur. Parið
var handtekið ásamt þriðja manni
af fíkniefnadeild lögreglunnar á
höfuðborgarsvæðinu.
Upphaf þessa umfangsmikla
ræktunarmáls má rekja lengra
aftur í tímann eða til þess þegar
lögregla stöðvaði kannabisræktun
í Breiðholti í síðustu viku. Þar gaf
á að líta því heil íbúð í fjölbýlishúsi
hafði verið tekin undir ræktunina
og var hún einungis notuð til þess
arna. Á þessum stað tók lögreglan
um 200 plöntur, auk ljósalampa og
annars búnaðar sem til þarf.
Þessi aðgerð leiddi svo lögregl-
una áfram í Laugardalinn þar sem
einnig reyndist vera íbúð, í fjölbýl-
ishúsi, stappfull af kannabisplönt-
um. Hún var einungis notuð til að
rækta plöntur eins og hin fyrri.
Þar tók lögreglan einnig um 200
plöntur ásamt búnaði.
Í tengslum við þessi tvö mál var
svo þrennt handtekið í fyrrakvöld,
tveir karlmenn og ein kona. Menn-
irnir, sem hafa áður komið við
sögu hjá lögreglu, eru á fimmtugs-
og sextugsaldri en konan er á fer-
tugsaldri. Konan og eldri karlmað-
urinn eru par. Þau liggja undir
rökstuddum grun um að standa
að þessari umfangsmiklu ræktun.
Yngri karlmaðurinn var svo hand-
tekinn í tengslum við málið.
Samkvæmt upplýsingum Frétta-
blaðsins voru plönturnar sem tekn-
ar voru í báðum tilvikum á mis-
munandi stigum ræktunar. Lítill
hluti efnisins var á lokastigi, sem
þýðir að búið var að saxa hann
niður.
Fólkið sem handtekið var gisti
fangageymslur í fyrrinótt. Það var
svo yfirheyrt fram eftir degi í gær
og sleppt úr haldi síðdegis.
Lögreglunni hefur orðið vel
ágengt við að stöðva kannabis-
ræktanir á höfuðborgarsvæð-
inu það sem af er árinu. Á síð-
ari hluta síðasta mánaðar höfðu
verið teknar um 1.300 kannabis-
plöntur. Síðan hefur talan farið
stöðugt hækkandi. Eftir síðustu
tvær haldlagningar má gera ráð
fyrir að plönturnar sem lögregla
hefur tekið séu nær 2.000 talsins,
það sem af er þessu ári. Til sam-
anburðar má nefna að allt árið
2008 lagði lögreglan á höfuðborg-
arsvæðinu hald á um 700 kanna-
bisplöntur. jss@frettabladid.is
Ræktuðu kannabis
í tveimur íbúðum
Par, karlmaður á sextugsaldri og kona á fertugsaldri, sem handtekið var í fyrra-
kvöld, er talið hafa lagt tvær íbúðir á höfuðborgarsvæðinu undir kannabisrækt-
un. Í hvorugri var búið en þar fundust hins vegar um 400 plöntur.
KANNABISRÆKTUN Í tveimur íbúðum í Breiðholti og Laugardal var ekki búið en hins
vegar reyndist vera þar í gangi gróskumikil ræktun á kannabisplöntum. Öflugum
gróðurhúsabúnaði hafði verið komið upp, þar á meðal ljósalömpum.
Ásta, er Svava að sauma að
E-Label?
„Já, en henni verður ekki kápan úr
því klæðinu.“
Ásta Kristjánsdóttir hjá fatalínunni E-
Label sakar Svövu Johansen og fyrirtækið
NTC um að koma í veg fyrir samstarf
E-Label og franskrar fataverksmiðju.
VINNUMARKAÐUR Stjórn HB Granda
ætlar að leggja til á aðalfundi
félagsins að greiddur verði átta
prósenta arður til hluthafa í ljósi
góðrar afkomu en félagið skilaði
2,3 milljarða hagnaði á síðasta ári,
eftir því sem fram kemur á heima-
síðu Verkalýðsfélags Akraness.
Vilhjálmur Birgisson, formað-
ur Verkalýðsfélags Akraness,
gagnrýnir þetta. „Það er móðgun
við fiskvinnslufólk HB Granda ef
greiddur verður út arður til hlut-
hafa á sama tíma og ekki var stað-
ið við þær launahækkanir sem áttu
að koma til 1. mars,“ segir hann í
grein á vefsíðu félagsins. - ghs
Verkalýðsfélag Akraness:
Arður móðgun
við verkafólk
VEÐUR Skemma í eigu Síldar-
vinnslunnar í Neskaupstað (SVN)
hrundi saman undan snjóþyngsl-
um í vikunni. Skemman, sem
stendur rétt innan við gamla
frystihúsið í bænum, var orðin
vel við aldur og að sögn heima-
manna kom lítt á óvart að hún
skyldi leggjast saman, það hafi í
raun aðeins verið tímaspursmál.
Austurglugginn sagði frá þessu.
Mikil snjóþyngsli eru eystra og
norður um land.
Ekki er talið að teljanleg verð-
mæti hafi verið geymd í skemm-
unni, og því sé ekki um sérstakt
tjón að ræða fyrir SVN. - shá
Skemma í Neskaupstað:
Lagðist saman
undan snjófargi
ÓNÝT Húsið er gjörónýtt eftir að það
lagðist saman undan snjóþyngslum.
MYND/KRISTÍN SVANHVÍT
STJÓRNSÝSLA Fjármálaeftirlitið
vill ekki gefa upp hversu margir
sóttu um stöðu forstjóra eftir-
litsins þar sem enn er beðið eftir
umsóknum sem kunna að hafa
verið póstlagðar.
Umsóknarfresturinn rann út á
miðnætti í fyrradag og Sigurður
Valgeirsson, fjölmiðlafulltrúi eft-
irlitsins, segir að tilkynning um
umsóknirnar sé væntanleg.
Jónas Friðrik Jónsson var áður
forstjóri Fjármálaeftirlitsins og
þáði hann 1,7 milljónir í laun á
mánuði. Að auki fékk Jónas 6,5
prósent af laununum í viðbótar-
framlag í lífeyrissjóð, umfram
venjulegt framlag. - kóþ
Staða forstjóra FME:
Segir ekki hve
margir sóttu um
STJÓRNMÁL Íþróttafélagið Þróttur
hefur beðið félagsmenn afsökun-
ar á því að póstlisti félagsins hafi
verið notaður til að senda í gær út
bréfið „Þróttara á þing“ frá Jór-
unni Frímannsdóttur sjálfstæðis-
konu. Það hafi verið gert í hugsun-
arleysi.
Jórunn er borgarfulltrúi sjálf-
stæðismanna og í framboði til
Alþingis. Hún er jafnframt for-
maður Þróttar. „Og veit allt um
það hvað íþróttir og ekki síst
aðstaða skipta miklu máli,“ segir
hún í bréfinu. Fjármunum til
íþróttamannvirkja sé vel varið.
Einnig segir þar að glapræði
væri að skipta um gjaldmiðil. - kóþ
Þróttur var kominn í pólitík:
Biðst forláts á
Jórunnarbréfi
STJÓRNMÁL Enn hefur ekki verið
ákveðið hvenær þingi verður frestað
þótt ákvörðun hafi verið tekin um
það að kosningar skuli fara fram 25.
apríl næstkomandi. Jóhanna Sigurð-
ardóttir forsætisráðherra mun lesa
úr forsetabréfi og tilkynna um kjör-
dag í dag.
„Þetta felur í sér að búið er að
festa kjördag niður og með þessu
verður opnað fyrir utankjörstaða-
kosningu,“ segir hún. „Þetta þýðir
hins vegar ekki að verið sé að fresta
þingi og þingmenn haldi heim.
Ákvörðun um það hefur enn ekki
verið tekin.“
Aðspurð hvenær henni þætti
æskilegast að þing hætti svo kosn-
ingabaráttan gæti formlega hafist
segir hún: „Í gegnum tíðina hefur
verið allur gangur á því. Minnst
hefur liðið einn mánuður.“
Hún segir enn fremur að for-
menn flokkanna hafi fengið í hendur
lista yfir þau mál sem ríkisstjórn-
in telji mikilvægt að afgreiða áður
en þingi er frestað. „Þetta eru mál
sem snerta heimilin og fyrirtækin
og atriði sem skipta máli við end-
urreisn fjármálamarkaðarins. Svo
er það stjórnarskrármálið sem er
reyndar helsta ágreiningsmálið.“
- jse
Ákveðið er að kosið skuli 25. apríl en ekki hvenær þingi verður frestað:
Óákveðið hvenær þing fer heim
FRÁ ÞINGI Enn er óvíst hvenær þing-
menn geta horfið úr þingsal og einbeitt
sér að kosningabaráttunni.
STJÓRNMÁL Kosið var í sérnefnd um
stjórnarskrármál í gær en hennar
hlutverk verður að fjalla um frum-
varp um breytingar á stjórnarskrá
sem nú er til meðferðar. Fyrsti
fundur nefndarinnar er snemma í
dag og verður þá skipt verkum en
heimildir Fréttablaðsins herma að
Valgerður Sverrisdóttir, þingmað-
ur Framsóknarflokks, sé líkleg-
ust til formennsku. Níu þingmenn
eiga sæti í nefndinni sem eru auk
Valgerðar, Lúðvík Bergvinsson og
Ellert B. Schram frá Samfylkingu,
Atli Gíslason, Vinstri grænum,
Guðjón A. Kristjánsson, Frjáls-
lynda flokki, og loks Björn Bjarna-
son, Sturla Böðvarsson, Birgir
Ármannsson og Jón Magnússon,
Sjálfstæðisflokki. - jse
Breytingar á stjórnarskrá:
Kosið í sérnefnd
Björgólfur Thor fellur
Björgólfur Thor Björgólfsson fellur um
nær fjögur hundruð sæti á lista Forbes
yfir auðugustu menn veraldar eða úr
307. sæti niður í 701.-793. sæti. Í mars
í fyrra voru eignir hans metnar á 227
milljarða en nú eru þær metnar á einn
milljarð bandaríkjadala.
VIÐSKIPTI
SPURNING DAGSINS