Fréttablaðið - 17.03.2009, Side 2
2 17. mars 2009 ÞRIÐJUDAGUR
SKATTAAÐSTOÐ
LÖGFRÆÐIÞJÓNUSTU LÖGRÉTTU
• Launamiða síðasta árs
• Lykilorð og auðkennislykil til að komast í heimabanka
• Veflykil inn á www.rsk.is
• Gögn ef kaup og/eða sala á fasteign hafa átt sér stað á
sl. ári
• Gögn er varða kaup og/eða sölu og stöðu á verðbréfum
í árslok
Hvað þarf að hafa meðferðis?
2009
Lögfræðiþjónusta Lögréttu, félags laganema við Háskólann í
Reykjavík, með aðstoð Deloitte, veitir einstaklingum endur-
gjaldslausa ráðgjöf við gerð skattframtala fyrir skattskil 2009.
Ráðgjöfin verður veitt laugardaginn 21. mars nk. frá kl. 9.00 –
21.00 í húsnæði Háskólans í Reykjavík, Ofanleiti 2, 103 Reykjavík
og eru allir velkomnir.
Guðni, stólið þið á söfnunina
til að geta fermt?
„Já, þetta er mál sem ekki er hægt
að stinga undir stól.“
Um 160 stóla vantar í Lindakirkju svo að
hægt verði að ferma þar með góðu móti
í vor. Guðni Már Harðarson er sóknar-
prestur í Lindakirkju.
© GRAPHIC NEWS
UMSKIPTI Í EL SALVADOR
Vinstrimaðurinn Mauricio Funes bar sigur
úr býtum í forsetakosningum í El Salvador. Þar
með kemst flokkur fyrrverandi skæruliða
í fyrsta sinn til valda í landinu frá því í
borgarastríðinu á níunda áratugnum.
Mauricio Funes
FMNL
Rodrigo Avila
Arena-flokkurinn
51% 49%
Úrslit þegar 90% atkvæða höfðu verið talin
Heimild: Yfirkjörstjórn
Myndir: AP, Getty
EL SALVADOR, AP Vinstrisinnaður
sjónvarpsfréttamaður vann for-
setakosningar sem fram fóru í
El Salvador á sunnudag. Þar með
kemst flokkur fyrrverandi skæru-
liða í fyrsta sinn til valda í land-
inu frá því blóðugt borgarastríð
var háð í landinu. Það stóð í tólf
ár, kostaði um 75.000 manns lífið
og lauk fyrir tveimur áratugum.
Mauricio Funes er hófsamur liðs-
maður FMNL-hreyfingarinnar,
sem hélt úti skæruhernaði á sínum
tíma en var breytt í stjórnmála-
flokk er borgarastríðinu lauk árið
1992. Hann er nýjasta dæmið um
vinstrisveifluna sem gengið hefur
yfir Mið- og Suður-Ameríku.
Þegar níu af hverjum tíu atkvæð-
um höfðu verið talin var Funes með
51 prósent atkvæða en mótherjinn,
Rodrigo Avila, 49 prósent. Avila ját-
aði ósigur á kosningavöku íhalds-
flokksins Arena, með Tony Saca,
fráfarandi forseta, sér við hlið, og
óskaði Funes velfarnaðar.
Funes, sem á sínum tíma flutti
fréttir af borgarastríðinu og varð
síðar stjórnandi vinsæls viðtals-
þáttar í sjónvarpi, hét því að sam-
eina þjóðina á ný, en kosningabar-
áttan var einhver sú harðasta sem
háð hefur verið í landinu.
„Þetta er ekki tími hefnda. Þetta
er tími gagnkvæms pólitísks skiln-
ings,“ sagði Funes í ávarpi á sigur-
hátíð stuðningsmanna sinna. „Tími
hinna útilokuðu er kominn, nú er
lag fyrir raunverulega lýðræðis-
sinna, fyrir karla og konur sem
trúa á félagslegt réttlæti og sam-
stöðu,“ sagði hann. - aa
Söguleg úrslit forsetakosninga í El Salvador:
Fyrrverandi vinstri-
skæruliðar til valda
ALÞINGI Kjörið var í nýtt banka-
ráð Seðlabanka Íslands á Alþingi
í gær. Aðalmenn fyrir hönd
meirihluta eru Lára V. Júlíus-
dóttir, Ágúst Einarsson, Ragnar
Arnalds og Jónas Hallgrímsson.
Fyrir hönd minnihluta sitja í
bankaráðinu Ragnar Árnason,
Katrín Olga Jóhannesdóttir og
Friðrik Már Baldursson.
Einugis tvær konur eru því
aðalmenn í ráðinu af sjö fulltrú-
um. Sem varamenn eru konur
fimm af sjö fulltrúum en karl-
menn tveir. - ss
Nýtt bankaráð Seðlabanka:
Tvær konur af
sjö fulltrúum
VIÐSKIPTI Gengi krónunnar féll
um tæp 2,5 prósent í gær og end-
aði gengisvísitalan í 196,7 stigum.
Hún hefur ekki verið veikari
síðan í byrjun febrúar.
Gengið hafði styrkst frá því seint
í febrúar og fram á fimmtudag
í síðustu viku. Krónan hafði þá
ekki verið sterkari síðan í lok
september eða um svipað leyti
og ríkið keypti 75 prósenta hlut í
Glitni (nú Íslandsbanka).
Helsta skýringin er vaxta-
greiðsla á ríkisbréfum upp á
fimm milljarða króna sem að
mestu fellur í skaut erlendra fjár-
festa í dag. Verðmæti ríkisbréf-
anna er sjötíu milljarðar króna,
að sögn Jóns Bjarka Bentssonar,
sérfræðings hjá Íslandsbanka. - jab
Gjalddagi felldi krónuna:
Ekki lægri síð-
an í febrúar
EIN KRÓNA Erlendir fjárfestar fá greidd-
an stærstan hluta af fimm milljarða
króna vaxtagreiðslu ríkisbréfa í dag.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
STJÓRNMÁL Reglur um skráningu á
fjárhagslegum hagsmunum þing-
manna og störfum þeirra utan
þings voru samþykktar í forsætis-
nefnd Alþingis í gær.
Skrifstofa Alþingis skal halda
skrá yfir upplýsingar frá þing-
mönnum, svo sem um störf utan
þings, stóra eignarhluti í félög-
um, stuðning frá félagasamtök-
um, ferðalög sem eru greidd af
öðrum, og gjafir sem þeir þiggja
að verðmæti 50.000 krónur eða
meira. Ekki þarf að greina frá
fjárhag maka.
Reglurnar eru að danskri fyr-
irmynd og eru í raun valkvæðar,
því forsætisnefnd getur ekki refs-
að þeim sem skorast undan.
„Forsætisnefnd ætlast til að
menn fylli þetta út en við höfum
engin úrræði til að fylgja því eftir
ef menn neita. En þetta er ekki
valkvætt í þeim skilningi að við
beinum þeim kláru tilmælum til
allra þingmanna að þeir gefi þetta
upp,“ segir Guðbjartur Hannesson,
forseti Alþingis. Hann eigi ekki
von á að neinn skorist undan.
Reglurnar á að endurskoða fyrir
1. desember, með það í huga að
gera úr þeim lög.
Hugmyndir höfðu verið uppi um
að þingmenn ættu einnig að greina
frá skuldum sínum, meðal annars
innan Samfylkingar og Sjálfstæð-
isflokks, en Guðbjartur segir að
engin sérstök umræða hafi verið
um þetta frá því að hann tók við
sem forseti Alþingis. Hins vegar
skulu þingmenn greina frá eft-
irgjöf skulda og ívilnandi skil-
málabreytingum. Greina skal frá
skuldasamningi, sé hann með
hagstæðari skilmálum en tíðk-
ast. Arnbjörg Sveinsdóttir, þing-
flokksformaður Sjálfstæðisflokks,
segir þingflokk sinn alls ekki hafa
verið á móti því að þingmenn yrðu
skyldaðir til að hlíta þessum regl-
um, eins og kom fram í blaðinu í
gær. „Það er alrangt,“ segir hún.
Ummæli sín um að þeir sem gefi
kost á sér hljóti að geta valið um
það með hvaða hætti þeir sýni sín
fjármál, hafi verið misskilin.
Í umsögn sjálfstæðismanna við
drögin stendur: „Eðlilegt er að
reglur sem þessar séu valfrjálsar
þannig að þeir sem þess óska geti
staðið utan þeirra.“ Í umsögn ann-
arra flokka var mælst til að regl-
urnar yrðu að skyldu, eða lögum.
Samkvæmt heimildum úr Sjálf-
stæðisflokki er ekki útilokað að
hann styðji lögbindingu.
Upplýsingar þessar skal skrá
innan mánaðar eftir að nýtt þing
kemur saman og gera þær svo
aðgengilegar almenningi tuttugu
dögum síðar. klemens@frettabladid.is
Þingmenn greini frá
hagsmunatengslum
Reglur um skráningu á fjárhagslegum hagsmunum þingmanna voru samþykktar
í forsætisnefnd í gær. Þingmenn geta skorast undan og þurfa ekki að greina frá
skuldum. Sjálfstæðismenn segjast ekki hafa verið á móti skylduskráningu.
FRÁ FUNDI FORSÆTISNEFNDAR Í GÆR Almenningur mun, um fimmtíu dögum eftir
kosningar, geta nálgast upplýsingar um fjárhagslega hagsmuni þingmanna.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Forsætisnefnd ætlast til
að menn fylli þetta út en
við höfum engin úrræði til að
fylgja því eftir ef menn neita
GUÐBJARTUR HANNNESSON
FORSETI ALÞINGIS
BRETLAND, AP „Ódýrt áfengi
er að drepa okkur sem aldrei
fyrr.“ Þetta segir Liam Don-
aldson, landlæknir Bretlands, í
ársskýrslu sinni um lýðheilsu í
landinu. Hann leggur því til að
yfirvöld grípi til ráðstafana til
að takmarka aðgengi að ódýru
áfengi, sérstaklega ungs fólks.
Donaldson segir að síðan árið
1970 hafi áfengisneysla dregist
saman í flestum Evrópulöndum,
en í Bretlandi hafi hún aukist um
40 prósent á sama tímabili, þar
sem bjór, vín og sterkt áfengi
hefur haldist ódýrt og er auðað-
gengilegt í hverri matvöruversl-
un. Donaldson segir ofdrykkju
ungmenna sérstakt þjóðarmein,
sem verði að ráðast gegn. - aa
Lýðheilsa í Bretlandi:
Landlæknir vill
dýrara áfengi
SÚDAN, AP Omar al-Bashir, forseti
Súdans, sagðist í gær áforma að
banna starf-
semi allra
alþjóðlegra
hjálparsamtaka
í landinu innan
árs. Eftirleiðis
muni innlendir
aðilar einir sjá
um að dreifa
hjálpargögnum
sem bærust
erlendis frá.
Forsetinn er nú þegar búinn
að reka þrettán umsvifamiklar
hjálparstofnanir úr landi, en
flestar þeirra hafa verið að störf-
um í Darfúr-héraði. Sakaði Bas-
hir stofnanirnar um að útsendar-
ar þeirra stunduðu njósnir fyrir
alþjóðlegan dómstól sem gefið
hefur út handtökuskipun á hend-
ur honum fyrir að bera ábyrgð á
glæpum gegn mannkyni í Darfúr.
- aa
Súdanforseti í hefndarhug:
Vill öll hjálpar-
samtök úr landi
OMAR AL-BASHIR
BANKAR Skilanefnd Glitnis hefur
með samkomulagi við Milestone
ehf. gengið að veðum í öllu hluta-
fé í Moderna Finance AB dóttur-
félagi Milestone ehf. í Svíþjóð.
Með þessu færast yfirráð yfir
íslenskum dótturfélögum Mod-
erna Finance, Sjóvá, Askar Capi-
tal og Avant, til skilanefndar
Glitnis.
Áfram er unnið að endurskipu-
lagningu félaganna til að tryggja
rekstur þeirra til frambúðar.
Samningurinn mun ekki hafa
áhrif á daglegan rekstur
íslensku félaganna, segir í til-
kynningu frá skilanefndinni.
- shá
Skilanefnd Glitnis:
Samkomulag
við Moderna
SPURNING DAGSINS
SLYS Ruben Fannar de Sousa fékk
í síðasta mánuði hundrað þúsund
króna sekt frá Bílaleigunni Bergi
fyrir tjón sem hann vann á bíla-
leigubíl þeirra þegar vörubílstjóri
sinnti ekki stöðvunarskyldu og ók
í veg fyrir hann á Garðsvegi í okt-
óber síðastliðnum. Ruben Fannar
varð að aka út af veginum til að
lenda ekki á vörubílnum en vöru-
bílstjórinn hélt sína leið og hefur
enn ekki fundist að sögn lögregl-
unnar á Suðurnesjum.
„Ég hafði nokkru áður farið í
uppskurð vegna brjóskloss og var
orðinn nokkuð góður en eftir slys-
ið versnaði þetta og þarf ég nú
sprautu við þessi í hverjum mán-
uði,“ segir Ruben Fannar. Þrátt
fyrir að honum þyki sárt að sitja
uppi með sekt fyrir líkamstjón
fagnar hann því að vera lífs. „Ég
ók á 80 kílómetra hraða og vöru-
bílstjórinn kemur upp Helgavíkur-
afleggjarann. Hann stoppar smá
stund en ekur svo í veg fyrir mig,
ég ætlaði ekki að trúa mínum eigin
augum. Sem betur fer náði ég að
beygja útaf veginum því hefði ég
lent á bílnum þá væri ég ekki til
frásagnar.“
Vitni voru að slysinu og reyndi
eitt þeirra að finna vörubílstjór-
ann en án árangurs. „Það er úti-
lokað annað en hann hafi séð mig
fara útaf,“ segir Ruben Fannar.
„Hann þarf ekkert að óttast komi
hann fram, við búum í réttlátu
ríki.“ - jse
Ökumaður situr uppi með líkamstjón og sekt eftir glæfraakstur vörubílstjóra:
Bílstjóri olli tjóni og stakk af
RUBEN FANNAR DE SOUSA Hann segist
ekki myndi vera til frásagnar nú hefði
hann ekki náð að beygja frá vörubílnum
sem ekið var í veg fyrir hann á Garðs-
vegi. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON