Morgunblaðið - 19.07.2006, Side 1
STOFNAÐ 1913 194. TBL. 94. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 19. JÚLÍ 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Melódísk rokkhljómsveit með
pönkívafi og stælum | Menning
Ósáttar með jafntefli gegn Banda-
ríkjunum Breiðablik úr botnsæti
Meiddur dómari í Grindavík
Okkar
New York
Lóan og
valmúinn
Hekla Björk og Pétur Gautur
náttúrubörn | Daglegt líf
Beirút, Jerúsalem. AP, AFP. | Um
500 þúsund manns eru á flótta
eða hafa misst heimili sín í Líb-
anon, að sögn Robertos Laur-
entis, starfsmanns UNICEF,
sem er á svæðinu. „Ástandið er
bæði ógnvekjandi og hörmu-
legt,“ sagði Laurenti við fjöl-
miðla.
Brottflutningur erlendra
borgara af svæðinu er nú hafinn
en þeir skipta hundruðum þús-
unda. Talið er að um 40 þúsund
Kanadamenn séu í Líbanon, 30 þús-
und Filippseyingar, 25 þúsund Ástr-
alir og jafnmargir Bandaríkjamenn,
um 22 þúsund Bretar, þar af tíu þús-
und með breskt og líbanskt ríkisfang
og 20 þúsund Frakkar.
Ekkert útlit er fyrir að átökunum
linni í bráð og Ísraelar hafa lýst því
yfir að átökin við skæruliða Hizboll-
ah-samtakanna muni standa yfir í
nokkrar vikur til viðbótar. Að
minnsta kosti 227 Líbanar og 25 Ísr-
aelar hafa látist í átökunum sem hóf-
ust fyrir viku í kjölfar þess að liðs-
menn Hizbollah-samtakanna rændu
tveimur ísraelskum hermönnum.
Alls létust 37 Líbanar í árásum Ísr-
aelshers í gær, þar af sautján í loft-
árásum hersins á herstöð utan Beirút
og fleiri svæði í S-Líbanon. Hizbollah
svaraði með eldflaugaárás á Ísrael
þar sem að minnsta kosti einn lést.
Samninganefnd Sameinuðu þjóð-
anna ræddi í gær við Ísraela um
hugsanlega lausn á deilunni en Tzipi
Livni, utanríkisráðherra Ísraels, lýsti
því yfir að vopnahlé væri útilokað
nema hermönnunum tveimur verði
sleppt úr haldi og að líbanskar her-
sveitir kæmu að landamærum
ríkjanna og að afvopnun Hizboll-
ah yrði tryggð. Talsmenn ísr-
aelska hersins hafa ekki útilokað
að herlið verði sent inn í Líb-
anon.
Fuad Siniora, forsætisráð-
herra Líbanon, hvatti Hizbollah-
samtökin til að sleppa hermönn-
unum tveimur í viðtali við BBC í
gær en sagði að viðbrögð Ísraela
hefðu ekki verið í neinu hlutfalli
við tilefnið og að Ísraelar hefðu
„opnað hlið vítis og vitfirringar“ í
Líbanon.
Bush ásakar Sýrlendinga
George W. Bush, forseti Banda-
ríkjanna, sagði í gær að Sýrlendingar
væru að reyna að komast aftur inn í
Líbanon, en sýrlenskt herlið yfirgaf
landið í fyrra eftir áralanga veru.
Bush sagði að ráðast yrði að rótum
vandans og gera Sýrlendingum ljóst
að þeir yrðu að láta af stuðningi sín-
um við Hizbollah. Condoleeza Rice,
utanríkisráðherra Bandaríkjanna,
sagði að forsenda þess að vopnahléi
yrði komið á væri að grundvallar-
breytingar yrðu á svæðinu.
Ísraelsher býr sig undir margra vikna átök í Líbanon
„Ástandið er bæði ógn-
vekjandi og hörmulegt“
Eftir Árna Helgason
arnihelgason@mbl.is
Arabísk hetja | 15
Reuters
Grikkir fara um borð í herskip á leið úr land-
inu á meðan grískur hermaður fylgist með.
„MAÐUR metur það svo mikils að vera Ís-
lendingur, hér er hvert mannslíf svo mikils
metið,“ sagði Arndís Kjartansdóttir, er hún
hafði verið ásamt fjölskyldu sinni og ann-
arri íslenskri fjölskyldu á nær 60 tíma
löngu, linnulausu ferðalagi frá átakasvæð-
inu í Beirút í Líbanon heim til Íslands.
Morgunblaðið náði tali af fjölskyldunum
þar sem þær biðu í biðsal Icelandair á
Kastrup-flugvelli og mátti greina hjá þeim
mikinn létti.
„Það voru allar útgönguleiðir að lokast
og allar aðalleiðir á landi, sjóleiðin og loft-
leiðin voru þegar orðnar ófærar. Þetta var
mjög erfitt enda eru Íslendingar ekki vanir
slíkri frelsissviptingu,“ sagði Arndís og
vildi koma á framfæri þökkum til utanrík-
isráðuneytisins og Hreins Pálssonar,
starfsmanns þess, sem flaug út til Dam-
askus í Sýrlandi til að taka á móti fjölskyld-
unum.
Gott að finna fyrir stuðningi
Alma Hannesdóttir, sem var ásamt
manni sínum og ungri dóttur í Líbanon,
sagði að Íslendingar hefðu staðið sig vel í að
koma fólki heim.
„Við hefðum aldrei komist burt án hjálp-
ar. Íslendingarnir hjálpuðu okkur frá A til
Ö og það er ótrúlegt að finna hve vel þjóðin
stendur á bak við okkur.“ Alma sagðist hafa
fundið fyrir nokkurri hræðslu vegna fjög-
urra mánaða dóttur þeirra hjóna. „Maður
var auðvitað hræddur enda lítið barn í
spilinu. Það var nú aðallega þess vegna sem
við ákváðum að fara. Annars hefði maður
kannski haldið þetta út í smá tíma.“
„Hefðum aldrei komist burt án hjálpar“
Eftir Hrund Þórsdóttur
hrund@mbl.is
Íslendingar ekki | Miðopna
ÍSLENSKU fjölskyldurnar tvær
sem staddar voru í Líbanon þeg-
ar árásir Ísraelsmanna hófust
komu heim um níuleytið í gær-
kvöldi eftir um 60 tíma linnu-
laust ferðalag.
Hér má sjá ættingja taka vel á
móti Ölmu Hannesdóttur en
nokkur fjöldi ættingja, ásamt
Sigríði Snævarr frá utanríkis-
ráðuneytinu, var saman kominn í
Leifsstöð í gær.
Morgunblaðið/Jim Smart
Komin heim eftir um 60 tíma ferðalag
ur til að mynda borist nokkur fjöldi
kvartana frá farþegum sem telja eft-
irlitið furðu sæta ekki síður en sú
staðreynd að starfsmenn einkafyrir-
tækis annist það. Framkvæmdastjóri
Landssambands lögreglumanna og
formaður Tollvarðafélags Íslands eru
sammála um það að með því að fela
eftirlitið einkaaðilum séu flugvallaryf-
irvöld að bjóða hættunni heim. Ör-
yggisþjónustufyrirtæki séu óneitan-
lega rekin með það fyrir augum að
skila hagnaði og því mögulegt að
óæskileg sjónarmið ráði för við eft-
irlitsstarfsemi þeirra.
Björn Bjarnason dómsmálaráð-
herra sagðist telja að eftirlit af þessu
tagi væri best komið undir stjórn lög-
reglustjóra og Páll Winkel, fram-
kvæmdastjóri Landssambands lög-
reglumanna, benti á að einkarekin
öryggisleit á Kastrup-flugvelli hefði
fengið slæma útreið af hálfu eftirlits-
nefndar ESB á dögunum. Þar kemur
fram að öryggiseftirliti sé stórlega
ábótavant og algjörlega ófullnægj-
andi í þeirri mynd sem það er í dag.
SECURITAS og Öryggismiðstöð Ís-
lands annast nú framkvæmd örygg-
isleitar á Keflavíkurflugvelli á þeim
farþegum sem eru að koma til lands-
ins frá löndum utan Evrópusam-
bandsins. Flugmálastjórn Keflavík-
urflugvallar fól einkaaðilunum leitina
í kjölfar úttektar Eftirlitsstofnunar
Evrópska efnahagssvæðisins þar sem
fram kom að öryggisleit á viðkomandi
farþegum væri ófullnægjandi.
Að sögn Stefáns Thordersen, yfir-
manns öryggissviðs Flugmálastjórn-
ar Keflavíkurflugvallar, var ekki ann-
ar möguleiki fær í stöðunni, þar sem
flugvallaryfirvöld fengu skamman
tíma til að bæta ráð sitt og athuga-
semd eftirlitsstofnunarinnar hafi ver-
ið flugvellinum til vansa.
Hefur valdið fjaðrafoki
Ráðstöfun Flugmálastjórnar hefur
valdið nokkru fjaðrafoki, bæði meðal
farþega og opinberra öryggisstarfs-
manna flugvallarins. Sýslumanns-
embættinu á Keflavíkurflugvelli hef-
Einkaaðilum
falin öryggis-
leit í Leifsstöð
Eftir Friðrik Ársælsson
fridrik@mbl.is
Skiptar skoðanir | 6
Íþróttir í dag