Fréttablaðið - 13.03.2009, Síða 42

Fréttablaðið - 13.03.2009, Síða 42
 13. mars 2009 FÖSTUDAGUR Mitsubishi Outlander - Kraftmikill sportjeppi Kostir Mitsubishi Outlander eru afgerandi. Hann hefur mestu veghæð í sínum flokki, stærsta farangursrýmið, öflugt fjórhjóladrif og frábæra aksturseiginleika. Komdu í HEKLU - Notaða bíla á Kletthálsi og skoðaðu næstum nýjan Mitsubishi Outlander, kraftmikinn, rúmgóðan og ríkulega búinn bíl fyrir alla fjölskylduna, tilvalinn í ferðalagið. HEKLA NOTAÐIR BÍLAR KLETTHÁLSI Opið 10–18 virka daga | Opið 12–16 laugardaga Kletthálsi sími 590 5044 www.heklanotadirbilar.is DÆMI ÚR SÖLUSKRÁ Mitsubishi Outlander Intense, árgerð 2008 ekinn 5.000 km. Sjálfskiptur, bensín. Verð: 4.280.000 kr. UMRÆÐAN Þórhallur Heimisson skrifar um fullveldi Íslands Sú umræða sem nú á sér stað um Ísland og Evrópusambandið (ESB) í aðdraganda kosninga minnir á söguna um Hlin kóngsson og skessurnar tvær sem léku sér að fjöregginu. Fjöreggið var þeirrar náttúru gert að það geymdi lífskraft skessanna og var þeim því ákaflega dýrmætt. Ef það brotnaði myndi krafturinn hverfa frá þeim. En skessurnar höfðu það að leik að kasta á milli sín fjöregginu þegar þeim leiddist við veiðar, svona til að stytta sér stundir. Hlinur kóngsson átti þess vegna hægt með að brjóta eggið og ná þannig til sín kóngsdótturinni og auðæfum skessanna. Við gleymum því stundum að fullveldið er fjöreggið okkar. Full- veldið glataðist fyrst á Þingvöll- um árið 1262 eftir upplausnarár. Þá fólum við erlendu valdi að gæta fjöreggsins. Eftir það dró hægt og bítandi úr okkur lífskraftinn, öld eftir öld. Auðvitað var einnig um að kenna erfiðri náttúru, hörð- um vetrum, eldgosum og pestum. En af því að fjöreggið var ekki á okkar eigin hendi vorum við varn- arlítil og úrræðalaus. Og lífskraft- inn skorti. Það var ekki fyrr en á 19. öld að menn fóru almennilega að gera sér grein fyrir þessu. Þá var gangan löng og erfið enda við orðin hluti af danska ríkinu að mati þeirra sem fólu fjöreggið í höndum hins erlenda valds. En þegar okkur tókst að fá það á ný í hendur óx okkur afl, fyrst árið 1918, jafnvel í kreppunni 1930 og með lýðveldinu árið 1944. Auðvitað gekk á ýmsu, sigrum og ósigrum, en grundvöll- ur framfara alla tuttugustu öldina var fjöreggið okkar sem við höfð- um endurheimt, fullveldið og frels- ið til að stýra eigin málum. Með fullveldið að vopni færð- um við út landhelgina gegn herveldum Evrópu gömlu, beisluðum orkulindirnar, efldum fræðslu og skóla, heilbrigði og atvinnu. Undanfarinn áratug og ef til vill lengur höfum við setið eins og skessurnar og leikið okkur að fjöregginu. „Athafnaskáldin“ hædd- ust að því og talað var um að best væri að losa sig við það, taka upp ensku, leggja niður íslenska bændastétt, gefa auð- valdinu lausan tauminn því heim- urinn væri leikvöllur útrásarvík- inganna. Og þó allt sé nú hrunið og þó í ljós hafi komið að draumar vík- inganna og forystumanna okkar voru ekkert annað en martraðir, þá halda menn áfram að leika sér að fjöregginu. Margir virðast trúa því að eina leiðin úr ógöngum liðins áratugar sé að brjóta fjöreggið eða fela það erlendu valdi í hendur eins og forð- um daga. Það er án efa rétt að fjör- eggið verður vel geymt í Brussel, London, París eða Berlín. Þaðan verður ekki auðvelt að ná því aftur, þó einhverjir láti sér detta það í hug í framtíðinni uppi á Íslandi. Með fjöregginu mun lífskrafturinn enn á ný hverfa frá landinu. Með því mun hverfa íslensk bændastétt sem þó var ákölluð sem eina von landsins á liðnu hausti þegar Evr- ópubúar beittu okkur hryðjuverka- lögum. Með því munu fiskimiðin komast í hendur Breta og Spánverja á ný. Örugglega ekki strax. En hægt og bítandi rétt eins og forðum daga. Það tók 400 ár að koma hér á ein- veldi síðast. Evrópa hefur nægan tíma. Og eitt eða tvö atkvæði okkar á Evrópuþinginu sem telur 732 þing- menn mun verða hjáróma og bros- legt. Ef einhver þá lætur svo lítið að taka eftir því. Höfundur er talsmaður L-lista. SEND IÐ OKK UR LÍNU Fréttablaðið og Vísir hvetja lesendur til að senda línu og leggja orð í belg um málefni líðandi stundar. Greinar og bréf skulu vera stutt og gagnorð. Tekið er á móti efni á netfanginu greinar@frettabladid.is eða á vefsíðu Vísis, þar sem finna má nánari leiðbeiningar. Ritstjórn ákveður hvort efni birtist í Fréttablaðinu eða Vísi eða í báðum miðlunum að hluta eða í heild. Áskilinn er réttur til leiðréttinga og til að stytta efni. ÞÓRHALLUR HEIMISSON Að glata fjöregginu UMRÆÐAN Þórlindur Kjartansson skrifar um vinnubrögð á Alþingi Ýmsar af þeim breyt-ingum sem nú eru ræddar á grundvallar- skipan samfélagsins eru góðra gjalda verðar. Það er ennfremur eðlilegt að við núverandi aðstæður séu marg- ir hugsi yfir því hvort leita megi ástæðna fyrir stöðunni í grunn- gerð íslensks samfélags. En það er mikilvægt að vandað sé vel til umræðna og að innantómir frasar séu ekki látnir duga. Það er hæpin skýring á núver- andi efnahagskreppu að þar hafi grundvallarreglur samfélagsins haft mikil áhrif. Þó er ekki þar með sagt að ekki sé ástæða til að endurskoða stjórnarskrána og kosningalögin. Hins vegar fer illa saman þegar pólitískri heift, von- brigði með stöðu efnahagsmála og óvissu í stjórnmálum er blandað út í slíkar umræður. Þess vegna er það raunverulegt áhyggjuefni að minnihlutastjórn VG og Samfylk- ingar leggi sérstaka áherslu á slík- ar breytingar á þeim örskamma tíma sem hún er við völd. Raun- ar hefur þessi asi vakið áhyggjur alþjóðlegra stofnana sem telja slík vinnubrögð sérstaklega varhuga- verð enda er beinlínis mælt gegn því í alþjóðlegum sáttmál- um að breyta kosninga- reglunum svo skömmu fyrir kosningar. Má þar nefna Öryggis- og sam- vinnustofnun Evrópu (ÖSE) sem sér nú sérstaka ástæðu til þess að fylgjast grannt með framkvæmd kosninga á Íslandi. Það er nefnilega þannig að þegar slíkar stofnanir, sem vinna að því að tryggja að fram- gangur lýðræðisins sé eðlilegur, fá fregnir af því að stjórnvöld hafi uppi áform um breytingar á leik- reglum lýðræðis skömmu fyrir kosningar, þá vekur það efasemdir um að réttilega sé staðið að málum og allra sjónarmiða sé gætt. Ísland hefur fram að þessu ekki verið í þeim flokki sem alþjóð- legir kosningasérfræðingar hafa sérstakar áhyggjur af. Hvað sem segja má um íslenskt samfélag þá er þetta nýmæli. Þess vegna hljót- um við að staldra við og vara við þeim flýti sem minnihlutastjórnin hyggst beita við að koma þessum breytingum í gegn. Breytingar á reglum lýðræðisins þurfa að fá yfirvegaða umræðu og nauðsyn- legt er að allur þorri manna hafi ráðrúm til þess að móta sér skoðun á slíkum breytingum. Höfundur er frambjóðandi í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Vöndum til verka ÞÓRLINDUR KJARTANSSON

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.