Morgunblaðið - 29.05.2006, Síða 2

Morgunblaðið - 29.05.2006, Síða 2
2 F MÁNUDAGUR 29. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ Fasteignablað Morgunblaðsins Kringlunni 1, 103 Reykjavík, sími 5691100, Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Magnús Sigurðsson, magnuss@mbl.is, sími 5691223, og Steinþór Guðbjartsson, steinthor@mbl.is, sími 5691257 Auglýsingar sími 5691111 netfang augl@mbl.is Bréfsími 5691110 Prentun Prentsmiðja Morgunblaðsins. T ónlistarhjónin Þorkell Jóels- son, hornleikari í Sinfóníu- hljómsveit Íslands, og söngvarinn Sigrún Hjálm- týsdóttir eða Diddú keyptu sér lítinn sumarbústað í Mosfellsdalnum fyrir um 25 árum og fluttu þangað skömmu síðar. Þar hafa þau ræktað sinn garð með miklum ágætum og vilja helst hvergi annars staðar vera en í dalnum. Ekkert annað kom til greina „Ég er heiðarlegur sveitamaður úr Mosfellsdal og það kom ekki annað til greina en að eiga heima á þessu svæði,“ segir Þorkell, en foreldrar hans búa skammt frá og þar ólst hann upp. Diddú tekur í sama streng. „Átt- hagafjötrarnir toga svo í flesta sem fæðast hér og alast upp og þeir vilja hvergi annars staðar vera. Ég skil það mjög vel og var aldeilis til í tuskið. Ég er úr vesturbænum í Reykjavík og í fyrsta sinn sem ég keyrði hérna yfir ásana með Þorkeli fyrir rúmum 30 ár- um heillaðist ég strax af dalnum, hann togaði í mig eins og innfædda, enda fylgir honum mjög sérstakur kraftur og töfrar. Það er einhver kynngimagn- aður kraftur hérna í umhverfinu.“ Tónlistarbýli eftir sjö ár Það var ekki hlaupið að því að fá húsnæði í Mosfellsdalnum þegar Þor- kell og Diddú þurftu á því að halda, en Þorkell náði að kaupa landskika úr landi Hraðastaða, þar sem fólk úr Reykjavík hafði átt sumarathvarf. „Við stukkum á fyrsta lausa húsnæðið og byrjuðum í sumarbústað,“ segir Þorkell. „Ég gekk á röðina og falaðist eftir sumarbústað því þá mátti ekkert byggja hérna.“ „Hér var forskalað timburhús og hvorki vatn né rafmagn,“ segir Diddú. „Húsið var byggt í tveimur áföngum og þess vegna er þessi útveggsgluggi inni í miðju húsi. Til að byrja með vor- um við ekki viss hvort við ætluðum að vera hérna til frambúðar en að ári liðnu vildum við hvergi annars staðar vera. Því sóttum við um byggingar- leyfi til að stækka húsið en það stóð svolítið í byggingaryfirvöldum í sveit- inni. Við þurftum að sækja um í sjö ár þar til við fengum leyfið. Það mátti bara byggja og reisa einhver „býli“. Til dæmis landbúnaðarbýli, þjónustu- býli eða skógræktarbýli. Þar sem við vorum músíkantar sóttum við að lok- um um tónlistarbýli og það gekk.“ Þorkell segist hafa flest sem hann þurfi í dalnum. „Ég uni mér vel uppi í sveit. Ég er mikið fyrir fjallgöngur og hef gaman af því að ganga hérna upp á fellin. Ég er með hesta og er mikill útilífsmaður, nýt þess meðal annars að veiða titti í sprænunum á svæðinu. Mér finnst líka gaman að fara upp á jökla á jeppa og ekki er langt að fara – ég er kom- inn upp á Skjaldbreið á rúmum klukkutíma og ekki er nema 10 mín- útna akstur á skíðasvæðið í Skálafelli. Við hliðina á okkur er stundaður bú- skapur og stutt er í skógræktina og sumarmarkaðinn. Gljúfrasteinn er ekki langt undan, í nágrenninu er kvikmyndaver, leirlistarfólk, glerlist- arfólk, listfræðingar, hestaleigur, prestssetur, blekbændur, rósabænd- ur, kúabændur og ýmislegt fleira. Hér kennir því ýmissa grasa.“ Fuglarnir syngja með Starfs síns vegna þurfa Þorkell og Diddú helst að vera út af fyrir sig og ekkert var eðlilegra en að flytja í Mosfellsdalinn. „Við þurfum að hafa pláss og næði til að sinna okkar vinnu og æfingum,“ segir Diddú. „Á náms- árunum í London og á Ítalíu var alltaf jafn óþægilegt að þurfa að syngja á innsoginu. Það var erfitt en hérna syngur maður yfir dalinn og fjöllin og truflar engan. Ekki einu sinni fuglana, sem taka bara undir.“ Þorkell segir að þau séu í tónlist- inni allan daginn og slíkar æfingar sé ekki hægt að stunda í þéttbýli eða sambýli. „Það er frábært að geta unn- ið hvenær sem er sólarhringsins og þurfa ekki að eiga á hættu að trufla annað fólk.“ Vill beina byggðinni suður með sjó Að sögn Þorkels tók um 17 mínútur að aka úr dalnum vestur í bæ í Reykjavík þegar þau fluttu en nú tek- ur það allt að hálftíma og jafnvel lengri tíma. „Og á eftir að versna þeg- ar komin verður um 30 þúsund manna ný byggð á leiðinni,“ segir hann og bætir við að hann fari ekki að óþörfu í bæinn. Hann segir að umferðin hafi gengið nokkuð vel á nýliðnum vetri, „en ekki er hægt að bóka snjóleysi í framtíðinni og ekki þarf nema smá- hálku eða skafrenning til að allt stífl- ist. Nær væri að beina byggðinni suð- ur með sjó þar sem strandlengjan er að mestu auð og tvíbreið hraðbraut til staðar“. Vegna tímans sem það tekur að aka á milli segjast þau reyna að skipu- leggja vel ferðirnar til borgarinnar en þó komi fyrir að fara þurfi þrisvar á dag. „Það má líka nota ferðirnar til þess að hugsa á leiðinni, rifja upp texta og hlusta á tónlist,“ segir Diddú. Þau eiga þrjár dætur og þær kunna vel við sig í dalnum eins og foreldr- arnir. „Þær hafa aldrei talað um að flytja í bæinn,“ segir Diddú. „Þær finna fyrir forréttindunum sem fylgja því að búa hérna.“ Til að byrja með reyndu þau að samnýta ferðirnar en það stóð ekki lengi. „Það gengur ekki alltaf,“ segir Þorkell. „Maður leggur af stað þegar maður þarf að leggja af stað. Búsetu hér fylgir ákveðið púsluspil og það þýðir ekkert að væla yfir því. Hins vegar mættu vera tíðari strætóferðir hingað upp eftir.“ „Maður gránaði ansi hratt í vöng- um við það að samnýta ferðirnar og því fengum við okkur annan bíl,“ segir Diddú. „Sem vesturbæjardama var ég vön að ganga allra minna ferða og kunni ekki á bíl þegar við fluttum hingað upp í dal. Hafði ekki bílpróf og var 33 ára þegar ég fór að skransa hér í lága drifinu. Það eina neikvæða við að búa hérna er að við þurfum tvo bíla en allt hitt er eintóm gleði.“ Ekkert stress Þótt Reykjavík sé ekki langt undan sést ekki til höfuðborgarinnar úr Tún- fæti. Helgafellið skyggir á hana. „Það er kostur því allt áreiti verður eftir í borginni og allur skarkali borgarinn- ar er svo víðs fjarri,“ segir Diddú. „Maður kemur heim eftir erfiðan vinnudag og endurnýjast allur við að keyra hérna inn dalinn, þá lokast á allt stressið,“ bætir Þorkell við. Sérstakur kynngimagn- aður kraftur í Mosfellsdal Þorkell Jóelsson og Sigrún Hjálmtýsdóttir framan við hús sitt Túnfót í Mosfellsdal. Þar bjuggu þau fyrst í litlum sumarbústað. Eftir Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Morgunblaðið/Árni Sæberg Diddú og Þorkell Jóelsson njóta útsýnisins á svölunum á Túnfæti og verunnar í Mosfellsdal. Húsið var byggt í tveimur áföngum og þess vegna er þessi útveggsgluggi inni í miðju húsi. Efnisyfirlit Akkurat ............................... 54–55 Ás .................................................. 62 Ásbyrgi ........................................ 52 Berg ............................................... 15 Borgir ...................................... 16–17 Eignaborg ....................................... 7 Eignamiðjan ................................ 69 Eignamiðlunin .......................... 4–5 Eignastýring ............................... 23 Eignatorg .................................... 68 Eignaval ....................................... 43 Eik ................................................. 47 Fasteign.is ............................. 18–19 Fasteignakaup ............................ 35 Fasteignamarkaðurinn ....... 12–13 Fasteignamiðlunin .................... 46 Fasteignamiðstöðin .................. 26 Fasteignasala Íslands .............. 57 Fasteignasala Mosfellsbæjar .... 3 Fasteignastofan ........................ 53 Fjárfesting .................................. 22 Fold ............................................. 8–9 Garðatorg .................................... 40 Garðuri .......................................... 71 Gimli ..................................... 64–65 HB-fasteignir ............................. 67 Heimili .......................................... 27 Híbýli ............................................. 14 Hof ................................................ 101 Hóll ........................................ 28–29 Hraunhamar ........ 48–49–50–51 Húsakaup .............................. 70–71 Húsavík ........................................ 72 Húsið ............................. 32–33–63 Höfðabakki .................................. 63 101 Reykjavík ..................... 24–25 Íslenskir aðalverktakar ... 36–37 Kjöreign ......................................... 11 Klettur .................................. 20–21 Lundur ................................. 44–45 Miðborg ........................................ 34 Nethús ......................................... 30 Perla Inv. ....................................... 19 REMAX .................................. 31–59 Skeifan ............................................ 6 Stakfell ........................................ 42 Stórborgl ..................................... 66 Valhöll ................................... 60–61

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.