Morgunblaðið - 19.07.2006, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 19.07.2006, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. JÚLÍ 2006 11 FRÉTTIR RÍKISSTJÓRNIN ræddi skýrslu formanns matvælaverðsnefndar á fundi sínum í stjórnarráðinu í gær. Í samræðum við blaðamenn eftir fund- inn lagði forsætisráðherra nokkra áherslu á að finna þyrfti sáttagrund- völl þegar tekist væri á um hvort hægt væri að grípa til breytinga á landbúnaðarkerfinu, í því skyni að lækka matvælaverð. Hins vegar úti- lokaði hann ekkert um hvað tillögur ríkisstjórnarinnar myndu fela í sér. Ekki reynt á ágreining „Við ræddum skýrsluna en höfum enn ekki tekið afstöðu til einstakra þátta í henni. Við munum gera það á næstu vikum og gera það upp við okkur hverju af þessu er grundvöllur fyrir að hrinda í framkvæmd,“ sagði Geir. Hann segist telja að ýmsar gagnlegar upplýsingar séu í skýrsl- unni. „En það liggur fyrir að það eru deildar meiningar um þessi mál úti í þjóðfélaginu og eins áreiðanlega inn- an stjórnmálaflokkanna.“ Aðspurður um hvort ágreiningur sé innan ríkisstjórnarinnar segir hann ekki farið að reyna á það ennþá en að það muni koma í ljós. „Við í for- sætisráðuneytinu munum eðli máls- ins samkvæmt hafa forystu um sam- vinnu við hin ráðuneytin sem fyrst og fremst eiga hlut að máli, það eru fjár- mála-, landbúnaðar-, viðskiptaráðu- neytið og ef til vill fleiri. Við reynum að gera okkur grein fyrir því hvað hægt sé að gera innan þess svigrúms sem ríkissjóður hefur,“ sagði Geir en ljóst er að nokkur kostnaður fylgir sumum af tillögunum sem settar eru fram í skýrslunni. Hins vegar telur hann að lækkun matvælaverðs hefði jákvæð áhrif á verðbólgu þegar og ef slíkt kæmi til framkvæmda. „Auðvitað ríkir samkeppni“ „Svo eru þarna einnig tillögur um að lækka gjöldin á sælgæti og gos- drykki undir því yfirskini að um sé að ræða matvæli. Við vorum ekki mjög hrifin af þeirri hugmynd í rík- isstjórninni,“ sagði hann jafnframt og efaðist um að slíkt teldist til mat- væla þótt menn legðu sér það til munns. Geir sagði skatta og gjöld ekki endilega úrslitaþátt varðandi verð- lag. „Auðvitað skipta þeir máli en líka önnur atriði eins og samkeppn- isumhverfi á markaði. Það er ekki endilega víst, jafnvel þótt skattur yrði lækkaður á t.d. sælgæti, að það hefði áhrif til verðlækkunar því það er markaðsástandið sem ræður því.“ Segir ekki til um eigin forgangsröðun ennþá Aðspurður hvort hann sé sammála því að hörð samkeppni ríki á smá- sölumarkaði með matvöru hérlendis svarar hann: „Auðvitað ríkir sam- keppni á þessum markaði.“ Flestar af tillögunum í skýrslunni kalla á lagabreytingar. Um það hvort frumvarp um lagabreytingar til lækkunar matvælaverðs gæti komið fram á næsta þingvetri segir Geir allt geta gerst í þeim efnum. En hefur hann sjálfur áhuga á að hrófla við landbúnaðarkerfinu? „Ég held að það sé ýmislegt þar sem bet- ur megi fara. En ég vil hins vegar standa vörð um landbúnaðinn, það hefur minn flokkur alltaf gert og stjórnarflokkarnir eru í sjálfu sér ágætlega samstíga um það. Hitt er annað mál að það eru breytingar í að- sigi í landbúnaðinum, að hluta til vegna alþjóðlegra samninga. Við þurfum að undirbúa okkur og það hefur landbúnaðurinn verið að gera. Hvort hægt er að gera eitthvað enn meira er spurning sem við þurfum að taka afstöðu til,“ segir Geir sem þó vildi ekki segja til um hvað hann sjálfur myndi setja í forgang. Aðspurður um hvort hann sé sam- mála því sem ASÍ hefur haldið fram, að afnám verndartollanna myndi hafa úrslitaáhrif á matarverð, segist hann heldur ekki vilja taka afstöðu til þess núna. „Þarna eru auðvitað mjög ólík sjónarmið á ferðinni og menn þurfa að finna einhvern sátta- grundvöll. Það þýðir ekki að vaða yf- ir tilteknar atvinnugreinar með ein- hverjum þjösnaskap.“ Ekki aðgerðir vegna olíuverðs Aðspurður um metverð á bensíni og hvort gripið verði til sértækra að- gerða sagði Geir: „Ef við værum 100% viss um að þetta væri tíma- bundin hækkun á heimsmarkaði myndi tímabundin lækkun gjalda koma til álita, en því miður er ekkert sem bendir til að ástandið á heims- markaði sé þess eðlis að verðið lækki hratt aftur.“ Forsætisráðherra segir að ríkisstjórnin muni taka afstöðu til skýrslu um matvælaverð á næstu vikum Morgunblaðið/ÞÖK „Það eru breytingar í aðsigi í landbúnaðinum, að hluta til vegna alþjóðlegra samninga,“ minnti Geir á í gær. „Ég vil standa vörð um land- búnaðinn“ Geir H. Haarde segir ýmislegt mega betur fara í landbúnaðarkerfinu, en stjórnarflokkarnir séu ágætlega samstíga um að standa vörð um landbún- aðinn. Anna Pála Sverrisdóttir náði tali af Geir. aps@mbl.is „ÞETTA ER frábært hjá þér,“ sögðu starfsmenn Reykjavíkurborg- ar við Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson borg- arstjóra er hann hafði lokið við að hreinsa veggjakrot við gæsluvöll í Efra Breiðholti í gær. Vilhjálmur kynnti á gæsluvellinum fegrunar- átak undir slagorðinu Tökum upp hanskann fyrir Reykjavík en því verður ýtt úr vör í Breiðholti, einu fjölmennasta hverfi borgarinnar, nk. laugardag. Allir sem vettlingi geta valdið eru hvattir til að taka þátt í að fegra hverfið sitt og er ætlunin að tína rusl, hreinsa veggjakrot, leggja þökur, sópa, bæta girðingar og laga net í fótboltamörkum hverfisins, svo dæmi séu tekin. Eru íbúar hvattir til að mæta kl. 11 við Breiðholtslaug, Hólmasel eða Breiðholtsskóla og taka til hendinni ásamt forsvars- mönnum fyrirtækja á svæðinu, borg- arstarfsmönnum og borgarfulltrúum sem sjálfir ætla að hjálpa til. „Borgaryfirvöld langar að gera meira átak en verið hefur í því að hreinsa og fegra borgina og ekki virðist veita af,“ sagði Vilhjálmur við blaðamenn á gæsluvellinum í gær. „Víða er sóðaskapur, veggjakrot og óhirtir gæsluvellir og leiksvæði.“ Vilhjálmur sagði að átak hefði þegar verið gert í sumar í að hreinsa götur og gangstéttir. Eftir fegr- unarátakið í Breiðholti um helgina verði síðan metið hvort farið verður í svipað átak í öðrum hverfum. Að hreinsun lokinni á laugardag verður boðið í kaffi og með því, sem og skemmtiatriði kl. 16–17. „Við telj- um að það þurfi að verða hugarvakn- ing meðal borgarbúa, ekki aðeins meðal borgaryfirvalda,“ sagði Vil- hjálmur. Hann sagði meirihlutann í borg- inni vilja bæta stjórnsýslu hennar þannig að hún sinni fegrun allt árið um kring. „Við skorum á Breiðhylt- inga og við skorum á borgarbúa að fara að hugsa meira um þessi mál.“ Morgunblaðið/ÞÖK „Það er eins og hann hafi ekki gert annað,“ var m.a. sagt um vinnu Vil- hjálms Þ. borgarstjóra við að hreinsa veggjakrot í Breiðholti. Vill vakningu meðal borgarbúa HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hefur dæmt íslenska ríkið til að greiða konu sem fæddi barn sitt á Landspítalanum fyrir sjö árum 1 milljón króna í miskabætur vegna stórfellds gáleysis fagfólks við fæð- inguna. Barnið var tekið með keis- araskurði en of lengi dróst að fram- kvæma skurðinn og varð að nema á brott leg konunnar vegna blæðinga. Að mati dómsins hefði fagfólkið átt að gera sér grein fyrir þeirri hættu sem að steðjaði við það að of langur tími leið frá því að útvíkkun lauk þar til barnið fæddist. Skaðabótakröfu konunnar upp á 2,5 milljónir kr. vegna ættleiðingar var hins vegar vísað frá dómi, en fram kom að kon- an hugðist eignast þrjú börn. Í greinargerð Reynis Tómasar Geirssonar, forstöðulæknis kvenna- deildar LSH, segir að um leitt slys hafi verið að ræða sem varð vegna einlægrar tilraunar til þess að hjálpa við að láta ósk um eðlilega fæðingu rætast og barn fæðast um leggöng. Í álitsgerð nefndar um ágreinings- mál um heilbrigðisþjónustu segir að ljóst sé að konan hafi verið látin rembast of lengi þar sem brestur kom í legið við áreynsluna. Taldi nefndin það ámælisvert hve konan hafi verið látin rembast lengi án þess að nokkur framgangur yrði í fæðing- unni. Í bréfi landlæknis um málið sagði þá að of langur tími hefði liðið frá lokum útvíkkunar þar til barnið fæddist, eða 6 tímar. Hefði hæfilegur tími átt að vera helmingi styttri. Kristjana Jónsdóttir héraðsdóm- ari dæmdi málið. Guðmundur Yngvi Sigurðsson hdl. flutti málið fyrir konuna og Skarphéðinn Þórisson ríkislögmaður fyrir stefnda. Ein milljón í bætur Fagfólk sýndi gáleysi við fæðingu barns AÐ MATI Samtaka ferðaþjónust- unnar ber brýna nauðsyn til að lækka matarverð á Íslandi. Þetta kemur fram í ályktun sem samtökin sendu nýverið frá sér. Segja samtök- in ófremdarástand ríkja í samkeppn- ismálum veitingastaða vegna skatt- kerfisins þar sem sama varan sé seld með mismunandi virðisaukaskatti. Í samtali við Morgunblaðið sagðist Erna Hauksdóttir, framkvæmda- stjóri samtakanna, fagna nýrri skýrslu matvælanefndar ríkisstjórn- arinnar. Hins vegar segir hún það auðvitað ákveðin vonbrigði að ekki hafi náðst samstaða í nefndinni um breytingar. Að sögn Ernu er veit- ingasala einn af stóru stoðunum und- ir ferðaþjónustuna hérlendis, því all- ir ferðamenn þurfi jú að borða og því gríðarlega mikilvægt að geta selt mat á þokkalegu verði. Bendir Erna á að veitingamenn hafi lagt mikla áherslu á að tollar verði afnumdir og að öll sala matvæla sé í sama virð- isaukaþrepi, sama hvar og hvernig hún sé seld. Segir Erna ekki eðlilegt að nákvæmlega sami skyndibitinn lendi í tveimur ólíkum skattþrepum eftir því hvar hann sé seldur og af hverjum. Að sögn Ernu er mikilvægt að skattkerfið verði einfalt, sanngjarnt og gegnsætt, því það leiði samtímis til minni undanskota. Segir hún veit- ingamenn lengi hafa bent á slæma stöðu sína en þeir eru ásamt öðrum fyrirtækjum í ferðaþjónustu í mikilli samkeppni á alþjóðavettvangi. „Samtökin skora því á ríkisstjórnina að koma þessum brýnu hagsmuna- málum jafnt almennings sem at- vinnulífsins í viðunandi horf sem allra fyrst,“ segir Erna og tekur fram að hún vænti þess að þetta verði eitt fyrsta mál komandi þings. Hvetja til lækk- unar matvæla- verðs sem fyrst STURLA Böðvarsson samgöngu- ráðherra hefur skipað stýrihóp til að vinna að forathugun og eftir atvikum forhönnun og hönnun hafnar í Bakkafjöru. Meðal þess sem hópn- um er falið að kanna er að Siglinga- stofnun verði falið að ljúka nauðsyn- legum frumrannsóknum í Bakka- fjöru, fram fari þarfagreining á nýrri ferju, sem sigla skal milli Vest- mannaeyja og Bakkafjöru, þannig að tryggt verði að hún anni flutnings- þörf. Kannað verði hvort hagkvæmt sé að byggja stærri höfn í Bakka- fjöru en Siglingastofnun gerir ráð fyrir í athugunum sínum. Skal hóp- urinn einnig láta meta hvers konar skip henti til siglinga á þessari leið. Stýrihópnum er falið að taka strax til starfa. Stýrihópur kanni höfn í Bakkafjöru

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.