Fréttablaðið - 17.03.2009, Síða 26
22 17. mars 2009 ÞRIÐJUDAGUR
sport@frettabladid.is
Landsliðsmarkvörðurinn Hreiðar Levý Guðmundsson mun að
öllum líkindum skipta um umhverfi í sumar og flytja frá Svíþjóð.
Þar hefur hann verið síðustu ár hjá Savehof og staðið sig afar
vel. Liðið er á sífelldri uppleið og búið að tryggja sér deildar-
meistaratitilinn í Svíþjóð í ár.
„Það hefur gengið á ýmsu í vetur. Ég sneri mig síðast á ökkla
með landsliðinu í janúar og er ekki alveg búinn að jafna mig
af því. Það hefur samt gengið vel hjá liðinu og við búnir
að vinna deildina þó svo við séum búnir að vera lélegir
eftir áramót,“ sagði Hreiðar en úrslitakeppnin byrjar svo í
kjölfarið.
Hreiðar hefur leikið minna í ár en áður og þurft að deila
spilatímanum meira með hinum markverði liðsins. „Þetta
er búið að vera allt öðruvísi tímabil í ár. Í fyrra spilaði ég
nánast alltaf en núna er ég að spila kannski helm-
inginn. Ég er nú ekkert sérstaklega kátur með það,“
sagði Hreiðar sem er samt þokkalega sáttur við
eigin spilamennsku í vetur. Hann játar samt að
vera oft pirraður yfir því að fá ekki að spila meira.
„Þeir eru hálfgert kærustupar, hinn markvörður-
inn og þjálfarinn. Alltaf að spjalla saman og miklir vinir. Ég nenni
ekki að vera í einhverjum sleikjuskap,“ sagði Hreiðar sem er með
ýmis járn í eldinum þessa dagana.
„Það er allt í skoðun þessa dagana. Mér stendur til boða að
fara til Danmerkur, Sviss, Spánar og jafnvel Þýskalands líka. Það
gengur samt allt frekar hægt fyrir sig þessa dagana, þökk
sé þessari peningakrísu,“ sagði Hreiðar en hvar kýs hann
helst að spila?
„Það væri náttúrlega mest spennandi að fá tilboð
frá fínu liði í þýsku úrvalsdeildinni. Það gæti gerst en
er á algjöru byrjunarstigi. Svo eru nokkrir möguleikar
í Danmörku sem gæti verið góður kostur. Svo er
spænska liðið Antuquera einnig búið að sýna mér
áhuga. Veit lítið um það lið nema það er nálægt
Afríku og því heitt sem er ekki gott fyrir albinóa eins
og mig,“ sagði Hreiðar léttur en það félag situr í 10.
sæti spænsku úrvalsdeildarinnar.
„Það eru meiri líkur en minni að ég yfirgefi Svíþjóð í
sumar,“ sagði Hreiðar Levý Guðmundsson að lokum.
HREIÐAR LEVÝ GUÐMUNDSSON: ER VÆNTANLEGA AÐ SPILA SITT SÍÐASTA TÍMABIL Í SVÍÞJÓÐ
Hinn markvörðurinn og þjálfarinn eru hálfgert kærustupar
KÖRFUBOLTI Stjarnan vann í gær-
kvöldi fyrsta sigur sinn í úrslita-
keppni efstu deildar körfubolta
karla í sögu félagsins er liðið lagði
Snæfell á heimavelli, 99-79. Stað-
an í hálfleik var 45-42, Stjörnunni
í vil.
Þetta er í fyrsta sinn sem Stjarn-
an kemst í úrslitakeppnina en liðin
munu nú mætast í oddaleik í Stykk-
ishólmi á fimmtudagskvöldið um
hvort liðið kemst áfram í undan-
úrslit keppninnar.
„Við vorum afar sáttir við að
vera yfir í hálfleik því við hittum
nánast ekkert utan af velli í öllum
fyrri hálfleiknum,“ sagði Teitur
Örlygsson, þjálfari Stjörnunnar, í
samtali við Stöð 2 Sport eftir leik-
inn. „En seinni hálfleikurinn var
alveg frábær og baráttan til fyrir-
myndar. Að vinna Snæfell með 20
stigum í úrslitakeppninni finnst
mér alveg magnað og það er ný
tilfinning fyrir mig,“ sagði hann í
léttum dúr.
Jón Ólafur Jónsson var
stigahæsti leikmaður Snæ-
fellinga en flestir leik-
manna liðsins náðu
sér einfaldlega
illa á strik í
leiknum.
„Þetta var
alger hörmung.
Við virtumst vera
sofandi í leiknum og
við vorum greini-
lega ekki tilbún-
ir í þennan slag,“
sagði Jón Ólafur.
„Við misstum boltann
frá okkur síendurtekið
og það var ekkert flæði í
sóknarleik okkar. Það var
of mikið um einstaklings-
framtak og þetta mun aldrei
ganga upp ef við ætlum ekki að
spila saman.“ Stjörnumenn náðu
frumkvæðinu í leiknum í lok ann-
ars leikhluta. Snæfellingar fengu
þó mörg tækifæri til að koma sér
aftur inn í leikinn allt þar til um
miðjan fjórða leikhluta er heima-
menn keyrðu hreinlega yfir leik-
menn Snæfells.
Teitur sagði sína menn
ekki hafa neinu að tapa
þegar liðin mætast í
oddaleiknum.
„Ég hlakka ekkert smá
til að fara í þennan leik.
Það er engin pressa á okkur og
við ætlum að draga fram allt
það besta úr okkur.“ - esá
Stjarnan vann í gærkvöldi sinn fyrsta sigur í úrslitakeppni í sögu félagsins:
Stjarnan knúði fram oddaleik
JUSTIN SHOUSE
Var sínum gömlu félögum
í Snæfelli erfiður og
skoraði 28 stig.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
KÖRFUBOLTI Grindvíkingar unnu
verðskuldaðan 85-71 sigur á ÍR í
öðrum leik liðanna í fyrstu umferð
úrslitakeppni Iceland Express
deildarinnar í gærkvöldi þar sem
liðið hafði forystu frá fyrstu mín-
útu. Grindavík er þar með fyrst
liða til að tryggja sér sæti í undan-
úrslitum keppninnar.
Páll Axel Vilbergsson gaf tón-
inn snemma í Seljaskólanum í gær-
kvöldi og þegar rétt rúm mínúta
var liðin af leiknum hafði kappinn
komið Grindavík í 9-0 með þremur
þristum í röð. „Ég hef oft gert þetta
áður. Það eina sem ég hef áhuga á
er að vinna þennan blessaða titil,“
sagði Páll Axel við Fréttablaðið
en hann skoraði 21 stig í leiknum.
Grindvíkingar voru miklu betri í
fyrsta leikhlutanum en ÍR kom til
baka í öðrum leikhluta og munur-
inn var aðeins fjögur stig í hálf-
leik, 42-38.
Páll Axel byrjaði síðari hálfleik-
inn líkt og þann fyrri og skoraði þá
tvo þrista á rúmri mínútu. Um mið-
bik þriðja leikhlutans var Ómari
Sævarssyni vikið af leikvelli eftir
deilur við dómarana og Grindvík-
ingar náðu í kjölfarið tuttugu stiga
forystu. Þrátt fyrir hetjulega bar-
áttu heimamanna og klaufagang
hjá gestunum, voru Grindvíking-
arnir einfaldlega með of mörg vopn
sem ÍR réði ekki við.
Hreggviður Magnússon hjá ÍR
sagði sigur Grindvíkinga verð-
skuldaðan. „Það eru gríðarleg von-
brigði að tímabilið sé búið, en það
má segja að betra liðið sé komið
áfram í þessari seríu og ég mundi
segja að Grindavík sé með beitt-
asta sóknarliðið í dag. Þeir sýndu
það í dag að þeir geta líka spilað
vörn,“ sagði Hreggviður.
Páll Axel var þokkalega sáttur
við leik sinna manna. „Ég var svo-
lítið hræddur fyrir þennan leik af
því ÍR-ingarnir eru góðir en við
erum það líka. Við vorum kannski
ekki góðir á köflum í dag en þetta
hafðist. Við vorum aldrei neitt
skelkaðir hérna í kvöld þó þeir
næðu aðeins að minnka muninn.
Við þurfum samt að gera betur ef
við ætlum okkur einhverja hluti í
úrslitakeppninni.“ baldur@365.is
Grindavík númeri
of stórt fyrir ÍR
Grindavík varð fyrsta liðið til að tryggja sér sæti í
undanúrslitum Iceland Express deildar karla í körfu-
bolta með öruggum sigri á ÍR í öðrum leik liðanna.
BARÁTTA Páll Axel Vilbergsson í baráttu um boltann við Sveinbjörn Claessen, leik-
mann ÍR. FRÉTTABLAÐIÐ/RÓSA
Iceland Express deild karla:
ÍR - Grindavík 71-85
Stig ÍR: Hreggviður Magnússon 17, Steinar Arason
16, Ómar Örn Sævarsson 14, Eiríkur Önundarson
12, Sveinbjörn Claessen 9, Ólafur Ingvarsson 3.
Stig Grindavíkur: Nick Bradford 21, Páll Axel Vil-
bergsson 21, Þorleifur Ólafsson 18, Arnar F. Jóns-
son 9, Brenton Birmingham 8, Páll Kristinsson 3,
Helgi J. Guðfinsson 3, Guðlaugur Eyjólfsson 2.
Stjarnan - Snæfell 99-79
Stig Stjörnunnar: Justin Shouse 28, Jovan Zdra-
vevski 25, Ólafur Sigurðsson 17, Fannar Helgason
11, Guðjón Lárusson 10, Birkir Guðlaugsson 3,
Kjartan Kjartansson 2, Eyjólfur Jónsson 2.
Stig Snæfells: Jón Ólafur Jónsson 18, Hlynur
Bæringsson 17, Lucious Wagner 16, Magni Haf-
steinsson 10, Slobodan Subasic 8, Atli Hreinsson
5, Egill Egilsson 3, Sigurður Þorvaldsson 2.
Iceland Express deild kvk:
Keflavík-KR 62-71
Stig Keflavíkur: TaKesha Watson 17, Birna
Valgarðsdóttir 15, Ingibjörg Elva Vilbergsdóttir 11,
Pálína Gunnlaugsdóttir 11, Bryndís Guðmunds-
dóttir 6, Rannveig Randversdóttir 2.
Stig KR: Hildur Sigurðardóttir 18, Guðrún Gróa
Þorsteinsdóttir 12, Sigfún S. Ámundadóttir 10,
Guðrún Ámundad. 10, Helga Einarsd. 9, Heiðrún
Kristmundsd. 6, Margrét Kara Sturlud. 6.
Enska úrvalsdeildin:
West Ham - West Bromwich Albion 0-0
ÚRSLIT
> KR sópaði Keflavík
KR tryggði sér í gær sæti í úrslit-
um úrslitakeppni Iceland Express
deildar kvenna með sigri á Keflavík,
71-62, og þar með 3-0 í einvíginu.
Hildur Sigurðardóttir var stigahæst
leikmanna KR með átján
stig en TaKesha Watson
skoraði sautján fyrir
Keflavík. KR mætir
annað hvort Haukum eða
Hamari í úrslitunum en þessi lið mætast
í fjórðu viðureign liðanna í Hveragerði
í kvöld. Haukar hafa forystuna í einvígi
liðanna, 2-1.