Fréttablaðið - 13.03.2009, Síða 18
18 13. mars 2009 FÖSTUDAGUR
FRÉTTASKÝRING: Gjaldþrot Baugs Group
Skotárásir í skólum, þar sem í flestum tilvikum nemi úr viðkomandi skóla mætir
með skotvopn og skýtur af handahófi á það fólk sem á vegi hans verður, eru
þekkt fyrirbæri sem dæmi eru um frá mörgum löndum heims. Oftast enda slíkir
harmleikir með því að árásarmaðurinn eða -mennirnir svipta sig lífi eða deyja í
skotbardaga við lögreglu.
Skólaskotárásir af þessu tagi eru í eðli sínu frábrugðnar öðru ofbeldi í skólum.
Fjöldamorð í skólum á borð við það sem átti sér stað í gíslatökunni í Beslan í
Norður-Ossetíu í Suður-Rússlandi árið 2004 er almennt skilgreint sem hryðjuverk.
Og ofbeldi á borð við hnífaslagsmál, barsmíðar eða ofbeldi tengt gengjastríðum
er frekar einkennandi fyrir skóla í þéttbýlum stórborgarhverfum þar sem fátækt og
félagsleg vandamál eru meiri en annars staðar.
■ Árásarmennirnir?
Í flestum tilvikum skólaskotárása eru árásarmennirnir nemar í skólanum. Þeir
eru oft einfarar, fórnarlömb eineltis eða þunglyndir, eða einhver blanda af þessu
þrennu. Ásamt því að hafa aðgang að skotvopni. Sumir þeirra hafa fyrir hinn
örlagaríka berserksgang sýnt af sér ofbeldishneigð eða áberandi óvenjulega
hegðun, en það er þó alls ekki einhlítt. Sumir eru bældir drengir sem ekki hafa
sýnt neina áberandi afbrigðilega hegðun fyrr en þeir einn góðan veðurdag mæta
blóðþyrstir með alvæpni í skólann.
■ Aðrar skotárásir?
Meðal þekktustu dæmanna um slíkar árásir er sú sem átti sér stað
í Columbine-gagnfræðaskólanum í Littleton í Colorado 20. apríl
1999. Þá mættu tveir skólafélagar, Eric Harris og Dylan Kle-
bold, með alvæpni í skólann og urðu tólf samnemendum og
einum kennara að bana áður en þeir sviptu sjálfa sig lífi. 27
til viðbótar hlutu skotsár. Skotárásar-berserksgangurinn sem
Finninn Matti Saari gekk í iðnskóla í Kauhajoki í Finnlandi
í september síðastliðnum er dæmi um að slíkir harmleikir
eru ekki bundnir við fjölmenn lönd á borð við Bandaríkin
og Þýskaland, heldur geta líka átt sér stað á Norðurlöndum.
FBL-GREINING: SKOTÁRÁSIR Í SKÓLUM
Vansælir nemar
ganga berserksgang
FINNSKI SKÓLA-
SKOTMAÐURINN
MATTI SAARI
Gjaldþrot Baugs Group er
áfall fyrir eigendur félags-
ins, skuldunauta, starfs-
menn og fleiri. Baugur
seldi Haga, sem reka Bón-
us, Hagkaup og fleiri versl-
anir í júlí í fyrra. Heimild-
ir eru í lögum til að rifta
samningum þyki eitthvað
óeðlilegt við kaupin.
Stjórn Baugs Group ákvað á mið-
vikudag að óska eftir því að félag-
ið verði tekið til gjaldþrotaskipta.
Það gerði stjórnin eftir að héraðs-
dómur hafði hafnað beiðni félags-
ins um áframhaldandi greiðslu-
stöðvun. Fremur skamman tíma
ætti að taka að taka félagið til
gjaldþrotaskipta, en sjálf gjald-
þrotaskiptameðferðin getur tekið
einhver ár, að mati sérfræðinga.
Eitt af verkefnum skiptastjóra
er að fara yfir greiðslur og samn-
inga sem gerðir hafa verið síðustu
misserin fyrir gjaldþrot. Hægt
er að fara fram á að samningum
verði rift, sé grunur um að eitt-
hvað óeðlilegt hafi átt sér stað.
Geri skiptastjóri ekki slíkar
athugasemdir geta kröfuhafar í
þrotabúið gert slíkar kröfur.
Seldu fjölskyldufyrirtæki Haga
Baugur Group seldi allar verslan-
ir sínar á Íslandi, sem reknar eru
undir fyrirtækinu Högum, út úr
félaginu í júlí 2008. Verslanirnar
fóru þó ekki langt, kaupandinn
var félag í eigu Fjárfestingafé-
lagsins Gaums, sem er fjölskyldu-
fyrirtæki Jóns Ásgeirs Jóhannes-
sonar, og eigandi Baugs Group.
Undir Haga heyra til dæmis
matvöruverslanirnar Bónus,
Hagkaup og 10-11. Félagið rekur
einnig fataverslanir hér á landi,
til dæmis Debenhams, Karen
Millen, Topshop, og Útilíf. Um
2.500 manns starfa hjá fyrirtækj-
um Haga, segir Finnur Árnason,
forstjóri félagsins.
Finnur segir að staða félags-
ins hafi ekki breyst við gjaldþrot
Baugs Group. Það eigi ekki að
hafa nein áhrif á Haga.
Útiloka ekki kröfu um Haga
Íslandsbanki og skilanefnd Glitn-
is börðust gegn því í héraðsdómi
að greiðslustöðvun Baugs Group
yrði framlengd. Árni Tómasson,
formaður skilanefndar Glitnis,
segir of snemmt að tjá sig um það
hvort þess verði krafist að samn-
ingi um sölu á Högum út úr Baugi
Group verði rift.
„Það hefur ekkert verið ákveð-
ið í þeim efnum, hvorki af né á,“
segir Árni. Hann segir almenn-
ar reglur munu gilda í þessu til-
viki, og fyrst og fremst sé það
óháðs skiptastjóra að meta hvort
einhverjir gjörningar sem tilefni
sé til að rifta hafi verið gerðir í
félaginu.
„Það hefur engin ákvörð-
un verið tekin af hálfu bankans
sem lítur að búskiptunum,“ segir
Ingvi Hrafn Óskarsson, lögmaður
Íslandsbanka, spurður um kröfu
tengda sölu Haga. Hann segir að
eins og almennt í slíkum málum
verði væntanlega farið yfir samn-
inga sem gerðir hafi verið af
félaginu síðustu misserin.
Hvorki Íslandsbanki né skila-
nefnd Glitnis hefur útilokað að
óskað verði eftir því að samning-
um um sölu Haga verði rift.
Hægt að rifta innan tveggja ára
Samkvæmt lögum um gjaldþrota-
skipti er heimilt að rifta svoköll-
uðum gjafagjörningum. Undir
það falla samningar sem eru
óeðlilega óhagstæðir fyrir fyrir-
tæki eða einstakling sem er á leið
í gjaldþrot, segir Stefán Már Stef-
ánsson, lagaprófessor við Háskóla
Íslands.
Einnig er heimilt að rifta óeðli-
legum greiðslum á skuldum, til
dæmis greiðslu með varningi eða
öðru sambærilegu.
Yfirleitt er ekki hægt að rifta
samningum sem gerðir voru
meira en sex mánuðum áður en
félag fer í þrot. Heimildir eru þó
rýmri í einhverjum tilvikum, til
dæmis þegar samningurinn er
á milli nákominna, segir Stefán.
Hann segir það dómstóla að meta
hvort um nákomna aðila sé að
ræða í hverju tilviki, en slíkt eigi
yfirleitt við um fjölskyldumeðlimi
eða móður- og dótturfélög.
Vegna ákvæða um samninga
milli nákominna er því ekki hægt
að útiloka að skiptastjóri Baugs
Group, eða kröfuhafar í þrotabú-
ið, geti krafist þess að samningur
um sölu á Högum verði felldur út
gildi, þrátt fyrir að meira en sex
mánuðir séu liðnir frá sölunni.
Það er ekki einfalt að gera
kröfu um að samningum sem
gerðir voru fyrir gjaldþrot fyrir-
tækis verði rift. Sýna þarf fram á
að eitthvað óeðlilegt hafi verið við
samninginn, segir Stefán.
Þannig væri ekki hægt að rifta
samningi um sölu á kókflösku á
eðlilegu verði, en hafi kókflaskan
verið seld á tíu krónur gæti verið
um gjafagjörning að ræða.
Skiptastjóri eða kröfuhafi þurfa
að höfða mál fyrir dómstólum til
að rifta þess konar gjafagjörn-
ingum. Þá þurfa þeir að sanna
að óeðlilega hafi verið staðið að
málum, til dæmis að fyrirtæki
hafi verið selt fyrir upphæð undir
markaðsvirði félagsins.
Ekki hefur verið gert opinbert
hvað Fjárfestingafélagið Gaumur
greiddi fyrir Haga, en forsvars-
menn Baugs Group hafa upplýst
að óháður aðili hafi verið fenginn
til að verðmeta fyrirtækið áður
en gengið var frá sölunni.
Það er því ekki hægt að útiloka
að hægt verði að krefjast riftun-
ar á samningi um sölu Haga, en
niðurstaðan úr slíku máli myndi
væntanlega byggja að mestu á því
hvort verðmatið hafi verið rétt.
Veltur á mati matsmanna
Ekki er óalgengt að gerðar séu
kröfur um riftingu samninga í
gjaldþrotamálum, segir Stefán.
Reynslan sýni að þegar gjald-
þrotið sé yfirvofandi geri menn
oft ýmsar ráðstafanir sem þeir
myndu annars ekki gera.
Afar misjafnt er hversu auðvelt
er að sanna að eitthvað óeðlilegt
hafi átt sér stað, segir Stefán. Þó
sé það ákveðin þumalputtaregla
að því meiri sem tengsl einstakl-
inga eða fyrirtækja séu, því auð-
veldara sé að sýna fram á óeðli-
lega viðskiptahætti. Þetta sé til
dæmis þekkt í samningum móð-
urfélags við dótturfélög.
Yfirleitt skiptir samt mestu mat
dómkvaddra matsmanna á verð-
mæti þess sem talið er að hafi
verið gefið eða selt með óeðli-
legum hætti. Það mat getur til
dæmis byggt á markaðsvirði fyr-
irtækis á þeim tíma sem það var
selt, sé það þekkt.
Ekki útséð með Haga
VERSLANIR Verði það niðurstaða skiptastjóra Baugs Group eða kröfuhafa í þrota-
búið að söluverð Haga hafi verið óeðlilega lágt er möguleiki að þess verði krafist
að samningnum verði rift. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
GAUMUR
Bretland
Goldsmith*
Aurum*
House of Fraser (35%)
Iceland*
Hamleys*
All Saints*
Whistles*
Jane Norman*
Matthew Williamson*
French Connection (17,99%)
Debenhams (7%)
Mosaic Fashions (49%)
Karen Millen
Principles
Oasis
Warehouse
Coast
Bandaríkin
Saks (8,6%)
Danmörk
Magasin du Nord
Illum
Scandinavian Design & Retail
BAUGUR GROUP
Matvöruverslanir
Bónus
Hagkaup
10-11
Fataverslanir
Debenhams
Karen Millen
All Saints
Warehouse
Topshop
Zara
Oasis
Dorothy Perkins
Coast
Evans
Útilíf
Jane Norman
DAY
Innkaupafyrirtæki
Bananar
Hýsing
Aðföng
BT
Ferskar kjötvörur
HAGAR
Stoðir* (var FL Group)
STYRKUR INVEST
Teymi*
Nyhedsavisen*
STOÐIR INVEST
365 Miðlar*
Fréttablaðið
Stöð 2
SÝN**
* Ráðandi hlutur
** Sér félag í eigu Jóns
Ásgeirs Jóhannessonar
Gjaldþrota eða í
greiðslustöðvun
Í rekstri
FRÉTTASKÝRING
BRJÁNN JÓNASSON
brjann@frettabladid.is
Kr. 21.995*
Nýja S2120 ryksugan frá Miele er lágvær, létt, kraftmikil
og með stórum poka. Hún fæst í rauðu og bláu.
Parketbursti að andvirði kr. 8.650 fylgir frítt með.
Kynntu þér málið hjá sölumönnum Eirvíkur
Sparaðu
með Miele
TILBOÐ
*tilboð gildir á meðan birgðir endast.
Þú sparar
kr. 8.650