Morgunblaðið - 01.07.2006, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 2006 21
ERLENT
q q q q q q q q q q q q q q q q
q q q q q q q q q q q q q q q q
q q q q q q q q q q q q q q q q
q q q q q q q q q q q q q q q q
Spennandi sumar framundan hjá Landsvirkjun
Sumarið er okkar tími!
Tilvalið að líta inn
Nánari upplýsingar um opnunartíma á www.landsvirkjun.is
og í síma 515 9000.
Sýningarnar eru opnar alla eftirmiðdaga í sumar.
M
IX
A
•
fí
t
•
6
0
3
2
9
Kynnist Kárahnjúkavirkjun!
Upplýsingar um Kárahnjúkaframkvæmdirnar
ásamt ferðamennsku og útivist norðan
Vatnajökuls. Góður viðkomustaður áður en
haldið er upp á Fljótsdalsheiði.
Végarður í Fljótsdal
List og saga
„Andlit Þjórsdæla – mannlíf fyrr og nú“.
Málverkasýning Hlífars Snæbjörnssonar.
Athyglisverð sölusýning á landslags-
málverkum.
Sultartangastöð ofan Þjórsárdals
Með krafta í kögglum!
Sýning á myndum Halldórs Péturssonar
listmálara við Grettissögu.
Kynnið ykkur orkumannvirki sem kemur
á óvart.
Blöndustöð, Húnaþingi
Orka í iðrum jarðar!
Heimsækið gestastofuna í Kröflu, sjáið
myndir frá Kröflueldum.
Kynnist jarðvarma og orkuvinnslu.
Kröflustöð í Mývatnssveit
„Hvað er með Ásum?“
Ævintýraferð í goðheima fyrir alla fjöl-
skylduna. Goðastyttur Hallsteins
Sigurðssonar við texta Árna Björnssonar,
þjóðháttafræðings.
Laxárstöðvar í Aðaldal
Ísland í augum innflytjenda
Hvaða sýn hafa innflytjendur á land og
þjóð? Listsýning nokkurra innflytjenda.
Skemmtidagskrá margar helgar í sumar.
Ljósafossstöð við Sog
JAPANIR eru einkum þekktir fyrir þrennt;
vinnusemi, virðingu fyrir menningararfinum
og langlífi. Þessi atriði japansks samfélags eru
flestum kunn og gjarnan talin því til hróss. Nú
bendir hins vegar margt til að síðastnefnda at-
riðið sé að snúast upp í mikið efnahagslegt
vandamál og byrði á komandi kynslóðir.
Þetta má lesa úr tölum nýs manntals í Japan
sem birtar voru í gær en þar kemur fram að
hlutfall Japana sem eru 65 ára og eldri er kom-
ið upp í 21 prósent og er nú það hæsta í veröld-
inni. Samkvæmt manntalinu voru 127,76 millj-
ónir manna búsettar í Japan í fyrra og er því
um 26,82 milljónir eldri borgara að ræða.
Til samanburðar koma Ítalir næstir með um
20 prósenta hlutfall eldri borgara en Þjóð-
verjar eru í þriðja sæti með 18,8 prósent. Að
sögn talsmanna Hagstofu Íslands er hlutfallið
á Íslandi hins vegar 11,7 prósent.
Vandinn er engu minni á hinum enda
aldursstigans því að hlutfall barna í
Japan sem eru yngri en 14 ára er nú
það lægsta í heiminum, eða 13,6 pró-
sent. Til samanburðar er þetta hlutfall
14 prósent á Ítalíu, 14,3 prósent í
Þýskalandi og 21,8 prósent á Íslandi.
Þetta lága hlutfall ungmenna í sam-
félaginu á sér margvíslegar orsakir,
efnahagslegar og félagslegar, sem um
margt endurspegla breytta lífshætti í
þróuðum iðnaðarsamfélögum þar sem jafn-
vægi er að skapast í atvinnuþátttöku
kynjanna.
Þannig eru 59,9 prósent kvenna í Japan,
sem eru á aldrinum 25 til 29 ára, ókvænt sem
er 5,9 prósenta aukning frá síðasta manntali
frá árinu 2000. Þá er hlutfall
ókvæntra kvenna á aldrinum 30 til 34
ára 32,6 prósent og hefur það aukist
um 6 prósent frá síðasta manntali.
Hlutfall ógiftra karla hefur einnig
hækkað og er nú 47,7 prósent fyrir
aldurshópinn 30 til 34 ára og hefur
aukist um 4,8 prósent frá síðasta
manntali.
Færri fæðingar á hverja konu og
færri hjónabönd en áður þýða að jap-
önsku þjóðinni fækkar smátt og smátt. Þetta
þýðir að æ færri launamenn greiða skatta sem
geta nýst til að standa straum af kostn-
aðarsamri velferðarþjónustu við eldri borgara
í þessu næststærsta hagkerfi heims.
Þá hefur fækkun ungmenna í för með sér
lakari nýtingu á ýmsum innviðum samfélags-
ins, auk þess að leiða til óhagkvæmari sam-
félagsþjónustu í mörgum tilvikum. Einnig get-
ur slík þróun haft félagslegar afleiðingar með
því að leiða til aukins innflutnings erlends
vinnuafls í framtíðinni til að vega upp á móti
skorti á vinnuafli.
Fjórði hver Japani 65 ára
eða eldri árið 2015
Stjórnvöld hafa hins vegar ekki staðið að-
gerðalaus andspænis þessu vandamáli og hafa
meðal annars farið af stað með verkefni sem
felur í sér aukna barnagæslu og aðgerðir sem
eiga að hvetja karla til að fara í feðraorlof. Þá
hafa borgaryfirvöld víða jafnvel stigið það
skref að stofna stefnumótaþjónustur til að að-
stoða fólk við að finna maka, að sögn vefsíðu
dagblaðsins Mainichi. Þar segir einnig að jap-
önsk stjórnvöld áætli að árið 2015 muni fjórði
hver Japani verða eldri en 65 ára en þriðji hver
íbúi landsins árið 2050.
Japanir þjóða elstirEftir Baldur Arnarsonbaldura@mbl.is
Japanir lifa lengi.
París. AFP. | Osama bin Laden, leið-
togi al-Qaeda hryðjuverkasamtak-
anna, varaði við því í nýrri hljóðupp-
töku sem birt var í gær að samtökin
myndu halda áfram árásum í Írak
þrátt fyrir dauða
Abu Musab al-
Zarqawi, leiðtoga
samtakanna al-
Qaeda í Írak, fyrr
í mánuðinum.
Enn á þó eftir að
staðfesta að upp-
takan sé ósvikin
þótt slíkt sé talið
afar líklegt.
Í upptökunni,
sem birtist á íslamskri vefsíðu, fór
bin Laden fögrum orðum um al-Zar-
qawi og sagði hann „ljón íslam og
heilags stríðs sem heiðraði ekki að-
eins fjölskyldu sína og þjóðflokk sinn
heldur einnig allt mannkyn“. Þá
hvatti hann jórdönsk stjórnvöld til
að heimila greftrun „hetjunnar“ al-
Zarqawi.
„Við munum halda baráttunni
áfram og þannig þurrausa sjóði ykk-
ar, myrða menn ykkar svo að her-
sveitir ykkar þurfi að snúa sigraðar
til heimkynna sinna, líkt og við gerð-
um í Sómalíu,“ sagði bin Laden og
beindi orðum sínum því næst að
George W. Bush Bandaríkjaforseta.
„Ekki eyða of miklum tíma í fagn-
aðarlæti. Merki heilags stríðs hefur
ekki fallið. Því verður haldið á lofti af
öðru ljóni íslam. Við munum halda
baráttunni gegn þér áfram í Írak,
Afganistan, í Sómalíu og í Súdan.“
Ný upptaka
frá Osama
bin Laden
Bin Laden
Haag. AFP. | Jan Peter Balkenende,
forsætisráðherra Hollands, lagði í
gær fram formlega afsögn stjórnar
sinnar á fundi með Beatrix Wilhelm-
ina Armgard drottningu, deginum
eftir að formenn flokksins Demó-
kratar 66 tilkynntu að þeir hefðu
ekki áhuga á að halda stjórnarsam-
starfinu áfram.
Talið er að rekja megi ástæður
formanna Demókrata 66 fyrir að
slíta stjórnarsamstarfinu fyrst og
fremst til framgöngu Rita Verdonk,
ráðherra innflytjendamála, í máli
þingkonunnar Ayaan Hirsi Ali, sem
Verdonk, eða „Járn Rita“ eins og
hún er kölluð, svipti ríkisborgara-
rétti eftir að hún viðurkenndi að hafa
sagt ósatt við umsókn um landvist-
arleyfi fyrir fjórtán árum.
Mál Ali, sem er af sómölsku bergi
brotin og heimskunn fyrir andstöðu
sína við íslamska öfgamenn, var afar
umdeilt og leiddi það til þess að Ver-
donk dró ákvörðun sína til baka.
Beatrix drottning mun nú ræða við
leiðtoga allra stjórnmálaflokka um
hvort efna eigi þegar í stað til nýrra
kosninga, ellegar leita leiða til að
mynda minnihlutastjórn Kristilega
demókrataflokksins, flokks Balken-
ende, og fyrrverandi samstarfs-
flokks hans, Frjálslynda flokksins.
Stjórnin í
Hollandi fallin
♦♦♦