Morgunblaðið - 01.04.2006, Blaðsíða 92
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122 LAUGARDAGUR 1. APRÍL 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
ENDURSKOÐUN
REIKNINGSSKIL
SKATTAR / RÁÐGJÖF
www.ey.is
65 milljarða
skulda-
bréfaútgáfa
í útlöndum
KAUPÞING banki og Landsbanki
Íslands tilkynntu í gær um útgáfu á
skuldabréfum í útlöndum fyrir fjár-
hæð sem svarar til samtals nærri 65
milljarða íslenskra króna.
Kaupþing banki hefur gefið út
skuldabréf að fjárhæð um 43,5
milljarðar króna (500 milljónir
evra) í Evrópu til fjármögnunar á
íbúðalánum bankans á Íslandi.
Landsbankinn hefur gengið frá
300 milljóna dollara skuldabréfaút-
gáfu til fjárfesta í Bandaríkjunum,
sem svarar til um 21 milljarðs ís-
lenskra króna. Útgáfan er til
þriggja og fimm ára. | 16
ÁFANGAÁLIT stýrihóps á vegum
félagsmálaráðuneytisins, sem falið
var að kanna aðkomu stjórnvalda að
íbúðalánum, mun liggja fyrir upp úr
þessari helgi. Þetta kom fram í máli
Halldórs Ásgrímssonar forsætisráð-
herra á ársfundi Seðlabanka Íslands í
gær. Hann sagði að stýrihópurinn
hefði efnt til víðtæks samráðs um
þessi mál.
„Lögð hefur verið áhersla á það í
vinnu hópsins að við þær breytingar
verði í engu fórnað þeim pólitísku
markmiðum sem stjórnvöld hafa gert
Íbúðalánasjóði að starfa eftir,“ sagði
Halldór. „Með því er átt við hvernig
hið opinbera geti áfram tryggt að-
gang landsmanna allra, sem á annað
borð uppfylla tiltekin lágmarksskil-
yrði, að íbúðalánum á hagstæðum
kjörum, án tillits til búsetu.“
Sagði Halldór að búist hefði verið
við aukinni verðbólgu og miklum við-
skiptahalla á árunum 2005 og 2006, en
að á óvart hefði komið hve viðskipta-
hallinn hefði aukist mikið og sagði
hann það að hluta til skýrast af inn-
komu viðskiptabankanna inn á íbúða-
lánamarkaðinn haustið 2004.
Ýtti undir neysluútgjöld
„Sú staðreynd að bankarnir fóru að
bjóða upp á hærri lán og meiri veð-
setningarmöguleika en Íbúðalána-
sjóður, auk þess sem ekki var gerð
krafa um að lántakan væri bundin við
íbúðakaup eingöngu, ýtti óhjákvæmi-
lega einnig undir neysluútgjöld. Þjóð-
in fór því á mikið neyslu- og fjárfest-
ingarflug,“ sagði Halldór.
Halldór sagði innkomu bankanna
inn á íbúðalánamarkaðinn hafa einnig
vakið spurningar um hvert hlutverk
Íbúðalánasjóðs eigi að vera á íbúða-
lánamarkaði og hvernig því hlutverki
verði best sinnt.
Forsætisráðherra segir áfangaskýrslu um Íbúðalánasjóð liggja fyrir eftir helgi
Áhersla á að fórna í engu
pólitískum markmiðum
Miðopna
HELDUR var farið að draga úr bálinu á Mýr-
um seint í gærkvöldi en þó logaði talsverður
eldur á svæðinu, mest ofan við bæinn Ánastaði.
Slökkvistarf miðast sem fyrr við að slökkva
með fram bílveginum. Reiknaði Bjarni Þor-
steinsson, slökkviliðsstjóri í Borgarnesi, með
því að eldurinn myndi geisa áfram yfir helgina
og jafnvel fram í næstu viku.
50 til 70 manns voru að slökkvistörfum í all-
an gærdag og voru nánast allar haugsugur
Borgarfjarðar í notkun. Slökkviliðið á höf-
uðborgarsvæðinu lagði í gærkvöld til dælubíl
af Reykjavíkurflugvelli sem getur flutt mikið
vatnsmagn og vinnur Reykjavíkurliðið undir
stjórn slökkviliðsstjórans í Borgarnesi.
Talið er að hinir gríðarlegu brunar á Mýr-
um muni hafa áhrif á gróður og fuglalíf á
svæðinu, að mati Náttúrufræðistofnunar Ís-
lands, þó mest áhrif á smádýralífið. Eldurinn
drepur smádýr á yfirborðinu og fæðu
fuglanna undir því.
Náttúrufræðistofnun hefur kortlagt gróður
á Mýrum á árunum 1996–1997 og má á gróð-
urkorti sjá að landið sem hefur brunnið frá
fimmtudagsmorgni er eitt mesta samfellt vot-
lendi í byggð á Íslandi. | 10
Morgunblaðið/RAX
Séð fram á bruna fram í næstu viku
Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson og Andra Karl
MÚSÍKTILRAUNUM, hljómsveitakeppni Tónabæjar og Hins
hússins, lauk í gærkvöld fyrir fullu húsi í Loftkastalanum. Alls
léku tólf hljómsveitir til úrslita.
Í fyrsta sæti varð Vestmannaeyjahljómsveitin The Foreign
Monkeys, í öðru sæti varð Ultra Mega Technobandið Stefán og í
þriðja sæti We Made God. Sigurhljómsveitin fékk að launum
hljóðverstíma og ýmisleg önnur verðlaun.
Foreign Monkeys
vann Músíktilraunir
Morgunblaðið/Björg Sveinsdóttir
Gamlar upptökur
Stuðmanna
GAMLAR hljóðupptökur með nokkrum
lögum frá fyrstu árum Stuðmanna fundust
nýverið. Er ráðgert að gefa þær út á
hljómdiski eftir helgina í takmörkuðu
upplagi. Kynna á lögin í þætti á Rás 2 í
dag. Upptökurnar eru frá árunum 1970 og
1971 og fundust fjórtán af átján lögum. | 6