Fréttablaðið - 19.03.2009, Qupperneq 32
19. MARS 2009 FIMMTUDAGUR4 ● fréttablaðið ● nýsköpun
Íslenskt þjóðlíf stendur á
tímamótum og nýrra úrræða
er þörf til að láta viðskiptalífið
tifa, blómstra og dafna.
„Opin nýsköpun er viðskiptamódel
morgundagsins, en í kerfi lokaðr-
ar nýsköpunar hafa fyrirtæki
verið höll undir að hæfileikarík-
asta fólkið vinni aðeins á þeirra
vettvangi við að þróa öflugustu
hugmyndirnar, sem svo hefur
verið mikilvægt að samkeppnis-
aðilar komist ekki yfir. Þetta lok-
aða umhverfi þarf að opna, því
það skapar frekari tækifæri en
að halda því áfram lokuðu,“ segir
Anna María Pétursdóttir starfs-
mannastjóri Vífilfells, sem vakið
hefur athygli fyrir umræðu sína
um opna nýsköpun í starfandi
fyrirtækjum og þörf á breyttu
hugarfari.
„Það er þörf á breyttu hugar-
fari því með auknu samstarfi, sem
er lykilþáttur í opinni nýsköpun,
eru meiri líkur á aukinni fram-
leiðni með því að stytta hugmynd
að markaði og minnka þróunar-
kostnað, sem er stór þáttur vöru
sem kannski hefur ekki markaðs-
tækifæri. Því þurfa stjórnendur
að breyta hugarfari sínu og taka
upp verkfæri opinnar nýsköp-
unar til að efla útflutning, vöru,
þjónustu og gjaldeyrisskapandi
starfsemi,“ segir Anna María og
ítrekar að mörg tækifæri felist í
samstarfi.
„Opin nýsköpun kallar ekki
aðeins á breytt hugarfar stjórn-
enda, heldur einnig endurskoðun á
menntakerfi okkar. Mannauður er
ríkur þáttur í opinni nýsköpun og
krefst nýrrar hugsunar og mennt-
unar í viðskiptafræði og MBA-
námi, því nú er þörf á góðum
markaðsmönnum sem hafa þekk-
ingu og færni í undirstöðuatriðum
opinnar nýsköpunar.“
Að sögn Önnu Maríu er mikil-
vægasta verkfæri opinnar nýsköp-
unar það sem á ensku kallast Liv-
ing Lab, en mætti kalla „lifandi
tilraunastofu“ í beinni þýðingu.
„Living Lab er vettvangur
samsköpunar neytenda, fyrir-
tækja, háskóla og rannsóknastofn-
ana í gegnum virkt og skipulagt
tengslanet. Í dag eru mörg öfl-
ugustu hátæknifyrirtæki heims
virkir þátttakendur í Living Lab,
og má þar nefna Nokia, Apple, HP
og fleiri. Þá selja fyrirtæki hug-
myndir og tækni sem ekki eru
partur af þeirra lykilstarfsemi
eða spinna úr henni inn í ný fyrir-
tæki, en gott dæmi um slíkt spin-
off er fyrirtæki sem spratt út úr
Philips, ASML, og framleiðir tæki
til framleiðslu rafrása og rofa,“
segir Anna María, sem á næst-
unni sér fram á opnun fyrstu ís-
lensku lifandi tilraunastofunnar,
sem Nýsköpunarmiðstöðin er nú
með í þróun. „Með Living Lab hér-
lendis getum við laðað að okkur
stór fyrirtæki og opnað á aukið
samstarf og atvinnutækifæri.“
Anna María tekur undir þá
heimsspeki Kínverja að í kreppu
felist dýrmæt tækifæri til nýsköp-
unar og breytts þjóðfélags.
Viðskiptamódel morgun
Nýsköpunarmiðstöð Íslands
setti stafrænu smiðjuna Fab Lab
(Fabrication Laboratory) á fót
í Vestmannaeyjum síðastliðið
sumar en þar geta einstaklingar og
fyrirtæki spreytt sig á því að búa
til allt sem hugurinn girnist.
„Í smiðjunni sem meðal annars
er búin tölvustýrðum fræsivélum,
tölvustýrðu leiser-skurðtæki, vín-
ilskera og þrívíddarskanna, lærir
fólk að nýta sér stafræna tækni
og tölvustýrð tæki til að þróa hug-
myndir sínar yfir í frumgerð-
ir af fullmótuðum vörum,“ segir
Frosti Gíslason verkefnastjóri hjá
Nýsköpunarmiðstöð.
Fab Lab er hugarfóstur Neils
Gershenfeld prófessors við MIT
háskólann í Boston en 37 slíkar
smiðjur eru nú starfræktar víða
Hugmyndir verða að fullmótuð
Hjá Fab Lab eru nokkrir ungir drengir með skemmtilegt taflborð í smíðum en þar er
lundinn peð, súlan drottning Atlantshafsins og geirfuglinn konungur. MYND/ÚR EINKASAFNI
TENGIR HF. • RANGARVÖLLUM • 603 AKUREYRI
S: 460 1300 - LJOS@TENGIR.IS
Hjálpaðu
umhverfinu
með
Blaðberanum
Þú færð Blaðberann þinn í Skaftahlíð 24
alla virka daga frá kl. 8-17.
...góðar fréttir fyrir umhverfiðBlaðberinn...