Fréttablaðið - 13.03.2009, Side 56

Fréttablaðið - 13.03.2009, Side 56
40 13. mars 2009 FÖSTUDAGUR sport@frettabladid.is HANDBOLTI Guðmundur Guðmunds- son landsliðsþjálfari valdi í gær nítján leikmenn í íslenska lands- liðshópinn sem mætir Makedón- íu og Eistlandi í undankeppni EM 2010 í næstu viku. Hópur- inn er óvenju stór þar sem marg- ir leikmanna eigi, eða hafi átt, við meiðsli að stríða. „Það er búið að vera bölvað basl vegna meiðsla að koma liðinu saman. Í raun hef ég ekki náð því síðan á Ólympíuleikunum í sumar,“ sagði Guðmundur í samtali við Fréttablaðið í gær. Þeir Logi Geirsson, Ásgeir Örn Hallgrímsson, Snorri Steinn Guð- jónsson og Arnór Atlason eiga allir við einhver meiðsli að stríða þessa stundina. Þá eru þeir Einar Hólm- geirsson og Guðjón Valur Sig- urðsson nýbyrjaðir að spila eftir meiðsli en Einar lék sinn fyrsta leik eftir áramót í fyrrakvöld. Þar að auki er Alexander Peters- son enn frá vegna meiðsla og Ólaf- ur Stefánsson er í landsliðsfríi. Til að bæta gráu á svart kemur ekki allt liðið saman fyrr en á mánudaginn og þá á eftir að ferð- ast til Makedóníu. Liðið nær því tveimur æfingum saman fyrir leikinn – einni á Íslandi og einni í Makedóníu. „Ég vona að við náum að púsla liðinu saman á þessum æfingum sem við náum saman en annars renn ég nokkuð blint í sjóinn hvað varðar stöðu liðsins. Það er bara staðreynd málsins en við þurfum að gera það besta úr stöðunni.“ Eins og frægt er tapaði Ísland fyrir Makedóníu í umspili um laust sæti á HM í Króatíu síðastliðið vor, skömmu eftir að liðið hafði unnið sér sæti á Ólympíuleikunum í Pek- ing. Makedóníumenn slógu svo í gegn á HM og eru því með sjálfs- traustið í botni nú. „Við erum að fara á erfiðasta úti- völl í Evrópu,“ sagði Guðmundur um leikinn á miðvikudagskvöldið. „Við vorum þar við mjög erfiðar aðstæður í fyrra þar sem ýmislegt gekk okkur í óhag. En við erum staðráðnir í að gera betur nú.“ Makedónía vann bæði Pólland og Rússland í Króatíu og komst svo nálægt því að vinna Þjóðverja. „Þeir hafa sýnt að þeir geta haldið í við þá bestu. En munur- inn nú og á leik okkar í Skopje í fyrra er sá að nú vitum við hvað við erum að fara út í. Við vitum vel að við getum unnið þetta lið á góðum degi.“ Guðmundur segir að öll nótt sé ekki úti enn þótt liðið vinni ekki Makedóníu enda er Ísland aðeins búið að leika tvo leiki í riðlinum. „Við eigum svo leikinn gegn Eistlandi hér heima strax á eftir og svo fjóra leiki í júní. Það er því fullt af tækifærum eftir.“ -esá Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari valdi 19 manna hóp fyrir leikina gegn Makedónum og Eistum: Ekki náð mínu sterkasta liði saman síðan í Peking ÁHYGGJUR Guðmundur hefur áhyggjur af meiðslum lykilmanna. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON A-LANDSLIÐ KARLA Markverðir: Björgvin Páll Gústavsson Bittenfeld Hreiðar Guðmundsson Savehof Aðrir leikmenn: Aron Pálmarsson FH Arnór Atlason FCK Ásgeir Örn Hallgrímsson GOG Einar Hólmgeirsson Grosswallstadt Kári Kristján Kristjánsson Haukar Guðjón Valur Sigurðsson RNL Ingimundur Ingimundarson Minden Logi Geirsson Lemgo Ragnar Óskarsson Dunkerque Róbert Gunnarsson Gummersbach Rúnar Kárason Fram Sigurbergur Sveinsson Haukar Snorri Steinn Guðjónsson GOG Sturla Ásgeirsson Dusseldorf Sverre Andreas Jakobsson HK Vignir Svavarsson Lemgo Þórir Ólafsson Lubbecke > Ólafur enn í fríi Ólafur Stefánsson mun ekki breyta ákvörðun sinni um að spila ekki aftur með landsliðinu fyrr en í fyrsta lagi í haust. „Við áttum tal saman en hann stendur við sína ákvörð- un. Hann mun taka sér frí frá landsliðinu fram á haustið og taka þá ákvörðun um framhaldið,“ sagði Guðmundur Guð- mundsson landsliðsþjálfari í gær. Ólafur lék síðast með landsliðinu á Ólympíu- leikunum í Peking. N1-deild karla: FH-Valur 27-32 (14-15) Mörk FH (skot): Bjarni Fritzson 9/4 (11/4), Aron Pálmarsson 6/1 (12/1), Sigursteinn Arndal 2 (2), Ásbjörn Friðriksson 2 (3), Örn Ingi Bjarkason 2 (5), Sigurður Ágústsson 2 (7), Hjörtur Hinriksson 1 (2), Benedikt Kristinsson 1 (2), Ólafur Gústafs- son 1 (3), Guðmundur Pedersen 1 (5) Varin skot: Magnús Sigmundsson 7/1 (26/3, 27%), Daníel Freyr Andrésson 5/1 (18/3, 28%) Hraðaupphlaup: 4 (Bjarni, Benedikt, Örn Ingi, Guðmundur) Fiskuð víti: 5 (Aron 2, Sigurður, Ásbjörn, Hjörtur) Mörk Vals: Elvar Friðriksson 10/4 (14/5), Arnór Þór Gunnarsson 7 (9), Ingvar Árnason 5 (5), Hjalti Þór Pálmason 3 (5), Sigurður Eggertsson 3 (4), Heimir Örn Árnason 2 (4), Sigfús Sigurðsson 1 (1), Hjalti Gylfason 1 (3). Varin skot: Ólafur Haukur Gíslason 15 (41/4, 37%), Pálmar Pétursson (1/1) Hraðaupphlaup: 3 (Arnór 2, Ingvar 1) Fiskuð víti: 6 (Sigfús Páll 1, Ingvar 1, Sigurður 1, Elvar 1, Fannar 1) Dómarar: Ingvar Guðjónsson og Jónas Elíasson. Voru ágætir. HK-Stjarnan 24-22 Mörk HK: Ragnar Hjaltested 6, Már Þórarinsson 5, Ólafur Bjarki Ragnarsson 3, Valdimar Þórsson 3, Einar Ingi Hrafnsson 2, Ragnar Njálsson 2, Gunnar Jónsson 1, Ásbjörn Stefánsson 1, Brynjar Hreggviðsson 1. Mörk Stjörnunnar: Vilhjálmur Halldórsson 5, Fannar Þorbjörnsson 5, Þórólfur Nielsen 4, Ragn- ar Helgason 3, Björgvin Hólmgeirsson 3, Kristján Kristjánsson 1, Guðmundur Guðmundsson 1. Fram-Víkingur 36-28 STAÐAN: Haukar 18 14 0 4 513:439 28 Valur 19 12 3 4 533:452 27 HK 19 9 4 6 504:507 22 Fram 19 9 3 7 528:526 21 FH 19 8 2 9 551:556 18 Akureyri 18 7 2 9 463:491 16 Stjarnan 19 5 3 11 476:511 13 Víkingur 19 2 1 16 472:556 5 Iceland Express-deild kvk: Hamar-Haukar 53-41 (23-20) Stig Hamars: Julia Demirer 16 (18 frák.), Lakiste Barkus 13 (9 frák., 5 stoðs.), Íris Ásgeirsdóttir 10, Hafrún Hálfdánardóttir 7, Dúfa Dröfn Ásbjörns- dóttir 6, Fanney Lind Guðmundsdóttir 2. Stig Hauka: Kristrún Sigurjónsdóttir 12 (8/8 í vítum), Slavica Dimovska 10, Moneka Knight 8, Ragna Margrét Brynjarsdóttir 7, Helena Hólm 4. „Þetta er mikill heiður, en það er kannski ósanngjarnt að taka ein- hvern einn út úr liðinu því allt liðið hefur verið að spila vel í vetur,“ segir KR-ingurinn Jón Arnór Stefánsson sem í gær var kjörinn besti leikmaður síðari umferðanna í Iceland Express deild-karla í körfubolta. Rétt eins og í uppgjörinu eftir fyrri hluta mótsins voru bak- verðirnir Jón Arnór og Jakob Sigurðarson úr KR í úrvalsliði síðari umferðanna, en Jakob var valinn besti leikmaðurinn í fyrri umferðunum. Hinir þrír leikmennirnir í úrvalsliðinu voru þeir Justin Shouse úr Stjörnunni, Brenton Birmingham úr Grindavík og Hlynur Bæringsson úr Snæfelli. Teitur Örlygsson, þjálfari Stjörnunnar, var valinn besti þjálfarinn í síðari umferðunum og þá var Jón Nordal Hafsteinsson hjá Keflavík valinn dugnaðarforkurinn og Sigmundur Már Herbertsson kjörinn besti dómarinn. Jón Arnór hefur leikið mjög vel síðan hann kom aftur í KR eftir nokkur ár í atvinnumennsku og segist nokkuð sáttur við árangur KR í deildarkeppninni í vetur. „Þetta voru auðvitað nokkrir leikir í vetur sem unnust með miklum mun og voru þar af leiðandi ekki mjög skemmtilegir, en þegar ég horfi til baka er ég bara nokkuð sáttur,“ segir Jón Arnór í samtali við Fréttablaðið. KR tapaði aðeins einum leik í deildarkeppninni í vetur og vænt- ingarnar til liðsins eru engu minni nú en í haust. „Ég er gríðarlega spenntur fyrir úrslitakeppninni. Þetta verða stórir leikir og við erum ekki búnir að vinna neitt þrátt fyrir alla þessa sigra í deild- inni,“ segir Jón og á ekki von á öðru en að KR fái harða samkeppni. „Njarðvík og Snæfell hafa til dæmis verið að styrkja sig og Grindavík hlýtur að vera með besta lið á landinu fyrst þeir unnu okkur sannfærandi,“ segir Jón glottandi og vísar í eina tap KR í deildinni. KR mætir Breiðablik í fyrstu umferð úrslitakeppninn- ar um helgina. „Blikarnir eru með ungt og skemmtilegt lið en við erum með betra lið á öllum vígstöðvum og ætlum að setja tóninn strax á sunnudaginn. Við ætlum okkur titilinn og nú þýðir ekkert að taka feilspor, alveg sama hvort andstæðingurinn er Breiðablik eða eitthvert annað lið,“ segir Jón Arnór Stefánsson. ICELAND EXPRESS-DEILD KARLA: JÓN ARNÓR VALINN BESTI LEIKMAÐURINN Í HÓFI KKÍ Í GÆR Grindavík hlýtur að vera með besta liðið HANDBOLTI Tímabilið er búið hjá Loga Geirssyni. Logi komst að því í gærkvöldi að sprunga er í axlarliðnum og þarf hann þar af leiðandi að gangast undir aðgerð. Það tekur frá þremur og upp í fimm mánuði að jafna sig á slíku og Logi spilar ekki aftur fyrr en í sumar. Ítarlegt viðtal við Loga má lesa á Vísir.is. - hbg Logi Geirsson: Á leið í aðgerð KÖRFUBOLTI Hamar jafnaði und- anúrslitaeinvígið á móti Haukum í úrslitakeppni Iceland Express- deildar kvenna með öruggum 53- 41 sigri í Hveragerði í gær. Ham- arsliðið var með frumkvæðið allan leikinn og náði mest 14 stiga forskoti. „Þetta var allt annað en í fyrsta leiknum. Við löguðum það sem þurfti að laga og það skilaði sér að spila góða vörn,“ sagði Dúfa Dröfn Ásbjörnsdóttir, fyrirliði Hamars, efir leik. „Við vorum að spila fína vörn en þurfum að vera aðeins þolin- móðari í sókninni. Vörnin hélt af því að við vorum að gera þessa litlu hluti rétt,“ bætti Dúfa við. Hún og Íris Ásgeirsdóttir áttu frábæra innkomu í seinni hálfleik þegar þær skoruðu öll 16 stigin sín. Haukaliðið var langt frá sínu besta sérstaklega í þriggja stiga skotunum þar sem aðeins 2 af 19 skotum fóru niður hjá lið- inu. Hamar og þá sérstaklega Jóhanna Björk Sveinsdóttir hélt Slavicu Dimovsku niðri í gær og munaði það miklu af hverju sókn- arleikur Haukaliðsins náði aldrei réttum takti. - óój Iceland Express-deild kvenna: Hamar jafnaði metin KLASSAVÖRN Hamar spilaði góða vörn á Hauka í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI HANDBOLTI Valur minnkaði forskot Hauka á toppi N1-deildar karla í eitt stig í gærkvöldi er liðið vann góðan sigur á FH í Kaplakrika, 32- 27. Mikið jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik og skiptust liðin á að vera í forystu. Valsmenn leiddu í hálfleik með einu marki en strax frá fyrstu mínútu síðari hálfleiks var ljóst í hvað stefndi. Valsmenn juku sóknarþung- ann til muna og Ólafur Haukur Gíslason varði á köflum mjög vel í marki Valsmanna. Að sama skapi gekk ekkert í sóknarleik FH-inga. Aron Pálmarsson hafði verið öfl- ugur í fyrri hálfleik en lét lítið finna fyrir sér í þeim síðari. „Mér fannst varnarleikurinn okkar oft verið betri en í kvöld,“ sagði Ingvar Árnason, leikmaður Vals, eftir leikinn. „En Óli var að verja eins og berserkur í kvöld og frammistaða hans og ágætur sókn- arleikur sköpuðu þennan sigur.“ Elvar Erlingsson, þjálfari FH, var reyndar ekki sáttur við frammistöðu dómaranna í leikn- um en sagði þó fyrst og fremst FH- ingum sjálfum að kenna hvernig fór. „Við fórum illa með mörg dauða- færi á ögurstundu og það hellt- ist yfir okkur pirringurinn. Við reyndum ýmislegt til að koma okkur aftur inn í leikinn en það bara gekk ekki,“ sagði Elvar. „Þó var þetta framför hjá okkur og finnst mér þetta vera upp á við. Staðreyndin er bara sú að nú erum við í hörkubaráttu við Fram um fjórða sæti deildarinnar. Við eigum þá í næsta leik og lítum við á hann sem algeran úrslitaleik fyrir framhaldið.“ Fram og HK unnu bæði sína leiki í gær og FH því þremur stig- um á eftir Fram og fjórum eftir HK í baráttu liðanna um 3.-4. sæti deildarinnar. Elvar neitar þó að gefast upp. „Við fáum núna landsleikjafríið til að undirbúa okkur fyrir loka- sprettinn og ætlum við að nýta það hlé vel. Það er alls ekki óvinnandi vegur að vinna upp þennan mun og teljum við okkur eiga góða mögu- leika á að ná í úrslitakeppnina.“ Valur minnkaði forystu Hauka á toppnum í eitt stig en Haukar eiga leik til góða á Akureyri í kvöld. Ingvar telur að baráttunni um deildarmeistaratitilinn sé ekki lokið. „Haukar hafa ekki verið að tapa mörgum leikjum að undanförnu en ef þeir tapa á Akureyri er allt opið í þessu. Við eigum enn möguleika á að ná þeim.“ eirikur@frettabladid.is Eigum enn möguleika Valur vann í gær góðan sigur á FH í Kaplakrika og minnkaði þar með forskot Hauka á toppi deildarinnar í eitt stig. Möguleikar FH á að komast í úrslita- keppnina rýrnuðu verulega með tapinu og von þeirra er veik. SJÓÐHEITUR FH-ingum gekk illa að halda aftur af Elvari Friðrikssyni sem skoraði tíu mörk fyrir Val í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.