Morgunblaðið - 01.04.2006, Blaðsíða 24
24 LAUGARDAGUR 1. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Manama. AFP. | Að minnsta kosti 57
manns biðu bana þegar ofhlaðið
farþegaskip sökk undan strönd
Barein á Persaflóanum í fyrrakvöld.
Hinir látnu eru úr öllum heims-
hornum, meðal látinna voru arabar,
sautján Indverjar og þrettán Bret-
ar.
Um borð í skipinu voru 137 en
flestir sátu að kvöldverði, því að um
var að ræða skemmtisiglingu fyr-
irtækis frá Barein. Búið var að
finna 57 lík í gærmorgun, 67 hafði
verið bjargað en þrettán var enn
saknað. Tala látinna gæti því farið í
sjötíu, að því er ráða mátti af yf-
irlýsingum embættismanna í Bar-
ein.
Frá sextán löndum
Farþegarnir voru frá sextán
löndum en vitað er að auk Bret-
anna, Indverjanna og arabanna þá
týndu lífi fimm Pakistanar, fjórir
Suður-Afríkumenn, þrír Filippsey-
ingar, tveir Singapore-búar, einn
Íri og Þjóðverji.
Báturinn var um tvo kílómetra
frá landi er hann sökk. Vitni sögðu
hann hafa verið á hægri siglingu
þegar smá halli kom á hann, en síð-
an lagðist báturinn skyndilega á
hliðina og byrjaði að sökkva. Hermt
er að of margir farþegar hafi verið
á annarri hlið bátsins. Ekkert neyð-
arkall kom frá skipinu áður en það
sökk, að sögn strandgæslunnar í
Barein.
„Ég var á efra þilfari þegar ég
skyndilega var kominn í sjóinn,“
sagði einn þeirra sem lifðu af, Ind-
verjinn Kungumon Kuzhiyilthek-
kathil. „Einn hinna farþeganna
bjargaði mér. Ég lít svo á að ég
hafi verið stálheppinn.“
Bandaríski sjóherinn, sem er
með herstöð í Barein, aðstoðaði við
björgunina og sendi sextán kafara,
björgunarbát og þyrlu á vettvang.
„Neyddu hann til að sigla“
Embættismenn sögðu tæknilegar
ástæður fyrir því að báturinn sökk.
Eigandi bátsins sakaði ferðaþjón-
ustufyrirtækið sem leigði bátinn út
um að hafa látið hann sigla, jafnvel
þó að allt of margir væru um borð.
Sagði Abdullah al-Qubaisi að bát-
urinn mætti aðeins taka eitt hundr-
að manns.
„Þeir ofhlóðu bátinn. Skipstjórinn
vildi ekki leggja úr höfn en þeir
neyddu hann til að sigla af stað,“
sagði al-Qubaisi.
Mikið manntjón varð þegar
ofhlaðinn farþegabátur sökk
1
"
-(%
%
6
7
!% 1
!
-
!
(8!
)"
(
60294.'$$
/*
90
- *
,
0!2 %
* *
%* **#
### O
(4'2
3B#
0N&61
M$.
AP
Björgunar- og leitarmenn standa á flaki farþegaskips sem sökk undan ströndum Barein í fyrrakvöld.
Nær 70 manns
bjargað úr sjónum
Vín. AFP. | 33 ára
austurrísk kona,
Gertraud Arzber-
ger, var í gær
dæmd í lífstíðar-
fangelsi fyrir að
drepa fjögur börn
sín um leið og þau
fæddust.
39 ára kvæntur
elskhugi konunn-
ar, Johannes
Genser, var dæmdur í fimmtán ára
fangelsi fyrir samsæri um morð á
börnunum. Hann hafði hótað að slíta
sambandinu við konuna ef hún myrti
ekki börnin.
Það tók kviðdóminn aðeins tvær
klukkustundir að komast að þeirri
niðurstöðu að þau Arzberger og
Genser hefðu framið glæpinn af
ásettu ráði og hafnaði fullyrðingu
verjendanna um að þau hefðu ekki
verið með réttu ráði.
Lík barnanna fundust í fjölbýlis-
húsi í Graz, þar sem konan bjó. Tvö
þeirra voru í frystikistu og tvö í föt-
um sem fylltar höfðu verið steypu.
Nágranni konunnar fann fyrsta
barnið þegar hann ætlaði að ná í ís í
frystinn til að gefa barninu sínu.
Talið er að fimmta barn konunnar
hafi verið myrt árið 2000 en lík þess
hefur ekki fundist.
Dæmd fyrir að
myrða börn sín
Gertraud
Arzberger
Phnom Penh. AP, AFP. | Hun Sen, for-
sætisráðherra í Kambódíu, fór á
fimmtudag afar hörðum orðum um
Sameinuðu þjóðirnar og mannrétt-
indafulltrúa þeirra í Kambódíu en sá
hefur nýverið gagnrýnt stjórnvöld í
landinu. Sagði Hun að SÞ væru ekki
í neinni stöðu til að messa yfir honum
um mannréttindi því að samtökin
hefðu þagað þunnu hljóði þegar
Rauðu kmerarnir murkuðu lífið úr
hundruðum þúsunda manna í
Kambódíu á áttunda áratug síðustu
aldar.
Yash Ghai, sérlegur mannrétt-
indafulltrúi SÞ í Kambódíu, lét þau
orð falla fyrr í vikunni að „einn ein-
staklingur“ hefði alla þræði valda í
Kambódíu í sínum höndum. Ríkis-
stjórn umrædds einstaklings væri
ekki ýkja annt um að halda mann-
réttindi í heiðri, mikið skorti upp á að
umbótum í þeim efnum hefði verið
hrint í framkvæmd. Var Ghai þar án
efa að vísa til Huns.
Hun Sen sagði Ghai vera „alger-
lega sturlaðan“ og krafðist þess að
Kofi Annan, framkvæmdastjóri SÞ,
ræki hann úr embætti. „Þegar Pol
Pot [leiðtogi Rauðu kmeranna] drap
kambódíska borgara, hvar varstu
þá? Er ekki rétturinn til lífs grund-
vallarmannréttindi?“ spurði hann.
„Og hvers vegna hrópaðir þú þá ekki
hátt um mannréttindi þegar blóð-
baðið stóð yfir?“
Vísaði Hun Sen hér til þess að um-
heimurinn leiddi þjóðarmorðið í
Kambódíu 1975-1979 að mestu hjá
sér, en áætlað er að tvær milljónir
manna hafi dáið í stjórnartíð Rauðu
kmeranna.
Bregst hart við
gagnrýni SÞ
Forsætisráðherra Kambódíu segir
fulltrúa SÞ „algerlega sturlaðan“