Morgunblaðið - 19.07.2006, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 19.07.2006, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. JÚLÍ 2006 25 UMRÆÐAN UMRÆÐA um íslenska lífeyr- issjóði að undanförnu hefur velt upp mörgum mikilvægum spurningum um starfsemi þeirra og hlutverk. Má þar m.a. nefna spurninguna um með hvaða hætti lífeyrissjóðunum er stjórnað og hvernig sjóðsfélagar geti haft áhrif á rekstur þeirra og stjórnun. Miklar breytingar hafa orðið á lífeyr- issjóðum hér á landi á undanförnum árum. Sjóðum hefur fækkað og hagræðing í rekstri hefur orðið talsverð. Ávöxtun þeirra hefur almennt verið í takt við uppgang á íslenskum og erlendum hluta- bréfamörkuðum. Ef ávöxtun tiltekinna sjóða hefði verið neikvæð eða ekki í sam- ræmi við væntingar sjóðsfélaganna gætu þeir engu um það ráðið hvort þeir greiddu áfram í þann sjóð sem þeir greiddu allajafna í. Sjóðsfélagar eru oftast bundnir af því að greiða í tiltekna sjóði, allt eftir því hvaða starfshópi eða starfsstétt þeir til- heyra. Þeir geta ekki valið milli sjóða hvort sem þeim líkar fjárfest- ingastefna og stjórnun þeirra eða ekki. Varla eru launþegar sáttir við að geta hvorki fengið að velja sér sjóð né heldur hverjir fara með stjórn þeirra fjármuna sem þeir fela sjóð- unum til ávöxtunar. Stjórnir lífeyrissjóðanna eru kjörn- ar af hagsmunasamtökum atvinnu- lífsins og verkalýðsfélaganna. Þannig eru sjóðsfélagarnir áhrifalausir um val þeirra einstaklinga sem stýra líf- eyrissjóðunum. Eignir lífeyrissjóð- anna nema nærri 1.200 milljörðum króna. Ýmsir hafa viljað koma á beinu vali sjóðs- félaga á stjórnum líf- eyrissjóða. Slíkum hug- myndum hefur jafnan verið mætt með því af forsvarsmönnum sjóð- anna að það sé útilokað í framkvæmd, eins og nú síðast var bent á í grein formanns VR í Morg- unblaðinu 15. þ.m. Það skal hér látið liggja á milli hluta hvaða hags- munir liggja að baki því sjónarmiði. Eftir stend- ur hins vegar sá vandi að sjóðsfélagar, almennir launamenn, geta engu um það ráðið hvernig farið er með þann skyldusparnað þeirra sem liggur í lífeyrissjóði þeirra starfsstéttar. Að undanförnu höfum við enn og aftur orðið vitni að því hvernig for- svarsmenn Lífeyrissjóðs versl- unarmanna hafa notað peninga sjóðs- félaga með annarleg sjónarmið að leiðarljósi. Undir þessu verða al- mennir sjóðsfélagar að sitja og sætta sig við að ávöxtun á réttindum þeirra í lífeyrissjóðnum er látin víkja fyrir valdabrölti sjóðsforystunnar. Nú þegar lífeyrissjóðir eru al- mennt orðnir stærri og öflugri, gegnsæi er meira um ávöxtun þeirra og almennir launamenn hafa betri tök á að fylgjast með þeim kostum sem eru í boði við ávöxtun lífeyrisréttinda þá er tími til kominn að breyta því fyrirkomulagi skylduaðildar að til- teknum lífeyrissjóðum sem nú ríkir. Þannig ættu launþegar að geta fært sig á milli lífeyrissjóða ef þeim líkar ekki sú ávöxtun sem þeim býðst eða sú stjórnarstefna sem ríkir í þeirra sjóði. Með þessu breytta fyr- irkomulagi gætu launþegar með ein- földum hætti tjáð afstöðu sína til þess sem stjórnir lífeyrissjóðanna gera og ekki yrði hróflað við því fyr- irkomulagi að verkalýðsforingjar og iðnjöfrar sitji saman í stjórnum sjóð- anna. Leyfum sjóðsfélögum að velja Skarphéðinn Berg Steinarsson fjallar um lífeyrissjóði ’Að undanförnu höfumvið enn og aftur orðið vitni að því hvernig for- svarsmenn Lífeyrissjóðs verslunarmanna hafa notað peninga sjóðs- félaga með annarleg sjónarmið að leiðarljósi. ‘ Skarphéðinn Berg Steinarsson Höfundur er framkvæmdastjóri hjá Baugi group hf. og stjórnarformaður FL group hf. ÞORSTEINN Ingi Sigfússon (ÞIS) ritaði hugvekju um sjálfbæra orku og afkolun í Lesbók Morg- unblaðsins laugardaginn 8. júlí. Það hefur viðgengist hér á landi í áratugi einhver mennta- skólameinloka um vetni sem eldsneyti. Það hef- ur tekist að festa þessa vitleysu svo rækilega í huga ráðamanna að það þarf ekki annað en nefna vetni þá opnast flóðgáttir rannsókna- og þróunarsjóða. Ég sný mér þá að grein ÞIS. Fyrst vil ég benda á að orðið vetn- iskol sem hann notar þar sem hann hlýtur að eiga við kolhydröt (kol- vetni). Vetniskol hefur verið notað yf- ir það sem á ensku er kallað „hydroc- arbon“, þ.e. olía, jarðgas o.s.frv. Hann fjallar um hvað hægt er að gera til þess að draga úr koldíoxíðlosun Ís- lands. Hann minnist samt ekki á einn nærtækan möguleika. Það er að Ís- land hætti að flytja inn áburð sem er framleiddur úr vetni sem aftur er framleitt með orku úr jarðgasi, en við það myndast koldíoxíð, en noti heldur þetta vetni okkar Íslendinga sem framleitt er með okkar ódýru og vist- vænu raforku. Það kynni kannski ein- hver að spyrja, er það ekki einmitt þetta sem var gert í Gufunesi. Jú, mikið rétt, en af hverju var þá hætt að framleiða áburð á Íslandi? Skyldi það vera vegna þess að framleiðsla vetnis með rafgreiningu er ekki sam- keppnisfær við vetni framleitt með jarðgasi. Hvað um vetni á vetnisvagn- ana? Á að styrkja það með opinberu fé frekar en kaupa það á markaði? ÞIS og Íslensk nýorka (ÍN) segja væntanlega að allar þessar forsendur breytist þegar jarðefnaeldsneyti hækkar enn meira í verði. Þegar þar að kemur væri þá ekki skynsamlegra að við Íslendingar færum út í áburð- arframleiðslu í stórum stíl og útflutn- ing með fullkomlega þekktri fram- leiðslutækni heldur en að hanga á þessari vetnisvitleysu fyrir skip og bíla eins og hundur á roði. Í víðara samhengi er koldíox- íðlosun fyrst og fremst afleiðing orkuframleiðslu og þá skiptir máli að nýta þá orku vel sem framleidd er. Sóun 75–80% raforkunnar með vetn- isvögnum og vetnisbílum í stað þess að nýta yfir 60% af þessari orku í rafknúið samgöngutæki eða enn betur til ann- arrar framleiðslu er ekki líkleg framtíð- arlausn á orkumálum heimsins. Það væri reyndar æskilegt að heyra álit ÞIS og ÍN á þessu með tilliti til þeirra rannsóknanið- urstaðna sem þegar liggja fyrir. Vetni má framleiða með rafgreiningu en það er ekki samkeppn- ishæf framleiðsluaðferð í dag. Í þessari framleiðsluaðferð er vatn einfaldlega klofið í frumefni sín, vetni og súrefni. Það er hægt að framleiða vetni úr kolum og vatns- gufu. Til þess að gera þetta þarf að- eins að hita kolin með vatnsgufunni upp í hitastig sem er yfir þúsund gráður á Celsíus en við það hitastig eru kolmónoxíð og vetni varmafræði- lega stöðugri en kolefnið og vatns- gufan. Blanda af kolmónoxíði og vetni framleitt á þennan hátt kallast vatns- gas. Í dag er vetni framleitt úr jarð- gasi og vatni en þá myndast líka kolmónoxíð og vetni en í öðrum hlut- föllum. Þessi blanda kallast efna- smíðagas (synthesis gas). Nákvæm- lega sömu lögmál varmafræðinnar koma við sögu hér. Við lægra hitastig yfir hvata er hægt að fá meira vetni í hvarfi sem kallast vatnsgas hliðr- unarhvarfið (water gas shift reac- tion). Þessi ferli losa þess vegna vetn- ið sem var bundið í jarðgasinu og vatninu en á sama tíma losnar allt kolefnið sem var í kolunum eða jarð- gasinu sem koldíoxíð. Ef þetta vetni væri notað sem eldsneyti er það að sjálfsögðu mjög hreint og myndar bara vatn við bruna en allt kolefnið sem var í frumorkugjafanum (jarð- gasinu eða kolunum) var þegar búið að losa út í umhverfið sem koldíoxíð. ÞIS minnist líka á nýtingu vetnis með svokallaðri Fischer-Tropsch aðferð sem var fundin upp árið 1923 og Þjóð- verjar notuðu til dæmis til fram- leiðslu eldsneytis í seinni heimsstyrj- öldinni. Þessi aðferð er enn notuð til framleiðslu á olíu í S-Afríku. Er hugmynd ÞIS sem sagt sú að hætta við vetnisvagnana og vetn- isskipin og fara að framleiða olíu með ódýra vetninu okkar Íslendinga? Ef hugmyndin er sú að nýta þetta kolmónoxíð í útblæstri ofnanna í Járnblendiverksmiðjunni á Grund- artanga má benda á að hann þarf ekki vetni til þess, vatnsgufa nægir til þess að nýta orkuna sem er í kolmónox- íðinu til þess að mynda vetni. Getur verið að menn séu farnir að elta skottið á sjálfum sér hérna? Mest af því vetni sem framleitt er í heiminum í dag er notað til fram- leiðslu á köfnunarefnisáburði. Sú framleiðsla byggist á svokallaðri Ha- ber-Bosch framleiðslu á ammóníaki sem var fundin upp árið 1916. Í þess- ari framleiðslu er köfnunarefni and- rúmsloftsins bundið með hvarfi við vetni og myndefnið er ammóníak. Venjulegur köfnunarefnisáburður er ammóníum nítrat en það fæst með hvarfi ammóníaks við saltpéturssýru sem líka er framleidd úr ammóníak- inu. Ef vetni á Íslandi er svona ódýrt, eða verður það samanborið við annað vetni í náinni framtíð, ættum við byggja nýja áburðarverksmiðju, kannski margar slíkar, og selja heimsbyggðinni köfnunarefnisáburð framleiddan með vistvæna vetninu okkar. Af hverju flytur Ísland ekki út áburð í stórum stíl? Sigþór Pétursson fjallar um vetnisframleiðslu ’Mest af því vetni semframleitt er í heiminum í dag er notað til fram- leiðslu á köfnunarefn- isáburði. Sú framleiðsla byggist á svokallaðri Ha- ber-Bosch framleiðslu á ammóníaki sem var fund- in upp árið 1916. ‘ Sigþór Pétursson Höfundur er prófessor í efnafræði við Háskólann á Akureyri. Fyrir rúmum þrjá- tíu árum byggðu Ásta og Dalli sér hús, Ler- kilund 42. Við hjónin vorum svo heppin að verða nágrann- ar þeirra. Dætur þeirra Sigga og Drífa á sama aldri og okkar dætur. Á milli þeirra mynduðust sterk vin- áttutengsl sem haldist hafa síðan. Upp í hugann koma margar ljúfar minningar um þau ár sem við áttum samleið. Við munum samheldna fjöl- skyldu sem hafði gaman að ferðast um landið sitt, hvort heldur á bíl, gangandi eða á skíðum, fjölskyldu sem hafði áhuga á náttúru og ræktun landsins, fjölskyldu sem gott var að deila með gleði og sorg og lét sér annt um nágranna sína og vini. Það voru margar gleðistundir sem við nutum á heimili Ástu og Dalla. Hvort heldur það voru stórar veislur s.s. afmæli, fermingar, stúdenta- fagnaðir, gifting eða bara smá kaffi- sopi, alltaf var tekið á móti okkur með fallegu brosi, gleði og hlýju. Fyrir þetta allt viljum við þakka og einnig þá umhyggjusemi og góð- vild, sem dætur okkar nutu alla tíð og síðan barnabörn. Fyrir nokkrum árum, þegar dæt- urnar voru farnar að heiman, fluttu þau Ásta og Dalli í raðhúsaíbúð við Hjallalund. Einnig keyptu þau sér sumarbústað í Fnjóskadal þar sem þau undu sér vel. Í desember árið 2003 lést Dalli eft- ir erfið veikindi. Ásta hefur nú einnig kvatt okkur eftir langt og strangt veikindastríð. Elsku Sigga og Drífa, þið hafið sýnt mikla fórnfýsi og ótrúlegt þrek og styrk í veikindum foreldra ykkar og þótt Ásta fengi ekki að njóta fleiri ára með ykkur, eins og allir höfðu vonað, eru árin sem þið áttuð saman full af góðum minningum um góða foreldra sem settu velferð ykkar og fjölskyldunnar ofar öllu öðru. Við hugsum til ykkar, Sigga og Drífa, og biðjum góðan Guð að vaka yfir ykkur, Zoran og litlu barnabörn- unum sem voru sólargeislarnir í lífi foreldra ykkar. Blessuð sé minning þessara heið- urshjóna. Valgerður og Baldur. Flest fyrstu ár okkar systkina hóf- ust í Lerkilundinum hjá Ástu og Dalla þar sem þeim lauk einnig. Bingókúlur blönduðust við ártöl, flugelda, púðursykurstertur, brún- tertur, kjúklinga og franskar og há- tíðirnar eru í minningunni jafn mikið heima og heima hjá Ástu þar sem við vorum ávallt velkomin og fengum auk frábærra veitinga frú Ástu ávallt helling af lífsgleði og visku frá þeim hjónum og dætrum þeirra sem alla tíð hafa verið meðal okkar bestu og traustustu vina. Þetta eru minningar sem lykta vel og voru góðar á bragð- ið, þær eru hlýjar og bjartar eins og húsmóðirin sem hjálpaði til við að búa þær til. Fjölskyldurnar tvær voru alla tíð afar nánar og fóru oft saman í ferða- lög með alla hersinguna, bæði í sum- arbústaði handan fjalla og löndin handan hafsins. Þá lærðum við um allt það skrautlega fólk sem heim- sótti Akureyri í gegnum hótelstarfs- manninn Ástu og vitum innst inni að margir gestirnir komu aftur á Hótel KEA vegna alúðlegu konunnar í af- greiðslunni ekki síður en kirkju- trappanna sem voru fyrir ofan hót- elið. Þótt Ásta teljist aðeins tengd okk- ur var hún alltaf í okkar huga ein okkar nánasta frænka enda megna orðin kona bróður pabba engan veg- ÁSTA BJÖRG ÞORSTEINSDÓTTIR ✝ Ásta Björg Þor-steinsdóttir fæddist í Fagrabæ í Grýtubakkahreppi 5. desember 1937. Hún lést á Landspít- alanum í Reykjavík 9. júlí síðastliðinn og var jarðsungin frá Akureyrarkirkju 18. júlí. inn að fanga minningu okkar um þessa góðu konu. Síðustu ár Ástu voru oft þrautaganga. Hún missti Dalla sinn fyrir rúmum tveimur árum og hafði þá sjálf fyrir nokkru hafið erf- iða baráttu við eigin veikindi. Þau veikindi voru langvinn og erfið og stóðu þær Sigga og Drífa þétt við hlið móður sinnar í barátt- unni og stóðu sig eins og hetjur og létu fjarlægðina við æskustöðvarnar ekki stöðva sig í að hjálpa Ástu eins og hægt var. En þótt baráttan hafi verið erfið og tapast á endanum vitum við að hún var þess virði fyrir Ástu. Því hún fékk tækifæri til þess að kynnast margtyngdum barnabörnum sínum úr Ölpunum þeim Aleksandar, Söru og Davíð og eiga nokkrar lokastund- ir með dætrum sínum. Þá erum við einnig þakklát fyrir að börn Ár- manns, Vala Pauline og Ari Dal- mann, fengu tækifæri til þess að hitta Ástu skömmu fyrir andlátið. Nú er árum okkar með Ástu lokið í bili og erum við eilíflega þakklát fyr- ir þau. Siggu og Drífu, Zoran, Aleks- andar, Söru og Davíð sendum við okkar innilegustu samúðarkveðjur. Ármann, Auður og Ásgeir Ingólfsbörn. Nú kveðjum við kæra vinkonu sem við höfum átt samleið með í nærri hálfa öld. Við hittumst þegar við fór- um að vinna saman á Landsímanum á Akureyri um svipað leyti og þá myndaðist vinátta sem aldrei féll skuggi á. Í huga okkar er sár söknuður en líka þakklæti fyrir einstakan vin- skap. Ástu fylgdi ætíð gleði, gaman, gestrisni og hlýja. Við fórum saman í margar ferðir innanlands og utan – um fjöll og firnindi, í sumarbústaði og ótal matar- og kaffiboð. Alltaf var gleðin við völd hvar sem Ásta og hennar góða fjölskylda var með í hópnum. Það verður sárt að hittast án hennar en við getum yljað okkur við allar góðu minningarnar og þökkum af alhug fyrir liðnar stundir. Elsku Sigga Drífa og allir úr fjöl- skyldu Ástu, innilegar samúðar- kveðjur. Guð geymi þig, elsku Ásta. Þínar vinkonur, Edda, Erla og Kolbrún. MINNINGAR Morgunblaðið birtir minningar- greinar alla útgáfudagana. Skil Greinarnar skal senda í gegn- um vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is – smella á reitinn Senda efni til Morgunblaðsins – þá birtist valkosturinn Minningargreinar ásamt frekari upplýsingum. Skilafrestur Ef birta á minningar- grein á útfarardegi verður hún að berast fyrir hádegi tveimur virk- um dögum fyrr (á föstudegi ef út- för er á mánudegi eða þriðjudegi). Ef útför hefur farið fram eða grein berst ekki innan hins tiltekna skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áð- ur en skilafrestur rennur út. Lengd Minningargreinar séu ekki lengri en 2.000 slög (stafir með bilum - mælt í Tools/Word Count). Ekki er unnt að senda lengri grein. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur, og votta þeim sem kvaddur er virð- ingu sína án þess að það sé gert með langri grein. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Formáli Minningargreinum fylgir formáli, sem nánustu aðstand- endur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, fæddist, hvar og hvenær hann lést. Minningar- greinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.