Fréttablaðið - 17.03.2009, Side 32

Fréttablaðið - 17.03.2009, Side 32
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans BAKÞANKAR Páls Baldvins Baldvinssonar Kenning Svans Kristjánssonar, prófessors í stjórnmála- fræði, um búsáhaldabyltinguna er athyglisverð. Hann hefur lýst því að mótmælendur á Austur- velli hafi knúið fram valdaskipti á Íslandi og kosningar fram undan séu í raun bara viðurkenn- ing á gerðum hlut: „skríllinn“ eins og sumir talsmenn í Sjálf- stæðisflokknum kölluðu mótmæl- endur, hafi náð fram í friðsam- legum mótmælum eftirtöldum stefnumiðum: ríkisstjórn fór frá, Alþingi var rofið, skipt um stjórn í Seðlabanka og Fjármálaeftirliti – og nú sé að rætast fimmta kraf- an um stjórnlagaþing. SVANUR líkir mótmælendum á Austurvelli við frelsishreyfing- ar Austur-Evrópu – Sjálfstæðis- flokkurinn er þá hinn stjarfi ríkisflokkur, „kommúnískur“ hagsmunagæsluflokkur með uppbelgda falska stefnu í bland við þjóðernisrembu – svokallaða „sjálfstæðisstefnuna“ sem þeir tala svo oft fjálglega um eins og þar fari viðurkennd evrópsk kenning í stjórnmálum. Svan- ur gengur lengra og fullyrðir að Hörður Torfason hafi fest nafn sitt í bækur sögunnar fyrir lýð- ræðisbaráttu sína. HINN horski vestfirski fyrr- um sjálfstæðismaður og próf- essor hvetur flokkinn nú til djarfhuga ákvarðana og skorar á hann að gera Ragnheiði Elínu að formanni og þannig að leiða fram vilja grasrótarinnar sem vill sjá alvarlega stefnubreyt- ingu flokksins. Þar skýtur hann langt frá markinu og er tekinn að ímynda sér kraftaverk hjá gamla íhaldinu sem víst mun kjósa Bjarna Benediktsson sem formann af eftirsjá og hreinni íhaldssemi – eins og hinn snari Garðbæingur eigi eitthvað sam- eiginlegt með nafna sínum annað en upphafsstafi og nafn. Enda er oft betra að skoða Flokkinn sem sekt eða trúarklíku en sem póli- tíska hreyfingu. MASSINN sem keyrði fram öll stefnumið sín á nokkrum dögum er undarlega þegjandalegur þessi dægrin, þótt stöðugt fjölgi atvinnulausum þá mættu þeir ekki í þúsundum á Austurvöll á laugardag. Þar hljómaði Pink Floyd – Bleik froða – yfir gras- inu: We dont need no education. Þarf sárari reynslu en atvinnu- missi til að fólk mæti á strætin og mótmæli friðsamlega? Valdaskiptin staðfest Í dag er þriðjudagurinn 17. mars, 76. dagur ársins. 7.39 13.36 19.35 7.24 13.21 19.19

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.