Lesbók Morgunblaðsins - 04.02.2006, Side 13

Lesbók Morgunblaðsins - 04.02.2006, Side 13
Lesbók Morgunblaðsins ˜ 4. febrúar 2006 | 13 Jaðar-rokkrisarnir í Radioheadverða ásamt Tom Petty and the Heartbreakers, aðalnúmerin á fimmtu Bonnaroo tónlistar- og listahátíðinni sem fram fer dagana 16.–18. júní í Manchester í Tennessee í Bandaríkjunum. Verða þessir tónleikar Radio- head þeir einu á þessu sumri sem fyrirhugaðir eru í Bandaríkjunum. Á meðal þeirra áttatíu lista- manna sem fram koma á hátíðinni eru: Beck, Elvis Costello, blús- brýnin Bonnie Raitt og Buddy Gue, Neville Brothers, Dr. John, Bright Eyes, Death Cab for Cutie, My Morning Jacket, Cat Power og Clap Your Hands Say Yeah. Hátíðin fer fram á 700 ekra býli rúmar sextíu mílur suður af Nash- ville.    Og að öðrum tónlistarhátíðum.Bandaríska sveitin Tool og hin breska Depeche Mode verða aðal- númerin á hinni virtu tónlistarhátíð Coachella Valley sem fram fer í Empire Polo Field í Kaliforníu dagana 29. og 30. apríl. Verður þetta fyrstu tónleikar Tool í Bandaríkjunum síðan 2002. Depeche Mode munu enda fyrri daginn og komast þar með í fríðan hóp hljómsveita sem hafa verið að- alanúmerið á hátíðinni en sem líka nutu hvað mestra vinsælda á átt- unda áratugnum. Nægir þar að nefna Cure, Beastie Boys, Pixies og sjálfa Tool sem spilaði með Rage Against the Machine á hátíðinni ár- ið 1999 en endar að þessu sinni seinni daginn. Aðrar hljómsveitir sem leika á hátíðinni eru Franz Ferdinand, Bloc Party, My Morning Jacket, Scissor Sisters, Yeah Yeah Yeahs og Tv on the Radio. Þá má einnig nefna Cat Power, Sigur Rós og Digable Plan- ets sem eru nýkomnir saman aftur. Í fyrra sóttu meira en 50 þúsund manns hvorn daginn fyrir sig en þá voru aðalhljómsveitirnar Coldplay, Nine Inch Nails, Wilco og Weezer.    Stúlknatríóið Destiny’s Child hef-ur fallist á að koma aftur sam- an seinna í þessum mánuði í sér- stakri stjörnumessu NBA í heimabæ sveitarinnar í Houston Texas en þar munu þær syngja bandaríska þjóðsönginn áður en blásið verður til leiks. Tríóið sem státar af átta Grammy verðlaunum hefur þó tilkynnt að þetta verði í allra seinasta skipti sem sveitin komi aftur saman. Kelly Rowland, Michelle Williams og Beyonce Knowles héldu í heimstónleika- ferðalag á síðasta ári en um sumarið tilkynntu þær að sveitin myndi hætta um leið og tónleikaferðinni lyki. Á síðustu tónleikum Destiny’s Child í Vancouver brast Rowland í grát og sagði við hinar tvær: „Ég elska ykkur. Þið eruð englarnir mínir. Ég elska ykkur svo mikið.“ Beyonce bætti um betur og beindi skilaboðunum til áhorfenda: „Dest- iny’s Child hófst þegar við vorum níu ára gamlar. Þetta er ekki bara eitthvað sem einhver setti saman. Þetta er ást.“ Erlend tónlist Radiohead Destiny’s Child Lítið hefur heyrst frá bandaríska fjöl-listamanninum Don Vliet, öðru nafniCaptain Beefheart, í langan tíma. Vliet,sem síðar bætti við millinafninu Van, telst til eins af tilraunakenndustu tónlistarmönum á seinni hluta síðustu aldar. Hann fæddist í borg- inni Glendale í Kaliforníuríki í Bandaríkjunum ár- ið 1941 og var einungis 13 ára þegar hann þótti efnilegur skúlptúrlista- maður og listmálari. Stóð honum til boða styrkur til listnáms í Evrópu en for- eldrar hans gáfu honum hins vegar ekki fararleyfi og fluttu þess í stað búferlum til borgarinnar Lan- caster í sama ríki. Það skal ósagt látið hvort foreldrum Vliets fannst flutningurinn hafa jákvæð áhrif á soninn en í borginni komst hann í kynni við dreng á svip- uðu reki, Frank Zappa. Um miðjan sjöunda ára- tug aldarinnar setti hann saman hljómsveitina Töfrabandið (e. Magic Band) sem spilaði suðu af djassi, rokki, blús og lúðrasveitatónlist og fékk úr eldamennskunni einhverja einkennilegustu kryddblöndu fyrri ára. Að margra mati er Trout Mask Replica, þriðja breiðskífa hljómsveitarinnar frá árinu 1969 ein af einkennilegri plötum rokksögunnar. Rokkgúrúinn Frank Zappa, sem stjórnaði upp- tökum á plötunni, átti í mesta basli með vinnuna, ekki síst vegna Kapteinsins, sem vantreysti öllum brellibrögðum upptökustjórans. Segir Zappa m.a. frá því sjálfsævisögu sinni að hann hafi ákveðið að taka plötuna upp á heimili Kapteinsins. Vinurinn mótmælti hins vegar hástöfum og sakaði Zappa um að vilja skera upptökukostnaðinn niður við nögl. Upptökur voru því færðar til Glendale í Kaliforníu. Ekki sló það á vandræðin því þegar taka átti upp sönginn kom á daginn að Captain Beefheart kærði sig ekki um heyrnartól og kaus fremur að garga eins hátt og hann gat við óm af lögunum sem bárust frá stjórnherbergi upp- tökuversins. Árangurinn varð vitaskuld sá að söngvarinn fór oftsinnis út af sporinu. Nema það sé einmitt galdurinn við lög Captain Beefheart, sem dynja á hlustendum líkt og eimreið á fullri ferð. Tíunda breiðskífa kapteinsins og töfrabandsins, Shiny Beast (Bat Chain Puller), sem kom út árið 1978, er mun aðgengilegri og markaði endurkomu formanns töfrabandsins eftir fremur slakt gengi fjögur ár á undan. Kraftur plötunnar og fegurðin sem leynist í geðveikinni eru ógleymanleg. Svo lengi situr hún í manna minnum að hlustendur eiga í mestu vandræðum með að hrista lög á borð við taugaveiklaða blússlagið, The Floppy Boot Stomp, Tropical Hot Dog Night og hið ógleym- anlega You Know You’re a Man úr heilaberkinum. Zappa stjórnaði upptökum á upphaflegri gerð laganna en vegna lagadeilna Beefhearts við stjórnendur plötuútgáfunnar dróst að koma plöt- unni út. Þegar Beefheart ákvað svo að gefa Shiny Beast (Bat Chain Puller) út í sinni endanlegu mynd varð hann vegna áðurnefndra deilumála að hljóðrita lögin á nýjan leik. Captain Beefheart er sagður búa einhvers stað- ar í Karólínuríki í Bandaríkjunum. Talið er að hann þjáist af heila- og mænusiggi, en hann hefur ekki verið fús til að staðfesta þær fréttir. Taugaveiklaður kapteinn á útopnu Poppklassík Eftir Jón Aðalstein Bergsveinsson jab@mbl.is H ugsanlega muna einhverjir eft- ir Michelle Shocked og plötu hennar The Texas Campfire Tapes sem fór á toppinn í Bretlandi 1986, en Michelle Shocked kom einmitt hingað til lands og hélt tónleika í Kjallara Keisarans haustið 1987. The Texas Campfire Tapes var merkileg fyrir meira en músíkina, því hún var tekin upp utandyra á ferðakassettutæki þar sem Shocked söng og spil- aði við varðeld. Lögin voru ljúfsárar sögur af ástum og örlögum í bland við húmorískar sögur, eig- inlega dæmisögur sem margar voru mein- fyndnar, aðrar íhugular og djúpar þrátt fyrir létt yfirbragð. Iðulega var hún að syngja um eigin upplifun og ævintýri. Í kjölfarið komst Michelle Shocked á plötusamning og framtíðin virtist björt. Annað kom á daginn. Heit trú og hippismi Michelle Shocked átti erfiða æsku, ólst upp í stórri fjölskyldu í Austin í Texas við heita mormónatrú hjá móður sinni og stjúpföður, en er hún komst á unglingsár eyddi hún sumr- unum hjá föður sínum sem var trúlaus hippi. Sextán ára gömul fluttist hún að heiman og kom sér í gegnum háskóla ein og óstudd. Þegar náminu var lokið lagðist Shocked í flakk, fór fyrst til Kaliforníu og hafði í sig og á með spilamennsku á götum úti, lék jöfnum höndum á gítar, mandólín og fiðlu. Hún fékk snemma áhuga á stjórnmálum og tók þátt í baráttu vistrimanna og mótmælum, sem end- uðu oftar en ekki með látum. Fræg er til að mynda mynd af henni þar sem lögregluþjónn þjarmar að henni, en sú meðal annars birtist á umslagi einnar breiðskífu hennar. Þetta varð móður hennar svo mikið áfall að hún lét svipta Shocked sjálfræði og kom henni fyrir á geð- sjúkrahúsi. Sem betur fer fyrir stúlkuna dugði heilsutrygging fjölskyldunnar ekki nema fyrir mánaðar innilokun og þegar henni var sleppt var hún ekki lengi á sér að leggja á flótta að heiman öðru sinni, að þessu sinni austur til New York. Eftir dapra daga á bísanum í New York náði hún að öngla fyrir fari til Evrópu og eyddi drjúgum tíma í flandur milli landa á puttanum, söng sér til viðurværis í Madríd, tók þátt í kjarnorkumótmælum á Sikiley, þar sem einn félagi hennar nauðgaði henni, fór þaðan til Amsterdam þar sem hún vann hjá sjóræn- ingjaútvarpsstöð. 1986 sneri hún aftur til Tex- as þar sem platan fræga var tekin upp. Óvenjuleg útgáfa Eins og Shocked rekur söguna vissi hún ekki að breski blaðamaðurinn, að hún hélt, væri í raun útgefandi og að hann myndi gefa plötuna út að henni forspurðri. Það gerði hann þó, eins og rakið hefur verið, en það sem henni þótti verra var að rafhlöðurnar í tækinu voru við það að gefast upp og því snerist spólan hægar en ella. Fyrir vikið var lá röddin mun hærra og lögin voru hraðari þegar spólan var spiluð í venjulegum tækjum eins og gefur að skilja. Hún lét sig þó hafa það, gerði ekki læti og gerði meira að segja samning við stórfyrirtæki í framhaldinu, Mercury. Þegar sá samningur var undirritaður hafði hún aftur á móti vit á að tryggja sjálfri sér yfirráðarétt yfir eigin tónlist og neitaði meðal annars hefðbundinni fyrir- framgreiðslu. Fyrsta platan sem gerð var eftir hennar höfði var svo Short Sharp Shocked (1988), sem hún sá fyrir sér sem fyrsta hluta í þríleik sem segja átti tónlistarsögu hennar, rekja inn- blástur og áhrifavalda. Annar hluti þríleiksins var Captain Swing (1989), Arkansas Traveler (1992) lokahlutinn. Að því verki loknu hugðist hún taka upp plötu með trúarlegri tónlist en var óforvarandis settur stóllinn fyrir dyrnar af Mercury, sem kveinkaði sér yfir því að hún væri með of góðan samning og vildi ekki bara gera nýjan samning heldur vildi fyrirtækið fá frumeintök platnanna. Shocked neitaði og þar við sat um hríð, hún fékk ekki að taka upp plötu fyrir Mercury og ekki heldur fyrir önnur fyrirtæki. Hún lét þó ekki deigan síga, tók upp plötu fyrir eigin pening og seldi á tónleikaferð- um sínum með góðrum árangri. Á endanum höfðaði hún síðan mál gegn Mercury og vísaði í þeirri málshöfðum til þeirrar greinar í stjórn- arskrá Bandaríkjanna sem bannar þrælahald. Fullkomið frelsi Mercury guggnaði í málinu, lét af kröfum sín- um, greiddi lögfræðikostnað Shocked og sleit samningnum við hana. Á móti leyfði hún fyr- irtækinu að gefa út safnskífu en var svo laus allra mála og átti alla sína tónlist sem var og er fáheyrt. Í framhaldinu tók Shocked upp eina plötu fyrir annað stórfyrirtæki, en stofn- aði síðan eigin útgáfu, Mighty Sound, og hefur meðal annars endurútgefið gömlu plöturnar sínar á undanförnum árum með mjög end- urbættum hljóm og ýmsu ítarefni. Þar á meðal er platan sem hratt öllu af stað, The Texas Campfire Tapes, sem er nú fáanleg á réttum hraða í mun betri hljóm, þótt hann sé vit- anlega ekkert sérstakur í ljósi þess hvernig upptakan fór fram, en með diskinum er líka upprunaleg kassettuupptaka með ýmislegu spjalli milli laga. Shocked gefur líka út nýja músík og á síð- asta ári kom þannig út annar þríleikur hennar, Don’t Ask Don’t Tell, Got No Strings og Mex- ican Standoff, fáanlegar stakar en líka allar saman í pakka, mjög skyldar plötur þeim þremur sem hún byrjaði eiginlegan útgáfuferil sinn með. Þess má svo geta að þrjár plötur til eru væntanlegar á þessu ári. Sjálfstæð og sjálfri sér nóg Bandaríska söngkonan Michelle Shocked hefur lifað ótrúlega ævi, oft átt erfiða daga, en komist langt á þrjóskunni. Í dag stendur hún með pálm- ann í höndunum með eigin plötufyrirtæki og á útgáfurétt að allri sinni tónlist. Eftir Árna Matthíasson arnim@mbl.is Baráttukona Bandaríska söngkonan Karen Michelle Johnston sem tók sér listamannsnafnið Michelle Shocked.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.