Morgunblaðið - 01.04.2006, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 01.04.2006, Blaðsíða 28
28 LAUGARDAGUR 1. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ MINNSTAÐUR ÁRBORGARSVÆÐIÐ Stokkseyri | „Starfsemin hjá okkur gengur út á að setja upp eina stóra sýningu á skólaárinu og það getur verið heilmikið mál að halda utan um slíkt, sérstaklega þegar hópurinn er stór, þá getur mikið gengið á,“ segir Baldvin Karel Magnússon, 20 ára Eyrbekkingur sem situr í stjórn Leikfélags Fjölbrautaskóla Suður- lands. Félagið stendur í stórræðum þessa dagana í Menningarverstöð- inni Hólmaröst á Stokkseyri með sýningum á „Let it be“ sem er ást- arleikur með Bítlalögum. Alls taka um 40 nemendur þátt í verkinu sem er hið líflegasta og mjög skemmti- legt. Nemendur skólans eru þekktir af leikstarfsemi sinni en mikill metn- aður hefur alltaf fylgt uppsetningu nemenda á leikverkum og margir sem bíða eftir sýningum þeirra á hverju ári. Leikstjóri sýningarinnar er Þor- steinn Bachmann og Ólafur Þór- arinsson, Labbi, er tónlistarstjóri. Baldvin Karel sér um að koma leikverkinu á framfæri en hann víkst ekki undan því að taka að sér hlut- verk í ástarleiknum og fer þar með smáhlutverk eins og aðrir í stjórn leikfélagsins. „Það er þannig kerfi hjá okkur hér í skólanum að við bjóðum okkur fram í stjórn leikfélagsins og erum síðan kosin,“ sagði Baldvin en þessa dagana fer einmitt fram kosning í embætti hjá skólafélaginu. „Ég hef sjálfur mikinn áhuga á leiklist og mig langaði að vera með í fé- lagsstarfinu í skólanum og þetta hef- ur bara verið mjög gaman. Það er líflegt í kringum þetta og mikið að gera hjá okkur og þrosk- andi að eiga samskipti við fólk um svona verkefni þar sem allir þurfa að leggja sig vel fram og af einbeit- ingu,“ sagði Baldvin Karel sem var áður við nám í MA á Akureyri þar sem hann tók þátt í leikstarfsemi en auk þess á hann leikferil frá grunn- skólanum. Eitthvað sem dregur mann „Ég ætla mér að halda eitthvað áfram í þessu og fer nú í haust í leik- listarnám í lýðháskóla í Danmörku. Þetta er eitthvað sem ég hef gaman af en það getur líka vel verið að þetta sé í genunum því afi minn, Baldvin Halldórsson, var leikari. Það er eitthvað sem dregur mann inn í leiklistina, sennilega er það hversu gaman það er að vinna með fólki. Ég held að það sé gott fyrir hvern sem er að taka einhvern þátt í svona starfi í skólanum. Maður lærir inn á að starfa með öðrum og það er mikilvægt þegar út í lífið er komið,“ sagði Baldvin Karel. Hann sagði leikritið hafa fengið góðar viðtökur en næstu sýningar verða í Hólma- röstinni á morgun, sunnudag, og svo á föstudag og laugardag í næstu viku. „Það er alveg á hreinu að við þyrftum að eiga hérna menningar- hús. Salurinn í Hótel Selfoss, eða annað sambærilegt húsnæði, þyrfti að vera tilbúið og mögulegt að ganga þar inn með svona sýningu eins við erum með. Þá væri þetta allt mun auðveldara. Svo er þessi salur líka nauðsyn- legur fyrir aðra menningarstarf- semi,“ sagði Baldvin Karel sem er mjög menningarlega sinnaður ungur maður og metnaðarfullur fyrir hönd Leikfélags F.Su. og menningar á Suðurlandi. Gaman að vinna með fólki í leiklistinni Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Upprennandi leikari Baldvin Karel Magnússon, leikari og nemandi í Fjölbrautaskóla Suðurlands, tekur þátt í ást- arleik Leikfélags FSu af lífi og sál. Framundan er frumsýning á „Let it be“, svonefndum ástarleik með Bítlatónlist. Leiklistin er í blóðinu hjá Baldvini Karel Magnússyni Eftir Sigurð Jónsson Selfoss | JÁ verk ehf. átti lægsta til- boð í byggingu annars áfanga Sunnulækjarskóla á Selfossi er til- boð voru opnuð fyrr í vikunni. Tvö tilboð bárust í verkið. JÁ verk bauðst til að vinna það fyrir tæpar 816 milljónir, sem er aðeins undir kostnaðaráætlun ráðgjafa Sveitarfé- lagsins Árborgar, en það var 831 milljón. Tindaborgir ehf. buðu 988 milljónir. Fram kemur á vef Árborg- ar að tilboðin verða nú yfirfarin og metin. Tilboð opnuð í Sunnulækjarskóla Selfoss | Eigendur Hótels Selfoss og forsvarsmenn Styrks hafa und- irritað viljayfirlýsingu um að Styrk- ur flytji starfsemi sína í menning- arsal hótelsins. Fram kemur á fréttavefnum sudurland.is að þar með megi ætla að áratugafyrirætl- anir um menningarsal í hótelinu séu úr sögunni. Þess í stað verður í hús- næðinu heilsuræktarstöð. Heilsurækt fer í menningarsalinn Þorlákshöfn | Alls bárust 245 um- sóknir um 24 lóðir í Búðahverfi í Þorlákshöfn sem Sveitarfélagið Ölf- us auglýsti nýlega. Mest ásókn var í einbýlishúsalóðir en 204 umsóknir bárust um 14 lóðir. Auglýstar voru 24 lóðir með sam- tals 40 íbúðum. Þar af voru 14 ein- býlishúsalóðir við Pálsbúð, lóðir fyr- ir sjö parhús við Klængsbúð og lóðir fyrir þrjú raðhús við Ísleifsbúð. Umsóknarfrestur rann út í vik- unni. Á vef Sveitarfélagsins Ölfuss kemur fram að umsóknir bárust í 204 einbýlishúsalóðir, 28 par- húsalóðir og 13 raðhúsalóðir. Á þriðja hundrað umsóknir um aug- lýstar 24 lóðir SUÐURNES Svartsengi | Sex vélfræðingar Hita- veitu Suðurnesja hf. voru fengnir til að taka fyrstu skóflustungurnar að nýrri virkjun fyrirtækisins í Svarts- engi, Orkuveri 6. Þeir hafa allir unn- ið lengi hjá fyrirtækinu og tekið virk- an þátt í uppbyggingu orkuveranna. „Þetta er mikill heiður,“ sagði Þórður Andrésson stöðvarstjóri þeg- ar rætt var við hann eftir fyrstu skóflustungurnar. Þórður hefur unn- ið 29 ár hjá fyrirtækinu og það er raunar meðalstarfsaldur vélfræðing- anna sex. Mikil uppbygg hefur verið allan þennan tíma. „Það hefur verið gaman að taka þátt í þessu. Við höf- um verið allt í öllu við þetta. Erum til dæmis kallaðir til þegar viss atriði hönnunarinnar eru til umfjöllunar. Svo mæðir mikið á okkur að fínstilla vélarnar fyrstu árin eftir að þær komast í gang,“ sagði Þórður. Félagar hans eru Bragi Eyjólfs- son, Jón Vilhelmsson, Þór Sverris- son, Andrés Ólafsson og Bjarni Már Jónsson. Fram kom hjá Albert Al- bertssyni aðstoðarforstjóra þegar hann þakkaði frumkvöðlastarf þeirra og framlag til uppbyggingar orkuveranna að samanlagður starfs- aldur þeirra er rúmlega 171 ár. Nýr 30 MW hverfill var keyptur á síðasta ári fyrir Orkuver 6. Hverfill- inn var keyptur af Fuji Electric í Japan og voru fulltrúar fyrirtækisins viðstaddir athöfnina í gær. Fram kom hjá Albert að fyrirtækin hefðu átt góða og árangursríka samvinnu við uppbyggingu virkjana í Svarts- engi í 27 ár. Áætlað er að rafmagnsframleiðsla í Orkuveri 6 hefjist í lok næsta árs. Gengið hefur verið frá sölu á helm- ingi orkunnar til Norðuráls á Grund- artanga en hinn helmingurinn verð- ur notaður á almennum markaði. Hitaveita Suðurnesja er við lok mestu framkvæmdar í sögu sinni, byggingu Reykjanesvirkjunar. Framkvæmdum lýkur á næstu mán- uðum enda hefst sala á rafmagni í maí. Fram kom hjá Júlíusi Jónssyni, forstjóra HS hf., á aðalfundinum að framkvæmdin hafi gengið að flestu leyti samkvæmt áætlun nema gufu- öflunin. Bora hefði þurft fimmtán holur til að ná nauðsynlegri gufu í stað ellefu eins og áformað var. Á móti hafi lágir vextir og hagstætt gengi dregið úr kostnaði. Sex vélfræðingar tóku fyrstu skóflustungurnar Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Frumkvöðlar Sex vélfræðingar Hitaveitu Suðurnesja tóku fyrstu skóflustungu að nýju orkuveri í Svartsengi. Saki Fulltrúar Fuji Electric buðu gestum á aðalfundi HS upp á drykk. Grindavík | Varnarliðið á Keflavík- urflugvelli sagði formlega upp orkukaupasamningum við Hita- veitu Suðurnesja með bréfi sem barst fyrirtækinu í fyrradag. Hita- veitan svaraði um hæl og benti á að samningur um heita vatnið væri ótímabundinn og ekki hægt að segja honum upp einhliða. Kom þetta fram hjá Ellert Eiríks- syni stjórnarformanni HS hf. og Júlíusi Jónssyni forstjóra á aðal- fundi fyrirtækisins sem haldinn var í Eldborg í Svartsengi í gær. Varnarliðið er langstærsti ein- staki orkukaupandi Hitaveitu Suð- urnesja og námu viðskipti fyr- irtækjanna tæpum milljarði á síðasta ári. Fram kom hjá Júlíusi að HS hefði á undanförnum árum ver- ið að búa sig undir samdrátt tekna. Hann sagði þó að samkvæmt ákvæðum í samningi Hitaveitunnar við Bandaríkjastjórn væri aðeins hægt að minnka kaup á heitu vatni um 4% á ári en það hefur varn- arliðið gert undanfarin ár. Í þeirri uppsögn orkukaupa sem varnar- liðið nú sendi er vísað í 180 daga uppsagnarfrest sem var í upphaf- legum samningi aðila. Júlíus segir að búið sé að gera margar breyt- ingar á samningum síðar, meðal annars setja inn umrætt ákvæði um takmarkaða möguleika til að hætta viðskiptum. Bandaríkjamenn gætu ekki gengið fram hjá þeim ákvæð- um og litið eingöngu á upphaflega samninginn. Í svarbréfi HS hf. til bandarískra stjórnvalda er þessu sjónarmiði haldið fram og farið fram á fund til að ræða um málið og semja um mál- ið. Júlíus sagði ekki unnt að segja hver niðurstaðan yrði en unnið yrði að því að hún yrði viðunandi. Krefjast fundar vegna uppsagnar á orkusamningi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.