Fréttablaðið - 13.03.2009, Page 20
20 13. mars 2009 FÖSTUDAGUR
Umsjón: nánar á visir.is
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
Fjöldi viðskipta: 45 Velta: 143 milljónir
OMX ÍSLAND 15 OMX ÍSLAND 6
219 -1,76% 563 -3,19%
MESTA HÆKKUN
FØROYA BANKI +0,49%
MESTA LÆKKUN
ALFESCA - -12,50%
BAKKAVÖR -9,38%
MAREL -4,48%
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Alfesca 2,80 -12,50% ... Atlantic
Airways 171,00 +0,00% ... Atlantic Petroleum 240,00 +0,00% ...
Bakkavör 1,45 -9,38% ... Eik Banki 91,50 +0,00 ... Eimskipafélagið
0,75 +0,00% ... Føroya Banki 103,00 +0,49% ... Icelandair Group
11,20 +0,00% ... Marel Food Systems 49,00 -4,48% ... SPRON 1,90
+0,00% ... Össur 72,80 -3,19%
„Þetta er gleðileg við-
urkenning sem getur
auðveldað okkur sam-
starf við erlenda aðila
og aðgang að styrkjum,“
segir Kristinn John-
sen, stofnandi og fram-
kvæmdastjóri Mentis
Cura.
Fyrirtækið hlaut í gær
Nýsköpunarverðlaun
Rannís, Nýsköpunarmið-
stöðvar og Útflutnings-
ráðs árið 2009. Katrín
Jakobsdóttir mennta-
málaráðherra afhenti
Kristni verðlaunin undir
lok þéttsetins Nýsköpun-
arþings, sem haldið var í
gær. Gestir voru 250 tals-
ins og hafa aldrei verið
fleiri.
Mentis Cura hefur
síðastliðin níu ár þróað
aðferðir til að greina
heilabilanir með heilarit-
um og nútímamyndgrein-
ingartækni.
Það stundar viðamiklar klínískar rannsóknir og þróar reiknirit
sem miðar m.a. að því að styðja við greiningu Alzheimer sjúkdóms-
ins og ofvirkni í börnum. - jab
Mentis Cura hlaut Ný-
sköpunarverðlaunin
ÁFANGANUM FAGNAÐ Katrín Jakobsdóttir
menntamálaráðherra og Kristinn Johnsen, stofn-
andi og framkvæmdastjóri Mentis Cura, sem
heldur verðlaunagripnum á lofti. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
„Erlendir hlutabréfamarkaðir hafa verið
skelfilegir á sama tíma og lífeyrissjóðir
hafa engar varnir gegn styrkingu krón-
unnar,“ segir Hrafn Magnússon, fram-
kvæmdastjóri Landssamtaka lífeyris-
sjóða.
Hrein eign lífeyrissjóðanna nam rétt
tæpum 1.615 milljörðum króna í janúar-
lok, sem er um 29 milljarða króna lækkun
frá áramótum, samkvæmt nýbirtu yfirliti
Seðlabankans um stöðu lífeyrissjóðanna.
Hlutfallsleg lækkun jafngildir um 1,8 pró-
sentum.
Erlendar eignir lífeyrissjóðanna námu
424 milljörðum króna í lok mánaðarins.
Það jafngildir rétt rúmum fjórðungi af
heildareign sjóðanna.
Þær lækkuðu um 50
milljarða í mánuðinum,
að mestu leyti vegna
styrkingar krónunnar.
Greiningin bend-
ir á að staða lífeyris-
sjóðanna sé sterk þrátt
fyrir allt enda hafi hún
numið 112 prósentum af
vergri landsframleiðslu
í fyrra, sem þyki mjög
hátt í alþjóðlegum samanburði en sam-
kvæmt tölum Efnahags- og framfarastofn-
unarinnar (OECD) standa Svisslendingar
og Hollendingar okkur á sporði. - jab
HRAFN
MAGNÚSSON
Lífeyrissjóðirnir varnarlausir
Fimmtíu milljarðar króna af erlendum eignum lífeyrissjóðanna gufuðu upp á einum mánuði.
Lífeyrissjóðirnir skora afar hátt í alþjóðlegum samanburði.
1.800
1.750
1.700
1.650
1.600
1.550
0
Janúar Janúar
2008 2009
Hrein eign lífeyrissjóðanna
á árabilinu 2008 til 2009
Tölur í milljörðum króna
1.656
1.823
1.615
Norræni fjárfestingabankinn (NIB)
tapaði 281 milljón evra, tæpum 41
milljarði króna, í fyrra samanborið
við 69 milljóna evra hagnað í hitt-
iðfyrra.
Tapið liggur að mestu í afskrift-
um lána, en slíkt hefur ekki sést
í bókum bankans í áraraðir. Stór
hluti afskriftanna er vegna falls
bandaríska fjárfestingabankans
Lehman Brothers og falls íslensku
bankanna. Óvissa er um heimtur
krafna, líkt og segir í tilkynningu.
Lánveitingar NIB jukust veru-
lega á milli ára í fyrra en heildar-
útlán námu 2,7 milljörðum evra,
sem hefur hálfum milljarði meira
en í hittifyrra.
NIB er fjölþjóðleg fjármála-
stofnun í eigu átta landa og fjár-
magnar einkarekin og opinber
verkefni í og utan aðildarríkjanna.
- jab
NIB afskrifar
Íslandslánin
HLUTHAFAR BANKANS*
Land Hlutfall
Svíþjóð 36,7%
Danmörk 21,3%
Noregur 19,1%
Finnland 18,5%
Litháen 1,6%
Lettland 1,1%
ÍSLAND 0,9%
Eistland 0,7%
* HEIMILD: NIB
A
u
g
lý
si
n
g
a
sí
m
i
– Mest lesið
Straumur hafði samið við
kröfuhafa um framleng-
ingu stærstu lána þegar
skilanefnd tók lyklavöldin á
mánudag. Fjármálayfirvöld
ýmist kannast ekki við mál-
ið eða neita að tjá sig.
„Ég veit ekki til þess að ráðu-
neytið hafi vitneskju um þetta,“
segir Gylfi Magnússon viðskipta-
ráðherra, spurður um samkomu-
lag Straums við kröfuhafa sem
lá á borðinu á föstudag í síðustu
viku og átti að tryggja að bank-
inn gæti staðið við skuldbind-
ingar sínar með eignasölu fram
í ágúst.
Samkvæmt upplýsingum frá
Fjármálaeftirlitinu hefur verið
fylgst með starfsemi Straums og
það upplýst um áform bankans.
Það fjalli ekki um einstök atriði
er varði slík áform.
Straumur er með lán upp á 166
milljónir evra, jafnvirði 24 millj-
arða króna, á gjalddaga á öðrum
ársfjórðungi en rúmar fjörutíu
milljónir á seinni hluta árs. Hluti
þess var afgangur af endurfjár-
mögnun bankans í desember.
Í samkomulaginu við kröfu-
hafa fólst að gjalddagar lána
upp á rúmar 130 milljónir evra
í maí færðust yfir á þriðja árs-
fjórðung. Tímann átti að nýta í
aðhaldsaðgerðir, svo sem með
sölu eigna. Andvirðið átti að nota
til að greiða lánin.
Skilanefnd bankans og stjórn-
endur kynntu kröfuhöfum stöð-
una á fundi í gær.
Eins og fram hefur komið var
lausafjárstaða Straums þröng
í síðustu viku eftir útstreymi
af innlánsreikningum og vant-
aði tæpar átján milljónir evra
upp í greiðslu á láni á gjald-
daga á mánudag. Óvíst er hvort
sú upphæð hefði dugað nema til
skemmri tíma en sú hætta var
fyrir hendi að útstreymi héldi
áfram af innlánsreikningum. Við
það gæti lausafjárskortur hrjáð
bankann fljótlega á ný.
Unnið hefur verið hörðum
höndum að eignasölu hjá Straumi
síðan í haust. Líkt og fram kom
í Markaðnum á miðvikudag er
uppskeran að skila sér en gert er
ráð fyrir að sala eigna fyrir 200
milljónir evra, jafnvirði tæpra
30 milljarða króna, komi inn á
reikning bankans á næstu mán-
uðum.
jonab@markadurinn.is
Straumur samdi við
kröfuhafa í síðustu viku
FORSTSTJÓRINN FYRRVERANDI OG STJÓRNARFORMAÐURINN Óvíst er hvort
skammtímalausn upp á átján milljónir evra hefði getað fleytt Straumi yfir erfið-
asta hjallann. Meira lánsfé hefði þurft að koma til. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Straumur sendi frá sér tilkynningu í gær þar sem fram kemur að í desember
hafi bankinn fengið að láni 133 milljónir evra frá erlendum lánastofnunum
til að endurgreiða hluta af láni sem var þá á gjalddaga. Mismunur á upp-
hæð lánsins sem var á gjalddaga, og nýja lánsins, var greiddur meðal annars
með veðláni (repo) frá Seðlabanka Íslands að upphæð 50 milljónir evra.
Þá segir að Straumur hafi tilkynnt til Kauphallar um endurfjármögnun á
133 milljónum evra eins og reglur geri ráð fyrir. Ekki hafi verið ástæða til að
tilkynna um viðkomandi veðlán frekar en önnur veðlán sem bankinn hafi
tekið hjá Seðlabankanum, enda slíkt ekki venja hjá öðrum bönkum.
LÁNIÐ FRÁ SEÐLABANKANUM