Fréttablaðið - 13.03.2009, Side 12
12 13. mars 2009 FÖSTUDAGUR
A
R
G
U
S
/
0
9
-0
0
4
7
Björt framtíð er góð ...
Sæktu um SPRON Framtíð á spron.is,
eða í næsta útibúi SPRON.
*Til að fá mótframlag þarf að leggja inn 3.000 kr. eða meira.
Hámark tveir reikningar á hvert fermingarbarn.
Innlánsreikningurinn SPRON Framtíð er tilvalin fermingargjöf. Gjafabréf
fylgir við stofnun reiknings auk 2.000 kr. mótframlags* frá SPRON.
Fermingarbörn, sem leggja inn 30.000 kr. eða meira fyrir 5. júní nk.,
fá einnig 5.000 kr. frá SPRON og fara í lukkupott þar sem hægt
er að vinna glæsilega vinninga.
REKUR ÚT ÚR SÉR TUNGUNA Hann
er ekki í vandræðum með að ulla á
glápendur, þessi gíraffi í Dusit-dýra-
garðinum í Bangkok í Taílandi.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
SERBÍA, AP Þrettán Serbar voru
í gær dæmdir af serbneskum
stríðsglæpadómstól til allt að 20
ára fangavistar fyrir stríðsglæpi
vegna þátttöku sinnar í fjölda-
morðum á 200 Króötum árið
1991.
Hinir myrtu voru stríðsfang-
ar. Þeir voru skotnir til bana með
hríðskotabyssum, sjö til átta í
senn, í nóvember 1991 á svína-
búi skammt frá bænum Vukovar í
Króatíu meðan á stríði Króata og
Serba stóð.
Víða var litið á réttarhöldin
yfir Serbunum þrettán sem eins
konar prófraun á það hvort serb-
neskt dómsvald sé fært um að
draga Serba til ábyrgðar fyrir
grimmdarverk sem framin voru
á tímum Slobodans Milosevic for-
seta. - gb
Serbneskur dómstóll:
Þrettán Serbar
dæmdir sekir
DÓMSMÁL Vilhjálmur Bjarnason,
lektor í viðskiptafræði, tapaði í
gær skaðabóta-
máli sem hann
og dætur hans
höfðuðu gegn
Straumi. Vil-
hjálmur krafðist
þrjátíu þúsund
króna í bætur.
Hann fullyrti
að Straumur
hefði mismun-
að hluthöfum
þegar gengið var
til samninga við ónefndan fjár-
festi um kaup á bréfum í bankan-
um. Vilhjálmur sagði bréfin hafa
verið seld á undirverði og hlut-
hafar hefðu því beðið skaða af.
Á þetta féllst Héraðsdómur
Reykjavíkur ekki. - sh
Lektor lýtur í lægra haldi:
Vilhjálmur lá á
móti Straumi
VILHJÁLMUR
BJARNASON
NEYTENDUR Mikill verðmunur er á
ferskum fiski í fiskbúðum, sam-
kvæmt könnun sem Verðlagseft-
irlit ASÍ hefur gert í verslunum á
höfuðborgarsvæðinu. Kannað var
verð á 29 fisktegundum í fiskbúð-
um og fiskborðum stórmarkaða
og var Fiskbúðin Hafberg oftast
með hæsta verðið en lægsta verð-
ið var oftast í Litlu fiskbúðinni í
Hafnarfirði eða níu sinnum.
Fiskbúðin Freyja í Kópavogi,
sem er ný verslun með litla yfir-
byggingu og selur lítið unn-
inn fisk, var fimm sinnum með
lægsta verðið af þeim átta teg-
undum sem skoðaðar voru og til
voru í búðinni. - ghs
Fiskur á höfuðborgarsvæðinu:
Ódýrast í Litlu
fiskbúðinni
ALÞINGI Mat skilanefndar Lands-
bankans á því hve stór hluti Ice-
save-skuldbindinganna mun lenda
á íslensku þjóðinni er „háð gríð-
arlegri óvissu“ segir Steingrím-
ur J. Sigfússon fjármálaráðherra.
„Og það er rétt að upplýsa að það
eru ekki allir aðilar jafnbjartsýn-
ir á þetta mat eins og skilanefnd
Landsbankans,“ segir hann.
Skilanefndarmenn hafa sagt að
vonir þeirra standi til að um 72
milljarðar standi eftir af skuld-
bindingunum þegar eignir hafa
verið seldar að nokkrum árum
liðnum.
Tekist var á um Icesave-málið
á þingi í gær. Siv Friðleifsdóttir,
þingmaður Framsóknarflokksins,
hóf utandagskrárumræður um
málið, sem hún kallaði „eitthvert
mesta óréttlætismál síðari tíma“.
Sjálfstæðismennirnir Sigurður
Kári Kristjánsson og Pétur Blön-
dal gagnrýndu stjórnarliða fyrir
lausatök í málinu, ekki hafi verið
leitað til reyndustu sérfræðinga
til að semja um málið við kröfu-
hafa fyrir Íslands hönd og að svo
virtist sem Íslendingar ætluðu ein-
faldlega að gleypa við þeim kröf-
um þeim yrðu settar.
Stjórnarliðar, ásamt Siv, gagn-
rýndu sjálfstæðismenn aftur
fyrir það sem þeir kölluðu sinna-
skipti flokksins í málinu. Flokks-
menn hefðu greitt því atkvæði
fyrr á árinu að Íslendingar skyldu
standa við sínar skuldbindingar og
því væri einkennilegt að heyra þá
efast um það nú.
Þá spurði Siv Steingrím hvort
eitthvað ræki á eftir því að nið-
urstaða fengist fljótt í málið. „Ég
held að það sé okkur í hag að vera
ekki að ná niðurstöðu of hratt af
því að eftir því sem tíminn líður þá
held ég að Bretar hljóti að skynja
stöðu mála hér og sýna okkur
meiri skilning með vaxtakjör og
annað.“
Steingrímur svaraði því til að
vissulega væri lögð áhersla af
hálfu samningsaðila okkar á að
málinu yrði hraðað sem mest. Gert
hafi verið ráð fyrir að samninga-
viðræðum lyki á næsta hálfa ári.
stigur@frettabladid.is
Mat á Icesave-ábyrgð
kannski of bjartsýnt
Ekki eru allir sammála skilanefnd Landsbankans um að aðeins muni um 72
milljarðar af Icesave-ábyrgðunum falla á íslensku þjóðina, segir fjármálaráð-
herra. Siv Friðleifsdóttir vill tefja samningaviðræður og telur það okkur í hag.
Geir H. Haarde kvaddi sér hljóðs í umræðunum um Icesave-málið til að
bera af sér sakir. Hann mótmælti harðlega ásökunum sem komu fram í
máli Sivjar Friðleifsdóttur, og heyrst höfðu áður, þess efnis að hann hefði
sagt þinginu rangt frá á sínum tíma varðandi vitneskju sína um meint tilboð
breska fjármálaeftirlitsins um að Icesave-reikningarnir yrðu fluttir í íslenska
lögsögu gegn 200 milljóna punda tryggingu.
„Hvað menn segja í örvæntingu sinni um miðja nótt er eitt og kannski
ekki mikið mark á því takandi,“ sagði Geir. „En að koma síðan hér og bera á
forsætisráðherrann að hann hafi sagt þinginu ósatt er óboðlegt og ég sætti
mig ekki við það,” sagði hann enn fremur.
GEIR BAR AF SÉR SAKIR
EKKI ALLIR EINS
BJARTSÝNIR Stein-
grímur sagði að
því miður væri það
hluti af samningum
okkar við Alþjóða-
gjaldeyrissjóðinn og
aðra lánveitendur
að við gerðum upp
Icesave-skuldbind-
ingarnar.
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/ G
VA