Morgunblaðið - 01.07.2006, Side 10

Morgunblaðið - 01.07.2006, Side 10
10 LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Eftir Brján Jónasson brjann@mbl.is FYRSTA ákæruliðnum í endur- ákæru í Baugsmálinu var í gær vísað frá Héraðsdómi Reykjavíkur þar sem Arngrími Ísberg héraðsdómara þótti ekki koma nægjanlega skýrt fram hvernig sú atburðarás sem þar er lýst brjóti gegn lögum. Dómurinn hafnaði hins vegar kröfu verjenda um að ákærunni verði vísað frá í heild. Verjendur sak- borninga eiga, lögum samkvæmt, ekki kost á að kæra þann úrskurð til Hæstaréttar. Sigurður Tómas Magnússon, settur ríkissaksóknari í málinu, hefur þó þann kost sem fulltrúi ákæruvaldsins að kæra nið- urstöðuna, innan þriggja sólar- hringa, og sagði hann í gær að hann teldi miklar líkur á að það yrði gert. Í fyrsta ákæruliðnum, sem er viða- mikill, er Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs Group, sakaður um fjárdrátt, en til vara umboðssvik, í þeirri atburðarás sem endaði með því að Baugur eignaðist Vöruvelt- una, félag sem átti og rak 10–11- verslanirnar. Í ákærunni segir að Jón Ásgeir hafi beitt stjórn Baugs blekkingum og setið beggja vegna borðsins þegar Baugur keypti Vöruveltuna, þar sem hann var bæði forstjóri Baugs og eig- andi Vöruveltunnar. Þar segir að Baugur hafi greitt 325 milljónum meira fyrir hlutafé Jóns Ásgeirs í Vöruveltunni en hann hafði greitt fyrir það, og teljist það tap Baugs. Jón Ásgeir hafi þó ekki hagnast um nema 200 milljónir þar sem hann hafi haft af þessum viðskiptum talsverð- an kostnað. Óhagstæð viðskipti Í rökstuðningi dómara kemur fram að verknaðarlýsingin í fyrsta ákæruliðnum sé alls ekki lýsing á fjársvikum, heldur verði ekki betur séð en ákært sé fyrir að stunda við- skipti sem vera kunni að hafi verið óhagstæð fyrir Baug hf., en mögu- lega hagstæð fyrir Jón Ásgeir og aðra. Þar sem ekki komi skýrt fram hvernig verknaðurinn sem lýst er eigi að falla undir skilgreiningu á fjárdrætti sé óhjákvæmilegt að vísa þessum ákærulið frá, með vísan í lög um meðferð opinberra mála. Í úrskurðinum segir einnig að skrifleg greinargerð upp á 2½ blað- síðu, eins og fylgir fyrsta ákæruliðn- um, eigi ekki heima í ákæruskjali, skýrt sé í lögum hvað eigi að koma fram í ákæru, og annað eigi þar ekki heima. Tveir af verjendum, þeir Gestur Jónsson og Jakob Möller, kröfðust þess að málinu yrði vísað frá í heild sinni hvað varðar umbjóðendur þeirra, Jón Ásgeir og Tryggva Jóns- son, þar sem alvarlegir ágallar hafi verið á rannsókn málsins. Þessu hafnaði dómarinn, og segir í úr- skurðinum að meðferð málsins hing- að til hafi ekki leitt í ljós neina þá meinbaugi á rannsókn lögreglu sem gætu varðað frávísun. Þó er tekið fram að þessi úrskurður girði ekki fyrir að til frávísunar geti komið á síðari stigum, komi eitthvað fram við meðferð málsins fyrir dómi sem ekki verði bætt úr. Alltaf yfirheyrður sem vitni Brynjar Níelsson, verjandi Jóns Geralds Sullenbergers, krafðist einnig frávísunar fyrir hönd skjól- stæðings síns, með þeim rökum að tekin hafi verið ákvörðun um það við rannsókn málsins að ákæra ekki Jón Gerald, og það gangi gegn rétti hans að breyta þeirri ákvörðun. Í úrskurð- inum fellst dómari ekki á þessi rök, og vísar til þess að við yfirheyrslur hafi Jón Gerald ávallt haft réttar- stöðu vitnis, ekki sakbornings. Hann hafi því ekki verið sakaður um ólög- legt athæfi, og því ekki hægt að taka ákvörðun um að kæra hann ekki. Fyrsta ákærulið endurákæru í Baugsmálinu vísað frá dómi en kröfum verjenda um frávísun hafnað Ekki fjárdráttur heldur viðskipti Morgunblaðið/Eggert Ákæruvaldið hefur þrjá sólarhringa til að kæra úrskurð héraðsdóms. „MARKMIÐIÐ með útgáfu ákæru er vissulega að fá dómstólana til að kveða upp efnisdóm í málinu, um sak- fellingu eða sýknu. Þessi úrskurður er auðvitað ekki skref í þá átt hvað þennan ákærulið varðar,“ sagði Sig- urður Tómas Magnússon, settur ríkissaksóknari í Baugsmálinu, eftir að hafa kynnt sér úrskurð Héraðs- dóms Reykjavíkur í gær. Við meðferð málsins fyrir dómstólum sagði Sigurður Tómas málið viðamesta efnahagsbrotamál sem upp hafi komið hér á landi. Hann sagði það ekki sitt að meta hvort þessi skilgreining standist eftir að fyrsta ákæruliðnum hafi verið vís- að frá. Skilgreiningar á efnahagsbrotum séu mjög víð og ljóst að þetta mál sé afar mikið að umfangi. Hvaða orð sé viðeigandi að nota í því samhengi verði aðrir að dæma um. „Þetta er mjög viðamikið mál og það eru mörg brýn úrlausnarefni sem eru í þessum ákæruliðum sem ákæruvaldið hefur talið nauðsynlegt að fá skorið úr um af dómstólum,“ sagði Sigurður. Sigurður Tómas Magnússon, settur ríkissaksóknari Brýn úrlausnarefni fyrir dómstóla í ákæruliðnum „ÞETTA kemur ekki á óvart, þetta er niðurstaða sem ég átti von á varðandi fyrsta ákæruliðinn,“ sagði Gestur Jónsson, verjandi Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, eftir að úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur féll í gær. „Þetta er sá liður ákærunnar sem er lang alvarleg- astur gagnvart Jóni Ásgeiri. Í þessum ákærulið er hann sakaður um fjársvik, auðgunarbrot þar sem hann átti að hafa auðgast sjálfur á kostnað Baugs. Það eru auðvitað mjög alvarlegar ásakanir. Hinir ákæruliðirnir eru ekki þess eðlis, þótt alvarlegir séu, að þeir séu á nokkurn hátt sambærilegir við hinn fyrsta,“ sagði Gestur. Spurður hvað eftir standi af Baugsmálinu sagði hann fyrst og fremst um að ræða formbrot; hvernig bókhald hafi verið fært, hvort peningum, sem allir komu til baka, hafi verið ráðstafað með réttum hætti og hvort risna forstjóra og aðstoðarforstjóra hafi verið hæfileg. Einnig sitji eftir spurn- ingar um hvort Baugur hafi verið látinn greiða kostnað umfram það sem eðlilegt sé af svokölluðum skemmtibát í Flórída. Gestur Jónsson, verjandi Jóns Ásgeirs Niðurstaða sem búist var við í alvarlegasta liðnum NIÐURSTAÐA Héraðsdóms Reykjavíkur að hafna kröfu Jóns Geralds um frávísun á hans þætti málsins kom verj- anda Jóns, Brynjari Níelssyni, á óvart. Verjendur eiga þó ekki rétt á því að kæra niðurstöðuna til Hæstaréttar. „Ég er mjög ósáttur við þetta,“ sagði Brynjar. Hann sagði afar erfitt að taka því að umbjóðandi sinn þurfi að ganga í gegnum alla aðalmeðferðina í málinu áður en Hæstiréttur fái að taka afstöðu til þess hvort frávís- unarkrafan hafi verið réttmæt. Ef dæmt verði í málinu í héraðsdómi, og þeim dómi skotið til Hæstaréttar, geti rétturinn vísað ákærunni frá á grundvelli þeirrar kröfu sem nú hafi verið hafnað í héraðsdómi, og sleppt því að taka efnislega á þætti Jóns Geralds. Brynjar Níelsson, verjandi Jóns Geralds Ósáttur við að geta ekki kært niðurstöðuna ÁHÖFNIN á frönsku keppn- isskútunni Les Vedettes de Bre- hat í siglingakeppninni Skippers d’Islande milli Frakklands og Ís- lands kom langfyrst í mark í Reykjavík á fyrsta legg keppn- innar í gær. Í gærmorgun var skútan nærri 200 mílum á undan næsta keppanda. Frá Reykjavík verður siglt til Grundarfjarðar og þaðan verður ræst að nýju til Frakklands. Keppnin hófst á Pa- impol á Bretaníuskaga 24. júní og náði Vedettes forskoti á keppi- nautana 18 með þeim árangri sem varð ljós í gær. Auk þess má nefna að skútan var nálægt því að slá eigið hraðamet. Skipstjóri Les Vedettes de Bre- hat er 24 ára frönsk kona, Serv- ane Escoffiure og sagði hún við komuna í gær að ferðin hefði gengið ágætlega. „Það var ekki svo hvasst þegar við sigldum frá Frakklandi og þegar við fórum framhjá Írlandi var ennþá stillt veður,“ sagði hún. „En síðustu þrjá dagana höfum við fengið tals- verðan vind og náðum góðri stefnu og hraða. Við fórum upp í 350 míl- ur á sólarhring, eða um 15,5 hnúta á klukkustund.“ Skútan er 50 fet að lengd og sérsmíðuð fyrir kappsiglingu um hnöttinn. Hún er gerð til að ná góðum hraða á lensinu og einnig til að haga sér vel þegar henni er stýrt upp í ölduna. Skrokkurinn er ávalur, úr karbonefnum, og húsið lágt og straumlínulagað. Sarvane sagði mestu máli skipta á siglingunni að passa upp á áhöfnina og brjóta ekki bátinn. Vindur og sjávargangur getur ógnað áhöfninni og því mikilvægt að fylgjast vel með veðurspám á leiðinni. Af keppnisskútunum 19 eru tvær konur skipstjórar að Sarvane meðtalinni. Með henni í áhöfn eru Loise Duc, Francois Gu- illou og Liz Argley. Áhöfnin hefur nú lokið við um 1.200 sjómílur af heildarvegalengdinni sem er um 2.600 mílur. „Fengum talsverðan vind og náðum góðum hraða“ Morgunblaið/RAX Sarvane í broddi fylkingar ásamt áhöfninni og lukkudýrinu Fröken Mörgæs. LÖGREGLUSTJÓRINN í Reykja- vík mun fella niður kærur á hendur tveimur útlendingum og Íslendingi út af meintu skjalafalsi þremenninganna gagnvart Íslandsbanka. Í janúar voru þremenningarnir handteknir eftir að hafa reynt að stofna til viðskipta við Íslandsbanka en skjöl sem þeir lögðu fram voru tal- in vafasöm. Málið snerist að mestu um bankaábyrgð frá belgískum banka upp á 60 milljónir evra og lagði lögregla hald á skjalið. Hefur málið verið í rannsókn síðan. Í bréfi frá embætti lögreglustjóra til eins hinna grunuðu og lögfræði- deildar bankans er sagt að mennirnir hafi verið yfirheyrðir en ekki liggi fyr- ir gögn í málinu sem sýni að þre- menningarnir hafi haft vitneskju um að skjalið væri falsað. Komið hafi fram að skjalið sé frá erlendum að- ilum og leitað hafi verið til Interpol um aðstoð við rannsókn. Málið sé enn óupplýst og ekki þyki vera næg efni til að halda rannsókn þess áfram. Hætt við rannsókn á meintu skjalafalsi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.