Morgunblaðið - 01.07.2006, Qupperneq 52
52 LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
SAMBÍÓ AKUREYRI SAMBÍÓ KEFLAVÍK
THE LAKE HOUSE kl. 6 - 8:15 - 10:30
CARS M/ENSKU TALI kl. 6 - 8:30 - 11
BÍLAR M/ÍSL. TALI kl. 6 - 8:30
KEEPING MUM kl. 6 - 8:20 - 10:30 B.I. 12.ÁRA.
THE POSEIDON ADVENTURE kl. 6:10 - 8:20 B.I. 14.ÁRA.
SLITHER kl. 11 B.I. 16.ÁRA.
MI : 3 kl. 10:30 B.I. 14.ÁRA.
FRÁ FRAMLEIÐENDUM
„THE INCREDIBLES“ & „LEITIN AÐ NEMO“
SÝNDI BÆÐI
MEÐ
ÍSLENSKU OG
ENSKU TALI
eeee
V.J.V, Topp5.is
HVERNIG
ÁTTU AÐ HALDA
Í ÞANN SEM
ÞÚ HEFUR
ALDREI HITT.
FERSK, HUGLJÚF OG RÓMANTÍSK ÞAR SEM STÓRSTJÖRNURNAR KEANU REEVES OG
SANDRA BULLOCK FARA Á KOSTUM.EKKI MISSA AF ÞESSARI PERLU. ALGJÖRT AUGNAKONFEKT.
FRÁ LEIKSTJÓRA "TROY" OG "PERFECT STORM"
HALTU NIÐRI Í ÞÉR ANDANUM. MÖGNUÐ SPENNA FRÁ BYRJUN TIL ENDA.
eee
V.J.V.Topp5.is
eeee
VJV, Topp5.is
S.U.S. XFMeee
Kvikmyndir.is
eee
S.V. MBL.
eee
L.I.B. Topp5.is
KVIKMYNDIR.IS
FRÁ ÞEIM SEM FÆRÐU
OKKUR ENDURGERÐINA AF
„DAWN OF THE DEAD“
eee
VJV, Topp5.is
eee
Kvikmyndir.is
eeee
V.J.V, Topp5.is
HVERNIG
ÁTTU AÐ HALDA
Í ÞANN SEM
ÞÚ HEFUR
ALDREI HITT.
FERSK, HUGLJÚF OG RÓMANTÍSK ÞAR SEM STÓRSTJÖRNURNAR KEANU REEVES OG
SANDRA BULLOCK FARA Á KOSTUM.EKKI MISSA AF ÞESSARI PERLU. ALGJÖRT AUGNAKONFEKT.
SAMBÍÓIN KRINGLUNNI ER EINA
LAKEHOUSE kl. 8 - 10
BÍLAR M/ÍSL. TALI kl. 2 - 5
CARS M/ENSKU TALI kl. 2 - 5
KEEPING MUM kl. 8 - 10 B.I. 12 ÁRA
FAST AND THE FURIOUS 3 kl. 5:45 - 8 - 10:10 B.I. 12
CLICK kl. 1 - 3:15 - 5:45 - 8 - 10:10 B.I. 10
BÍLAR M/ÍSL. TALI kl. 1 - 3:15
Skemmtistaðurinn NASA viðAusturvöll var troðfullur áfimmtudagskvöldið þegar
hljómsveitin HAM steig þar á svið
á sínum fyrstu eigin tónleikum í
hálfan áratug, eða frá því sveitin
kom fram á tónleikum á Gauki á
Stöng 14. júní árið 2001. Síðan þá
hefur HAM komið opinberlega
fram í tvígang – hún hitaði upp
fyrir Rammstein í Laugardalshöll
árið 2001 og spilaði ásamt fjöl-
mörgum öðrum listamönnum á
Náttúrutónleikunum í Höllinni í
upphafi þessa árs.
Eins og margir vita lagði HAMupp laupana eftir fræga tón-
leika í Tunglinu 4. júní árið 1994.
Þá naut sveitin engra gríðarlegra
vinsælda, en hún naut hins vegar
þeim mun meiri virðingar á með-
al afmarkaðs hóps fólks. Þessi
hópur mætti á flesta tónleika
HAM, keypti plöturnar og hélt í
henni lífinu. Það var svo ekki
fyrr en HAM hætti að hún fór að
njóta einhverra vinsælda fyrir al-
vöru, þá varð hún að einhvers
konar költ-hljómsveit sem þótti
töff að hlusta á – og þykir greini-
lega enn. Á tónleikunum á
fimmtudaginn voru vissulega
margir gamlir HAM-aðdáendur,
en einnig mátti sjá fólk sem vissi
trúlega ekki hvaða hljómsveit
HAM var þegar hún hætti. Þar á
meðal voru stórir hópar ungs
fólks sem hafa ef til vill uppgötv-
að HAM eftir að hafa séð kvik-
myndina Sódóma Reykjavík, þar
sem sveitin lék stórt hlutverk. Til
samanburðar má nefna að hljóm-
sveitin Todmobile er í hálfgerðu
„comebacki“ þessa dagana, en
menn virðast einhvern veginn
ekki vera eins æstir yfir því og
endurkomu HAM. Með fullri virð-
ingu fyrir hinni ágætu hljómsveit
Todmobile þá virðist ekki vera
flott að hlusta á hana. En það er
töff að fíla HAM.
Þeir Sigurjón, Óttarr, Björn,Arnar, Jóhann og Flosi komu
á svið um klukkan ellefu og hófu
tónleikana með nýju lagi sem
hlotið hefur nafnið „Í ham“, en
að sögn hljómsveitarmeðlima var
lagið samið um síðustu helgi. Það
heyrðist strax frá fyrstu mínútu
að sveitin er í gríðarlega góðu
formi, vel æfð og mjög þétt. Eftir
hina óvæntu opnun tóku kunn-
uglegri tónar við og lög eins og
„Dimitri“, „Animalia“ og „Bulldo-
zer“ fengu að hljóma, áheyr-
endum til ómældrar gleði. Stemn-
ingin var gríðarleg, fremst voru
þeir sem njóta vildu tónleikanna
til hins ítrasta með því að
„slamma“ í takt og kasta sér út í
skarann, en aftar voru svo þeir
sem rólegri voru (og eldri). Ann-
að nýtt lag, „Veður gott“ hljóm-
aði svo skömmu fyrir uppklapp,
kröftugt lag en kannski ekki á
meðal þess besta sem komið hef-
ur frá sveitinni. Næstsíðasta lagið
var svo hið besta á tónleikunum,
lagið „Musculus“ en síðasta lag
fyrir uppklapp var þriðja nýja
lagið þetta kvöld, lagið „Svik-
semi“ sem heyrst hefur í útvarp-
inu að undanförnu, en hljómar
hins vegar mun betur á tón-
leikum. Eftir stutt en kröftugt
uppklapp tóku þeir félagar þrjú
lög, „Svín“ og hið frábæra „Mani-
festo“, en það hefur líklega ekki
komið neinum á óvart að síðasta
lagið var mesti slagari sveit-
arinnar fyrr og síðar, lagið
„Partýbær“. Allt ætlaði um koll
að keyra enda útfærslan flott, en
þó hefði mátt heyrast meira í
orgelinu sem gerir mikið fyrir
lagið.
Í stuttu máli var annars um
mjög góða tónleika að ræða og
sveittir tónleikagestir gengu út á
Austurvöll með bros á vör.
Það sem HAM hefur fram yfirmargar aðrar góðar hljóm-
sveitir er að hún hefur sitt eigið
„sánd“, það hljómar engin önnur
hljómsveit eins og hún. Þessi
kostur er gulls ígildi í dag þegar
hver hljómsveitin hljómar eins og
sú næsta, sérstaklega á sviði
rokktónlistar.
Í viðtali hér í Morgunblaðinu
fyrir skömmu gaf Sigurjón Kjart-
ansson í skyn að mögulega væri
von á nýrri plötu frá HAM. Nú er
bara að bíða og sjá hvort ekki
verði af því, og vonandi að sveit-
in geti staðið undir þeim miklu
væntingum sem til hennar eru
gerðar.
Endurkoma költ-sveitar
’Það sem Ham hefurfram yfir margar aðrar
góðar hljómsveitir er að
hún hefur sitt eigið
„sánd“, það hljómar
engin önnur hljómsveit
eins og hún. ‘
Morgunblaðið/Jim Smart
Óttarr Proppé og Sigurjón Kjartansson voru í ham á NASA á fimmtudagskvöld.
jbk@mbl.is
AF LISTUM
Jóhann Bjarni Kolbeinsson