Morgunblaðið - 19.07.2006, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. JÚLÍ 2006 9
FRÉTTIR
Opið virka daga frá kl. 10-18 Laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigi 5
• Sími 581 2141
Meiri útsöluafsláttur
Tískuverslun
Eiðistorgi 13, 2. hæð á torginu Sími 552 3970
Finnur þú ekki stærðina þína? Gerum buxur eftir pöntun.
ÚTSALA
Opið:
mán.-fös. kl. 14-18.
Stærðir 38-50
Til og með 31. júlí
ÚTSALA
Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík, sími 562 2862
Nýbýlavegi 12, Kóp.,
sími 554 3533
gæði og glæsileiki
Ú
t
s
a
l
a
Ú
t
s
a
l
a
40%
afsláttur
FASTEIGNA-
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Netfang: fastmark@fastmark.is - heimasíða: http://www.fastmark.is/
Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteignasali. Guðmundur Th. Jónsson, lögg. fasteignasali.
Unnar Smári Ingimundarson, viðskiptafr. og lögg. fasteignasali.
Verslun fyrir þig!
Einstök perla
Nú er tækifærið
Verslunin Flex, Bankastræti 11, er til sölu.
Flex hefur frá árinu 1984 skapað sér einstakan sess
sem verslun með hágæða fatnað og fylgihluti fyrir konur
með persónulegan stíl.
Frábær staðsetning, langtíma leigusamningur.
Upplýsingar gefur Jón Guðmundsson.
Útsala — Útsala
40% af öllum vörum
Opið virka daga 10-18 • laugardaga 10-16Nýbýlavegi 12, Kóp. • sími 554 4433
STRANGAR kröfur eru gerðar til
hvers konar starfsemi sem fram fer
á vatnasviði Þingvallavatns í reglu-
gerð sem umhverfisráðherra hefur
samþykkt. Í reglugerðinni er sett sú
almenna regla að óheimilt sé að
gera nokkuð það sem spillt geti
vatni eða mengað, hvort sem um er
að ræða yfirborðsvatn eða grunn-
vatn.
Reglugerðin byggir á lögum um
verndun Þingvallavatns og vatna-
sviðs þess sem samþykkt voru árið
2005. Til eru nokkur dæmi þess að
sett hafi verið lög um einstök vatna-
svið en hér á landi eru ekki til nein
almenn lög um verndun grunnvatns
eða nytjavatns. Lögin skilgreina
svæðið frá vatnaskilum í Hengli til
Langjökuls sem vatnasvið Þingvall-
arvatns og nýtur það verndar lag-
anna. Reglugerðin, sem umhverf-
isráðherra hefur nú samþykkt,
kveður nánar á um framkvæmd
verndunar vatnasviðsins.
Samkvæmt reglugerðinni verður
almennt óheimilt að gera nokkuð
það sem spillt getur vatni eða meng-
að, hvort sem um er að ræða yf-
irborðsvatn eða grunnvatn. Þá er
óheimilt að raska búsvæðum og
hrygningarstöðvum bleikjuafbrigða
og urriðastofna sem lifa í Þingvalla-
vatni. Innan verndarsvæðisins verða
gerðar strangari kröfur varðandi
frárennsli frá byggingum, lagningu
og viðhald vega og einnig til þunga-
flutninga og flutninga á hættulegum
efnum. Þá verða gerðar ítarlegar
kröfur til ræktunarframkvæmda og
varðandi notkun áburðar. Í lög-
unum sjálfum er kveðið á um að
fiskirækt í Þingvallavatni og ná-
grenni þess sé óheimil.
Samkvæmt reglugerðinni skal
Heilbrigðisnefnd Suðurlands, í sam-
ráði við sveitarstjórnir á vernd-
arsvæðinu, gera aðgerðaáætlun fyr-
ir verndun vatns sem
umhverfisráðherra samþykkir. Að-
gerðaáætlunina á að kynna fyrir
hagsmunaaðilum með áherslu á að
koma upplýsingum til ábúenda,
sumarhúsaeigenda og aðila í þjón-
ustustarfsemi.
Vatnasvið Þing-
vallavatns verndað
Vandað og mjög vel staðsett tvílyft
213 fm einbýlishús með 42,5 fm
bílskúr og fallegum garði. Á 1. hæð
er forstofa, hol, stofa og borðstofa,
sólstofa, eldhús, tvö herbergi og
baðherb. Í risi er stórt herb. og tvö
minni auk baðherbergis og geymslu.
Arinn og sólstofa. Áhv. 23 millj. á
4,15 % vöxtum. V. 41,0 m. 5413
Sverrir Kristjánsson, löggiltur fasteignasali
Langagerði - Laus fljótlega
BORGARSTJÓRI Reykjavíkur segir
vel geta verið að hagsmunum borg-
arinnar sé betur borgið utan byggða-
samlagsins sem stendur að Strætó bs.
Hann segist alls ekki útiloka að
Reykjavíkurborg dragi sig út úr sam-
laginu. Skoða verði rekstur fyrirtæk-
isins sem og leiðarkerfið. Breytingar
á því hafi ekki heppnast nægilega vel.
Borgarstjóri ætlar að beita sér fyrir
því að þjónusta Strætó við Árbæjar-
og Seláshverfi verði sérstaklega skoð-
uð þannig að hún verði ekki lakari en
við önnur hverfi borgarinnar. Leiðin
S5, sem er hraðleið frá miðbæ
Reykjavíkur til Árbæjar og Seláss,
hefur verið lögð niður.
„Það er auðvitað alveg ljóst að við-
skilnaður fráfarandi stjórnar og stað-
an í dag er alls ekki nægilega góð,“
segir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
borgarstjóri, aðspurður um niður-
skurðaraðgerðir Strætó bs. „Það þarf
að skoða rekstur fyrirtækisins og
leiðakerfið og við verðum að gefa okk-
ur einhvern tíma til þess. Við verðum
líka að skoða hvort við höldum þessu
samstarfi áfram með þessum hætti.
Það er mjög áleitin spurning. En ég
held að það geti allir skilið að það er
ekki hægt að halda áfram með rekst-
urinn á þann veg sem við stöndum
frammi fyrir í dag, þar sem fyrirtækið
er að skila 400 milljón króna halla um-
fram það sem búið var að áætla í byrj-
un ársins. Þetta eru verulega miklir
fjármunir. Ég held að borgarbúar
hljóti að skilja það.“
Borgin hugsanlega
út úr Strætó bs.
Þjónusta við Árbæ og Selás verði skoðuð