Morgunblaðið - 01.04.2006, Blaðsíða 8
8 LAUGARDAGUR 1. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Þeir segja að það sé allt „karlinum á Mogganum“ að kenna að þeir mistu allt niður um sig.
Þrátt fyrir að sér-fræðingar Seðla-banka Íslands telji
útlit fyrir að húsnæðis-
markaðurinn fari brátt að
leita jafnvægis á ný og
hægt hafi á útlánum til
fasteignakaupa,
gerir bankinn þó ráð
fyrir að áfram verði mikill
vöxtur í íbúðafjárfesting-
um bæði á þessu og næsta
ári.
Í nýútkomnu hefti Pen-
ingamála er spáð um það
bil 25% aukningu íbúða-
fjárfestingar á þessu ári og tæp-
lega 16% aukningu á því næsta.
Þetta er mun hærri spá en í síð-
ustu spá bankans í desember sl.
þegar Seðlabankinn spáði 9,5%
vexti íbúðafjárfestingar á þessu
ári en 0,6% vexti á því næsta.
„Spá um íbúðafjárfestingu
byggir á nýju ársfjórðungslegu
þjóðhagslíkani bankans. Ástæða
þess að spáð er svo miklum vexti
íbúðafjárfestingar á þessu og
næsta ári er fyrst og fremst
hækkun fasteignaverðs langt um-
fram hækkun byggingakostnaðar.
Ýmislegt bendir hins vegar til
þess að íbúðafjárfesting síðastlið-
ins árs sé varfærnislega metin.
Mat á íbúðafjárfestingu er ekki
auðvelt viðfangsefni og reynslan
sýnir að frávik endanlegs mats
frá fyrstu bráðabirgðatölum
nokkrum árum síðar er oft tölu-
vert. Í ljósi þess kann vöxtur
íbúðafjárfestingar á þessu og
næsta ári að vera ofmetinn í spá
bankans en vöxtur síðasta árs
vanmetinn í bráðabirgðatölum
Hagstofunnar. Upplýsingar um
útgefin byggingaleyfi á síðasta ári
gefa þó til kynna að vöxtur í fjár-
festingu íbúðarhúsnæðis verði
mikill í ár líkt og undanfarin ár,“
segir í umfjöllun bankans.
Íbúðaverðbólga hefur
hjaðnað hægar en von var á
Bendir bankinn á að þótt mark-
aðsverð húsnæðis hafi hækkað til
muna hægar undanfarna mánuði
en fyrir ári hefur íbúðaverð
hækkað nokkuð umfram almennt
verðlag, sé horft fram hjá árstíða-
bundnum og óreglulegum
skammtímasveiflum.
„Í mars hafði t.d. þriggja mán-
aða meðaltal markaðsverðs hús-
næðis, sem notað er við mat á
húsnæðiskostnaði húseigenda,
hækkað um 1% frá fyrri mælingu.
Þetta er mikil hækkun, þótt hún
sé mun minni en á sama tíma fyrir
ári. Verð húsnæðis á landsbyggð-
inni hækkaði hlutfallslega meira
eða um 2,5% á meðan hækkun á
höfuðborgarsvæðinu var 0,61%,
en taka verður tillit til þess að
höfuðborgarsvæðið vegur 72% í
útreikningi í vísitölunni. Íbúða-
verðbólga hefur því hjaðnað held-
ur hægar en vonir stóðu til og
skýrist það fyrst og fremst af því
að þeir mánuðir sem íbúðaverð
hækkaði mest eru að hverfa út úr
samanburðinum. Enn virðist mik-
ill kraftur í húsnæðiseftirspurn og
hátt verð sem byggingarverktak-
ar voru reiðubúnir að greiða fyrir
lóðir við Úlfarsfell bendir til þess
að þeir telji að eftirspurn verði
áfram sterk. Þetta háa lóðaverð
ætti enn fremur að draga úr lík-
um á verðlækkun á næstunni.
Þessi þróun mun að líkindum
halda áfram á næstu mánuðum,“
segir í umfjöllun um fasteigna-
markaðinn.
Talið er líklegt að þær hrær-
ingar sem orðið hafa á fjármála-
mörkuðum nýlega hafi haft að-
haldsáhrif á heimili landsins.
Vextir húsnæðisveðlána hafa
hækkað og bent er á það í Pen-
ingamálum Seðlabankans að vext-
ir óverðtryggðra lána hafa einnig
hækkað, en aukist verðbólgu-
væntingar heimilanna einnig á
næstunni hefur hækkunin tæpast
varanleg aðhaldsáhrif, að mati
bankans.
„Auður heimilanna hefur […]
vaxið hröðum skrefum í takt við
verðhækkanir fasteigna og verð-
bréfa. Rýmri möguleikar almenn-
ings til skuldsetningar gegn vax-
andi auði hafa lagst á árarnar og
ljóst er að vöxtur einkaneyslu er í
auknum mæli drifinn áfram af
miklum lántökum og skuldasöfn-
un. Jákvæðar væntingar almenn-
ings og fyrirtækja til þróunar
efnahagsmála hafa skarað að kol-
um þessarar skuldsetningar,“
segir í umfjöllun Seðlabankans,
sem telur að framvinda eigna-
verðs og væntingar almennings til
þess muni skipta sköpum fyrir
vöxt einkaneyslunnar á næstunni.
Telur að hækkanir fari í eðli-
legt horf og verði 2–5% á ári
Að sögn Eddu Rósar Karls-
dóttur, forstöðumanns greining-
ardeildar Landsbanka Íslands,
má í kjölfar hækkunar verð-
tryggðra íbúðarlánavaxta reikna
með að hægja muni á fasteigna-
markaðnum.
„Ég tel að hækkunin muni hafa
áhrif á allan fasteignamarkaðinn,
en gera má ráð fyrir að munur
verði á verðþróun á vinsælum
svæðum og jaðarsvæðum,“ segir
Edda Rós og tekur fram að hún
sé ekki að spá lækkun fasteigna-
verðs, aðeins að hægja muni á
markaðnum.
Segist hún þannig sjá fyrir sér
að fasteignaverðshækkanir fari í
eðlilegt horf og verði 2–5% á ári,
sem sé heldur minna en aðrar
verðhækkanir í þjóðfélaginu.
Fréttaskýring | Seðlabankinn sér framundan
mikinn vöxt íbúðafjárfestinga 2006 og 2007
Spá 25% aukn-
ingu á þessu ári
Búist er við mismunandi verðþróun fast-
eigna á vinsælum svæðum og á jaðarsvæðum
Gera ráð fyrir að hækkun
fasteignaverðs haldi áfram
Seðlabankinn reiknar með að
fasteignaverð muni hækka nokk-
uð umfram almennar verðlags-
hækkanir á þessu ári en síðan
lækka heldur að nafnvirði á
næsta ári. Þetta muni draga
verulega úr vexti einkaneyslu
2007. Dregið hefur úr hækkun
fasteignaverðs á höfuðborg-
arsvæðinu, þótt enn sé mikill
kraftur í markaðnum. Sérfræð-
ingar telja að ef framhald verður
á þeirri þróun muni einkaneysla
færast í eðlilegra horf.
Eftir Ómar Friðriksson og
Silju Björk Huldudóttur