Morgunblaðið - 01.07.2006, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 2006 43
LANDSMÓT HESTAMANNA
DAGSKRÁIN á landsmótinu á
Vindheimamelum var ósvikin vara.
Sannkölluð stóðhestaveisla beið
gesta í morgunsárið en fjögurra
vetra hestar riðu á vaðið í yfirlits-
sýningu. Kraftur frá Efri-Þverá
stóð þar efstur með einkunnina
8,35 og skaust þar með fram fyrir
Krák frá Blesastöðum sem er ein-
ungis kommu á eftir, með 8,34 í að-
aleinkunn. Trostan frá Auðs-
holtshjáleigu er síðan þriðji í
flokknum með 8,28.
Segja má að Otur frá Sauðár-
króki komi sterkur inn í fimm
vetra flokknum því Þeyr frá Akra-
nesi, sem er annar í röðinni, er
undan Otri og efsti hestur, Vil-
mundur frá Feti, er undan Orra
Oturssyni. Aðaleinkunn Vilmundar
er 8,56 og Þeys 8,55. Gaumur frá
Auðsholtshjáleigu er næstur með
8,53.
Kúvending varð í sex vetra
flokknum frá forsýningunni en
Eldjárn frá Tjaldhólum hækkaði
stórum upp í fyrri einkunnir, með
aðaleinkunnina 8,53, m.a. fékk
hann tíu fyrir vilja og geðslag.
Fursti frá Stóra-Hofi kemur næst-
ur með 8,51 og þá Gígjar frá Auðs-
holtshjáleigu.
Mestu tíðindin urðu þó í elsta
flokknum, sjö vetra og eldri, en þar
var heimsmet slegið, hvorki meira
né minna. Stáli frá Kjarri hlaut
hæfileikaeinkunnina 9,09, aðalein-
kunn 8,76, og er þar með hæst
dæmdi stóðhestur í heimi. Næstur
er Þokki frá Kýrholti með 8,64 og
Aðall frá Nýjabæ þriðji með 8,64.
B-flokksgæðingar reyndu með
sér í milliriðli og sem fyrr er
Rökkvi frá Hárlaugsstöðum efstur,
kemur inn í úrslitin með ein-
kunnina 8,57. Annar er Muggur frá
Hafsteinsstöðum með 8,57 og þriðji
Röðull frá Kálfholti, 8,54. Í A-
flokknum er Geisli frá Sælukoti
enn efstur með 8,74, Þóroddur frá
Þóroddsstöðum er næstur með 8,64
og Skugga-Baldur frá Litla-Dal á
hæla honum með 8,63. B-úrslit
verða riðin í dag í A- og B-flokkum
og getur einn úr hvorum flokki
unnið sér þátttökurétt í A-úrslit-
unum á morgun. Í úrslitunum er
feti og stökki sleppt og því von á
breytingum á ný á efstu hestum –
fyrir vikið ríkir spenna fram á síð-
ustu stundu.
Í B-úrslitunum í töltinu í gær-
kvöldi varð efstur Skúmur frá
Neðri-Svertingsstöðum, knapi Hin-
rik Bragason, og fékk þar með far-
seðil í A-úrslitin í kvöld sem verða
án efa þrælskemmtileg.
Stáli frá Kjarri með heimsmet
Morgunblaðið/Eyþór
Stáli frá Kjarri setti heimsmet í kynbótadómi stóðhesta í gær. Knapinn er Daníel Jónsson.
Eftir Þuríði Magnúsínu Björnsdóttur og
Ingveldi Geirsdóttur
HINRIK Ólafsson leikari lét fara vel um
sig í brekkunni ásamt fjölskyldunni
þegar yfirlitssýning stóðhesta fór fram.
„Ég kom á miðvikudaginn og þetta er
stórkostlegt mót, svæðið hérna er miklu
betra en ég hafði gert mér grein fyrir
að það gæti orðið.“ Aðspurður hvernig
honum lítist á mannlífið segir Hinrik að
hann sé nú lítið að fylgjast með því,
heldur séu það hestarnir sem hann horfi
á. Hann dæsir þegar hann er spurður
hvaða hest honum lítist best á og segir
að erfitt sé að gera upp á milli. „Vil-
mundur frá Feti, Eldjárn frá Tjaldhól-
um, Blíða frá Flögu eru nokkur sem má
nefna og það sem mér finnst athygl-
isverðast við þetta er hvað ungu kyn-
bótahrossin skila miklu hérna. Þau
koma nánast fullsköpuð fram,“ segir
Hinrik og er greinilega hamingjusamur
með landsmótið í ár.
Kom til að horfa á hestana
Hinrik, Drífa, Blær, Þóra, Máni, Elísabet, Ísak og hundurinn Stalíon láta fara vel um sig í brekkunni.
Morgunblaðið/Eyþór
BRITTA Larsen sat í brekk-
unni og smurði sér samloku
með hangikjöti og baunasal-
ati. Britta er frá Danmörku
en talar íslensku þar sem
hún vann í sveit á Íslandi fyr-
ir hátt í tuttugu árum. „Eftir
að ég varð stúdent kom ég
hingað til að vinna með hesta
og fór á landsmót í fyrsta
skipti árið 1986 og þetta er
fjórða mótið mitt. Mér líst vel
á og hef mjög gaman af.
Þetta landsmót er betra en
árið 2000, en ég fór síðast þá,
og hestarnir eru frábærir.
Ég sjálf er með sex íslenska
hesta í Danmörku og er að
rækta svolítið.“
Britta kom á þriðjudaginn
með vinkonu sinni og hefur
hitt mikið af Dönum á svæð-
inu. Aðspurð hvort henni
finnist svona íslensk hangi-
kjötssamloka góð segir hún
svo vera en að hún borði
hana aðeins þegar hún sé
stödd hér á landi, hún sé ekk-
ert að smyrja svona samloku
úti í Danmörku.
Britta Larsen smyr sér samloku með hangikjöti og salati í
landsmótsbrekkunni í góða veðrinu á Vindheimamelum í gær.
Smyr samloku
í brekkunniGUÐMAR Þór Pétursson tamn-ingamaður og reiðkennari hefurfylgst með keppninni allan tímann en
er einnig búinn að vera með kennslu
við Hólaskóla þessa viku. Hann býr
nú úti í Ameríku og er því ekki að
keppa á þessu landsmóti. „Ég kom til
landsins með hóp af Ameríkönum í
kennslu-, landsmóts- og hestaferð í
bland, þeim líst vel á þetta og eru
ánægðir með hrossin.“ Guðmar er á
því að hestarnir í ár séu magnaðir og
batni með hverju árinu. „Þetta hefur
aldrei verið betra. Mér finnst mótið
fara vel af stað, svæðið lítur vel út og
mannlífið er gott og ég vona að þetta
haldi áfram svona fram á sunnudag.“
Guðmar vill ekkert segja til um hver
sé uppáhalds hestur hans á mótinu.
„Þeir eru svo margir að það er
ómögulegt að gera upp á milli þeirra,
það er frábær hestakostur hérna og
ansi margir sem maður vildi taka
með sér heim.“ Guðmar keppti síðast
á landsmóti fyrir fjórum árum á
Vindheimamelum og þótt hann keppi
ekki í ár mega Íslendingar eiga von á
að sjá hann á landsmótsvellinum aft-
ur að einhverjum tíma liðnum.
Með hóp af
Ameríkönum
Guðmar Þór segir hestakostinn á landsmótinu í ár vera frábæran.