Morgunblaðið - 19.07.2006, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 19.07.2006, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 19. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Mallorca í ágúst Viva Tropic 55.000,-Verð frá: 9. ágúst m.v. 2 fullorðna og 2 börn í viku. Viva Tropic – íbúðahótel Gestamóttaka 24/7 Strönd 200 m Bar Já Veitingastaður Já Sundlaug | Garður Já | Já Barnalaug | Leiksvæði Já | Já Sólbekkir | Handklæði Já | Já Skemmtidagskrá | Fyrir börn Já | Já Heilsurækt Já Tennisvöllur Já Aðstaða fyrir fatlaða Já Fyrsta flokks kostur á góðum stað í Alcúdia. Þægilegar íbúðir og sérlega skemmtilegt leiksvæði fyrir alla fjölskylduna. Sannarlega mikið fyrir lítið! – ERU BETRI EN AÐRAR! www.sumarferdir.is Sími 575 1515 KOMNIR FRÁ BEIRÚT Miklir fagnaðarfundir urðu í Leifsstöð í gær þegar Íslendingarnir sem voru í Beirút komust til Íslands eftir langt og strangt ferðalag allt frá því á sunnudagsmorgun. Þús- undir erlendra borgara hafa verið fluttar á brott frá Líbanon eftir að sprengjur Ísraelsmanna byrjuðu að falla á Beirút. Vill verja landbúnaðinn Geir Haarde forsætisráðherra leggur áherslu á að finna þurfi sátta- grundvöll þegar tekist er á um hvort hægt sé að grípa til breytinga á landbúnaðarkerfinu. Hann segist vilja standa vörð um landbúnaðinn og að stjórnarflokkarnir séu sam- stíga um það. Þrjár nýjar þyrlur Lagt er til í nýrri skýrslu um framtíðarskipulag þyrlubjörgunar- þjónustu að hjá Landhelgisgæslunni verði til frambúðar þrjár nýjar, stór- ar, langdrægar björgunarþyrlur auk TF-SIF, en Super Puma-vél Land- helgisgæslunnar, TF-LIF, verði seld. Mikill flótti frá Líbanon Talið er að um hálf milljón manna sé á flótta frá Líbanon eða hafi misst heimili sín þar undanfarna daga. Ísr- aelsher býst við bardögum í nokkrar vikur til viðbótar en sendinefnd SÞ hefur reynt að ná samkomulagi milli aðila. Hátt í 40 létust í átökum í gær. Tré á Suðurskautinu? Gangi spár bandarísks loftslags- sérfræðings eftir munu tré vaxa á Suðurskautslandinu eftir 100 ár. Ro- bert Dunbar prófessor segir að mikil losun koltvíoxíðs geti leitt til þess að hlýnunin verði svo mikil að tré og runnar geti þrifist á svæðinu. Y f i r l i t Í dag Sigmund 8 Umræðan 21/25 Fréttaskýring 8 Forystugrein 22 Viðskipti 12 Bréf 24 Verið 13 Minningar 26/29 Erlent 14/15 Myndasögur 32 Minn staður 16 Dagbók 32/35 Akureyri 17 Staður og stund 34 Suðurnes 18 Leikhús 36 Höfuðborgin 19 Bíó 38/41 Landið 19 Ljósvakamiðlar 42 Menning 19 Veður 43 Daglegt líf 20 Staksteinar 43 * * * Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jó- hann Björnsson, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Auður Jóns- dóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is                                 ! " # $ %           &         '() * +,,,                         Eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl.is Á FUNDI Hitaveitu Suðurnesja með varnarliðinu í gærmorgun var rætt með hvaða hætti gengið yrði lögformlega frá samningsriftun þess síðar- nefnda. Að sögn Júlíusar Jónssonar, forstjóra HS, skýrðu fulltrúar varnarliðsins á fundinum hvaða þarfir varnarliðið hefði í framtíðinni, t.d. hvaða hús væri nú þegar ljóst að varnarliðið hefði þörf fyrir að kaupa heitt vatn fyrir, en þeirra á meðal eru t.d. byggingar sem NATO er með. „Síðan fóru þeir yfir lagalegu hliðina og óskuðu eftir því, án nokkurrar ábyrgðar, að við settum fram okkar kröfur með formlegum hætti, sem við komum til með að gera í næstu viku, en ráðgert er að funda í framhaldinu af því, þ.e. í ágústbyrjun,“ segir Júlíus og tekur fram að þessi viðbrögð varn- arliðsins lofi góðu, en hins vegar sé enn ekkert í hendi. Lögfræðingum falið að útbúa kröfugerð Eins og fram hefur komið telja stjórnendur Hitaveitu Suðurnesja það samningsbrot af hálfu varnarliðsins að segja samningnum upp fyrirvara- laust, en í viðauka við hitaveitusamning HS við varnarliðið frá árinu 1998 er tekið fram að varn- arliðið megi minnka magnkaup sín hjá HS um 4% á ári. Þar er einnig kveðið á um það að aðiljar semji um ákveðna greiðslu, fari varnarliðið af landi brott, en engrar ákveðinnar upphæðar er getið í viðaukanum. Aðspurður sagðist Júlíus að svo stöddu ekki geta nefnt neinar tölur í þessu samhengi. Segir hann lögfræðinga fyrirtækisins munu fara yfir það á næstu dögum hverjar kröfur HS verði. Segir hann kröfugerðina m.a. munu byggjast á því tekjutapi sem HS verði fyrir við samningsrift- unina, þeim kostnaði sem HS hefur lagt í mann- virki til að uppfylla þarfir varnarliðsins sem ekki munu lengur nýtast og einnig kostnaði við að fjar- lægja slík mannvirki. Spurður hvenær ráðgert sé að niðurstöður samninga liggi fyrir svarar Júlíus því til að best sé auðvitað að þær liggi fyrir sem fyrst. Fulltrúar varnarliðsins ræddu við stjórnendur Hitaveitu Suðurnesja í gær Hafa óskað eftir lögform- legum kröfum frá HS HULDA Bryndís og Hekla Kaðlín báru birgðir af rab- arbara á göngu í Kópavogi. Sumum þykir gott að gæða sér á honum ferskum en aðrir kjósa að sjóða hann og laga til dæmis rabarbaraböku eða rabarbarasultu. Samkvæmt nýrri spá Veðurstofu Íslands verður hitastig á landinu næstu daga enn hærra en spár sem gerðar voru fyrr í vikunni gerðu ráð fyrir, auk þess sem ekki verður jafnblautt. Spáð er breytilegri átt eða hafgolu og bjartviðri fram á laugardag þó sums staðar verði þokuloft við ströndina. Hlýtt verði í veðri og hiti um eða yfir 20 stig í innsveitum þar sem hlýjast verður. Gerir spáin ráð fyrir því að veðrið haldist í svipuðu horfi fram yfir helgina. Veðurstofa Íslands spáir enn betra veðri á landinu Morgunblaðið/Eggert Á rölti heim með rabarbara „ÞAÐ eru vonbrigði að þetta hafi gerst,“ segir Geir H. Haarde um þær fréttir að matsfyrirtækið Standard & Poor’s hefur lækkað lánshæfismat Íbúðalánasjóðs. „En eins og framkvæmdastjóri sjóðsins hefur bent á, er það ekki alveg óviðbúið eða óvænt en er ákveðin viðvörun.“ Hann segist taka undir að heppi- legt sé að því óvissuástandi sem rík- ir um framtíð sjóðsins og hugsan- lega hefur áhrif á lánshæfismatið ljúki. „Það er unnið að því undir for- ystu félagsmálaráðherra að móta framtíðarstefnu í málefnum sjóðs- ins,“ segir Geir, sem jafnframt seg- ist helst ekki vilja að það mál drag- ist fram yfir kosningar. „Lækkunin sveif yfir vötnum“ Magnús Stefánsson félagsmála- ráðherra sagðist í sjálfu sér fátt hafa um málið að segja en vísaði til þess sem kom fram hjá fram- kvæmdastjóra sjóðsins í Morgun- blaðinu. „Þetta sveif yfir vötnum og ég átti jafnvel von á því.“ Aðspurður segir hann að aldrei sé hægt að vita hvort um verði að ræða langvarandi ástand. Verið sé að skoða málefni sjóðsins. Vonbrigði með láns- hæfismat LÖGREGLAN í Reykjavík hefur til skoðunar erindi Þorsteins Ingasonar varðandi ætluð brot innri endur- skoðanda KB banka sem lúta að ólögmætum viðskiptaháttum. Sam- kvæmt upplýsingum frá lögreglunni barst erindið síðastliðinn vetur og hefur síðan þá verið til meðferðar hjá lögreglunni. Engin ákvörðun hafi hins vegar verið tekin um framhald málsins og enginn hafi verið boðaður í skýrslutökur vegna þess né gefin út ákæra. Erindið varðar skjal frá útlánaeft- irliti Búnaðarbanka Íslands sem á að hafa verið notað í viðskiptum með refsiverðum hætti. Skjalið inniheld- ur reiknað vaxtatap bankans vegna viðskipta við fyrirtæki Þorsteins árið 1988 en hann telur forsendur bank- ans við útreikningana rangar. KB banki hefur sent frá sér yf- irlýsingu vegna umfjöllunar um sam- skipti bankans við Þorstein. Þar kemur meðal annars fram að bank- inn telji kæruna með öllu tilhæfu- lausa en hvorki bankanum né innri endurskoðanda bankans hafi borist fyrirspurnir frá lögreglu vegna málsins. Málið eigi rætur sínar að rekja til ársins 1988 og Fjármálaeft- irlitið hafi eftir skoðun þess ekki tal- ið tilefni til aðgerða. „Af bankans hálfu er ekkert því til fyrirstöðu að þessi ágreiningur milli bankans og Þorsteins Ingasonar verði leiddur til lykta fyrir dómstól- um. Þorsteinn Ingason hefur marg- ítrekað höfðað slíkt mál gegn bank- anum en jafnan fallið frá málsókn að eigin frumkvæði,“ segir í yfirlýsingu bankans. Vilja leiða ágrein- ing til lykta fyrir dómstólum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.