Morgunblaðið - 01.07.2006, Page 1
Sigur Rós kom tónleikagestum í
óskiljanlegt ástand í Hróarskeldu | 50
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
VEGALENGDIR VIÐ ALLRA HÆFI!
Rígmontnir
Íslendingar
Lesbók | …mælir með Okkar maður, okkar silfraði heimur
Börn | Sumarævintýri í sveitinni Verðlaunaleikur Myndasögur
Íþróttir | Þýskaland í fjögurra liða úrslit Öryggisgæsla hert
MIKIL gleði ríkti í Þýskalandi í gær
vegna sigurs Þjóðverja á Argent-
ínumönnum, 4:2, í vítaspyrnukeppni
eftir að leiknum lauk með jafntefli,
1:1, í heimsmeistarakeppninni í fót-
bolta. Hundruð þúsunda manna
fylgjast hér með leiknum við Brand-
enborgarhliðið í Berlín. „Við erum
sannfærðir um að við getum orðið
heimsmeistarar,“ sagði einn þýsku
leikmannanna, Torsten Frings.
„Hvers vegna ættum við ekki að
komast alla leið úr því að við sigr-
uðum Argentínumenn?“ | D2
Reuters
„Við getum orðið
heimsmeistarar“
ÍBÚÐALÁNASJÓÐUR hefur í kjölfar útboðs á
íbúðabréfum ákveðið að útlánsvextir sjóðsins
hækki um 0,10 prósent og verði 4,95%. Lán með
sérstöku uppgreiðsluálagi verða með 0,25% lægri
vöxtum eða 4,70%.
Vextir Íbúðalánasjóðs eru nú hærri en vextir
húsnæðislána viðskiptabankanna þriggja. Hjá
Glitni og Landsbankanum eru vextirnir 4,90%, en
lægstir eru þeir hjá KB banka eða 4,75%, sem er
0,20 prósentum lægra en hjá ÍLS.
Hækkunin kemur í kjölfar tilkynningar ríkis-
stjórnarinnar fyrr í vikunni þess efnis að frá og með
deginum í dag muni annars vegar hámarkslán
sjóðsins lækka úr 18 milljónum króna í 17 milljónir,
og hins vegar lánshlutfall lækka úr 90% í 80%.
Vaxtaákvörðun Íbúðalánasjóðs byggist á ávöxt-
unarkröfu í útboði íbúðabréfa sem haldið var 29.
júní sl., ásamt vegnum fjármagnskostnaði upp-
greiðslna ÍLS-veðbréfa. Vegnir vextir í útboði
íbúðabréfa og uppgreiddra ÍLS-veðbréfa eru
4,25%.
Þá hefur stjórn Íbúðalánasjóðs lagt það til við fé-
lagsmálaráðherra að hækka vaxtaálag sjóðsins um
0,10% og hefur ráðherra fallist á þá tillögu. Við
breytingarnar verður vaxtaálag vegna rekstrar
0,25%, varasjóðs 0,20%, og uppgreiðsluáhættu
0,25% eða samtals 0,70%.
Vextir Íbúðalánasjóðs hækka í
4,95% í kjölfar verðbréfaútboðs
Vextir sjóðsins eru núna hærri en vextir viðskiptabankanna
Eftir Kristján Torfa Einarsson
kte@mbl.is
21 ÁRS gamall hermaður, Bashir Ali,
sem er hálfur Íslendingur og hálfur
Breti og gegnir herþjónustu í breska
hernum í Afganistan, slapp naum-
lega þegar hann og félagar hans
lentu í átökum við liðsmenn talibana í
landinu á dögunum. Að sögn breska
blaðsins Daily Mail lentu mennirnir í
hörðum skotbardaga og féllu tveir
breskir hermenn í átökunum.
Torfi Geirmundsson, faðir Bashir
Ali, segir son sinn atvinnuhermann í
fallhlífasveit breska hersins og hafi
hann hlotið þjálfun sem leyniskytta.
Bashir hafi verið við störf í Afganist-
an í tvo mánuði. Samkvæmt fréttum
breskra fjölmiðla hafi Bashir sloppið
með skrekkinn, en skot hafi hafnað í
byssubelti hans.
Torfi segir að áður en Bashir hélt
til Afganistan hafi hann starfað fyrir
breska herinn í Írak um þriggja
mánaða skeið og verið við gæslu við
landamæri Sýrlands. Svo hafi hann
dvalist í Bretlandi skamma hríð áður
en hann hélt til Afganistan.
„Þetta eru fyrstu raunverulegu
átökin sem hann lendir í,“ segir
Torfi. Bashir hefur búið í Englandi
alla ævi en þeir Torfi halda reglulegu
sambandi og hefur Bashir komið af
og til í heimsókn til Íslands. Frá því
að hann hélt til Afganistans hafa þeir
feðgar verið í tölvupóstsamskiptum,
að sögn Torfa. „Hann varð 21 árs 26.
júní síðastliðinn. Ég hef verið að
reyna að ná sambandi við hann vegna
afmælisins en tókst ekki. Ég fékk
pata af því að eitthvað hefði gerst og
las þetta svo í [bresku] blöðunum,“
segir Torfi.
Íslendingur
slapp naumlega
úr skotárás
Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur
elva@mbl.is
„TIL ÞESS að hægt sé að breyta
Háskóla Íslands í frambærilegan
rannsóknaháskóla þar sem boðið er
upp á samkeppnisfært framhalds-
nám í mörgum vísindagreinum þarf
fyrst að gjörbylta bókasafnsmálun-
um því að ekki er hægt að stunda
rannsóknir af neinu viti á háskóla-
stigi án þess að auðvelda aðgang að
helstu verkum, tímaritum, skýrslum
og greinargerðum innan hinna ólíku
fræði- og vísindagreina sem kenndar
eru við skólann,“ segir Guðni Elís-
son, dósent í almennri bókmennta-
fræði við Háskóla Íslands, í grein í
Lesbók í dag.
Guðni ber saman þær upphæðir
sem Háskóli Íslands ver til rita-
kaupa og fjárhæðirnar sem úrvals-
skólar á borð við Harvard-háskóla
leggja í bókakaup. Samanburðurinn
er Háskóla Íslands ekki hagstæður.
Árið 2004 varði Harvard-háskóli
u.þ.b. 7,5 milljörðum króna til bóka-
kaupa en á þessu ári mun Háskóli Ís-
lands verja 36 milljónum króna til
þess að kaupa bækur.
Bylta þarf
bókasafns-
málum HÍ
Lesbók | 6
AÐGERÐUM á einkasjúkrahúsum í
Danmörku fjölgaði um 33% á síðasta
ári. Þessi þróun stafar af því að
danska ríkið greiðir kostnaðinn af
aðgerðum á einkasjúkrahúsunum ef
biðin eftir aðgerðum á ríkissjúkra-
húsunum er lengri en tveir mánuðir.
Í fyrra gengust 27.000 Danir undir
aðgerð á einkasjúkrahúsunum á
kostnað ríkisins.
Fréttavefur danska ríkisútvarps-
ins hefur eftir Kjeld Møller-Peter-
sen, prófessor í heilsuhagfræði, að
það sé af hinu góða að danskir sjúk-
lingar hafi áttað sig á þeim mögu-
leika að leita til einkasjúkrahúsanna
vegna biðlistanna. „Orðrómur hefur
verið á kreiki um að á ríkissjúkra-
húsunum hafi menn ekki verið sér-
lega duglegir við að upplýsa sjúk-
linga um tveggja mánaða regluna.
En það virðist ekki skipta máli og
það er gleðilegt.“
Berlingske Tidende segir að búist
sé við að þessum aðgerðum haldi
áfram að fjölga. Stjórnvöld vinni
þess vegna að því að stytta biðlista
og spara þannig um leið fjármuni.
Dönsk
einkasjúkra-
hús í sókn
♦♦♦
Lesbók, Börn, Íþróttir í dag
NOTKUN farsíma við akstur er að minnsta kosti
jafnhættuleg og ölvunarakstur – ef ekki hættulegri –
samkvæmt rannsókn vísindamanna við Utah-
háskóla í Bandaríkjunum, að því er fram kemur á
fréttavef breska ríkisútvarpsins, BBC.
Rannsóknin staðfestir einnig þá niðurstöðu fyrri
rannsókna að einu gildi hvort ökumenn noti hand-
frjálsan búnað eða ekki. Vísindamennirnir segja að
nú séu komnar nægar sannanir fyrir hættunni til að
réttlæta bann við allri farsímanotkun við akstur.
Farsímar jafnhættulegir
og ölvun við stýrið
STOFNAÐ 1913 176. TBL. 94. ÁRG. LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is