Morgunblaðið - 01.04.2006, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. APRÍL 2006 57
UMRÆÐAN
Gettu betur
ÞAÐ Á fyrir öllum að liggja að verða
gamall. Þá rýrna ýmsir hæfileikar.
T.d. heyri ég sjaldan svörin í „Gettu
betur“ og þykir mér það miður, vegna
þess að ég veit þau ekki öll.
Þegar liðin svara öllu rétt verður
þátturinn fyrir mér bara stigatölur,
sem breytast hægt.
Það yrði mjög til bóta, ef spyrjand-
inn endurtæki rétt svör í stað þess að
bíða með að tilkynna hvort þau hafi
verið rétt. Ég vona að þetta bréf birt-
ist fyrir úrslitakeppnina.
Kastljósið
Í kvöld (30. mars) sat gamall grá-
hærður maður fyrir svörum, hann
virtist þjást af heilarýrnun og sagði
lítið annað en „Hverjir eru ekki á lág-
um launum?“ Ef hann hefði ekki
gleymt launaseðlinum sínum heima
hefði hann e.t.v. getað svarað spurn-
ingunni sjálfur. Ég vona að hann
verði ekki látinn gjalda þessa, ef hann
þarf á vistun að halda, hvort sem er á
ríkisreknu eða einkareknu hjúkr-
unarheimili. Hvort sem er ber ríkið
(ríkisstjórnin) ábyrgð á öldruðum,
hvað sem líður samningum, hverra
grundvöllur er brostinn. Þótt ég vilji
allt fyrir aldraða gera get ég ekki sagt
að mér hafi þótt þetta spennandi sjón-
varpsefni og ef Sjónvarpið er ekki vís-
vitandi að reyta atkvæði af Sjálfstæð-
isflokknum þætti mér meira gaman
að sjá menn með lausnir í Kastljósinu.
Eitt geta aldraðir þó jafn vel og
aðrir, en það er að loka augunum.
ÞÓRHALLUR
HRÓÐMARSSON,
Bjarkarheiði 19, 810 Hveragerði.
Að verða gamall
Frá Þórhalli Hróðmarssyni:
KVASIR, samtök fræðslu- og sí-
menntunarmiðstöðva á landsbyggð-
inni er félag fullorðinsfræðslu-
miðstöðva utan höfuðborgar-
svæðisins. Aðilar að samtökum
þessum eru:
Farskólinn – miðstöð símenntunar á
Norðurlandi vestra, www.farskol-
inn.is
Fræðslumiðstöð Vestfjarða,
www.frmst.is
Fræðslumiðstöð Þingeyinga,
www.fraething.is
Fræðslunet Austurlands, www.fna.is
Fræðslunet Suðurlands,
www.sudurland.is
Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum,
www.mss.is
Símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar,
www.simey.is
Símenntunarmiðstöðin á Vesturlandi,
www.simenntun.is
Viska, fræðslu- og símenntunar-
miðstöð Vestmannaeyja, www.viska-
.eyjar.is
Markmið samtakanna eru m.a. að:
efla endur- og símenntun á lands-
byggðinni; efla og auka háskólanám á
landsbyggðinni, efla og auka skilning
atvinnulífsins á mikilvægi símennt-
unar sem auðlindar og fjárfestingu til
framtíðar sem getur bætt afkomu
einstaklinga, fyrirtækja og sam-
félagsins í heild, vera vettvangur um-
ræðna um fullorðinsfræðslu og sí-
menntun á Íslandi sem og í norrænu
og alþjóðlegu samhengi.
Fyrsta fræðslu- og símenntunar-
miðstöðin á landsbyggðinni var stofn-
uð 1997 og sú nýjasta var stofnuð
2003. Í dag eru þær níu talsins og
gegna mikilvægum hlutverkum hver í
sínu samfélagi. Þær eru allar sjálfs-
eignarstofnanir og voru stofnaðar af
heimamönnum vegna þeirrar miklu
þarfar sem fyrir var í samfélaginu fyr-
ir fjölbreyttari menntunarmöguleika
á landsbyggðinni.
Hver miðstöð hefur sín einkenni í
starfseminni en þó má segja að tvennt
standi upp úr sem þær eiga sameig-
inlegt. Annars vegar er það hvatning
til þeirra sem stysta skólagöngu hafa
til áframhaldandi náms og að bjóða
upp á fjölbreytta námsmöguleika fyrir
þennan hóp. Símenntunarmiðstöðv-
arnar bjóða einnig upp á umtals-
verðan fjölda tómstundanámskeiða
sem allir geta sótt, sér til ánægju eða
til að auka þekkingu sína. Hins vegar
er það hlutverk miðstöðvanna að sjá
um fjarkennslu á háskólastigi í gegn-
um fjarfundabúnað. Á þann hátt má
draga úr því að fólk í hinum dreifðu
byggðum þurfi að hleypa heimdrag-
anum og taka sig upp með fjölskyldu
sína til að mennta sig.
Það að færa menntun heim í dreif-
býlið hefur gjörbreytt mennt-
unarmöguleikum fólks utan höf-
uðborgarsvæðisins. Allir þeir sem
hafa áhuga á að bæta við þekkingu
sína eru hvattir til að skoða framboð á
námi í sinni heimabyggð.
Það geta þeir m.a. gert með því að
heimsækja fræðslu- og símennt-
unarmiðstöðina í sinni heimabyggð.
F.h. stjórnar Kvasis,
BRYNDÍS ÞRÁINSDÓTTIR
GUÐJÓNÍNA
SÆMUNDSDÓTTIR og
VALGERÐUR
GUÐJÓNSDÓTTIR,
stjórnarmenn í Kvasi.
Fræðslu- og símenntunarmiðstöðvar
á landsbyggðinni og Kvasir
Frá Bryndísi Þráinsdóttur,
Guðjónínu Sæmundsdóttur og
Valgerði Guðjónsdóttur: