Morgunblaðið - 19.07.2006, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 19.07.2006, Qupperneq 16
Mývatnssveit | Sigurgeir Jónasson, bóndi í Vog- um, horfir ánægður á sláttuvélina vinna sitt verk á túninu hans í Vinkilsrjóðri. Þeir eru að hefja slátt á heimatúnum þessa dagana, Vogabændur. Aðrir í sveitinni hafa ekki byrjað slátt enda skemmdir á túnum víða. Nokkrir sækja hins vegar heyskap niður í dali og bæta sér þannig upp tjónið í bráð. Sigurgeir segir túnið hafa verið það fyrsta sem hann braut til ræktunar, með hesti og plógi, nýút- skrifaður búfræðingur frá Hvanneyri. Þaðan kom hann með verðlaun fyrir dugnað. Að sögn sveitunga hans hefur dugnaðurinn ekk- ert minnkað í áranna rás nema síður sé og það ættu þeir að þekkja. Morgunblaðið/Birkir Fanndal Hefja slátt á heimatúnum Í Vinkilsrjóðri Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Landið Minnstaður Höfuðborgarsvæðið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is sími 569-1100. Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri sími 569-1100, Skapti Hallgrímsson, skapti@mbl.is, 669-1114. Vesturland Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Mínstund frett@mbl.is Tólf sækja um Norðurþing | Alls bárust tólf umsóknir um stöðu sveitarstjóra Norðurþings og eru umsækjendur eft- irfarandi: Arinbjörn Kúld viðskiptafræð- ingur, Ásmundur Richardsson viðskipta- fræðingur hjá Neytendasamtökunum, Friðfinnur Hermannsson fram- kvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga, Garðar Jóhannesson fram- kvæmdastjóri MT-bíla, Guðmundur Rúnar Svavarsson framkvæmdastjóri Kerhóls hf., Helgi S. Harrýsson fram- kvæmdastjóri Marvin ehf., Jón Óskar Þórhallsson skrifstofustjóri Opinna kerfa ehf., Óskar Marinó Sigurjónsson bílstjóri, Róbert Trausti Árnason rekstr- arráðgjafi, Sigríður Hrönn Elíasdóttir ráðgjafi, Veturliði Þór Stefánsson sendi- ráðsritari og Sigurjón Benediktsson tannlæknir.    Umhverfisverðlaun | Fyrirhugað er að veita viðurkenningu fyrir fallegustu lóð og snyrtilegasta umhverfi á einkagarði, stofnun, sveitabýli eða fyrirtæki í Dal- víkurbyggð. Þetta hefur ekki verið við- haft áður hér í byggðarlaginu. Sett hefur verið saman 5 manna nefnd sem mun á næstu dögum fara um byggð- arlagið og skoða garða einstaklinga og umhverfi fyrirtækja og vonast nefnd- armenn eftir góðum viðtökum að því er fram kemur á vef sveitarfélagsins. Stefnt er að því að tilkynna valið á Fiskidaginn mikla og veita viðkomandi viðurkenningarskjöl. Íbúar í Dalvík- urbyggð eru hvattir til að taka þátt og um leið stuðla að því að komið verði á skemmtilegri hefð í byggðarlaginu.    Kynjaskipting | Athyglisvert er að skoða kynjaskiptingu í nýjum nefndum hjá Sveitarfélaginu Skagafirði segir á vef þess. Ef skoðaðir eru aðalfulltrúar í nefndum og ráðum eru 48% fulltrúa kon- ur og 52% karlar. Séu hins vegar vara- fulltrúar taldir með eru 55% fulltrúa konur og 45% karlar. Í sveitarstjórn voru kosnar þrjár konur og sex karlar. Tvær nefndir eru eingöngu skipaðar konum, félags- og tómstundanefnd og menningar- og kynningarnefnd, en ein nefnd, atvinnu- og ferðamálanefnd er eingöngu skipuð körlum. Fimm nefndarformenn eru karlar en fjórum nefndum er stýrt af konum. Úr bæjarlífinu HÉÐAN OG ÞAÐAN Eigendur Fjöru-hússins á Helln-um í Snæfellsbæ, hjónin Kristján Gunn- laugsson og Sigríður Ein- arsdóttir, hafa fest kaup á farþegabát sem er af gerðinni Arctic Blue. Er báturinn harðbotna, inn- fluttur frá Noregi og hef- ur fengið nafnið Tanja. Að sögn Kristjáns fer bát- urinn mjög vel með far- þega en alls er rými fyrir sjö farþega og stenst bát- urinn allar öryggiskröfur Siglingamálastofnunar. Nýttur til skoðunarferða Þetta er fyrsti báturinn af þessari tegund á Ís- landi sem er skráður sem farþegabátur en hann verður notaður í útsýn- isferðir við Hellna og Arnarstapa þar sem má finna einhverjar helstu náttúruperlur landsins, fjölbreytt fuglalíf og stór- brotið klettabelti strand- arinnar. Þar að auki má nýta bátinn til að fara hvalaskoðunarferðir en hvalurinn er oft við fjöru- borðið við Arnarstapann. Þá sést Snæfellsjökull frá sjó, oft glæsileg sjón, að sögn Kristjáns, en þangað er gott að sækja sér kraft og innblástur. Á myndinni hér að ofan má sjá Kristján sigla nýja bátnum og fékk ungur piltur, Jakob Alfonsson, að koma með. Blíðviðri var og náttúran naut sín vel, en í baksýn má svo sjá hið fræga fjall Stapafell. Morgunblaðið/Alfons Farþegabáturinn Tanja í útsýnisferðum frá Hellnum Rúnar Kristjánssoná Skagaströnd lasum það í liðinni viku að Kristján Bersi Ólafsson væri á leið í frí vestur á firði og orti: Bersi fer í vesturveg, vill að ýmsu gæta. Megi dvölin dásamleg dug og heilsu bæta. Kirkjuból í Bjarnardal, bærinn góðra versa, gleður alltaf gildan hal, glæðir orku Bersa. Og Rúnar bætir við: Bersi af yndi bestu hresstur brátt mun standa, snúinn heim úr Hvestu hvesstur hvössum anda. Steindór Andersen, formaður Kvæðamanna- félagsins Iðunnar, fór á fund bræðranna Hans Kristjáns Árnasonar og Einars Árnasonar í sól- skinsveðri á Austurvelli og kom í hug: Fjárhag efla mættu meir menntun suma þvingar blankir jafnan bræður tveir báðir hagfræðingar. Af blankheitum og bræðrum pebl@mbl.is Hólmavík | Töluvert hefur verið um gesti á tjaldsvæðinu á Hólmavík það sem af er sumri, þó ekki hafi viðrað sérstaklega vel síðustu vikur. Umsjónarmaður þess býst við mikilli umferð ferðamanna næstu tvær vikur að því er fram kemur á vefnum strandir.is. Tjaldsvæðinu hefur verið mikið hrósað af gestum þetta árið, enda er það vel búið og síðustu vikur hafa starfsmenn hrepps- ins staðið sig afar vel við að ganga frá ýms- um lausum endum. Búið er að setja upp tröppur yfir skjól- garða, snúrur og merkingar. Umsjónar- maður tjaldsvæðisins segir það eitt af þeim bestu á landinu, skjólsælt og vel búið og rétt við hliðina á sundlauginni sem sé ótví- ræður kostur. Sundlaugin hefur reynst vel og er ágætlega sótt Sundlaugin á Hólmavík er einmitt tveggja ára nú um þessar mundir. Laugin hefur reynst afar vel og verið ágætlega sótt á þeim stutta tíma sem hún hefur verið í notkun. Úlfar Heintze Pálsson, umsjónarmaður hennar, segir í samtali við vefinn að gesta- komur í laugina í sumar séu heldur færri en á sama tíma í fyrra, en aðsókn hafi að vísu verið að glæðast síðustu vikur. Úlfar segir að gestirnir láti ætíð mjög vel af heimsókninni í laugina, sem er 25 metra keppnislaug, en auk hennar eru tveir heitir pottar, busllaug og gufubað. Töluverður ferðamanna- straumur Ísafjarðarbær | Bæjaryfirvöldum í Ísa- fjarðarbæ barst á dögunum bréf frá Gáma- þjónustu Vestfjarða þar sem m.a. kom fram að gámaþjónustan væri tilbúin til að ganga til samninga við Ísafjarðarbæ um sorphirðu og gámahreinsun í Ísafjarðarbæ til eins árs ef núverandi verð fyrir þjón- ustuna hækki um 10%, þar sem einungis sé boðið upp á samningstíma til eins árs. Á vef Bæjarins besta segir að fyrirtækið hafi ekki fallist á að ganga til samninga um urðun óbrennanlegs sorps til eins árs. Bæj- arráð samþykkti með tveimur atkvæðum gegn einu að ganga til samninga við fyr- irtækið á grundvelli þessa tilboðs. Oddviti Í-lista bókaði að hann væri mót- fallinn tilboðinu. Vilja sorphirðuna ef verðið hækkar ♦♦♦ Rangárþing ytra | Á aukafundi hreppsnefndar Rangárþings ytra, sem haldinn var á mánudag, var far- ið yfir þær tuttugu umsóknir sem bárust um starf sveitarstjóra. Eftir vandlega skoðun var að endingu komist að þeirri niðurstöðu að ráða til starfsins Örn Þórðarson, sem starfað hefur sem ráðgjafi hjá At- vinnuþróunarsjóði Suðurlands und- anfarin ár. Örn mun taka strax til starfa og kvaðst hann í samtali við fréttaritara Morgunblaðsins hafa mikinn áhuga og hlakka til. Örn býr sem stendur ekki í bænum en reiknað er með að á því verði fljótlega breyting. Örn tekur við starfinu af Guð- mundi Inga Gunnlaugssyni sem hef- ur verið sveitarstjóri á Hellu í sam- fleytt sextán ár. Fyrst var Guðmundur hjá Rangárvallahreppi og síðan hjá Rangárþingi ytra eftir sameiningu þriggja sveitarfélaga á svæðinu. Guðmundur hefur verið ráðinn bæjarstjóri í Grundafirði og var hon- um á fundinum þakkað fyrir sam- starfið á liðnum árum og óskað far- sældar í nýju starfi. Morgunblaðið/Óli Már Aronsson Nýr sveitarstjóri Á aukafundi hreppsnefndar á mánudag var Örn Þórðarson ráðinn sveitarstjóri í Rangárþingi ytra. Hann flytur í bæinn innan skamms. Nýr sveitarstjóri í Rangárþingi ytra

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.