Fréttablaðið


Fréttablaðið - 17.03.2009, Qupperneq 6

Fréttablaðið - 17.03.2009, Qupperneq 6
6 17. mars 2009 ÞRIÐJUDAGUR FÍS - Félag íslenskra stórkaupmanna - heldur fundarröð um eitt stærsta hagsmunamál íslenskrar verslunar. Fundirnir verða haldnir í húsakynnum FÍS í Húsi verslunarinnar 9. hæð næstu fi mm miðvikudaga kl. 8:30 - 10:00 Fundirnir eru öllum opnir meðan húsrúm leyfi r. Skráning í síma 588 8910 eða á netfangið linda@fi s.is Fundur I 18. mars kl. 8:30-10:00 Frummælandi: Benedikt Jóhannesson framkvæmdastjóri Talnakönnunar – Hefur verslun á Íslandi annan valkost en evru? Umræður Fundarstjóri: Páll Rúnar M. Kristjánsson lögmaður FÍS Evrópuröðin – íslensk verslun og ESB Fundaherferð FÍS um Gjaldmiðla- og Evrópumál AUSTURRÍKI, AP Hinn 73 ára gamli Josef Fritzl, sem sakaður er um að hafa læst dóttur sína inni í kjall- ara húss síns í 24 ár og getið henni sjö börn, játaði sig sekan um sifja- spell er réttarhaldið yfir honum hófst í Sankt Pölten í Austurríki í gær. Hann lýsti sig hins vegar saklausan af hinum alvarlegustu ákæruliðunum, um barnsmorð og að hneppa manneskju í þrældóm. Fritzl á allt að lífstíðarfangelsi yfir höfði sér, verði hann fundinn sekur um barnsmorð. Við sifja- spelli liggur hins vegar eins árs fangelsi samkvæmt gildandi lögum í Austurríki. Búist er við að dómur falli jafnvel strax á fimmtudag í þessu sérstæða máli sem vakið hefur heimsathygli. Samkvæmt málskjölum sak- sóknara hélt Fritzl dóttur sinni Elisabeth sem fanga í þröngu kjall- ararými í íbúðarhúsi sínu í bænum Amstetten í 24 ár. Hann er einn- ig sakaður um að hafa nauðgað henni ítrekað yfir allt þetta tíma- bil. Samkvæmt DNA-rannsókn er hann faðir allra þeirra sex barna sem Elisabeth eignaðist og kom- ust á legg. Eitt barn dó sem hvítvoðung- ur, en andlát þess er tilefni morð- ákærunnar. Saksóknarar halda því fram að sveinbarnið hefði átt möguleika á að komast af ef Fritzl hefði komið því undir læknishend- ur. Saksóknarinn Christiane Burk- heiser hóf ákæruræðuna á að saka Fritzl um að hafa margsinn- is nauðgað dóttur sinni að litl- um börnum þeirra ásjáandi, og að hann hefði vel getað bjargað barninu sem dó, hefði hann séð til þess að það fengi læknishjálp. Það fæddist veikburða og dó tveimur og hálfum degi eftir að það kom í heiminn. Burkheiser sagði Fritzl ekki hafa talað neitt við dóttur sína fyrstu árin sem hann hélt henni fanginni; hann hefði aðeins farið reglulega niður í kjallaraholuna til að nauðga henni. Verjandi Fritzls, Rudolf Mayer, ákallaði kviðdóm um að sýna hlut- lægni og stóð fast á því að Fritzl væri „ekki skrímsli“. Mayer sagðist ekki hafa neina sérstaka áætlun í málsvörninni, en lagði áherslu á að skjólstæðingur sinn iðraðist gerða sinna. audunn@frettabladid.is FRITZL FYRIR RÉTTI Sakborningurinn huldi andlit sitt með blárri skjalamöppu í dóm- salnum í St. Pölten í gær. NORDICPHOTOS/AFP Fritzl játar sifjaspell en ekki önnur brot Réttarhöld hófust í gær í einu umtalaðasta sakamáli í sögu Austurríkis, yfir manni sem hélt dóttur sinni fanginni í gluggalausum kjallara í 24 ár, nauðgaði ótal sinn- um og gat sjö börn með. Verjandinn segir sakborninginn „ekki vera skrímsli“. UMHVERFISMÁL „Langtímamarkmið borgarinnar er að halda Elliða- ánum í A-flokki hér eftir sem hing- að til,“ segir í umsögn skipulags- stjóra Reykjavíkur sem lögð var til grundvallar þegar skipulagsráð og borgarráð samþykktu fyrirhugað hesthúsahverfi í Víðidal. Eins og kom fram í Fréttablaðinu síðastliðinn föstudag lýstu margir sig andvíga nýja hesthúsahverf- inu. Meðal þeirra eru umhverfis- ráð Reykjavíkur, Stangaveiðifélag Reykjavíkur og Veiðimálastofn- un. Í umsögn skipulagsstjóra er gagnrýni á hverfið svarað. Þar kemur fram að umrædd lóð hafi verið skilgreind sem athafnasvæði hestamanna frá árinu 1996. Engar byggingar fari nær ánum en eitt hundrað metra. Flóðvarnargarður muni skilja hverfið frá Elliðaánum og göngustíg og reiðstíg. „Gert er ráð fyrir góðu andrými milli athafnasvæðis hestamanna og ánna,“ segir í umsögninni og tekið fram að allt frárennsli frá hesthúsunum fari í holræsakerfið. Sama gildi um ofanvatn á svæðinu. „Sé ekki unnt að leiða allt ofanvatn í fráveitu verður fundin viðunandi lausn á hreinsun áður en það er leitt í viðkvæman viðtakanda eins og Elliðaár,“ segir skipulagsstjóri sem kveður gildi svæðisins til úti- vistar ekki verða rýrt að neinu leyti. „Þar hafa laxveiði, hesta- mennska og almenn útivist farið ágætlega saman um árabil og svo mun verða áfram.“ - gar Embætti skipulagsstjóra telur nýja hesthúsabyggð ekki skerða gildi Elliðaárdals: Hesthúsin skaða ekki Elliðaár GUÐMUNDUR STEFÁN MARÍASSON Formaður Stangaveiðifélags Reykjavíkur á göngubrúnni ofan við veiðistaðinn Heyvað í Elliðaánum. Hesthúsin rísa þar aust- an við. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Auglýsingasími – Mest lesið ALÞINGI Stjórnlagaþing sem starf- ar í eitt og hálft ár, líkt og frum- varp Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra um breyting- ar á stjórnskipunarlögum gerir ráð fyrir, mun kosta tæpar 1.732 milljónir króna. Þetta kemur fram í kostnaðarmati frá fjár- málaráðuneytinu, en málið var rætt á fundi sérnefndar um stjórnarskrármál í gær. Greinargerð og kostnaðarmat gerir ráð fyrir kostnaði frá 1.176 milljónir króna fyrir tíu mánaða þing, 1.731 milljónir króna standi þingið í átján mánuði eins og gert er ráð fyrir og 2.148 milljónir króna starfi þingið í tvö ár. - shá Kostnaður við stjórnlagaþing: Mun kosta einn til tvo milljarða VINNUMARKAÐUR Það ætti svo sannarlega að skoða hvort ekki megi lækka laun hjá forstjórum og framkvæmda- stjórum lífeyris- sjóðanna, sem eru með allt að þrjátíu milljón- ir á ári í laun, segir Vilhjálm- ur Birgisson, formaður Verka- lýðsfélags Akra- ness. Sérstaklega eigi þetta við um Lífeyrissjóð verslunarmanna og Gildi, þar sem yfirmennirnir þéni milli tuttugu og þrjátíu millj- ónir á ári. „Þessi laun eru ekki í neinum takti við það sem eðlilegt getur tal- ist. En það er fleira sem má skoða, svo sem aðkoma atvinnurekenda að stjórnum sjóðanna,“ segir Vil- hjálmur. Óeðlilegt sé að atvinnurekend- ur véli með lífeyri launþega. Hags- munaárekstrar geti til dæmis myndast þegar teknar séu ákvarð- anir um fjárfestingar. Launþeg- arnir eigi að fara með stjórn eigin lífeyris. - kóþ Formaður Verkalýðsfélags Akraness vill atvinnurekendur út úr stjórnum: Laun lækki í lífeyrissjóðum VILHJÁLMUR BIRGISSON Forstjóri/framkvæmdastjóri Lífeyrissjóður Árslaun Mánaðarlaun Þorgeir Eyjólfsson Verslunarmanna 29.842.000 2.486.000 Árni Guðmundsson Gildi 21.534.000 1.794.500 Gylfi Jónasson Festa 13.103.006 1.091.917 Kári Arnór Kárason Stapi 12.917.000 1.076.417 *Heimild: www.vlfa.is LAUN FORSTJÓRA Á Fjármálaeftirlitið að greina frá launum skilanefnda gömlu bankanna? JÁ 96,8% NEI 3,2% SPURNING DAGSINS Í DAG: Á HB Grandi að greiða starfs- fólki sínu launauppbót vegna góðrar rekstrarafkomu árið 2008? Segðu skoðun þína á Vísir.is KJÖRKASSINN

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.