Morgunblaðið - 19.07.2006, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. JÚLÍ 2006 15
ERLENT
B&L verslun og varahlutir
Brú
Shell
Fossháls
Kaíró. AFP. | Skiptar skoðanir eru
meðal araba á Hassan Nasrallah,
leiðtoga Hizbollah-samtakanna, eftir
að Ísraelar hófu loft-
árásirnar á Líbanon.
Margir líta á Nasrallah
sem hetju fyrir að
bjóða Ísraelum birginn
en aðrir gagnrýna hann
fyrir glæframennsku.
Leiðtogar araba-
ríkja, álitsgjafar og fólk
á götunum virðast vera
á báðum áttum um
Nasrallah.
„Hizbollah er meist-
ari í andspyrnu. Hiz-
bollah er rödd arab-
ískrar reisnar,“ skrifaði
Mustafa Bakri í
egypska dagblaðið Al-
Osboa. „Hizbollah-
menn eru verndarar palestínsku
þjóðarinnar hér í þessum heims-
hluta.“
Dagblöð í fleiri arabalöndum hafa
tekið í sama streng og farið lofsam-
legum orðum um Nasrallah fyrir að
standa uppi í hárinu á Ísraelum sex
árum eftir að Hizbollah „sparkaði
ísraelskum hersveitunum út úr
suðurhluta Líbanons“, eins og eitt
blaðanna orðaði það.
„Nýja hetjan okkar“
Mótmælagöngur hafa verið skipu-
lagðar í Kúveit, Írak, Sýrlandi og á
svæðum Palestínumanna til stuðn-
ings Hizbollah sem hefur svarað loft-
árásum Ísraela með því að skjóta
flugskeytum á borgina
Haifa og bæi í Ísrael. Í
Egyptalandi hafa mót-
mælin þó verið miklu
fámennari en í aðdrag-
anda innrásarinnar í
Írak þegar 140.000
manns söfnuðust sam-
an til að láta í ljós
stuðning við Íraka og
Saddam Hussein, sem
margir litu á sem hetju
arabaheimsins fyrir að
bjóða Bandaríkjastjórn
birginn.
„Við höfum and-
styggð á arabískum
stjórnvöldum. Þessi
maður er nýja hetjan
okkar,“ sagði egypsk blaðakona sem
hélt á mynd af Nasrallah á fremur
fámennum mótmælafundi í Kaíró í
fyrradag. „Ráðamennirnir færa okk-
ur ekki frið, heldur gera okkur að
þrælum Vesturlanda sem styðja ríki
síonista.“
„Nasrallah er mikill baráttu-
maður, en hver er tilgangurinn með
þessum þjáningum?“ sagði 42 ára
ríkisstarfsmaður sem fylgdist með
mótmælunum. „Hizbollah getur ráð-
ist á Haifa, eða Tel Aviv. Hvað svo?
Ef stríð blossar upp þá sigra Ísrael-
ar. Hvorki Nasrallah né Sýrland get-
ur sigrað Ísrael og Bandaríkin, það
vita allir.“
Ríkisstjórnir nokkurra arabalanda
hafa gagnrýnt Nasrallah, ekki síður
en Ísraela, fyrir „glæframennsku“
sem gæti leitt til allsherjarstríðs í
Mið-Austurlöndum. „Með því að
kveikja ófriðarbál, sem leiðir til lítils
ávinnings, missa menn sjónar á því
meginmarkmiði Palestínumanna að
stofna sjálfstætt ríki,“ sagði Hosni
Mubarak, forseti Egyptalands.
Arabísk
hetja eða
glæframaður?
Skiptar skoðanir á leiðtoga Hizbollah
)
*
+
+
)
*
/
+ ) *
,"- ./!' ' #! "" -0" !' %-1 "- 2 -" - " * #"
0"2" , 3 - 4- $5'6#-5" - ! 4- 02 -0 -" 0 #"
! "#$
P
$
$5' 7
+ 8
2E //. //
"O# E /. /
9'' :1 2E //
63/ *O# E /
0# **E
#
6+1 2E //
63/ *O# E /
0# **E #
6*; <06
2E //
63/ *O# E /
0# **E
#
=6 -0>
63/ *O# E /
0# **E #
%
&' % 9 < ? ,
?
@
A
B
6
C
D
.
#($(
Q/* *
*/O .
* O2
?* =O2 # 4 2 + =2 6 P$ ; *#/
#2 RP / # $ 2 # # ** # *# /
S0 2 3 A
$3 A / 2
&4T 4T 2 =
!" #$%
& '
()*
)
- Hassan Nasrallah
Peking. AFP. | Hagvöxtur í Kína á
öðrum fjórðungi þessa árs var 11,3
prósent, en það er hraðasti vöxtur
hagkerfisins í um áratug.
Þetta kom fram í opinberum töl-
um kínverskra stjórnvalda í gær, en
það kom sérfræðingum á óvart að
þetta fjórða stærsta hagkerfi heims
skyldi vaxa jafn hratt á tímabilinu.
Vöxturinn er einkum rakinn til
mikilla fjárfestinga, meðal annars í
nýjum verksmiðjum og búnaði, en
margir hagfræðingar telja að grípa
þurfi til vaxtahækkana til að slá á
þensluna. Útlánsvextir voru síðast
hækkaðir í apríl, eftir að tilkynnt var
um 10,3 prósenta hagvöxt á fyrsta
fjórðungi þessa árs.
Lítil verðbólga
Hvað snertir aðgerðir kínverska
seðlabankans til að slá á þensluna
segja sérfræðingar að ein af ástæð-
unum fyrir því að bankinn hafi enn
ekki gripið til strangra aðhaldsað-
gerða nú sé sú að verðbólga í landinu
sé lág um þessar mundir.
Þannig hækkaði vísitala neyslu-
verðs aðeins um 1,4 prósent á öðrum
fjórðungi ársins, miðað við sama
tímabil í fyrra. Þá var viðskiptajöfn-
uður við útlönd jákvæður um sem
nemur um 61,4 milljörðum Banda-
ríkjadala, eða sem svarar um 4.650
milljörðum íslenskra króna.
Kínversk stjórnvöld létu í júlí-
mánuði 2005 undan miklum þrýst-
ingi helstu viðskiptaríkja sinna og
endurskoðuðu gengi júansins um 2,1
prósent gagnvart Bandaríkjadal. Í
þetta sinn er óvíst hvort stjórnvöld
muni endurtaka leikinn og jafnframt
hækka vexti.
Methag-
vöxtur
í Kína