Fréttablaðið - 13.03.2009, Side 4

Fréttablaðið - 13.03.2009, Side 4
4 13. mars 2009 FÖSTUDAGUR UMHVERFISMÁL „Við erum ekki par hrifnir af þessu,“ segir Guðmund- ur Stefán Maríasson, formaður Stangaveiðifélags Reykjavíkur, um heimild borgarráðs til handa Fáki um að reisa nýja hesthúsabyggð í nágrenni Elliðaánna. Þrátt fyrir andmæli umhverf- is- og samgönguráðs Reykjavíkur, Veiðimálastofnunar, ráðgjafarhóps um málefni Elliðaánna og stanga- veiðimanna samþykkti skipulags- ráð Reykjavíkur og síðar borgar- ráð að leyfa nýju hesthúsabyggðina í Víðidal. Um er að ræða hús fyrir allt að sex hundruð hross. Guðmundur segir einn helsta ókost nýju byggðarinnar verða þann að skerða enn frekar vatns- aðdrætti Elliðaánna. Vatn sem nú renni í árnar muni mengast vegna hesthúsanna og þess vegna verða veitt í holræsakerfi borgarinnar. „Ég hef ekkert á móti hesta- mönnum og þeir mega hafa góða aðstöðu. En að bæta við hesthús- um við Elliðaárnar þegar byggð er komin nánast allt í kring er tímaskekkja. Borgaryfirvöld hafa margsinnis lýst yfir þeim ásetn- ingi að vernda lífríki ánna og stuðla að vexti og viðgangi laxa- stofna en þegar eitthvað annað kemur upp á þá virðist það vera í lagi að stofna lífríki Elliðaánna í stórkostlega hættu,“ segir Guð- mundur sem boðar frekara andóf frá stangaveiðimönnum. „Okkur finnst þetta hið einkennileg- asta mál. Við munum ekki sitja aðgerðalausir.“ Veiðimálastofnun bendir í umsögn sinni á að líta þurfi á vatnakerfi Elliðaánna sem eina heild og mikilvægt sé að fram- kvæmdir raski ekki lífríki þeirra. Umhverfis- og samgönguráð borg- arinnar telur ákvörðunina um upp- byggingu hesthúsabyggðina ótíma- bæra. Heppilegra væri að hugsa framtíðarráðstöfun svæðisins út frá breiðari grunni. Skoða þurfi hvort annað útivistarfólk eigi ekki líka tilkall til þessa hluta Elliða- árdalsins. Guðmundur segir að borgin hafi í fyrra gefið fyrirheit um úthlut- un hesthúsalóðarinnar án þess að skipulag eða umsagnir lægju fyrir. „Þrátt fyrir allar gagnrýnu umsagnirnar virðist eiga að standa við fyrirheitin.“ Skipulagsráð borgarinnar sam- þykkti nýja hesthúsahverfið með vísan til jákvæðrar umsagnar umhverfisstjóra skipulags- og byggingarsviðs. gar@frettabladid.is www.illugi.is ILLUGI GUNNARSSON 1. SÆTI Ég vil hvetja þig til að taka þátt í prófkjöri sjálfstæðismanna í Reykjavík nú um helgina og leita eftir stuðningi þínum í fyrsta sæti listans. DÓMSMÁL Handtökuskipun hefur verið gefin út á hendur karl- manni á fertugsaldri sem mætti ekki fyrir Héraðsdóm Suður- lands í vikunni eftir að hafa verið ákærður fyrir líkamsárás, ofbeldisverk og líflátshótanir. Manninum er gefið að sök að hafa ruðst inn til konu, ráð- ist á hana og hótað henni líf- láti. Skömmu síðar réðst hann með ofbeldi á lögreglumann og tók hann kverkataki. Enn réðst maðurinn að tveimur lögreglu- mönnum í lögreglubíl, sparkaði til þeirra og hótaði báðum ítrek- að lífláti. Síðar um kvöldið réðst hann svo á lögreglumann, þreif í hann og hótaði honum lífláti. - jss Héraðsdómur Suðurlands: Handtökuskip- un á fertugan ofbeldismann LÖGREGLUMÁL Lögreglan á Akur- eyri fann tæki og tól til fíkni- efnaneyslu, nokkur grömm af fíkniefnum, kannabisfræ, stera og loftskammbyssu í tveim- ur húsleitum fyrr í vikunni. Þá höfðu tveir karlmenn á þrítugs- aldri verið handteknir vegna gruns um fíkniefnamisferli eftir að þeir voru stöðvaðir á bifreið við eftirlit. Ofangreind efni og loftskammbyssan fundust svo á heimilum beggja mannanna. Auk þessa er annar mannanna grunaður um að hafa ekið bif- reiðinni undir áhrifum fíkni- efna. Í fyrrakvöld var síðan maður um tvítugt handtekinn á Akur- eyri með smáræði af kannabis- efnum á sér. - jss Húsleit lögreglu á Akureyri: Fann kanna- bisfræ og loft- skammbyssu DÓMSMÁL Karlmaður á sextugs- aldri hefur verið dæmdur í sex mánaða fangelsi fyrir að ráðast á annan mann í Fógetagarðinum í Reykjavík og veita honum lífs- hættulega áverka. Fórnarlambið var ásamt fleir- um á bekk í Fógetagarðinum þegar árásarmanninn bar þar að. Sá sem ráðist var á hafði verið að syngja. Árásarmaðurinn veitti honum höfuðhögg svo hann féll við og sparkaði síðan í hann. Maðurinn reyndist hafa fengið lífshættulega blæðingu utan við heilahvel. Dómurinn segir árásina hafa verið fólskulega og tilefnislausa. Árásarmaðurinn var dæmdur til að greiða fórnarlambinu tæpar 450 þúsund krónur í skaðabætur. - jss Sex mánaða fangelsi: Fólskuleg árás í Fógetagarði Hesthúsabyggð sögð ógn við Elliðaárnar Formaður Stangaveiðifélags Reykjavíkur segir það ekki munu sitja aðgerðalaust eftir að borgarráð samþykkti hesthúsabyggð við Elliðaárnar í andstöðu við um- hverfisráð borgarinnar, Veiðimálastofnun og ráðgjafarhóp um Elliðaárnar. NÝJA HESTHÚSA- HVERFIÐ Í VÍÐIDAL Formaður Stangaveiðifélags Reykjavíkur segir það tímaskekkju að byggja hesthús við Elliðaárnar.ELLIÐAÁRNAR VÍÐIDALUR GUÐMUNDUR STEFÁN MARÍASSON ALÞINGI Ísland verður friðlýst fyrir allri meðferð og umferð kjarnorkuvopna og kjarnorku- knúinna far- artækja, verði frumvarp sem Árni Þór Sig- urðsson mælti fyrir á Alþingi í gær að veru- leika. Þing- menn úr öllum flokkum nema Sjálfstæðis- flokknum eru flutningsmenn. Þetta er í níunda sinn sem frumvarp í þessa veru er lagt fram og sagði Árni Þór að aldrei hefði það komist til umfjöllun- ar í nefnd. Hann upplýsti að 74 af 79 sveitarfélögum landsins hafi þegar friðlýst lönd sín á sama hátt og búi 95 prósent íbúa lands- ins á friðlýstum svæðum. - kóp Kemur loks til umfjöllunar: Friðlýst verði fyrir kjarnorku ÁRNI ÞÓR SIGURÐSSON VEÐURSPÁ HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. Alicante Amsterdam Basel Berlín Billund Eindhoven Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London New York Orlando Osló París Róm Stokkhólmur 18° 12° 12° 9° 9° 14° 11° 9° 6° 7° 23° 15° 5° 28° 3° 16° 17° 4° -3 -2 -3 -1 -3 1 1 4 1 -1 -4 1 4 Á MORGUN 18-25 norðvestan til annars yfi rleitt mun hægari. -60 SUNNUDAGUR 13-20 m/s austast á landinu og á annesjum nyrst annars hægari. 13 10 5 5 5 8 8 8 13 7 2 -6 SLÆM VEÐURSPÁ Lægðin sem valda mun stormi syðst og suðaustast í kvöld mun valda miklu óveðri á Vestfjörðum á laugardag. Þá eru horfur á NA-stormi með blindbyl og ákafri snjókomu þar um slóð- ir. Einnig verður hvasst við Breiðafjörðinn og úti við norðurströndina með snjókomu þó hún verði þar heldur minni en á Vestfjörðum. Á sunnudag lægir, eink- um eftir hádegi. 0 0-4 18 4 Sigurður Þ. Ragnarsson veður- fræðingur STJÓRNMÁL Enginn talsmanna þing- flokkanna útilokaði beinlínis ESB- viðræður á næsta kjörtímabili, á viðskiptaþingi í gær. Steingrímur J. Sigfússon, for- maður VG, var einn um að lýsa miklum efasemdum sínum og telur að krónan kunni að gagnast Íslend- ingum best á næstu árum. „Að minnsta kosti um sinn, á meðan við erum að reyna að komast út úr þessu með auknum útflutningi og verðmætasköpun, sem byggir á raunsætt skráðum gjaldmiðli,“ spurði hann. VG hefði ekki breytt um stefnu, en þegar málið kæmi til ákvörðunar, ætti að setja það í þjóð- aratkvæðagreiðslu. Ágúst Ólafur Ágústsson, vara- formaður Samfylkingar, sagði aðild að ESB vera mikið hags- munamál: „Ég tel að Samfylkingin eigi að setja það sem skilyrði fyrir aðild sinni að næstu ríkisstjórn að aðildarviðræður að ESB hefjist á næsta kjörtímabili,“ sagði hann. Þorgerður Katrín Gunnars- dóttir, varaformaður Sjálfstæðis- flokks, sagðist vonast til þess að næsti formaður flokksins fengi umboð landsfundar hans til að fara í viðræður. „Við verðum að meta hlutina upp á nýtt,“ sagði hún. Sigmundur Davíð Gunnlaugs- son, formaður Framsóknar, sagði stefnu flokksins skýra: „Afstaðan er að sækja um aðild að Evrópu- sambandinu og taka upp evru,“ sagði hann. Sigmundur spurði þá Steingrím nánar út í hans afstöðu; hvort hann útilokaði stjórnarsam- starf við Samfylkinguna, setti hún Evrópumál að skilyrði. Steingrím- ur svaraði því ekki játandi en vildi þó vara Samfylkingu við að setja skilyrði. Guðjón Arnar Kristjánsson, for- maður frjálslyndra, sagði þjóðina eiga að svara spurningunni um ESB í atkvæðagreiðslu. Skilyrði flokksins væru skýr: að halda í auðlindir þjóðarinnar. - kóþ Talsmenn þingflokka Samfylkingar, Sjálfstæðisflokks og Framsóknar afdráttarlausir í afstöðu sinni: Enginn útilokar beinlínis ESB-viðræður VIÐSKIPTAÞING 2009 Evrópumál voru ofarlega á baugi hjá stjórnmálamönnum á viðskiptaþingi í gær, sem og eignar- hald ríkis á fyrirtækjum og kreppan. Þorgerður Katrín gerði þó tekjuskatt einstaklinga að sérstöku umræðuefni. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN GENGIÐ 12.03.2009 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 174,4655 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 111,25 111,79 153,18 153,92 142,08 142,88 19,067 19,179 15,967 16,061 12,596 12,67 1,1556 1,1624 163,6 164,58 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.