Fréttablaðið - 17.03.2009, Síða 4
4 17. mars 2009 ÞRIÐJUDAGUR
ÖRYGGISMÁL Rögnvaldur Guðmunds-
son, fyrrverandi framkvæmda-
stjóri tölvufyrirtækisins Skríns,
segir fyrirtækið ekki ábyrgt fyrir
því að sjúkraskrár hurfu á Heilsu-
gæslustöðinni á Dalvík.
„Yfirlæknirinn var sjálfur
kerfisstjóri tölvukerfisins og sá
sjálfur um daglegan rekstur og
afritun kerfisins og netþjónninn
var staðsettur í húsnæði stofnun-
arinnar,“ segir Rögnvaldur.
Eins og fram kom í Fréttablaðinu
á fimmtudag reyndust ekki vera til
afrit sjúkraskráa frá tæplega eins
árs tímabili úr tölvukerfi Heilsu-
gæslustöðvarinnar á Dalvík á
árunum 2003 og 2004. Í skýringum
heilsugæslustöðvarinnar til land-
læknis sagði að tæknimenn Anza,
sem síðar varð Skrín, hafi sett upp
netþjón kerfisins sem bilaði. Rögn-
valdur kveður þetta rangt.
„Netþjónninn sem um ræðir var
keyptur af EJS, sem sá jafnframt
um uppsetningu á honum í upp-
hafi og þar með uppröðun diska
í honum,“ segir Rögnvaldur sem
ítrekar að daglegur rekstur tölvu-
kerfisins hafi ekki verið á ábyrgð
Skríns. „Skrín var ekki rekstrar-
aðili tölvukerfisins, heldur var
Skrín með svokallaðan neteftirlits-
samning sem innifelur að tækni-
maður kemur í heimsókn einu sinni
á ári og yfirfer tölvukerfi stofnun-
arinnar,“ segir hann.
Guðmundur Pálsson yfirlækn-
ir segir rétt að netþjónninn hafi
verið keyptur hjá EJS sem hafi sett
í hann grunnstýrikerfi. Anza hafi
hins vegar fyrirfram skilgreint
hvernig netþjónninn ætti að vera
og bætt við stýrikerfi. Síðar hafi
komið á daginn að hörðu diskarnir
voru rangt settir upp.
„Mér finnst að þeir hjá Anza hafi
átt að átta sig á því að uppsetning-
in á hörðu diskunum var ekki eins
og þeir höfðu beðið um. Það er að
minnsta kosti gjörsamlega útilok-
að að vænta þess að ég, sem er yfir-
læknirinn á staðnum, hefði átt að
sjá það,“ segir Guðmundur sem þó
játar að hafa verið kerfisstjóri – ef
menn vilji kalla það svo. „Ég leysti
oft ýmis vandamál sem komu upp í
kerfinu í símasambandi við tækni-
menn þessa fyrirtækis.“
Að sögn Guðmundar átti Anza að
fara yfir tölvukerfi heilsugæslu-
stöðvarinnar tvisvar á ári. Net-
þjónninn hafi aldrei gefið annað
til kynna en að afritun gagnanna
væri eðlileg. Hins vegar hafi aldrei
verið athugað hvað raunverulega
væri á þeim segulböndum sem átti
að afrita á. Heilsugæslustöðin hafi
nú óskað eftir staðfestingu EJS,
sem núverandi þjónustuaðila kerf-
isins, að fylgst sé reglulega með því
að afrit séu raunverulega tekin.
Guðmundur ítrekar að gríðarlegt
fjárhagslegt tjón hafi hlotist af bil-
uninni auk annarra óþæginda. „Ég
skildi það aldrei af hverju heil-
brigðisráðuneytið fór ekki í mál við
þessi fyrirtæki til þess að reyna að
endurheimta þessa peninga.“
gar@frettabladid.is
Saka lækni um hvarf
sjúkraskráa á Dalvík
Yfirlæknir á Heilsugæslustöðinni á Dalvík hafnar fullyrðingum fyrrverandi
framkvæmdastjóra tölvufyrirtækis um að hann eigi þátt í hvarfi sjúkraskráa.
Yfirlæknirinn segist ekki skilja hvers vegna ríkið lögsótti ekki tölvufyrirtækið.
N Formaður stjó
STJÓRNS
um star
litsins r
Gunn
stjórnar
kvöldi e
margar
Hann ítr
ingarfer
og að ráð
ingarskr
að pikka
segir han
Eitt síð
skiptaráðh
urðssonar
starfsloku
ar, þáveran
ins.
Forstj
Fre
út á
um áætl-
gaþing,
rmála-
ið að
ssa en
maður
ostnað-
yrrum
áætlað,
rra lagi
vonast
tilbú-
eðför-
- kóþ
agaþing:
nn
óviss
r
i
hún
ð
ð.
ð
a
-
.
þ
ort
m
e
f
g
b
d
ja
gæ
M
se
us
ar
við
um
völ
irai
um
T
að e
þega
lentu
það h
anna
ÖRYGGISMÁL Nú er ljóst að allar sjúkraskrár á Heilsugæslunni á Dalvík á tímabilinu júní 2003 til apríl 2004 eru glataðar vegna galla í tölvubúnaði.
„Tapið var gífurlegt og olli mikilli aukavinnu lækna og læknaritara. Auk þess er ávallt hætta á því að gagnatap af þessu tagi stofni öryggi sjúklinga í hættu,“ segir í bréfi sem Heilsugæslan á Dalvík sendi Land-læknisembættinu og síðar Persónu-vernd vegna málsins. Persónuvernd hafði fengið kvörtun frá sjúklingi sem taldi sig hafa orðið fyrir tjóni vegna þess að sjúkraskrár hans frá þessum tíma fundust ekki og því ekki hægt að færa fram fullnægj-andi sönnun um tiltekin atvik sem tengdust sjúkrasögu hans.Samkvæmt skýringum Heilsu-gæslunnar á Dalvík var tölvukerfi stofnunarinnar uppfært árið 2003 með þjónustusamningi við fyrir-
tækið Anza og síðar Skrín ehf. Setja hafi átt upp netþjón með fjórum hörðum diskum sem ynnu í tveim-ur pörum þar sem allar upplýsing-ar yrðu skráðar í bæði pörin. Í mars 2006 hafi komi upp bilun í búnaðin-um. Í ljós hafi komið að hann hafi ekki verið settur rétt upp og segul-bandsspólur væru auðar.„Samkvæmt ráðleggingum frá Theriak (sem selur og þjónust-ar sjúkraskrárkerfið) voru hörðu diskarnir sendir til Bretlands í von um að nálgast mætti gögn af þeim. Þetta tókst ekki og þá voru þeir sendir áfram í nánari grein-ingu í Póllandi. Þar tókst ekki held-ur að endurvekja gögnin. Á þess-um tímapunkti var ljóst að tapast höfðu öll gögn úr sjúkraskrárkerfi heilsugæslustöðvarinnar frá því í júní 2003 og þar til í apríl 2004 og engin leið að endurvekja þau,“ segir í útskýringum heilsugæslunnar.
Eftir þetta var netþjónninn settur upp eins og hann átti að vera og afritun breytt þannig að hún sé um símalínu til höfuð-stöðva Skrín á Akureyri.Persónuvernd segir ljóst að Heilsugæslustöðinni hafi borið að taka öryggisafrit af sjúkra-skrám og varðveita á öruggum stað. Það hafi ekki verið gert. „Þá telur Persónuvernd að heilsu-gæslustöðinni hafi einnig borið að athuga það reglulega hvort öryggisafrit hefðu að geyma nauðsynlegar upplýsingar. Telur Persónuvernd að slíkt verði að athuga nægilega oft til að tryggja að öryggisafrit, sem hefur að geyma slíkar upplýsingar, sé ávallt á vísum stað,“ segir stofn-unin sem nú hyggst kanna hvort öryggisafritun sjúkraskránna sé orðin fullnægjandi.
gar@frettabladid.is
Glötuðu sjúkraskrám heilsugæslu á DalvíkAllar sjúkraskrár á Heilsugæslustöðinni á Dalvík á tíu mánaða tímabili glötuð-ust í tölvukerfi. Engan árangur bar að senda búnaðinn til tölvusérfræðinga í tveimur löndum. Öryggi sjúklinga stefnt í hættu og gríðarlegt fjárhagslegt tap.
DALVÍK Tölvubúnaður var ekki rétt upp settur á Heilsugæslustöðinni á Dalvík og því glötuðust sjúkraskrár fyrir tíu mánaða tímabil.
j ra g glan var óvin-urinn. Nú hafa hlutirnir svo sann-
y ir utan herstöð, auk þess sem tveir aðrir hermenn og tveir pitsusendlar særðust. - gb
RÖGNVALDUR
GUÐMUNDSSON
FRÉTTABLAÐIÐ Sagt var
frá því í Fréttablaðinu á
fimmtudaginn í síðustu viku
að uppgötvast hafi við tölvu-
bilun á árinu 2005 að engin
afrit voru til af sjúkraskrám
Heilsugæslustöðvarinnar á
Dalvík fyrir um tíu mánaða
tímabil.
ALÞINGI Ekki er enn lokið vinnu við
að meta eignir frá gömlu bönkun-
um yfir í nýju bankana. Þetta kom
fram í máli Gylfa Magnússonar
viðskiptaráðherra á þingi í gær.
Við mat á eignum sé miðað við
mat til langs tíma, en ekki sölu-
verðmæti í þröngri stöðu. Gylfi
sagðist mundu kynna verðmatið
Alþingi um leið og það lægi fyrir.
Þetta var svar Gylfa við fyr-
irspurn Bjarna Benediktssonar
sem sagðist hafa óljósar heimild-
ir fyrir því að óvenjuhátt hlutfall
af lánasafni bankanna séu útlán
sem ekki muni innheimtast nema
að hluta eða ekki að neinu leyti.
Það séu ekki nema 30 prósent lána
sem ekki þurfi
að hafa áhyggj-
ur af. Af þessu
þyrfti að hafa
áhyggjur, því
ek k i þy r f t i
nema 10 pró-
sent frávik á
mati á eignum
nýju bankanna
til að allt eigið
fé þeirra myndi
fuðra upp. „Við
hljótum að leggja okkur fram við
að lágmarka áhættuna, hvernig
hyggst ráðherra tryggja í samn-
ingum við bankana og kröfuhafa
að reynist eignir bankanna ekki
eins miklar og gert er ráð fyrir,
muni mismunurinn ekki lenda á
skattborgurum þessa lands?“
Gylfi svaraði því til að útlit væri
fyrir að ríkið þyrfti að leggja til
talsvert minna eigið fé en gert
var ráð fyrir í upphafi, en þá var
talað um 385 milljarða. Ef kröfu-
hafar myndu eignast einhvern hlut
af bönkunum gæti það jafnframt
lækkað framlag ríkisins. Form-
legar umræður um slíkt væru þó
ekki hafnar. Þá hefði ríki ekki enn
lagt bönkunum til hluta eiginfjár,
en þeir hafi fengið nokkra fyrir-
greiðslu í Seðlabankanum út á lof-
orð ríkisins um að leggja þeim til
eigið fé. - ss
Bjarni Benediktsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, um lánasafn bankanna:
Greiðslur af þriðjungi lána öruggar
BJARNI BENE-
DIKTSSON
PAKISTAN, AP Pakistanstjórn lét í
gær undan sumum kröfum mót-
mælenda og sló þar með á spenn-
una sem ríkt hefur í landinu.
Með því að fallast á að setja aftur
í embætti nokkra hæstaréttar-
dómara sem Pervez Musharraf,
fyrrverandi forseti, rak, sljákk-
aði mjög í stjórnarandstæðing-
um sem síðustu daga höfðu staðið
fyrir fjöldafundum sem leystust
að hluta upp í múgæsingu og
óeirðir.
Snemma í gærmorgun til-
kynnti forsætisráðherrann að
Iftikhar Mohammed Chaudhry
og fleiri menn sem Musharraf
rak síðla árs 2007, fengju aftur
dómarahempur sínar.
Tilkynningin varð til þess að
hætt var við fjöldakröfugöngu
sem óánægðir lögfræðingar og
stjórnarandstæðingar höfðu
boðað til. - aa
Heitt í kolunum í Pakistan:
Mótmælendur
hafa sitt fram
IFTIKHAR MOHAMMED CHAUDHRY Aftur
í dómarasæti. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
VEÐURSPÁ
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
Alicante
Amsterdam
Basel
Berlín
Billund
Eindhoven
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
New York
Orlando
Osló
París
Róm
Stokkhólmur
18°
12°
18°
11°
8°
14°
14°
14°
7°
8°
21°
12°
12°
25°
4°
16°
18°
3°
3
4
3
2
4
6
7
8
7
5
2
5
5
5
3
4
5
7
6
5
6
6
FIMMTUDAGUR
5-13 m/s, stífastur
vestan til
7 10
8
88
4
8
7
10
Á MORGUN
5-10 m/s
10
SIGLUM INN
Í HLÝINDI
Það eru hitaskil á
leiðinni inn yfi r land
núna með morgnin-
um og um níu leytið
eru horfur á rigningu
syðra en snjókomu
eða slyddu nyrðra.
Strax um hádegi ætti
úrkoman nyrðra að
vera orðin að rigningu
en þá verður við það
að stytta upp syðra.
Síðar í dag styttir
einnig upp nyrðra og
léttir þar til. Í kvöld
fer svo aftur að rigna
sunnan til.
Sigurður Þ.
Ragnarsson
veður-
fræðingur
Meginlínur fjárlaga kynntar
Meginlínur fjárlaga, bæði fyrir næsta
ár og fyrir árin 2011-2012, voru kynnt-
ar Alþjóðagjaldeyrissjóðnum á meðan
á heimsókn þeirra stóð. Þetta kom
fram í máli Steingríms J. Sigfússonar
fjármálaráðherra á þingi í gær. Hann
hvatti menn til hóflegrar bjartsýni
þar sem atvinnuleysi væri meira en
spáð hafði verið og heildarskuldir
þjóðarbúsins væru ekki að þróast í
jákvæða átt.
Barnasáttmáli lögfestur
Alþingi samþykkti í gær þingsálykt-
unartillögu um að Barnasáttmáli
Sameinuðu þjóðanna verði lög-
festur hér á landi. Ásta Ragnheiður
Jóhannesdóttir sagði þegar hún gerði
grein fyrir atkvæði sínu að endur-
skoðun á barnaverndarlögum færi nú
fram í félagsmálaráðuneytinu með
sáttmálann í huga.
NOREGUR Grænfriðungar ætla að
berjast fyrir því að Norðmenn
hlífi kóralrifjum á hafsbotninum
og dragi úr togveiðum og olíu-
vinnslu á hafsbotninum þar sem
kóralrifin eru, að sögn norska
dagblaðsins Dagbladet.
Skip Grænfriðunga, Rainbow
Warrior, er komið til Björgvinjar
frá Amsterdam. Það heitir sama
nafni og skip Grænfriðunga sem
sökk við Nýja-Sjáland árið 1985.
Skipið var þá notað til að mótmæla
frönskum prufusprengingum.
Einn lést þegar skipinu var
sökkt en tveir franskir njósnarar
voru síðar dæmdir fyrir árásina.
- ghs
Grænfriðungar:
Berjast fyrir
norsk kóralrif
Rændi dóttur og flugvél
Brasilíumaður, sem sakaður var um að
hafa nauðgað þrettán ára stúlku, henti
eiginkonu sinni út úr bíl á ferð og fór
síðan með fimm ára dóttur þeirra á
flugvöll þar sem hann rændi einka-
flugvél. Henni flaug hann á verslunar-
miðstöð í borginni Gioiana og batt þar
með enda á líf sitt og dótturinnar.
BRASILÍA
UPPELDISMÁL Starfsmanni á leik-
skóla í Reykjavík var sagt upp
störfum í gær fyrir að löðrunga
fimm ára gaml-
an dreng í þrí-
gang. Ragn-
hildur Erla
Bjarnadóttir,
sviðstjóri leik-
skólasviðs
Reykjavíkur-
borgar, harmar
atvikið og segir
framkomu eins
og þessa ekki
verða liðna. Móðir drengsins fagn-
ar málalyktum. Fréttastofa Stöðv-
ar 2 sagði frá.
Starfsmaðurinn var upphaflega
áminntur fyrir framgöngu sína
en leikskólastjórinn hafði ekki
heimild til að segja starfsmann-
inum upp við fyrsta brot. Bragi
Guðbrandsson, forstjóri Barna-
verndarstofu, segir að þegar lög
um réttindi starfsmanna og vernd
barna stangist á, eigi hagsmunir
barnsins að sitja í fyrirrúmi. - shá
Leikskóli í Reykjavík:
Sló 5 ára barn
og var sagt upp
ALÞINGI
RAGNHILDUR ERLA
BJARNADÓTTIR
GENGIÐ 16.03.2009
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
178,9059
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
111,97 112,51
159,28 160,06
145,93 146,75
19,573 19,687
16,571 16,669
13,286 13,364
1,1376 1,1442
165,86 166,84
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR