Morgunblaðið - 01.04.2006, Side 79
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. APRÍL 2006 79
DAGBÓK
Eldmessa“ er yfiskrift málþings semKirkjubæjarstofa, Guðfræðistofnun,Jarðvísindastofnun og Sagnfræðistofn-un HÍ ásamt Vísindafélagi Íslendinga
standa fyrir á morgun, sunnudag, um séra Jón
Steingrímsson og Skaftárelda.
„Flestir Íslendingar vita að Skaftáreldar eru tví-
mælalaust einhver hrikalegasti atburður íslands-
sögunnar, en það munu fáir gera sér glögga grein
fyrir því hvað í þessum hamförum fólst, og hversu
örlagaríkar afleiðingar móðuharðindin höfðu í för
með sér,“ segir Jón Helgason, einn aðstandenda
málþingsins. „Þessi takmarkaða þekking er að
vissu leyti skiljanleg þar sem hvergi er að finna að-
gengilegar og glöggar lýsingar á þessum gífurlegu
hamförum. Þeir sem að málþinginu standa vonast
til að þeir sem mæti á dagskrána verði nokkru
fróðari um Skaftarélda, en með málþinginu viljum
við þó sérstaklega leggja áherslu á að auka þurfi
kynningu og fræðslu á þessum náttúruhamförum.
Slík vitneskja er þjóðinni nauðsynleg, til að skilja
sögu sína og hina sífelldu iðju náttúruaflanna, þar
sem mannlegur máttur má sín svo lítils.“
Skaftáreldar hófust 8. júní 1873 og hélt séra Jón
Steingrímsson greinargóða lýsingu á hamför-
unum, sem fengið hefur heitið „Eldritið“. „Séra
Jón þakkaði auðvitað Guði fyrir þegar hraunið
stöðvaðist, en hann var svo mikill vísindamaður –
og það er einkennandi fyrir Eldritið – að hann lýsti
því hvernig Guð fór að, og hvernig stíflaðar ár
kældu hraunið. Þetta er einstök samtímaheimild.“
Eitt af meginmarkmiðum málþingsins er að
kalla á sýningarsetur tileinkað Skaftáreldum: „Það
er eitt brýnasta verkefni íslenskrar ferðaþjónustu
að komið verði upp á vettvangi myndrænni og
grípandi sýningu sem byggist á samtíðarlýsingu
séra Jóns á framvindu gossins frá degi til dags, og
nýtir nútímatækni til að koma efninu sem best til
skila til áhorefnda,“ segir Jón Helgason. „Það er
ekki síður skylda samfélagsins að heiðra þannig
minningu forfeðranna, sem háðu harða baráttu við
náttúruöflin, og líka skylda að gera komandi kyn-
slóðum grein fyrir því hvað megi búast við að ger-
ist aftur með einhverjum hætti á komandi tímum.“
Settar hafa verið fram fyrstu hugmyndir að
slíkri sýningu. Málþingið hefst kl. 13 með ávarpi
Jóns Helgasonar. Þá flytur Einar Sigurbjörnsson
erindi um Jón Steingrímsson. Þorvaldur Þórð-
arson fjallar um Skaftárelda og hnattræn áhrif
þeirra og Sigurður Steinþórsson segir frá lýs-
ingum Jóns Steingrínssonar á Skaftáreldum í ljósi
samtíma og síðari þekkingar. Eftir stutt hlé les
Gunnar Þór Jonsson bréf séra Jóns Jónssonar um
Skaptáreldinn 1783, og Guðmundur Hálfdánarson
ræðir um mannfall í móðuharðindunum. Þá fjallar
Sveinbjörn Rafnsson um viðbrögð stjórnvalda á
Íslandi og Danmörku við Skaftáreldum og loks
Örn Bjarnason sem flytur erindið „Jón Stein-
grímsson: Líkn og lækningar“.
Eftir fyrirlestra verða umræður. Málþingið er
haldið í Öskju, Sturlugötu 7. Aðgangur er ókeypis
og öllum heimill.
Málþing | Hugmyndir kynntar að tæknivæddri sýningu um Skaftárelda og áhrif þeirra
Jón Steingrímsson og Skaftáreldar
Jón Helgason fædd-
ist 1931 í Seglbúðum.
Hann lauk stúdents-
prófi frá Mennta-
skólanum í Reykjavík
1950. Auk þess að
sinna bústörfum gegndi
Jón ýmsum trún-
aðarstörfum og sat í
stjórn Stéttarsam-
bands bænda um nokk-
urra ára skeið. Árið
1974 tók Jón sæti á Alþingi og var forseti
sameinaðs þings á árunum 1979–1983, þá
landbúnaðarráðherra 1983–1988 og dóms-
málaráðherra 1983–1987. Jón hætti þing-
mennsku 1995, var formaður Búnaðarfélags
Íslands og seinna formaður Landverndar. Jón
hefur síðustu 8 ár verið forseti Kirkjuþings.
Jón er kvæntur Guðrúnu Þorkelsdóttur og
eiga þau þrjú börn.
Íslandsmótið.
Norður
♠D63
♥Á6432 A/Enginn
♦103
♣D63
Vestur Austur
♠KG105 ♠87
♥D1075 ♥KG8
♦K6 ♦DG9872
♣1095 ♣82
Suður
♠Á942
♥9
♦Á54
♣ÁKG74
Spilið er frá undankeppni Íslands-
mótsins um síðustu helgi. Þrjú grönd
vinnast í NS, en sá samningur er ekki
augljós eftir opnun austurs á veikum
tveimur í tígli og víða varð niður-
staðan fimm lauf. Þetta var ein sagn-
röðin:
Vestur Norður Austur Suður
– – 2 tíglar 3 lauf
3 tíglar 3 hjörtu Pass 3 spaðar
Pass 4 lauf Pass 5 lauf
Dobl Allir pass
Hvernig metur lesandinn horfur
sagnhafa í fimm laufum eftir tíg-
ulkónginn út?
Fljótt á litið virðist vörnin hljóta að
fá þrjá slagi – einn á tígul og tvo á
spaða. En lítum á þetta: Sagnhafi
dúkkar tígulkónginn, fær næsta slag á
tígulás og spilar svo þriðja tíglinum til
að trompa í borði.
Þriðji tígullinn setur vestur í
óvenjulegan vanda. Hann má aug-
ljóslega ekki kasta spaða, því þá fríast
fjórði spaði suðurs. En vestur má
heldur ekki henda hjarta. Geri hann
það mun sagnhafi taka hjartaás og
trompa hjarta, spila laufi á drottningu
og trompa hjartað frítt. Síðan er vest-
ur aftrompaður og smáum spaða spil-
að að drottningu blinds.
Eina vörnin sem dugir er því að
„undirtrompa“ þriðja tígulinn!
Þetta er stórmerkilegt spil og enn
skemmtilegra ef tromp vesturs er
veikt í 10xx og blindum gefin laufnían
í staðinn fyrir hund. Í því tilfelli er
vestur í raun þvingaður í þremur lit-
um – spaða, hjarta og TROMPI. Við
skoðum það á morgun.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
1. c4 c6 2. Rf3 d5 3. e3 Rf6 4. Rc3 a6 5. d4
b5 6. b3 Bg4 7. Be2 Rbd7 8. 0–0 e6 9.
Bb2 Db8 10. Re5 Bxe2 11. Dxe2 Rxe5
12. dxe5 Rd7 13. cxd5 cxd5 14. Had1
Bc5 15. Dg4 g6
Stórmeistarinn Jaan Ehlvest (2.619)
er borinn og barnfæddur í Eistlandi en
hefur undanfarin ár haft fasta búsetu í
Bandaríkjunum og teflt þar af miklu
kappi. Eins og svo margir aðrir öflugir
stórmeistarar úr Austurvegi hefur hann
ákveðið að tefla fyrir land tækifæranna
og má jafnvel búast við að hann komist í
þarlenda landsliðið og taki þátt í Ólymp-
íuskákmótinu í Tórínó sem fram fer í
vor. Hinn nýbakaði Kani hafði hvítt í
stöðunni gegn Óskari Bjarnasyni
(2.255) á opna alþjóðlega Reykjavík-
urmótinu sem lauk fyrir skömmu í skák-
miðstöðinni í Faxafeni 12. 16. Rxd5!
exd5 17. Hxd5 Db7 18. Hfd1 0–0–0 19.
Hxc5+ og svartur gafst upp enda er
hann tveim peðum undir og mun tapa
enn meira liði eftir 19. … Kb8 20. Hcd5.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Hvítur á leik.
Árnaðheilla
dagbók@mbl.is
85 ÁRA afmæli. Í dag, 1. apríl, er85 ára Þórður Jón Pálsson,
Aflagranda 40, Reykjavík. Hann tekur
á móti gestum í dag kl. 11–15 á Lind-
arflöt 16, Garðabæ.
Hvar er fjórða valdið núna?
HVAR er fjórða valdið núna,
fréttamenn? Það hefur ekki borið
mikið á því í máli sem snertir
fjölda fólks og allar eigur þess líka.
Það eru þessi nýju tollaviðskipti
sem Guðni Ágústsson er búinn að
semja um og guð hjálpi honum í
næstu kosningum og öðrum rolu-
þingmönnum á Suðurlandi. Í skipt-
um fyrir 1% af hestamönnum sem
rækta hross til útflutnings og
nokkrar pylsur setur hann þá sem
ekki eru ríkisstyrktir út á guð og
gaddinn. Þetta eru garðplöntu-
ræktendur og trjáplönturækt-
endur.
Það hefur ekki staðið á frétta-
mönnum að búa til fréttir þegar
ekkert er í fréttum. Sorgleg dæmi
eru þegar þeir taka til umfjöllunar
efni eins og um þunglyndislyf, sem
varð til þess að margir sem þau
þurfa neita að nota þau, með sorg-
legum endi. Næst tóku þeir fyrir
lyf sem ætlað er ofvirkum og fólki
með athyglisbrest og það kom
mjög illa við margan unglinginn.
Svo voru það verkjalyfin sem allt
fór á hvolf yfir þannig að margir
læknar þora varla að gefa þau fólki
sem þarf á þeim að halda og ekkert
annað er hægt að gera fyrir. Það
eru margir að vona að fréttamenn
hugsi, áður en þeir skrifa slíkar
fréttir, um hvaða afleiðingar þær
hafa.
Og hvernig er þetta með NFS,
nýju fréttastöðina? Í þessum þátt-
um sem eru á daginn, er staglast á
því sama dag eftir dag og viku eftir
viku. Vonandi mega þeir einhvern
tíma vera að því að breyta um um-
ræðuefni.
Björg Jónsdóttir.
Stöð 2 tekin af
hjúkrunarheimili
FULLORÐIN kona, öryrki, sem
býr á hjúkrunarheimili í Árskógum
í Breiðholti hafði samband við
Morgunblaðið og sagði frá því að
búið væri að taka af íbúum Stöð
tvö og aðrar sjónvarpsrásir sem
365-ljósvakamiðlar senda út. Fram
að þessu hefur hjúkrunarheimilið
borgað eitt gjald fyrir allt húsið, en
nýverið hefði fjölmiðlafyrirtækið
krafist þess að hver og einn íbúi
borgaði fyrir Stöð tvö.
Konan sagðist vera afar ósátt við
þessa ákvörðun fyrirtækisins og
það sama ætti við um flesta íbúa
heimilisins. Þarna byggi gamalt
fólk og öryrkjar með lágar tekjur
og margir hefðu ánægju af því að
horfa á sjónvarp. Hún sagði það
ótrúlega framkomu að koma svona
fram við gamalt fólk.
Giftingarhringur týndist
GIFTINGARHRINGUR merktur
„Þinn Þorvaldur“ týndist fyrir
nokkrum vikum , líklega í mið-
bænum.
Skilvís finnandi hafi samband í
síma 552 8238 eða 863 1806.
Perla týnd í Sigtúni
eða nágrenni
PERLA hvarf að heiman úr Sig-
túni hinn 27. mars síðastliðinn og
er sárt saknað. Hún er aldrei úti á
nóttunni. Perla er þrílit; svört með
gulum yrjum í feldinum, hvíta
blesu og kvið og gula og hvíta fæt-
ur. Hún er nýorðin 2ja ára og afar
smávaxin. Hún hefur svarta ól, 2
bjöllur og merkispjald sem er orðið
ólæsilegt. Endilega leitið í bíl-
skúrum/geymslum, hún gæti hafa
lokast inni. Upplýsingar í síma
862 3344, Berglind.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
90 ÁRA afmæli. Í dag, 1. apríl,verður níræður Tómas Jóns-
son, Dvalarheimilinu Höfða á Akra-
nesi.
SKEMMTILEGT, lærdóms-
ríkt og ódýrt skyndinámskeið
fyrir fólk á öllum aldri (þó
ekki yngra en 16 ára) hefst í
Iðnó nk. mánudagskvöld.
Kennnari er Kristín G.
Magnús, leikkona, leikstjóri
og leikritahöfundur.
Nemendur fá tilsögn í
leikspuna, persónusköpun,
raddbeitingu, framsögn, tján-
ingu og hreyfingum á leik-
sviði.
Möguleiki er á að hæfi-
leikafólki verði boðið að koma
fram í leiksýningunum Bjart-
ar nætur – Light Nights sem
verða í Iðnó í sumar.
Allar nánari upplýsingar
og bókun í síma 551 9181.
Leiklist-
arnámskeið
í Iðnó
ÍSLENSK-japanska félagið minnist
25 ára afmælis á þessu ári. Af því
tilefni gengst félagið fyrir málþingi
um japönsk ljóð og sögur í Háskóla
Íslands, Odda, stofu 101, í dag kl.
14.
Aðalfyrirlesari verður Alan
Cummings, lektor í japönsku máli
og bókmenntum við Lundúnahá-
skóla.
Nefnist fyrirlestur hans „Narra-
tive and Geography in Kabuki“ og
verður fluttur á ensku.
Aðrir fyrirlesarar verða Óskar
Árni Óskarsson, rithöfundur, Úlf-
hildur Dagsdóttir, bókmenntafræð-
ingur, Ásta Gunnlaugsdóttir og
Ólafur Sólimann, nemar í japönsku
við Háskóla Íslands.
Málþingið er haldið í samvinnu
við japanska sendiráðið á Íslandi,
og allir eru velkomnir.
Japönsk
ljóð og
sögur
Orlando Vacation Homes USA
Thank you to everyone who visited us at the Hótel Loftleiðir.
We enjoyed meeting all of you and look forward
to seeing you soon in sunny Florida!
www.livinfl.com
Í smíðum
Af sérstökum ástæðum er til sölu
mjög falleg 115 fm íbúð á efstu hæð
í fjölbýlishúsi í Sóltúni.
Upplýsingar í síma 699 6280