Fréttablaðið - 13.03.2009, Page 24

Fréttablaðið - 13.03.2009, Page 24
24 13. mars 2009 FÖSTUDAGUR greinar@frettabladid.is FRÁ DEGI TIL DAGS FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is MENNING: Páll Baldvin Baldvinsson fulltrúi ritstjóra pbb@frettabladid.is VIÐSKIPTARITSTJÓRI: Óli Kr. Ármannsson olikr@markadurinn.is HELGAREFNI: Anna Margrét Björnsson amb@frettabladid.is og Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Emilía Örlygsdóttir emilia@frettabladid.is og Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Henry Birgir Gunnarsson henry@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. RITSTJÓRAR: Jón Kaldal jk@frettabladid.is og Þorsteinn Pálsson thorsteinn@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 103.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 UMRÆÐAN Helgi Áss Grétarsson skrifar um frum- varp um breytingar á stjórnarskrá Að áliti margra lögspekinga þarf að breyta stjórnarskránni svo að Ísland geti gengið í Evrópusambandið (ESB). Þetta byggir fyrst og fremst á því að við inngöngu í ESB yrði óhjákvæmilega umfangsmikið framsal ríkisvalds sem myndi brjóta í bága við 2. gr. stjórnarskrár- innar um þrískiptingu ríkisvalds. Fyrir Alþingi liggur nú frumvarp um breytingar á stjórnar- skránni en engar tillögur eru lagðar fram í frum- varpinu sem veita heimildir til framsals ríkisvalds eða önnur frávik frá 2. gr. stjórnarskrárinnar. Fyrsta málsgrein 1. gr. téðs frumvarps til breyt- inga á stjórnarskrá er svohljóðandi: „Náttúruauð- lindir sem ekki eru háðar einkaeignarrétti eru þjóðareign. Ríkið fer með forsjá þeirra, vörslu og ráðstöfunarrétt og hefur eftirlit með nýtingu þeirra í umboði þjóðarinnar eftir því sem nánar er ákveðið í lögum.“ Sé litið til ummæla í greinargerð með frumvarpi til stjórnskipunarlaga þá má ætla að fyrri málsliðurinn kveði m.a. á um að ríkinu sé fenginn eignarréttur á þeim náttúruauðlindum sem enginn annar lögaðili eða einstaklingur hefur sannað eignarrétt sinn á. Um síðari málsliðinn er í greinargerð m.a. fullyrt að hann feli í sér sambæri- legar heimildir ríkisvalds og almennt leiði af full- veldisrétti ríkja. Í 2. ml. 2. mgr. 1. gr. frumvarpsins er kveðið á um að náttúruauðlindir í þjóðareign megi ekki selja eða láta varanlega af hendi. Frumvarpstillagan um auðlindaákvæði í stjórnarskrá hlýtur að vera bundin þeim forsendum að allar náttúruauðlindir séu eignarhæfar í sjálfu sér og að fiskveiði- réttindi í íslenska fiskveiðistjórnkerfinu séu ekki háð einkaeignarrétti. Séu þessar forsendur réttar, sem hér er engin afstaða tekin til, þá hljóta orðin „ríkið fer með for- sjá þeirra, vörslu og ráðstöfunarrétt“ í 1. gr. auðlindaákvæðisins að hafa þýðingu í skilningi eignarréttar, þ.e. ríkið öðlast þær heimildir sem felast í þjóðareignarhugtak- inu. Framanrakin ummæli í greinargerð, sem gefa til kynna að eingöngu sé um fullveldisrétt ríkisins að ræða, víkja vart texta ákvæðisins til hliðar. Geri Ísland aðildarsamning við ESB eru veruleg- ar líkur á að engar varanlegar undanþágur fáist frá hinni sameiginlegu fiskveiðistefnu sambandsins. Standist forsendur þær sem liggja til grundvall- ar auðlindaákvæðinu hefði innganga Íslands í ESB væntanlega í för með sér að íslenska ríkið hefði ekki „forsjá, vörslu og ráðstöfunarrétt“ fiskveiði- auðlindarinnar á Íslandsmiðum. Verði auðlindaá- kvæðið að lögum mun innganga Íslands í ESB vera brot á ákvæðinu. Sú framtíðarsýn er málefnaleg að Ísland eigi að ganga í ESB. Í stað þess að breyta stjórnarskránni í þá veru að engar lagalegar tálmanir séu því í vegi er nú lagt til að bætt verði ákvæði í stjórnarskrá sem geri slíka inngöngu að öllum líkindum torsótt- ari. Þetta eru merkileg tíðindi, ekki síst ef miðað er við þjóðfélagsumræðuna síðustu misseri um aðild Íslands að ESB. Höfundur er lögfræðingur. Auðlindaákvæðið og ESB-aðild HELGI ÁSS GRÉTARSSON F yrsta opinbera skýrslan sem ríkisstjórn Íslands hefur látið vinna um áhættumat fyrir landið var kynnt í utan- ríkisráðuneytinu á miðvikudag. Hana vann sérskipaður starfshópur sem Valur Ingimundarson, prófessor í sagn- fræði við Háskóla Íslands, fór fyrir. Niðurstöður skýrslunnar bera því vitni, að markviss stefnumót- un í öryggis- og varnarmálum á grundvelli slíks áhættumats hefur í raun ekki átt sér stað á Íslandi í áratugi. Allt frá því varnarsamn- ingurinn var gerður við Bandaríkin árið 1951 og vel fram yfir lok kalda stríðsins 40 árum síðar var sem íslenzk stjórnvöld létu sér nægja að láta Bandaríkjamenn um að skilgreina hverjar væru varnarþarfir landsins. Skorturinn á trúverðugu eigin mati á varn- arþörfum og öryggismálum landsins veikti samningsstöðu Íslend- inga í viðræðunum við bandarísk stjórnvöld um framtíð varnar- samstarfsins og veru bandarísks herliðs hér á landi. Þetta hefur skýrt komið fram í nýlegum rannsóknum, svo sem í bók Gunnars Þórs Bjarnasonar, „Óvænt áfall eða fyrirsjáanleg tímamót“. Hin nýja skýrsla um áhættumat er því markverður áfangi að því að íslenzk stjórnvöld skapi trúverðugar, faglegar forsendur fyrir eigin stefnumótun í þessum mikilvæga málaflokki. En betur má ef duga skal. Það verkefni sem þessi „ad hoc“-starfshópur sinnti er verkefni sem í öðrum löndum er í höndum varanlegra stofnana. Við vinnslu skýrslu sinnar leituðu starfsmenn starfs- hópsins ríkulega í smiðju slíkra stofnana, svo sem norsku utanrík- ismálastofnunarinnar NUPI, norsku varnarmálastofnunarinnar IDF, dönsku utanríkismálastofnunarinnar DIIS, og fleiri. Það heyrir til grundvallarþátta hlutverks ríkisvaldsins í hverju fullvalda ríki að tryggja öryggi borgaranna. Það er síðan grundvall- arþáttur í að gegna þessu hlutverki að stöðugt endurmat fari fram á forsendum öryggis- og varnarmálastefnu ríkisins. Með öðrum orðum, að áhættumat af því tagi sem hin nýja skýrsla fjallar um sé í stöðugri endurskoðun til að hægt sé að laga viðbragðsáætlanir og aðrar ráðstafanir yfirvalda í þágu öryggis borgaranna að breyttum aðstæðum, um leið og breytingar á þeim eiga sér stað. Í skýrslunni er rætt um þær breytingar á áhættumatinu sem hrun fjármálakerfisins síðastliðið haust kallaði á. Hefði skýrslan komið út í september væri hún sem sagt nú þegar úrelt. Þetta sýnir hvernig slíkt mat þarf að vera í sívinnslu til að öryggis- hagsmuna þjóðarinnar sé gætt sem skyldi. Sú sívinnsla þarf annars vegar að fara fram í ráðuneytum. Hins vegar þarf þetta sífellda endurmat á öryggismálum þjóðarinnar að vera í höndum óháðra sérfræðinga sem hafa það að aðalstarfi að fylgjast með, hugsa og skrifa um þessi mál. Vísir að metnaði af hálfu ríkisvaldsins til að skapa forsendur til að slík starfsemi fái þrifizt hér á landi er nýgerður samstarfssamningur utanrík- isráðuneytisins við Alþjóðamálastofnun HÍ. Eins þarf Alþingi að geta leitað sér sérfræðiráðgjafar við sitt mat á utanríkis- og örygg- ismálum þjóðarinnar. Á hinum Norðurlöndunum hafa þjóðþingin brugðizt við þessari þörf með því að halda úti stofnunum á borð við NUPI og DIIS. Vel væri ef hliðstætt tækist hér á landi. Skýrsla um áhættumat fyrir Ísland: Mat sem ætti að vera í sívinnslu AUÐUNN ARNÓRSSON SKRIFAR SPOTTIÐ Í húsasundi Helga Sigrún Harðardóttir, þingmað- ur Framsóknarflokksins, verður seint sögð læðast með veggjum. Það bar frammistaða hennar á Alþingi í gær vitni um í umræðum um Icesave- reikningana. Helga Sigrún spurði meðal annars hvers vegna það væri ekki talið þjóna hagsmunum Íslands að stjórnvöld létu reyna á hvort skuldbindingar ríkisins væru í samræmi við alþjóðalög: „Er það vegna þess að íslenskir ráðamenn létu hræða sig með Alþjóða- gjaldeyrissjóðnum inn í húsasund og leystu svo bara niður um sig?“ spurði Helga Sigrún á Alþingi í gær. Hafi einhverjum þótt nóg um þegar Helga Sigrún ásakaði ríkisstjórnina fyrir „helvítis lyddugang“ á dögunum, er hætt við að þetta bersögla líkingamál hafi riðið þeim sömu að fullu. Baðst afsökunar Fréttablaðið greindi frá því á dögun- um að Ásmundur Stefánsson, nýráð- inn bankastjóri Nýja Landsbankans, hafi móðgað starfsfólk með óviðeig- andi tilvísun í helför nasista. Sam- kvæmt heimildum Fréttablaðsins var málið tekið fyrir hjá bankaráði og í framhaldinu baðst Ásmundur afsökunar á orðum sínum. Blóð, blóð og aftur blóð Líkamsvessar eru sumum prófkjörs- frambjóðendum hugleiknir, til dæmis fara tveir frambjóðendur Sjálfstæð- isflokksins fram undir hinu seiðandi slagorði „Nýtt blóð á vígvöllinn“. Í þættinum Krossgötum á Rás 1 gagn- rýndi frambjóðandi Vinstri grænna prófkjör stjórnmálaflokkanna á þeim forsendum að þeir sem ætluðu sér að ná árangri þyrftu að „vaða blóð upp að mitti“. Hér skal ekki efast að þátttaka í stjórnmálum útheimti mikla baráttu, sem getur jafnvel orðið heiftúðug þegar verst lætur – en hvernig væri ef fram- bjóðendur drægju aðeins úr hástiginu, slepptu að minnsta kosti blóðsúthell- ingunum í málflutningi sínum? Þetta er jú bara pólitík. bergsteinn@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.